Lille Trille |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með hringlaga berustykki og köðlum, húfa með dúsk, vettlingar og sokkar úr DROPS Alpaca. Stærð 1 - 3 ára.
DROPS Baby 14-2 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 til M.3. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu þannig: Prjónið 2. og 3. l frá kanti slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn (í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt). Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist: STÆRÐ 1/3 mán: 5, 12, 19 og 26,5 cm. STÆRÐ 6/9 mán: 7, 14, 21 og 28,5 cm. STÆRÐ 12/18 mán: 8, 16, 24 og 32,5 cm. STÆRÐ 2/3 ára: 9, 16, 23, 30 og 37,5 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 179-199-213 (246) l (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 6 umf garðaprjón (umf 1 = rétta), prjónið nú 1 umf sléttprjón, þær 5 kantlykkjur í hvorri hlið halda áfram í garðaprjóni til loka – JAFNFRAMT í þessari umf er aukið út um 15-15-17 (20) l jafnt yfir (aukið ekki út yfir l í kanti að framan) = 194-214-230 (266) l. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur, M.1B (= 4 l), M.1A yfir næstu 180-200-216 (252) l (veldu rétta stærð, á röngu er mynstrið lesið frá vinstri til hægri) og endið á 5 kantlykkjum. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-5-5 (6) cm er fækkað um 1 l í hverri br mynstureiningu með því að prjóna 2 miðju l br saman (séð frá réttu). Endurtakið úrtöku með 3½-3½-4½ (5) cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 10-12-10 (10) br l eftir í hverri mynstureiningu = 154-174-182 (210) l á prjóni. Þegar stykkið mælist 17-18-20 (23) cm prjónið næstu umf þannig: Prjónið 39-43-45 (52) m (= framstykki), fellið af 6-8-8 (8) l fyrir handvegi, prjónið 64-72-76 (90) l (= bakstykki), fellið af 6-8-8 (8) l fyrir handvegi og prjónið þær 39-43-45 (52) sem eftir eru (= framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 40-42-44 (48) l skipt á sokkaprjóna nr 2,5 með Alpaca og prjónið GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 5 cm er sett 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 5 cm, prjónið síðan 1 umf í sléttprjóni JAFNFRAMT sem aukið er út um 4-6-18 (20) l jafnt yfir í umf = 44-48-62 (68) l. Næsta umf er prjónuð þannig – munið eftir mynstri í réttri stærð: STÆRÐ 1/3 mán: M.2B (= 4 l), 4 l br, M.2A yfir næstu 28 l, M.2B (= 4 l) og 4 l br. STÆRÐ 6/9 mán: M.2B (= 4 l), 4 l br, M.2A yfir næstu 32 l, M.2B (= 4 l) og 4 l br. STÆRÐ 12/18 mán: 1 l br, M.2A yfir næstu 56 l, M.2B (= 4 l) og 1 l br. STÆRÐ 2/3 ára: M.2B (= 4 l), 2 l br, M.2A yfir næstu 56 l, M.2B (= 4 l) og 2 l br. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og látið prjónamerkið fylgja með stykkinu (í stærð 1/3 mán + 6/9 mán + 2/3 ára er prjónamerkið sett mitt í fyrsta kaðal í umf) = miðja undir ermi. Haldið áfram með mynstur eins og útskýrt er frá að ofan – jafnframt þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 2 l við miðju undir ermi (í stærð 1/3 mán + 6/9 mán + 2/3 ára er aukið út um 1 l hvoru megin við kaðal við miðju undir ermi). Aukið út um 2 l alls 5-8-5 (9) sinnum í stærð 1/3 mán: í 6. hverri umf, stærð 6/9 mán: Í 5. hverri umf, stærð 12/18 mán: Í 8. hverri umf, stærð 2/3 ára: Í 7. hverri umf = 54-64-72 (86) l – útauknar lykkjur eru prjónaðar br. Þegar stykkið mælist 15-17-17 (24) cm – passið uppá að næsta umf sé prjónuð í sömu umf í mynstri eins og á fram- og bakstykki þannig að mynstur heldur áfram í sömu umf þegar framstykki, bakstykki og ermar eru settar saman – fellið af 6-8-8 (8) l miðja undir ermi = 48-56-64 (78) l eftir á prjóni. Prjónið aðra ermi á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi = 238-270-294 (350) l. Nú eiga að vera 10-12-10 (10) l br (séð frá réttu) milli kaðla umf hringinn. