Sweet Smile |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með gatamynstri og blúndu, húfa og sokkar. Stykkið er prjónað úr DROPS Safran.
DROPS Baby 1-8 |
|||||||
PEYSA: KANTUR: Prjónið 2 cm sléttprjón, næsta umferð er prjónuð þannig: 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= uppábrot – héðan er nú mælt), 2 cm sléttprjón. BLÚNDA: 13 lykkjur. UMFERÐ 1 og allar umferðir á röngu: 2 lykkjur slétt, prjónið brugðið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 2: Takið 1 lykkju óprjónaða, 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 4: Takið 1 lykkju óprjónaða, 4 lykkjur slétt, takið 1 lykkju óprjónaða, 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, 2 lykkjur slétt (uppsláttur, 2 lykkjur slétt saman) - endurtakið 2 sinnum, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 6: Takið 1 lykkju óprjónaða, 3 lykkjur slétt, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, 2 lykkjur slétt (uppsláttur, 2 lykkjur slétt saman) – endurtakið 2 sinnum, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 8: Takið 1 lykkju óprjónaða, 2 lykkjur slétt, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, 2 lykkjur slétt (uppsláttur, 2 lykkjur slétt saman) – endurtakið 2 sinnum, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 10: Takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, 2 lykkjur slétt (uppsláttur, 2 lykkjur slétt saman) – endurtakið 2 sinnum, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 12: 1 lykkja slétt, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 14: Takið 1 lykkju óprjónaða, (3 lykkjur slétt, uppsláttur) – endurtakið 2 sinnum, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt. Endurtakið 1-14 umferð. ---------------------------------------------------------- PEYSA: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 130-140 (150-168) lykkjur á hringprjón 2,5 með hvítur og prjónið KANTUR – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið M.1 JAFNFRAMT því sem fækkað er um 10-8 (6-0) lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 120-132 (144-168) lykkjur. Þegar stykkið mælist 11-12 (13-15) cm prjónið þannig: 28-31 (34-39) lykkjur framstykki, fellið af 4-4 (4-6) lykkjur fyrir handveg, 56-62 (68-78) lykkjur bakstykki, fellið af 4-4 (4-6) lykkjur fyrir handveg, 28-31 (34-39) lykkjur framstykki. Hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 28-31 (34-39) lykkjur. Haldið áfram með mynstur. Fækkið lykkjum fyrir handvegi 1 lykkju 2-2 (3-3) sinnum í 2. hverri umferð = 26-29 (31-36) lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-19 (21-24) cm fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í 2. hverri umferð 6-7 (9-10) lykkjur 1 sinni, 1 lykkja 7 sinnum. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru fyrir öxl þegar stykkið mælist 24-26 (28-31) cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið eins og vinstra framstykki. BAKSTYKKI: = 56-62 (68-78) lykkjur. Haldið áfram með mynstur. Fækkið lykkjum fyrir handvegi í hvorri hlið með 1 lykkju 2-2 (3-3) sinnum í annarri hverri umferð =52-58 (62-72) lykkjur. Þegar stykkið mælist 23-25 (27-30) cm fellið af 22-24 (28-30) lykkjur við miðju að aftan við háls. Fækkið lykkjum hvoru megin við háls 1 lykkju 2 sinnum í annarri hverri umferð. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru fyrir öxl þegar stykkið mælist 24-26 (28-31) cm. ERMI: Fitjið upp 38-40 (40-42) lykkjur á prjón 2,5 og prjónið KANTUR. Skiptið yfir á prjón 3 og prjónið M.1 JAFNFRAMT er aukið út um 8-8 (8-8) lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 46-48 (48-50) lykkjur. Aukið áfram út um 1 lykkju hvoru megin innan við 1 kantlykkju 1 lykkja 8-10 (12-13) sinnum í 5 hverri umferð = 62-68 (72-76) lykkjur. Þegar stykkið mælist 16,5-20 (22-24) cm fækkið um 3 lykkjur hvoru megin fyrir ermakúpu og fækkið lykkjum áfram í hvorri hlið 5 lykkjur 2-3 (3-3) sinnum í annarri hverri umferð. