DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5500.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Fish Tales

Prjónuð peysa fyrir börn með áferðamynstri úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Stærð 3-14 ára.

DROPS Children 7-5
DROPS design: Modell nr X-006-bn
Garnflokkur C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ: 3/4-5/6-7/8 (9/10-11/12-13/14) ára

EFNI:
DROPS Alaska frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
500-550-550(550-600-650) gr litur nr 37, blár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.

PRJÓNFESTA:
17 lykkja á breidd og 22 umferðir á hæð með mynstri = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5500.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.
Mynstur á fram- og bakstykki: M.1, 6-7-7,5 (7,5-8-8,5) cm af M.2, M.1, 6-7-7,5 (7,5-8-8,5) cm af M.2, M.1, 6-7-7,5 (7,5-8-8,5) cm af M.2, M.1, fellið af.

STROFF:
* 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig frá handvegi. Í lokin eru ermar saumaðar við handveg og hálsmál prjónað í hring á stuttan hringprjón.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 136-144-152 (168-176-184) lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Alaska og prjónið 2 umferðir sléttprjón og eftir það STROFF – sjá útskýringu að ofan þar til stykkið mælist 4-4-4 (5-5-5) cm. Skiptið yfir á hringprjón 5, prjónið sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 17-17-20,5 (22,5-23-24,5) cm, prjónið MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 29-31-34 (35-36-38) cm skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki sem er prjónað hvort fyrir sig til loka.

FRAMSTYKKI:
= 68-72-76 (84-88-92) lykkjur. Haldið áfram að prjóna mynstur. Þegar stykkið mælist 41-44-49 (50-52-54) cm fellið af miðju 24-24-26 (22-24-24) lykkjur fyrir hálsmáli. Fellið áfram lykkjur af við hálsmál í 2. hverri umferð: 2 lykkjur 1 sinni, 1 lykkja 1 sinni. Fellið af eftir mynstri, sjá útskýringu að ofan. Stykkið mælist ca 45-48-53 (55-57-60) cm.

BAKSTYKKI:
= 68-72-76 (84-88-92) lykkjur. Haldið áfram að prjóna mynstur. Þegar stykkið mælist 43-46-51 (53-55-58) cm fellið af miðju 26-26-28 (24-26-26) lykkjur fyrir hálsmáli. Fellið af 2 lykkjur í hvorri hlið í næstu umferð við hálsmál. Fellið af eftir mynstri, sjá útskýringu að ofan. Stykkið mælist ca 45-48-53 (55-57-60) cm.

ERMI:
Fitjið upp 30-32-32 (34-34-36) lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með DROPS Alaska og prjónið 2 umferðir sléttprjón og eftir það STROFF – sjá útskýringu að ofan þar til stykkið mælist 4-4-5 (5-5-5) cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5, prjónið sléttprjón og aukið út um 4-6-8 (6-8-6) lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 34-38-40 (40-42-42) lykkjur. JAFNFRAMT eftir stroff er aukið út mitt undir ermi: 2 lykkjur 10-10-12 (14-15-16) sinnum í stærð ¾ ára: Til skiptis í 3. og 4. hverri umferð, í stærð 5/6+7/8+9/10+11/12+13/14 ára: Til skiptis í 4. og 5. hverri umferð = 54-58-64 (68-72-74) lykkjur. Þegar stykkið mælist 15-18-21,5 (24,5-27-29,5) cm prjónið M.1 og eftir það 6-7-7,5 (7,5-8-8,5) cm af M.2 JAFNFRAMT því sem stykkið mælist 21,5-24,5-28,5 (31,5-34,5-37,5) cm er prjónuð ermakúpa þannig: Setjið 4 lykkjur mitt undir ermi á þráð. Setjið eftir það lykkjur á þráð í hvorri hlið í 2. hverri umferð: 8 lykkjur 2 sinnum. Eftir það eru allar lykkjur settar til baka á prjóninn og prjónið M.1. Fellið af eftir M.1. Stykkið mælist ca 26-30-34 (37-40-43) cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma, saumið ermar í.

HÁLSMÁL:
Takið upp ca 72-84 lykkjur í kringum hálsmál á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 3,5 og prjónið 2 umferðir brugðið, 4-4-5 (5-6-6) cm stroffprjón með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið og eftir það 2 umferðir sléttprjón, fellið af.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 7-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (36)

country flag Cécile wrote:

Je ne comprends pas comment procéder pour le haut de la manche. ..comment utiliser le porte-maille? (2mailles de chaque côté, tricoter aller-retour, puis 8 mailles)

10.05.2024 - 15:36

DROPS Design answered:

Bonjour Cécile, quand vous avez mis en attente 4 mailles sous la manche (= 2 mailles de chaque côté du milieu sous la manche), continuez en allers et retours et mettez en attente les 8 premières mailles au début des 4 rangs suivants (= 2 x 8 mailles + 1 x 2 mailles en attente de chaque côté). Bon tricot!

10.05.2024 - 16:38

country flag Ida wrote:

I am having trouble with these instructions….shape the sleeve cap as follows: put 2 sts on each side of the marker on a holder. Knit the sleeve cap back and forth on the needle placing sts at each edge on a holder every other row as follows: 8 sts 2 times. Then put all sts back on needle and knit Pattern 1.

03.04.2024 - 20:42

DROPS Design answered:

Dear Ida, When you knit the upper part of the sleeve, you knit back and forth, and while doing that, at the beginning of each row, you put the number of stitches described on a stitch-holder (after you knitted them). Then you put all the stitches back to the circular needle, and continue with the pattern. I hope this helps. Happy Knitting!