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Prjónið 3 eða 4 umf áður en úrtaka byrjar (í stærð 2/3 ára eru prjónaðar 7 eða 8 umf) – passið uppá að 1. umf með úrtöku er gerð frá réttu. Fækkið nú um 1 l í hverri br mynstureiningu með því að prjóna 2 miðju l br saman frá réttu. Fellið af í 6. hverri umf 0-0-6 (8) sinnum, í 4. hverri umf: 8-8-2 (0) sinnum og síðan í annarri hverri umf: 0-2-0 (0) sinnum. Eftir síðustu úrtöku eru 2 l br á milli kaðla alla umf hringinn og það eru 110-110-134 (158) l á prjóni. Endið mynstur þegar prjónuð hefur verið 1 umf á eftir köðlum. Nú er prjónuð 1 umf slétt frá réttu jafnframt er lykkjum fækkað jafnt yfir til 63-65-69 (73) l (ekki fækka lykkjum yfir kant að að framan). Prjónið 3 umf slétt, prjónið nú gatakant frá réttu þannig: Prjónið 5 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir og endið á 4 l sl. Prjónið 2 umf slétt og fellið síðan laust af með sl frá röngu. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í. Brjótið upp neðstu 5 cm á hvorri ermi og saumið niður með nokkrum smáum sporum. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÚFA: Fitjið laust upp 104-109-114 (120) l skipt niður á sokkaprjóna nr 2,5 með Alpaca og prjónið GARÐAPRJÓN (sjá útskýringu að ofan). Þegar stykkið mælist 5-6-6 (7) cm er sett 1 prjónamerki í stykkið (merkir uppábrot) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 5-6-6 (7) cm er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 112-128-126 (140) l í umf. Prjónið nú M.2a (munið eftir að fylgja réttri stærð í mynstri). Þegar stykkið mælist 12-12-14 (16) cm fækkið um 1 l í hverri br mynstureiningu með því að prjóna saman 2 miðju l br í hverri umf (í síðasta skipti er 1 l br prjónuð saman með 1 l sl) þar til 32-32-36 (40) l eru eftir á prjóni. Þræðið tvöfaldan þráð í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 15-16-17 (19) cm frá prjónamerki. FRÁGANGUR: Brjótið kantinn í garðaprjóni tvöfaldan við réttu við prjónamerki og saumið niður í hvorri hlið með nokkrum smáum sporum – saumið að innan/röngu svo að sporin sjáist ekki frá réttu. DÚSKUR: Gerið 1 dúsk ca 5-6 cm að þvermáli og festið efst á húfuna. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.Tvær stærstu stærðirnar eru prjónaðar með þumal, þær 2 minni eru án þumals. VETTLINGUR: Fitjið laust upp 34-36-36 (38) l skipt niður á sokkaprjóna nr 2,5 með Alpaca og prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – þar til stykkið mælist 2 cm. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 6-4-4 (2) l jafnt yfir = 28-32-32 (36) l. Prjónið nú stroff 2 l sl/2 l br. Þegar stykkið mælist 4-4-5 (6) cm er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 32-36-36 (40) l – setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og eftir 16-18-18 (20) l – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið nú br l jafnframt er mynstur M.3 prjónað yfir miðju 12 l ofan á handarbaki (fyrstu 16-18-18 (20) l í umf = ofan á hönd) – ör í mynstri merkir miðju. TVÆR STÆRSTU STÆRÐIR: Jafnframt eftir 1 (2) cm í mynstri eru 5 (6) síðustu l í umf settar á þráð fyrir þumal. Fitjið upp 5 (6) nýjar l yfir l af þræði í næstu umf. ALLAR STÆRÐIR: Þegar stykkið mælist 6-7-8 (9) cm – stillið af að prjónaðar séu 1 eða 2 umf á eftir snúning á kaðli – fækkið um 8-9-9 (10) l jafnt yfir í annarri hverri umf alls 3 sinnum = 8-9-9 (10) l eftir (fækkið um 1 lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman). Þræðið tvöfaldan þráð í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. ÞUMALL: Setjið 5 (6) l af þræði til baka á sokkaprjóna nr 2,5 og prjónið upp 7 (8) l í kantinn yfir þær = 12 (14) l alls. Prjónið umf br þar til þumall mælist 3 (4) cm. Prjónið síðan allar l