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru þegar stykkið mælist 18-22 (24-26) cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. VINSTRI KANTUR: Takið upp ca 40-50 lykkjur meðfram vinstra framstykki og prjónið kant. HÆGRI KANTUR: Prjónið eins og vinstri, en eftir 1 cm er fellt af fyrir 4 hnappagötum jafnt yfir – 1 hnappagat = fellið af 2 lykkjur og aukið út um 2 lykkjur í næstu umferð. Fellið einnig af fyrir hnappagötum á eftir kanti í hálsi, fellið af. Brjótið allan kantinn að röngu og saumið niður. KRAGI: Fitjið upp 13 lykkjur á prjón 3. Prjónið ca 70 cm BLÚNDA – sjá útskýringu að ofan, fellið af – stillið af eftir mynstri. Takið upp ca 120 lykkjur meðfram kanti á blúndu = kragi á prjón 2,5 og prjónið 1 cm sléttprjón jafnframt því sem lykkjum er fækkað jafnt yfir í 1 umferð til ca 80 lykkjur, eftir það er næsta umferð prjónuð þannig: * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið nú 1 cm sléttprjón, fellið af. Brjótið kantinn saman tvöfaldan um kant á peysu og saumið niður (ath: passið uppá að draga aðeins í kantinn þegar hann er saumaður á yfir bakstykki, þannig situr hann betur). Saumið ermasauma og saumið ermar í búk í ystu lykkju svo að saumurinn verði ekki þykkur. ---------------------------------------------------------- SOKKAR: 1 rönd: * 1 umferð sléttprjón með röngu út, 1 umferð sléttprjón* Fitjið upp 30-35 (40-40) lykkjur á prjón 3 með hvítur og prjónið 2 rendur. Eftir það er M.2 prjónað þar til stykkið mælist 7-8 (8-9) cm. Prjónið nú 1 umferð sléttprjón, næsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, 2 umferðir sléttprjón. Prjónið til loka í sléttprjóni. HÆLL: Prjónið 3-4 (4-4) cm sléttprjón fram og til baka yfir 18 lykkjur frá miðju að aftan. HÆLÚRTAKA (1. umferð frá réttu): UMFERÐ 1: prjónið 10 lykkjur slétt, 2 lykkjur snúnar slétt saman, 1 lykkja slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 2: Takið 1 lykkju óprjónaða, 4 lykkjur brugðnar, 2 lykkjur brugðnar saman, 1 lykkja brugðin, snúið stykkinu. UMFERÐ 3: Takið 1 lykkju óprjónaða, 5 lykkjur slétt, 2 lykkjur snúnar slétt saman, 1 lykkja slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 4: Takið 1 lykkju óprjónaða, 6 lykkjur brugðnar, 2 lykkjur brugðnar saman, 1 lykkja brugðin, snúið stykkinu. UMFERÐ 5: Takið 1 lykkju óprjónaða, 7 lykkjur slétt, 2 lykkjur snúnar slétt saman, 1 lykkja slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 6: Takið 1 lykkju óprjónaða, 8 lykkjur brugðnar, 2 lykkjur brugðnar saman, 1 lykkja brugðin, snúið stykkinu UMFERÐ 7: 2 lykkjur slétt saman, 8 lykkjur slétt, 2 lykkjur snúnar slétt saman = 10 lykkjur á prjóni. Takið upp 7-8 (9-9) lykkjur hvoru megin við hæl og setjið allar lykkjur á sama prjón = 36-43 (50-50) lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni jafnframt því sem fækkað er um 1 lykkju 3-4 (4-4) sinnum í hverri umferð í hvorri hlið við efstu 12-17 (22-22) lykkjurnar = 30-35 (42-42) lykkjur. Þegar allur fóturinn mælist 7-8 (9-11) cm (frá byrjun á hælúrtöku) er sett eitt prjónamerki í hvora hlið. Fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við prjónamerki (4 lykkjur færri í hverri úrtökuumferð) 1 lykkja 6-7 (8-8) sinnum til skiptis * í hverri og annarri hverri umferð * = 6-7 (10-10) lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og saumið saman. Þræðið silkiborða í gataumferð. Prjónið annan sokk alveg eins. ---------------------------------------------------------- HÚFA: KANTUR: 2 cm sléttprjón, eftir það eru næstu umferðir prjónaðar þannig: * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn * (uppábrot, héðan er nú mælt), 2 cm sléttpjón. Fitjið upp 72-84 (96-96) lykkjur á prjón 2,5 og prjónið KANTUR – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á prjón 3 og prjónið M.1. Þegar stykkið mælist 15-17 (18-18,5) cm fellið af 24-26 (32-32) lykkjur í hvorri hlið. Haldið áfram með M.1 yfir miðju 24-32 (32-32) lykkjurnar. Fellið af þegar stykkið mælist 25-28 (30-32) cm. FRÁGANGUR: Saumið saman stykkin aftan á húfu. Brjótið uppá kantinn tvöfalt saman að röngu og saumið. Takið upp ca 100 lykkjur í kringum neðri kant á húfu (einnig yfir KANTUR) á prjón 2,5 og prjónið 2 umferðir sléttprjón. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið 1 umferð sléttprjón, 1 umferð sléttprjón með röngu út, fellið af. Þræðið silkiborða í gataumferð. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (42)
Esther wrote:
DROPS Baby 1-8 DROPS design: Modello n° Ø-007-by Buonasera non capisco come è dove fare le asole visto che il bordo è doppio nel cardigan Grazie Esther
01.06.2023 - 20:36DROPS Design answered:
Buongiorno Ester, deve lavorare le asole sul bordo destro a 1 cm dal bordo a intervalli regolari. Alla fine del bordo lo piega come indicato. Buon lavoro!
