Jacqueline Cardigan |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Safran eða 1 þræði DROPS Paris. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í perluprjóni, ísaumuðum puffermum og með vösum. Stærð S - XXXL.
DROPS 250-29 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið fram að merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkju með merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat (= 2 lykkjur fleiri). Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar inn í mynstur. HNAPPAGAT: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir kant að framan, eru gerð 6-6-6-7-7-7 hnappagöt í hægra framstykki með því að hoppa fram um ½ cm á framstykki og slá 1 sinni uppá prjóninn, hnappagötin skiptast þannig: Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu 6-7-8-4-5-6 cm frá neðri kanti á peysu og gerið hnappagötin með ca 6-6-6-5-5-5 cm millibili – síðasta hnappagatið er ca 1 cm undir kanti í hálsmáli. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp að handveg. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvert stykki er prjónað hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp og prjónað er í hring fram að handvegi, síðan er ermin prjónuð til loka fram og til baka. Stykkin eru saumuð saman. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram framstykkjum og í kringum hálsmál, prjónaður er kantur að framan / kantur í hálsmáli fram og til baka. Í lokin eru prjónaðir 2 vasar sem saumaðir eru á framstykkin. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 177-193-209-229-249-269 lykkjur á hringprjón 4,5 með 2 þráðum DROPS Safran eða 1 þræði DROPS Paris í litnum natur. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN fram og til baka – lesið útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Nú eru sett 2 merki í stykkið, þetta er gert frá réttu og án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru notuð þegar lykkjum er fækkað í hliðum á fram- og bakstykki: Teljið 45-49-53-58-63-68 lykkjur (= framstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 85-93-101-111-121-131 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, það eru eftir 45-49-53-58-63-68 lykkjur á eftir síðasta merki (= framstykki). Látið merkin fylgja með í stykkinu. Skiptið yfir í 2 þræði DROPS Safran í litnum eyðimerkurrós eða 1 þræði DROPS Paris í litnum púðurbleikur og prjónið MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan: Prjónið A.1 (perluprjón) fram og til baka yfir allar lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu, fækkið um 2 lykkjur í hvorri hlið þannig: Prjónið fram að 1 lykkju á undan fyrri merkiþræði, prjónið 3 lykkjur slétt saman eða 3 lykkjur brugðið saman – stillið af eftir mynstri og haldið merki hringinn á þessari lykkju, fækkið lykkjum á sama hátt við næsta merki (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverjum 6-4-4-4-4-4 cm alls 3-4-4-4-4-4 sinnum = 165-177-193-213-233-253 lykkjur. Haldið áfram að prjóna perluprjón þar til stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm. Nú skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki. SKIPTING FYRIR FRAMSTYKKI OG BAKSTYKKI: Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 39-41-43-47-50-54 lykkjur (= framstykki), fellið af næstu 7-9-13-15-19-21 lykkjur fyrir handveg (lykkja með merki situr í miðju á þessum), prjónið 73-77-81-89-95-103 lykkjur (= bakstykki), fellið af næstu 7-9-13-15-19-21 lykkjur fyrir handveg (lykkja með merki situr í miðju á þessum) og prjónið síðustu 39-41-43-47-50-54 lykkjur (= framstykki). Framstykkin og bakstykkið er prjónað til loka hvert fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 39-41-43-47-50-54 lykkjur. Haldið áfram með A.1 fram og til baka eins og áður, það á að fella af fyrir handveg jafnframt því sem fellt er af fyrir hálsmáli. Lestu því allan næsta kafla áður en þú prjónar áfram. Fellið af lykkjur í hlið fyrir handveg í annarri hverri umferð: Fellið af 2 lykkjur 1-1-1-2-2-3 sinnum, 1 lykkju 2-3-4-5-7-8 sinnum. Síðan er fellt af fyrir handveg í 4. hverri umferð þannig: Fellið af 1 lykkju 2-2-2-2-2-2 sinnum = 33-34-35-36-37-38 lykkjur eftir. