Sweet Cheeks |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Sett með prjónaðri peysu fyrir börn, buxum, húfu og sokkum með norrænu mynstri úr DROPS BabyMerino
DROPS Baby 19-21 |
|||||||||||||
PEYSA: MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1-M.5 – allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. -------------------------------------------------------- FRAM- OG BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Fitjið upp 153-177-201 (223-245) l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 2 með litnum ísblár. Prjónið 1 umf stroff = 1 l sl/1 l br með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – og 1 l í hvorri hlið við miðju að framan (séð frá réttu). Skiptið yfir í litinn natur og haldið áfram með stroff. Eftir 4-4-4 (5-5) cm skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 24-30-36 (40-44) l jafnt yfir = 129-147-165 (183-201) l. Setjið eitt prjónamerki 33-37-42 (46-51) l inn frá hvorri hlið = 63-73-81 (91-99) l á milli prjónamerkja á bakstykki. Prjónið M.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan. ATH! Næst síðasta l á prjóni er prjónuð eins og fyrsta l í M.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins í hvorri hlið við miðju að framan. Eftir M.1 er síðan prjónað M.2 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 15-17-20 (23-26) cm – passið uppá að prjóna minnst 2 umf á eftir umf með ”doppu” í mynstri – prjónið M.3 (munið eftir að næst síðasta l á prjóni er prjónuð eins og fyrsta l í M.3 þannig að mynstrið byrji og endi eins í hvorri hlið við miðju að framan). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17-18-21 (24-27) cm skiptist stykkið við handveg við bæði prjónamerki og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 63-73-81 (91-99) l. Fitjið upp 1 nýja l í hvorri hlið (= kantlykkja fyrir saum) = 65-75-83 (93-101) l. Haldið áfram með M.3 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Á eftir M.3 er prjónað M.4 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATH! Ör í M.4 merkir miðju-l að aftan, teljið síðan út l til hliðar frá þeirri l. Á eftir M.4 er prjónað með ísblár til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 27-29-33 (37-41) cm fellið af miðju 23-25-27 (27-29) l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 2 l í næstu umf frá hálsi = 19-23-26 (31-34) l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 28-30-34 (38-42) cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 33-37-42 (46-51) l. Fitjið upp 1 nýja l við handveg (= kantur fyrir saum) = 34-38-43 (47-52) l. Haldið áfram með M.3 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Á eftir M.3 er prjónað M.4 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATH! Passið að mynstrið verði fallegt við miðju að framan, það á að vera 1 lykkja með litnum ljós blár við miðju að framan á eftir kantlykkju og á undan einni rúðu með litnum natur eða krossi. Prjónið M.4 með litnum ísblár til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 24-26-29 (33-36) cm setjið síðustu 9-9-10 (11-12) l við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af í byrjun á hverri umf frá hálsi: 2 l 2-2-2 (1-1) sinnum og 1 l 2-2-3 (3-4) sinnum = 19-23-26 (31-34) l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 28-30-34 (38-42) cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið eins og hægra nema gagnstætt. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 48-50-56 (58-64) l á sokkaprjóna nr 2 með litnum ísblár. Prjónið 1 umf stroff = 1 l sl/1 l br, skiptið yfir í natur og haldið áfram með stroff. Þegar stykkið mælist 4-4-4 (5-5) cm skiptið yfir á sokkaprjóna nr 2,5. