Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= natur | |
= koksgrár | |
= sinnep | |
= 2 lykkjur slétt saman |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Winter in the Apennines |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa með norrænu mynstri úr DROPS Alaska. Stærð S-XXL.
DROPS 80-12 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- STROFF: Prjónið * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp. PEYSA: FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 154-168-182-196-210 lykkjur á hringprjón 4 með natur. Prjónið STROFF – sjá útskýringu að ofan – í 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5 og haldið áfram með sléttprjón – JAFNFRAMT er fækkað um 14 lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 140-154-168-182-196 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið (það eiga að vera 70-77-84-91-98 lykkjur á milli prjónamerkja). Þegar stykkið mælist 12 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin með 5 cm millibili 4 sinnum = 156-170-184-198-212 lykkjur. Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35 cm prjónið næstu umferð þannig: Fellið af 4 lykkjur fyrir handveg, prjónið 70-77-84-91-98 lykkjur = (framstykki), fellið af 8 lykkjur fyrir handveg, prjónið 70-77-84-91-98 m (= bakstykki) og fellið af 4 lykkjur fyrir handveg. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 44-46-48-50-52 lykkjur á sokkaprjóna 4 með natur. Prjónið stroff í 6 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 5 og haldið áfram með sléttprjón – JAFNFRAMT eftir stroff er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi með 4,5 - 4,5 - 4,5 - 3,5 - 3,5 cm millibili alls 9-9-9-11-11 sinnum = 62-64-66-72-74 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-45-45-45-44 cm fellið af 8 lykkjur mitt undir ermi = 54-56-58-64-66 m. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi alveg eins. AXLASTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 248-266-284-310-328 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. Haldið áfram með sléttprjón JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir laskalínu. Það er fækkað um 8 lykkjur í hverri umferð. Prjónið 2 umferðir áður en úrtakan hefst. Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 4-4-4-5-5 sinnum = 216-234-252-270-288 lykkjur. Prjónið 0-2-4-4-6 umferðir með natur, prjónið síðan og fækkið lykkjum samkvæmt M.1. Eftir síðustu úrtöku eru 120-130-140-150-160 lykkjur á prjóni. Prjónið 1 umferð með koksgrár JAFNFRAMT því sem lykkjum er fækkað jafnt yfir til 84-88-92-96-100 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff með koksgrár í 12 cm, fellið síðan af í stroffprjóni. FRÁGANGUR: Saumið op saman undir ermum. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6939 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (55)
Gezina Van Bohemen wrote:
Het patroon vaak doorgelezen, maar ik zie geen beschrijving van de halsmindering. Klopt dat?
18.02.2024 - 22:49DROPS Design answered:
Dag Gezina,
Dat klopt, er zijn namelijk geen minderingen voor de hals. Na het patroon brei je boordsteek en het voorpand en achterpand zijn hetzelfde, dus ook bij de hals.
21.02.2024 - 21:17Mariela wrote:
Hi! Can you confirm if the increases are done all on the same row once we reached the 12 cm on the body? Thank you! Mariela
02.01.2024 - 15:11DROPS Design answered:
Dear Mariela, when body measures 12 cm, you increase 1 st on each side of both markers (- 2 markers (1 on each side) = 4 sts increased) and repeat these increases a total of 4 times on every 5 cm, this means 2nd increase when piece measures 17 cm, 3rd increase when piece measures 22 cm and 4th increase when piece measures 27 cm. Happy knitting!
03.01.2024 - 08:11Kathleen wrote:
Hallo, hoe kan ik uit het patroon/de uitleg opmaken wanneer er aan de tekening/het telpatroon begonnen wordt? Ik ben de trui in maat M aan het breien (rondbreinaalden). Alvast bedankt!
03.11.2023 - 16:45DROPS Design answered:
Dag Kathleen,
Dit staat helemaal in de laatste paragraaf bij de PAS: '...brei en minder hierna volgens de teltekening.'