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm, fellið af lykkjur fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 12-12-12-12-12-12 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni, 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni og 1 lykkja 4-4-5-5-6-6 sinnum = 14-15-15-16-16-17 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. BAKSTYKKI: = 73-77-81-89-95-103 lykkjur. Haldið áfram með A.1 fram og til baka eins og áður og fellið af lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-1-1-2-2-3 sinnum, 1 lykkja 2-3-4-5-7-8 sinnum. Síðan eru lykkjur felldar af fyrir handveg í 4. hverri umferð þannig: Fellið af 1 lykkju 2-2-2-2-2-2 sinnum = 61-63-65-67-69-71 lykkjur. Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm, fellið af miðju 29-29-31-31-33-33 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. ÖXL: = 16-17-17-18-18-19 lykkjur. Haldið áfram með A.1 og fellið síðan af 2 lykkjur fyrir hálsmáli 1-1-1-1-1-1 sinni = 14-15-15-16-16-17 lykkjur. Prjónið síðan eins og áður þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af. ERMAR: Ermin er prjónuð í hring. Fitjið upp 43-45-47-49-51-53 lykkjur á hringprjón / sokkaprjóna 4,5 með 2 þráðum DROPS Safran eða 1 þræði DROPS Paris í litnum natur. Setjið eitt merki í fyrstu lykkju í byrjun umferðar (= mitt undir ermi) og látið merkið fylgja áfram með í stykkinu, merkið er notað þegar auka á út undir ermi. Prjónið 4 umferðir garðaprjón, síðan 1 umferð slétt. Skiptið yfir í 2 þræði DROPS Safran í litnum eyðimerkurrós eða 1 þráð DROPS Paris í litnum púðurbleikur og prjónið A.1 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar ermin mælist 4-7-8-7-6-5 cm, aukið út 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki – lesið ÚTAUKNING! Aukið svona út í hverjum 3-2½-2-2-2-2 cm alls 14-14-16-16-16-16 sinnum = 71-73-79-81-83-85 lykkjur. Prjónið A.1 þar til ermin mælist 45-44-43-41-40-38 cm. Nú er ermakúpan prjónuð eins og útskýrt er að neðan. ERMAKÚPA: Í næstu umferð eru felldar af 7-9-13-15-19-21 lykkjur mitt undir ermi (lykkja með merki í situr í miðju á þessum lykkjum, þ.e.a.s. byrjið affellingu 3-4-6-7-9-10 lykkjur á undan merki) = 64-64-66-66-64-64 lykkjur. Prjónið stykkið til loka fram og til baka eins og áður, JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir ermakúpu þannig: Fellið af 1 lykkju í hvorri hlið í 2-3-4-5-6-8 hverri umferð þar til ermin mælist 55-55-56-56-57-57 cm = ca 34-42-46-48-48-50 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = ca 17-21-23-24-24-25 lykkjur. Fellið af. Ermin mælist ca 55-55-56-56-57-57 cm. FRÁGANGUR-1: Saumið axlasauma. Saumið ermi við handveg – allt umfram efni safnast saman í miðju ofan á erminni. KANTUR AÐ FRAMAN / KANTUR Í HÁLSMÁLI: Setjið 1 merki mitt aftan í hnakka á bakstykki. Notið hringprjón 4,5 og 2 þræði DROPS Safran í litnum eyðimerkurrós eða 1 þráð DROPS Paris í litnum púðurbleikur. Prjónið upp lykkjur frá réttu yfir bleiku lykkjurnar meðfram framstykkjum og í kringum kant í hálsmáli þannig: Byrjið neðst á hægra framstykki og prjónið upp innan við 1 lykkju ca 65-66-68-70-72-74 lykkjur (ásamt uppslætti frá hnappagötum) meðfram framstykki og upp