03.04.2024 - 23:20

country flag Linda Mccoy wrote:

When sewing in the Sleeve s is it done from wrong side or right side?

16.01.2023 - 21:37

DROPS Design answered:

Dear Mrs Mccoy, sleeves are generally sewn from right side - see this video. Happy assembly!

17.01.2023 - 10:12

country flag Linda Mccoy wrote:

Hello and Happy New year. This has got to be the worst pattern to follow. I have been reading patterns 50 yrs. I have never had a pattern that has stumped me like this one. I realise that this has been translated from another language. However maybe someone should rewrite it so people can understand what the pattern is saying. Thank you

04.01.2023 - 19:59

country flag Lisa Hertel wrote:

Does this cap take place under the arm? i cannot figure this out. I have knitted this portion of the pattern 3 times. the graphic does not show a cap for shoulder it looks straight across. again may i ask what is the purpose of this?

19.12.2022 - 15:43

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hertel, this portion is the sleeve cap, is you will work short rows (leaving first 2 sts 1 time then 8 sts 2 times unworked on each side of mid under sleeve, ie the first 2+8+8 sts from mid under sleeve and the last 2-8-8 sts towards mid under sleeve (the middle 36 sts under sleeve the sleeve are on a thread, 16 sts on each side of mid under sleeve) - chart is just standard and just don't show this sleeve cap. Hope it can help. Happy knitting!

19.12.2022 - 15:59

country flag Lisa Hertel wrote:

I followed the directions given to Mrs. Frew. The pattern was askew and the work was done under the arm. If it is a cap, shouldn't it be on the top near the shoulder? I am very confused

18.12.2022 - 19:16

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hertel, please let us know if the previous answer could help you or if you need more information.

19.12.2022 - 09:40

country flag Lisa Hertel wrote:

I have tried knitting the sleeve cap according to the directions. When that didn't work, I went to the comments section and saw someone else asked a similar question. I followed those directions which included short rows (although no where in the pattern does it say to use short rows). That didn't work either because the pattern was askew, I am writing to you for a better and in depth explanation of the sleeve cap. I have invest a lot of time and money and would hate to rip it out.

18.12.2022 - 18:09

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hertel, to shape the sleeve cap you will work: work the first 8 sts at the beg of the next row and slip them on a thread, work to the end of the row, turn, work the first 8 sts at the beg of the row and slip them on a thread, work to the end of the row. Repeat these 2 rows one more time (16 sts on the thread on each side + the 4 sts mid under sleeve), cut the yarn after the last row. Now put all stitches back on needle and work diagram M.1 over all stitches starting on middle under sleeve as before. Happy knitting!

19.12.2022 - 09:39

country flag Catherine wrote:

To shape the sleeve, do I put 2 stitches on either side of the marker on a holder, then follow pattern to the end of the row. Then on the next row, add 8 stitches to one of the holders with 2 stitches (making 10 stitches on that holder), then follow pattern to end of row. At the beginning of the next row add 8 stitches to the other holder, making 10 stitches on that holder and knit to the end of the row. Then add back all held stitches, knit M1 then cast off?

10.09.2022 - 19:32

DROPS Design answered:

Dear Catherine, work the stitches before slipping them on the thread, ie work 2 sts at the beg of the round and slip them on a thread, work to the end of the round, turn, work the first 2 sts and slip them on a thread, continue the row to the end, turn, work the first 8 sts and slip them on a thread, finish row, turn work the first 8 sts and slip them on a thread and repeat these 2 rows one more time (= there are 2+8+8 sts on a thread on each side of the middle of sleeve =34 sts in total on the thread) then work all stitches again. Happy knitting!

12.09.2022 - 09:52

country flag Catherine Frew wrote:

Thank you.for your last reply. I am following your guidance. I am knitting size 3-4 years. Over 68 stitches on row 2 of the pattern (wrong side) k2, P2 (knitting for purl and purling for knit) ends with two purls, which are knits on the right side, meaning that I am not purling into purls on Row 3 of the pattern (right side) as I should be. Can you advise how I should proceed?

28.06.2022 - 18:42

DROPS Design answered:

Dear Mrs Frew, the pattern will not be symmetrical here, your number of sts is divisible by 4, if you start with K2, P2 ending with P2 from WS, work now from WS starting either with P2 (if you have to work now like a row 3) or K2 (if you have now to work a row like a row 2). Happy knitting!

29.06.2022 - 09:04

country flag Catherine Frew wrote:

Hello. I have started the sweater and will shortly need to divide front and back and continue knitting the front on the flat. Will pattern 2 be the same when I'm working on the flat? I understand that stockinette and reverse stockinette will be different from working in the round, but wanted to check about Pattern 2. Also, do I measure from the top of the rib for the length before dividing? I wish there was a video for dividing front and back when working in the round. Thanks. Catherine

25.06.2022 - 17:05

DROPS Design answered:

Dear Catherine, yes, M.2 is worked differently than in the round. The symbol for K is knitted in a row on the RS and purled in a row on the WS. The symbol for P is purled in a row on the RS and knitted in a row on the WS. To measure when to divide, you measure from the cast on edge. To divide for the front and back, split the stitches in half and mark the sides with marker stitches. Leave one half in an extra needle or thread and work the other half up to their final measurement. Then slip the half that was left in the thread back to the needles and work it. Happy knitting!

26.06.2022 - 13:35