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 11-13-13 (15-15) l jafnt yfir = 37-37-43 (43-49) l. LESIÐ ALLAN KAFLANN FYRIR ERMI ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið M.1 – stillið af við miðju, sjá ör í mynstri. Á eftir M.1 er haldið áfram með M.2 (stillið af miðju eftir ör) þar til stykkið mælist ca 16-16-18 (23-26) cm – passið uppá að prjóna minnst 2 umf á eftir umf með ”doppu” í mynstri. Prjónið síðan M.5 (stillið af mynstur eftir ör) – á eftir M.5 er prjónuð ein umf með litnum ísblár til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5-6-6 (7-7) cm aukið út um 2 l mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu alls 11-13-13 (15-15) sinnum. Fyrir stærð 1/3 MÁN + 12/18 MÁN + 2 ÁRA: í 4. hverri umf, fyrir stærð 6/9 MÁN: í 3. hverri umf fyrir stærð STRL 3/4 ÁRA: Í 5. hverri umf = 59-63-69 (73-79) l – útauknu l eru prjónaðar inn í mynstur. Fellið laust af þegar stykkið mælist ca 19-19-21 (26-29) cm (M.5 á nú að vera lokið og nokkrar umf með litnum ísblár). FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Takið upp ca 75-83-93 (105-115) l (deilanlegt með 2 + 1) meðfram vinstra framstykki á prjóna nr 2 og litnum natur. Prjónið stroff = 1 l sl/1 l br með 1 kantlykkju í garðaprjóni og 1 l slétt í hvorri hlið (séð frá réttu). Þegar kantur að framan mælist 2 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið eins og vinstri en eftir 1 cm er fellt af fyrir 5-5-5 (6-6) hnappagötum jafnt yfir – það neðsta á að vera ca 1½ cm frá neðri kanti og það efsta ca 4 cm frá efri kanti (að auki á að gera eitt hnappagat í kant í hálsi). 1 HNAPPAGAT = fellið af 2 l og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af í næstu umf. HÁLSMÁL: Takið upp frá réttu í kringum háls: ca 87 til 117 l – meðtaldar l af þræði að framan jafnt yfir kant að framan (fjöldi l á að vera deilanlegur með 2 + 1) á hringprjóna nr 2 með litnum natur. Prjónið stroff = 1 l sl/1 l br með 1 kantlykkju í garðaprjóni og 1 l sl í hvorri hlið við miðju að framan (séð frá réttu). JAFNFRAMT eftir 1 cm er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir hin í hægri kant að framan. Þegar kantur í hálsi mælist 2 cm, skiptið yfir í litinn ísblár. Prjónið 1 umf stroff og fellið síðan af með sl yfir sl og br yfir br. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í. -------------------------------------------------------- BUXUR: MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1-M.2 – allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚRTAKA: Byrjið 2 l á undan prjónameri og prjónið þannig: 2 l slétt saman, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. -------------------------------------------------------- BUXUR: Stykkið er prjónað í hring frá mitti og niður. Fitjið upp 142-150-160 (166-172) l á hringprjóna nr 2 með litnum ísblár – umf byrjar við miðju að aftan. Prjónið 1 umf stroff = 1 l sl/1 l br, skiptið yfir í litinn natur og haldið áfram með stroff. Þegar stroffið mælist 4 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 2,5. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 16-18-22 (22-22) l jafnt yfir = 126-132-138 (144-150) l. UPPHÆKKUN AÐ AFTAN: Prjónið M.2 jafnframt er prjónuð upphækkun að aftan þannig: Prjónið 10-11-11 (12-12) l frá byrjun umf, snúið við (til að sleppa við göt er fyrsta lykkjan tekin óprjónuð og hert á þræði). Prjónið 20-22-22 (24-24) l og snúið við. Prjónið 30-33-33 (36-36) l og snúið við. Prjónið 40-44-44 (48-48) l og snúið við. Haldið svona áfram að prjóna 10-11-11 (12-12) l fleiri í hvert skipti sem snúið er við 8 sinnum til viðbótar (= 12 stuttar umf). Haldið síðan áfram að prjóna í hring með M.2 yfir allar l. ÚTAUKNING: Þegar stykkið mælist 13-16-17 (18-19) cm frá mitti (mælt fyrir miðju að framan) setjið eitt prjónamerki í byrjun umf og eitt prjónamerki á eftir 63-66-69 (72-75) l (merkir framan og aftan á buxum). Aukið síðan út um 1 l hvoru megin við þessi prjónamerki (= 4 l fleiri í umf) í 3. hverri umf alls 6 sinnum = 150-156-162 (168-174) l. Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 18-21-22 (23-24) cm frá mitti (mælt frá miðju að framan). SKÁLM: Prjónið 75-78-81 (84-87) l – byrjið fyrir miðju að aftan og setjið þær l sem eftir eru á þráð. Prjónið í hring á sokkaprjóna (M.2 heldur áfram eins og áður) – setjið eitt prjónamerki að innanverðu á skálm = byrjun umf. Fækkið síðan um 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA – alls 14-13-12 (11-10) sinnum. Fyrir stærð 1/3 MÁN: til skiptis í annarri hverri og 3. hverri umf, fyrir stærð 6/9 MÁN: til skiptis í 3. og 4. hverri umf, fyrir stærð 12/18 MÁN: til skiptis í 4. og 5. hverri umf, fyrir stærð 2 ÁRA: til skiptis í 6. og 7. hverri umf og fyrir stærð 3/4 ÁRA: til skiptis í 9. og 10. hverri umf = 47-52-57 (62-67) l. Þegar stykkið mælist ca 27-33-36 (42-49) cm frá mitti – passið að prjónaðar hafa verið 2 umf á eftir umf með ”doppu”- prjónið M.1. Byrjið efst í mynstri og sjá ör sem merkir miðju á umf (= innanverðu á skálm). Á eftir M.1 er skipt yfir í natur og sokkaprjóna nr 2. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 11-12-13 (16-17) l jafnt yfir = 58-64-70 (78-84) l. Prjónið síðan stroff = 1 l sl, 1 l br þar til buxurnar mælast 36-42-46 (52-59) cm frá mitti (stroffið mælist þá ca 5-5-6 (6-6) cm), skiptið yfir í litinn ísblár og prjónið 1 umf stroff áður en fellt er laust af með stroffi. Prjónið hina skálmina alveg eins. -------------------------------------------------------- HÚFA: MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.7 – allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. -------------------------------------------------------- HÚFA: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp þar sem sjálf húfan byrjar, prjónið síðan húfuna áfram fram og til baka. Byrjun umf = miðja að aftan! Fitjið laust upp 220-244-256 (280-288) l á hringprjóna nr 2 með litnum natur og prjónið 1 umf stroff = 1 l sl/1 l br. Skiptið yfir í litinn ísblár og haldið áfram með stroff. Þegar stroffið mælist 3-3-3 (4-4) cm skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5. Prjónið 1 umf í sléttprjóni með ísblár JAFNFRAMT er fækkað um 52-52-64 (64-72) l jafnt yfir = 168-192-192 (216-216) l. Prjónið nú M.7. Eftir M.7 eru 154-176-176 (198-198) l á prjóni og haldið áfram með litinn ísblár og sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í umf 3 á eftir M.7 er fækkað um 14-16-16 (18-18) l jafnt yfir – þ.e.a.s. prjónið slétt saman 10. og 11. l EN passið uppá að úrtakan komi yfir úrtöku frá síðustu umf í M.7. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 4 sinnum – ATH: Í hverri umf sem l er fækkað í er prjónuð 1 l sléttprjón færri á milli allra skipta þar sem 2 l eru prjónaðar saman) = 98-112-112 (126-126) l á prjóni og stykkið mælist ca 10-10-10 (11-11) cm. Prjónið 1 umf sléttprjón, prjónið síðan 1 umf í sléttprjóni JAFNFRAMT er fækkað um 8-18-16 (26-22) l jafnt yfir = 90-94-96 (100-104) l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2 og prjónið stroff (= 1 l sl/ 1 l br) þar til stroffið mælist 2½-2½-2½ (3-3) cm. NÆSTA UMFERÐ ER PRJÓNUÐ FRÁ MIÐJU AÐ AFTAN: Prjónið stroff eins og áður yfir fyrstu 35-36-37 (38-39) l, setjið næstu 21-23-23 (25-27) l á þráð (án þess að prjóna þær) = miðja að framan. Skiptið aftur yfir á hringprjóna nr 2,5, snúið við og prjónið 1 umf br frá röngu JAFNFRAMT er aukið út um 26-32-34 (44-50) l jafnt yfir = 95-103-107 (119-127) l á prjóni. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! NÆSTA UMF ER PRJÓNUÐ FRÁ RÉTTU ÞANNIG: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir á prjóni og endið á 1 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff fram og til baka. Þegar stykkið mælist 11-12-13 (14-15) cm setjið miðju 31-31-35 (39-39) l á prjóni á þráð fyrir miðjustykki á húfu. Prjónið 1 umf slétt frá réttu, 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu yfir síðustu 32-36-36 (40-44) í annarri hlið á stykki, fellið síðan af með sléttu frá röngu. Endurtakið í hinni hlið á stykki. Setjið 31-31-35 (39-39) l af þræði til baka á prjóninn og haldið áfram með stroff með 1 kantlykkju í garðaprjóni og 1 l sl í hvorri hlið (séð frá réttu) þar til miðjustykkið mælist 11-12-12 (14-15) cm frá þar sem l voru settar á þráð. Prjónið 2 umf í garðaprjóni og fellið síðan fallega af. FRÁGANGUR: Saumið niður miðjustykki að hvorri hlið með smáu fallegu spori innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. STROFF KANTUR Í KRINGUM OP Á HÚFU: Prjónið upp ca 120 til 160 l (deilanlegt með 2) í kringum op á húfu (meðtaldar l af