að kanti í hálsmáli JAFNFRAMT því sem hnappagöt eru gerð – lesið HNAPPAGAT að ofan, prjónið síðan upp ca 95-97-103-105-111-113 lykkjur í kringum kant í hálsmáli – passið uppá að það séu jafn margar lykkjur hvoru megin við merki mitt að aftan, prjónið síðan upp ca 65-66-68-70-72-74 lykkjur innan við 1 lykkju meðfram vinstra framstykki niður að kanti = ca 225-229-239-245-255-261 lykkjur (= lykkjufjöldinn jafngildir ca 18 lykkjum fyrir hverja 10 cm meðfram kanti). Skiptið yfir í 2 þræði DROPS Safran eða 1 þráð DROPS Paris í litnum natur, prjónið fram og til baka þannig: UMFERÐ 1: Byrjið frá réttu (= neðst á hægra framstykki) með að prjóna upp 2 lykkjur í kant í litnum natur í garðaprjóni neðst á fram- og bakstykki, prjónið garðaprjón út umferðina, endið með að prjóna upp 2 lykkjur í kant í garðaprjóni neðst á fram- og bakstykki = ca 229-233-243-249-259-265 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið slétt JAFNFRAMT er slegið 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við lykkju í skiptingunni á milli kants að framan og kants í hálsmáli, uppslátturinn er gerður til að skiptinginn verði ekki of stíf (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 5 (= rétta): Fellið af, uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja. VASI: Fitjið upp 19-21-23-25-29-31 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með 2 þráðum DROPS Safran eða 1 þræði DROPS Paris í litnum natur. Prjónið garðaprjón fram og til baka í 9-10-11-12-14-15 cm, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 9-10-11-12-14-15 lykkjur slétt, takið síðan upp miðju sléttu lykkjuna í stykkinu ca 2 cm upp frá uppfitjunarkanti og setjið hana í umferð (það á að myndast smá faldur), prjónið síðan 2 lykkjur slétt saman og prjónið slétt út umferðina. Haldið áfram að prjóna garðaprjón fram og til baka þar til vasinn mælist 11-12-13-14-16-17 cm mælt meðfram hlið. Fellið af. Prjónið annan vasa til viðbótar á sama hátt. Saumið einn vasa mitt á hvort framstykki ca 7-7-8-8-8-9 cm frá neðri kanti á peysu – sjá mynd. FRÁGANGUR-2: Saumið tölur meðfram kanti að framan á vinstra framstykki. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (12)
Marie-france ALTMAYER wrote:
Bonjour Malgré la correction de la manche, j'ai encore un problème pour la tète de manche de ma taille, il faudrait 11 cm de jersey depuis l'ouverture ors je ne vois pas de jersey sur les photos ? Merci par avance Marie-France
14.04.2024 - 09:01DROPS Design answered:
Bonjour Mme Altmayer, effectivement, je remonte l'info à qui de droit, merci pour votre retour; continuez au point de riz comme avant. Bon tricot!
15.04.2024 - 07:54Robi wrote:
Buongiorno,nelle spiegazioni della lavorazione delle maniche compare questa frase:continuare a maglia rasata fino a quando la manica misura... Non è maglia a grana di riso?
21.03.2024 - 08:55DROPS Design answered:
Buonasera Robi, grazie per la segnalazione: il modello è stato aggiornato. Buon lavoro!
03.04.2024 - 20:10Gunilla Hamel wrote:
I mönstret står det ”slätstickning” på ärmen, före ärmkullen. Varför? Ser inte så ut på bilden. Ser ut som mosstickning hela vägen
19.03.2024 - 14:21DROPS Design answered:
Hej Gunilla. Ja du har rätt, det ska vara mosstickning där med, det kommer en rättelse på detta. Mvh DROPS Design
20.03.2024 - 09:50Else Merete Thyness wrote:
Kjempefin
04.03.2024 - 09:25Alicja wrote:
Jacqeline
27.02.2024 - 17:17Hanna wrote:
Raspberry cake
21.01.2024 - 16:13Maria Roshed Sandström wrote:
Classy in pink
21.01.2024 - 08:53Élysées wrote:
Pakistan chic
20.01.2024 - 18:52Lalanne wrote:
Jackie Kennedy
20.01.2024 - 11:06Erin Gabriel wrote:
Coco in Paris
19.01.2024 - 14:00