05.11.2023 - 18:58De Clercq Liliane wrote:
In de uitleg staat voor XL bij voorpand en achterpand er bij 34 CM steken moeten afgezet worden voor de armsgaten. Zo heb ik het begrepen. Op de tekening echter staat dat de mouwen ingezet zijn op 59cm. \r\nAls de mouwen moeten ingezet worden op 34cm is de Pullover veel te kort. Er staat ook niet duidelijk vermeld wanneer met de tekening te beginnen. Kan u mij zo vlug mogelijk helpen want ik heb het lijf gebreid zoals op de uitleg en begin nu aan de mouwen.
02.11.2023 - 20:27Adelle wrote:
For the last part of the yoke before bind off it says: \\r\\n\\r\\n‘Knit 1 row with charcoal grey, decreasing evenly distributed to 84-88-92-96-100 sts.’\\r\\n\\r\\nAfter the one row is knitted do you make all the decreases in the very next row, or gradually? Thank you.
27.10.2023 - 14:54DROPS Design answered:
Dear Adelle, decrease evenly distributed on this row with charcoal grey, so that you will work ribbing edge over the remaining 84-88-92-96-100 stitches. Read more on how to decrease evenly here. Happy knitting!
28.10.2023 - 08:43Chettab Nelly wrote:
J'ai du mal a comptabiliser les differentes hauteurs 6 cm pour les cotes ensuites pour le modele XL on parle de 59 cm??? sur le shema et dans les explications on nous parle de 35 cm de hauteur totale , je suis perdue
24.10.2023 - 17:40DROPS Design answered:
Bonjour Mme Chettab, le bas du pull mesure 34 cm en XL (jusqu'aux mailles rabattues pour les emmanchures) + 23 cm d'empiècement + environ 2 cm pour l'épaule soit 59 cm de hauteur totale. Bon tricot!
25.10.2023 - 07:33Wilma wrote:
Kan ik ook de panden en mouwen tot aan het armsgat op 2 naalden breien.
20.09.2023 - 08:10DROPS Design answered:
Dag Wilma,
Jazeker, dat kan. Je zet dan voor zowel de panden als de mouwen, 2 extra steken op. Dit zijn de kantsteken, welke later wegvallen als je het werk in elkaar naait.
20.09.2023 - 19:35Carmen wrote:
Bonjour, quand j'ai fini les diminutions du raglan, est ce que je dois encore tricoter 4 rangs naturel avant de commencer M1? Merci
09.09.2023 - 20:23DROPS Design answered:
Bonjour Carmen, effectivement, si vous tricotez la taille L ou la taille XL, vous tricotez 4 rangs après les diminutions du raglan et vous commencez le diagramme. Bon tricot!
11.09.2023 - 09:14Eija wrote:
Haluaisin tarkemman ohjeen kohtaan "Kun kaikki kavennukset oh tehty on puikolla 120-130-140-150-160 s jäljellä. Neulo 1 krs t.harmaalla ja kavenna samalla tasavälein 84-88-92-96-100 s:aan." Miten kavennus tulee tehdä, kun 160 silmukkaa täytyy kaventaa sataan? Saisinko tarkemman ohjeen miten tiheään kavennan, jotta kauluksesta tulee oikenlainen.
07.07.2023 - 10:07DROPS Design answered:
Hei, tee kavennukset siten, että neulot noin joka 2. ja joka 3. silmukan yhteen. Neulo kuitenkin tasaisin välein joka 3. ja joka 4. silmukka yhteen (jotta kerroksen loppuun ei jää 10 silmukkaa ilman kavennuksia).
17.08.2023 - 18:42Gabrielle Von Bülow wrote:
Hallo, ich habe ca. 15,5 M. auf 10 cm (Nadel Nr. 5). Dadurch wird der Pullover natürlich viel zu groß... Wenn ich Nadel Nr. 4 nehme, wird mir der Pulli mit Alaska zu hart, glaube ich :-( Kann ich nicht weniger Maschen nehmen und dann dem Strickmuster in einer kleineren Größe folgen? Danke im Voraus :-) !
20.05.2023 - 15:45DROPS Design answered:
Liebe Frau Von Bülow, wenn Sie zu wenig Maschen für 10 cm haben, dann versuchen Sie noch mal mit grösseren Nadeln - hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim stricken!
22.05.2023 - 08:19