02.06.2023 - 12:26Martina Schmidt wrote:
Danke für die neue Übersetzung. Ein Fehler ist noch, aber dann klappt der Kragen bestens. Fehler in 4. Reihe: …. 1. Umschlag- 2 Maschen re. zusammen stricken - 1 Umschlag- 2Maschen re. stricken LG M. Schmidt
29.04.2023 - 18:54Martina Schmidt wrote:
Hallo, die Spitzenanleitung klappt einfach überhaupt nicht. Da manches Mal „Masche abheben oder abnehmen steht, ist es sehr unverständlich. Überarbeitung? LG M. Schmidt
27.04.2023 - 17:27DROPS Design answered:
Liebe Martina, die Spitzenkante wurde neu übersetzt, nun ist es hoffentlich verständlicher. Sollten noch Fragen sein, melden Sie sich gerne wieder. Gutes Gelingen nun!
28.04.2023 - 10:38Gaby Gröpl wrote:
Vielen Dank, ich hätte einen Denkfehler! 🙈
19.03.2022 - 16:03Gabriele Gröpl wrote:
Ich verstehe das Ende der Anleitung für die Socken nicht. Wird bis zum Ende immer nur hin und zurück gestrickt? Und was heißt im vorletzten Satz: bei jeder und jeder? Fehlt da etwas?
16.03.2022 - 00:01DROPS Design answered:
Liebe Frau Gröpl, Socken werden in der Runde gestrickt, dann Fersen wird hin und zurück gestrickt, dann Fuss wird in der Runde bis zur Ende gestrickt. Für die Spitze wird es abwechslungsweise in jeder Runde und in jeder 2. Runde abgenommen (= 1 Runde mit Abnahmen, 1 Runde ohne Abnahmen, 1 Runde mit Abnahmen => diese 3 Runden wiederholen bis 6-7 (10-10) Maschen übrig sind. Viel Spaß beim stricken!
16.03.2022 - 09:40Tonya Hill wrote:
Where is the rib pattern like in the picture for the edging of the baby jacket? It just says do a hem in stocking st. I am confused
24.07.2021 - 16:21DROPS Design answered:
Dear Tonya, that is not a ribbing, but a turned up edging, that has a yo / K2tog at the foldong like, that forms the picot edging. Happy Stitching!
25.07.2021 - 01:32Sandra wrote:
I'm sorry, my question somehow ended up beneath the wrong pattern. I will try to repost (and clarify) under the correct pattern because your answer of course doesn't match my confusion...
01.03.2021 - 10:25Sandra wrote:
Ich verstehe die Anleitung für die Spitze nicht, ich versuche es jetzt schon zum dritten Mal, und die Maschenzahl kommt nicht hin, weder in der 4. Reihe noch am Ende, da habe ich nicht mehr genug Maschen. Kann mir jemand helfen?
28.02.2021 - 08:43DROPS Design answered:
Liebe Sandra, Sie haben vor der Spitze 30-35-42-42 Maschen, dann nehmen Sie für die Spitze 4 Maschen in jeder 2. Reihe insgesamt 6-7-8-8-8 Mal (= 24-28-32-32 Maschen werden insgesamt abgenommen) = 6-7-10-10 Maschen bleiben noch übrig. Kann das Ihnen helfen? Viel Spaß beim stricken!
01.03.2021 - 09:21Alica007 wrote:
Hi, could you pls explain what does that means: work 1 cm in stocking stand Thanks, Alica
08.08.2019 - 18:56DROPS Design answered:
Dear Alica007, you'vd to work 1 cm in stockinette stitch, i.e. knit all rounds if you're working in round, or knit one row and purl the other row, if you're working flat. Happy crafting!
08.08.2019 - 19:14Alica007 wrote:
Hi, I will knit a jacket. I understand all, except when should I start lace pattern? Does jacket has lace pattern or is it whole done only in M1? Thanks and regards Alica
16.07.2019 - 07:59DROPS Design answered:
Dear Alica007, the lace pattern (explained at the beg of the pattern) will be used for collar - see under Assembly - M1 will be worked on the jacket, it's the larger diagram, worked over 12 sts. Happy knitting!
16.07.2019 - 09:28