saman 2 og 2. Þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og herðið að. Prjónið annan vettling á sama hátt, en þumallinn er prjónaður í gagnstæða hlið (á við um 2 stærstu stærðir). SNÚRA: Fitjið upp 4 l á prjóna nr 2,5 með Alpaca og prjónið túbuprjón þannig: * Prjónið 1 l sl, leggið þráðinn fyrir framan stykkið (að þér), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br, leggið þráðinn fyrir aftan stykkið (frá þér) *, endurtakið frá *-* í öllum umf þar til snúran er með lengd barns frá úlnlið til úlnliðs = ca 62-67-74 (86 til 96) cm. Fellið af og saumið snúruna að innan verðu á hvorum vettlingi. ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. SOKKUR: Fitjið upp 44-48-52 (56) l skipt niður á sokkaprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umf sléttprjón, prjónið síðan stroff með 2 l sl/2 l br þar til stykkið mælist 8-8-9 (10) cm. Prjónið 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 4-8-8 (8) l jafnt yfir = 40-40-44 (48) l. Prjónið nú hæl þannig: Prjónið 3-3½-3½ (4½) cm sléttprjón fram og til baka yfir 16-16-16 (18) við miðju að aftan. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 = rétta: Prjónið 9-9-9 (10) l sl, 2 l snúnar br saman, 1 l sl, snúið við. UMFERÐ 2: Takið 1 l óprjónaða, 3-3-3 (4) l br, 2 l br saman, 1 l br, snúið við. UMFERÐ 3: Takið 1 l óprjónaða, 4-4-4 (5) l sl, 2 l snúnar br saman, 1 l sl, snúið við. UMFERÐ 4: Takið 1 l óprjónaða, 5-5-5 (6) l br, 2 l br saman, 1 l br, snúið við. UMFERÐ 5: Takið 1 l óprjónaða, 6-6-6 (7) l sl, 2 l snúnar sl saman, 1 l sl, snúið við. UMFERÐ 6: Takið 1 l óprjónaða, 7-7-7 (8) l br, 2 l br saman, 1 l br, snúið við. UMFERÐ 7: Prjónið 2 l slétt saman, 6-6-6 (8) l sl, 2 l snúnar sl saman = 8-8-8 (10) l á prjóni (= alls 32-32-36 (40) l). Prjónið upp 7-8-8 (11) l hvoru megin við hællykkjur og setjið allar l á sama prjón = 46-48-52 (62) l. Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar l. JAFNFRAMT er fækkað um 1 l hvoru megin við efstu 18-20-22 (26) l í annarri hverri umf 7 sinnum = 32-34-38 (48) l. Þegar fóturinn mælist 8-9-9 (11) cm (frá byrjun hælúrtöku) er sett 1 prjónamerki í hvora hlið og lykkjum fækkað fyrir tá. Fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hverri umf (= 4 l færri í hverri umf) alls 7-7-8 (10) sinnum. Þræðið þráðinn í gegnum þær 4-6-6 (8) l sem eftir eru og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. ----------------------------------------------------------- TEPPI: DROPS Baby 14-20 HRINGLA: DROPS Baby 13-32 |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (105)
Lorna wrote:
Thanks for you quick response. After the decrease on the upper 18 stitches I am left with 32 stitches. As per the toe decrease the number of stitches should be equal on top and bottom, 16 stitches. Therefore my markers should be between these 16 stitches division, correct?
20.01.2024 - 00:47Lorna wrote:
Hello, I am working on the socks. How do I determine where the sides should be? I am working in the round from start to finish. Thank you.
19.01.2024 - 14:32DROPS Design answered:
Dear Lorna, which side do you mean? The heel will be worked over the 16-18 sts (see size) on mid back, then you insert a marker on each side of foot (see video for toe decreases). Hope it can help. Happy knitting!
19.01.2024 - 16:05Romana wrote:
Guten Tag, Ich stricke Mütze Lille Trille, die Große für 6/9 Monate. In der Anleitung steht nach 12 cm man soll anfangen mit Abnahme. Wie ist das gemeint? Gemessen 12 cm Diagramm Muster MS2 oder gemessen ab der Kante (Markirungsfaden)? Ich freue mich über Ihre Antwort. Danke
23.10.2023 - 16:02DROPS Design answered:
Liebe Romana, messen Sie ab der Markierung, deshalb wurde eine Markierung eingesetzt. Viel Spaß beim stricken!
