Flower Favors |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklað blóm til skreytinga úr DROPS Muskat. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1606 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Öll mynsturteikningin er lesin í hring frá hægri til vinstri, óháð hvort umferðin sé hekluð frá réttu eða röngu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BLÓM - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá miðju og út, til skiptis frá réttu og frá röngu eftir 2. umferð. Blómið er fyrst heklað með 3 krónblöðum, síðan 5 krónblöðum, síðan 6 krónblöðum og í lokin 8 blöðum í síðustu umferð. BLÓM: Heklið 4 LOFTLYKKJUR – lesið útskýringu að ofan, með heklunál 3 með litnum rauður, granatepli eða vínrauður úr DROPS Muskat og tengið loftlykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Heklið mynsturteikningu A.1 til A.7, eða eins og útskýrt er að neðan: A.1: UMFERÐ 1: 1 loftlykkja, * 1 fastalykkja um loftlykkjuhringinn, 3 loftlykkjur *, heklið frá *-* alls 3 sinnum, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar = 3 loftlykkjubogar. UMFERÐ 2: Heklið um hvern loftlykkjuboga þannig: 1 keðjulykkja, 5 stuðlar, 1 keðjulykkja = 3 blöð. Snúið stykkinu – næsta umferð er hekluð frá bakhlið á blómi. A.2: UMFERÐ 3: 1 loftlykkja, heklið 1 fastalykkju neðst í fyrstu fastalykkju frá 1. umferð, 3 loftlykkjur, heklið 1 fastalykkju um loftlykkjubogann á milli 3. og 4. stuðuls frá fyrsta blaði frá 2. umferð, 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjubogann á milli 1. og 2. stuðuls frá öðru blaði frá 2. umferð, 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjubogann á milli 4. og 5. stuðuls frá öðru blaði frá 2. umferð, 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjubogann á milli 1. og 2. stuðuls frá þriðja blaði frá 2. umferð, 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja, 1 loftlykkja frá byrjun umferðar = 5 loftlykkjubogar. Snúið stykkinu – næsta umferð er hekluð frá framhlið á blómi. A.3: UMFERÐ 4: Heklið um hvern loftlykkjuboga þannig: 1 keðjulykkja, 6 stuðlar, 1 keðjulykkja = 5 blöð. Snúið stykkinu – næsta umferð er hekluð frá bakhlið á blómi. A.4: UMFERÐ 5: 1 loftlykkja, heklið 1 fastalykkju í fyrstu fastalykkju frá 3. umferð, 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjubogann á milli 5. og 6. stuðuls frá fyrsta blaði frá 4. umferð, 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjubogann á milli 4. og 5. stuðuls frá öðru blaði frá 4. umferð, 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjubogann á milli 3. og 4. stuðuls frá þriðja blaði frá 4. umferð, 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftykkjubogann á milli 2. og 3. stuðuls frá fjórða blaði frá 4. umferð, 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjubogann á milli 1. og 2. stuðuls frá fimmta blaði frá 4. umferð, 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í fyrstu loftlykkju frá byrjun umferðar = 6 loftlykkjubogar. Snúið stykkinu – næsta umferð er hekluð frá framhlið á blómi. A.5: UMFERÐ 6: Heklið um hvern loftlykkjuboga þannig: 1 keðjulykkja, 6 stuðlar, 1 keðjulykkja = 6 blöð. Snúið stykkinu – næsta umferð er hekluð frá bakhlið á blómi. A.6: Skiptið yfir í litinn mosagrænn. UMFERÐ 7: 1 loftlykkja, heklið 1 fastalykkju í kringum fyrstu fastalykkju frá 5. umferð, 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjubogann á milli 4. og 5. stuðuls frá fyrsta blaði frá 6. umferð, 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjubogann á milli 3. og 4. stuðuls frá öðru blaði frá 6. umferð, 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjubogann á milli 1. og 2. stuðuls frá þriðja blaði frá 6. umferð, 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjubogann á milli 5. og 6. stuðuls frá þriðja blaði frá 6. umferð, 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjubogann á milli 4. og 5. stuðuls frá fjórða blaði frá 6. umferð, 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjubogann á milli 2. og 3. stuðuls frá fimmta blaði frá 6. umferð, 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjubogann á milli 1. og 2. stuðuls frá sjötta blaði frá 6. umferð, 4 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í fyrstu loftlykkju í byrjun umferðar = 8 loftlykkjubogar. Klippið þráðinn. Heklið 1 blóm til viðbótar á sama hátt, en ekki klippa þráðinn. Haldið áfram að hekla saman í 1 blóm eins og útskýrt er að neðan. A.7: Heklið saman 2 blóm um einn loftlykkjuboga frá hvoru blómi. Leggið saman bæði blómin með röngu á móti röngu. Notið þráðinn frá fyrri umferð á síðasta blómi til að hekla síðustu umferð frá réttu eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.7, eða eins og útskýrt er að neðan. Fyllið með smá vatti eða afgangsgarni áður en síðasta blaðið er heklað. UMFERÐ 8: Heklið um hvern loftlykkjuboga þannig: 1 keðjulykkja, 3 stuðlar, 1 picot (= 2 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í fyrstu af 2 loftlykkjum), 3 stuðlar, 1 keðjulykkja = 8 blöð. Klippið frá og festið enda. Festið silkiborða í eitt blað fyrir lykkju. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (2)
Martina Krahl wrote:
Wie kann ich die Anleitungen auf meinem Handy speichern?
18.12.2023 - 08:22Naomi wrote:
Klein detail. Op het einde van de op een na laatste zin van A2 staat: "1 vaste om de lossenlus tussen het 1e en 2e stokje op het tweede bloemblaadje van toer". Ik denk dat '2e' hier '3e' moet zijn (de vasten in het 2e blaadje zijn al gehaakt) en dat op het einde van de zin 'toer 2' zou moeten staan (de 2 is weggevallen).
11.12.2023 - 13:14