24.10.2023 - 08:50Romana wrote:
Guten Tag, ich stricke Baby Mütze Lille Trille 14\2 und komme mit dem Diagramm M.2A nicht zurecht. Strick man zwischen die Zöpfen nur recht oder nur links oder weiter krausrippe? Links auf rechts und rechts auf links verstehe ich nicht wie das gemeint ist in Runden. Ich freue mich über Ihre Antwort. Ich stricke Ihre Modelle gerne nach. Liebe Grüße Romana Kathmann
20.10.2023 - 13:54DROPS Design answered:
Liebe Romana, das Diagram M.2A wird in der Runde gestrickt, so stricken Sie die Maschen für die Zöpfe immer rechts und die Maschen dazwischen immer links (= links bei den Hinreihen). Vie Spaß beim stricken!
20.10.2023 - 14:22Leeanne wrote:
I’m knitting size 12/18 months, in the jacket it says to knit two stitches together in the purl section when the piece is 5cm, and then to dec in this way a further 3 times every 4.5cm living 12sts in the purl section. As the diagram used for the 12/18 months only has 14sts in the purl section to begin with this would leave me with 10sts not 12. Are the instructions incorrect or are the grid patterns labelled incorrectly?
22.07.2023 - 10:20DROPS Design answered:
Dear Leeanne, you are right, it was a typo, it should have been 10 sts in this size, pattern is fixed now, thank you! Happy knitting!
28.07.2023 - 08:35Gillian wrote:
When I decrease the middle stitches in the purl section for the hat, on EVERY round as the pattern says, the hat is very short with just a few cable rows. Am I doing something wrong or is there a mistake in the pattern? I have finished the jacket which turned out beautifully.
09.06.2023 - 05:07DROPS Design answered:
Dear Gillian, you have to decrease 1 stitch in the purl-sections on every round until all purl stitches have been decreased (the last time you work together 1 purl and 1 rett from the cable). If your tension in height is correct (34 rows stocking stitch = 10 cm), then you should get it right, these decrease round should measure approx. 3 cm. Happy knitting!
09.06.2023 - 09:21Emilita wrote:
Hola. Quisiera saber por q al final del patrón del cardigan dice que quedan 158 en el talle más grande y yo cuento solo 15 torsadas con sus respectivos 2 puntos a cada lado. No me da ese resultado. Me podrían aclarar. Gracias
30.05.2022 - 19:18DROPS Design answered:
Hola Emilita, al trabajar el canesú, tendrás 25 trenzas, sumando las trenzas del cuerpo y cada manga. Después de las disminuciones, tendremos 24 trenzas x6 pts (4 pts de la trenza y 2 pts de revés) + 10 pts de la cenefa + 4 pts de una trenza más. En total son 158 pts.
31.05.2022 - 17:52Hessa wrote:
Hi.. I reached the Yoke section, I'm trying to put sleeves but it become very tight I could not continue. I don't know where is my mistake! :(
13.01.2021 - 11:14DROPS Design answered:
Dear Hessa, this video shows how to add sleeves on the same needle as back and front pieces, over the cast off stitches for armholes - the first rows might be somewhat tricky but after a few rows, it will work nicely. Happy knitting!
13.01.2021 - 12:28Tineke Venne wrote:
I am knitting the 2nd size. Yoke section: Do I knit the 6 rows and 0 decrease and THEN 4 rows 1 decrease 8x? Or do I leave the 6 rows out altogether and start decreasing in the 4th row
10.10.2020 - 18:33DROPS Design answered:
Dear Mrs Venne, in 2nd size you work 3 or 4 rows (just make sure next row will be from RS) before working first decrease row, then decrease a total of 8 times on every 4th row + 2 times on every other row. Happy knitting!
12.10.2020 - 08:00Gréta Ósk Sigurðardóttir wrote:
Jeg strikker jakken i str.2/3 år og jeg forstår ikke hvordan ærmet strikkes, det kommer to eller tilogmed tre fletter ved siden av hverandre!??
09.08.2020 - 00:36DROPS Design answered:
Blessuð Gréta Ósk. Þú mátt ekki gleyma að prjóna eftir mynsturteikningu: STÆRÐ 2/3 ára: Mynstur M.2B (= 4 lykkjur), 2 lykkjur brugðið, mynstur M.2A yfir næstu 56 lykkjur, mynstur M.2B (= 4 lykkjur) og 2 lykkjur brugðið. Vona að þetta hjálpi. Gangið þér vel.
10.08.2020 - 16:11