þræði að framan) á hringprjóna nr 2 með litnum ísblár. Prjónið stroff (= 1 l sl/1 l br) í hring þar til stroffið mælist 4 cm, fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. Brjótið stroff kantinn saman tvöfaldan að innan verðu á húfu og saumið niður með smáu fallegu spori. -------------------------------------------------------- SOKKAR: ÚRTAKA (á við um miðju að aftan á stroffi): Fækkið um 1 l hvoru megin við 3 miðju l að aftan á sokknum (= 1 l sl + 1 l br + 1 l sl) með því að prjóna 2 l br saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.6 – allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. -------------------------------------------------------- SOKKUR: Fitjið upp 58-66-72 (78-82) l á sokkaprjóna nr 2 með litnum natur. Prjónið 1 umf stroff = 1 l sl/1 l br, skiptið yfir í ísblár og haldið áfram með stroff. Þegar stykkið mælist 2-3-4 (5-6) cm fækkið um 2 l fyrir miðju að aftan – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með tveggja cm millibili alls 5 sinnum = 48-56-62 (68-72) l. Þegar stykkið mælist 10-11-12 (13-14) cm skiptið yfir á sokkaprjóna nr 2,5. Prjónið 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 6-10-16 (16-20) l jafnt yfir = 42-46-46 (52-52) l. Prjónið 1 umf sléttprjón án úrtöku. Setjið síðan 16-17-17 (19-19) fyrstu og 16-17-17 (19-19) síðustu l í umf á sinn hvorn þráðinn = 10-12-12 (14-14) l eftir á prjóni fyrir miðjustykki. Prjónið 4-5-5½ (7-8) cm sléttprjón yfir þessar l. Setjið síðan til baka l af þráðum á prjóninn JAFNFRAMT eru teknar upp 11-13-15 (18-22) l beggja vegna við miðjustykki = 64-72-76 (88-96) l. Klippið frá og byrjið umf við miðju að aftan. Prjónið 1-2-4 (5-7) umf sléttprjón hringinn yfir allar l með litnum ísblár. Prjónið síðan M.6. ATH! Í stærð 12/18 mán verða 2 alveg eins mynstureiningar af M.6 við miðju aftan á sokknum. Á eftir M.6 er prjónuð 1 umf sléttprjón með litnum ísblár. Prjónið síðan 1 umf br áður en allar l eru felldar af nema þær 10-12-12 (14-14) l frá miðju stykki. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – fram og til baka yfir miðjustykki að sóla. Fellið af þegar sólinn mælist 10-11-12 (14-16) cm. Saumið sólann við sokkinn með smáu spori. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (38)
Eva Joelsson wrote:
Hej! Jag ska börja med tröjan. Det står - Sticka 1 v resår = 1 rm/1 am med 1 kantm rät och 1 rm i varje sida mot mitt fram . Ska jag göra så i hela arbetet? Kantmaskan förstår jag men den rm?? Med vänlig hälsning, Eva
07.04.2024 - 12:07DROPS Design answered:
Hej Eva, du skall börja med 4-5 cm (se hur många cm i din storlek) resår 1rm/1am och så 1 kanm i varje sida :)
09.04.2024 - 10:40Loulou wrote:
Pour le gilet, à 4 cm de hauteur de côtés, avec aig 2.5 tricoter 1 rg end sur l'endroit, tout en diminuant en même temps 36 mailles pour la taille 12 à 18 mois. Comme le nombre de mailles que j'ai (201), comment puis-je obtenir 165 mailles.
09.12.2023 - 03:05DROPS Design answered:
Bonjour Loulou, tricotez 1 rang endroit en tricotant 36 fois (2 m ensemble à l'endroit) à intervalles réguliers, cette leçon explique comment diminuer à intervalles réguliers . Bon tricot!
11.12.2023 - 07:50Greet Kenes wrote:
Na de minderingen van de muts , kom ik maar op 7 cm in plaats van 10 cm zoals beschreven …
15.11.2023 - 17:43Greet Kenes wrote:
Na de minderingen van de muts , kom ik maar op 7 cm in plaats van 10 cm zoals beschreven …
15.11.2023 - 17:42InL wrote:
Wie breit sollte die Blende sein?
20.10.2023 - 16:51DROPS Design answered:
Liebe InL, die Blenden sollen 2 cm hoch sein; Viel Spaß beim stricken!
23.10.2023 - 09:16Michelle wrote:
The charts and/or pattern are wrong. M2 shows only six rows and instructions are to repeat this. But the photos show that the dots alternate with each repeat so really M2 should be shown as the last 6 rows of M1 as well as the rows marked as M2
05.12.2022 - 22:48Michelle wrote:
Do you have the yarn requirements for the set as a whole - I am sure that the individual items' yarn requirements will include leftover wool Also Light Blue is discontinued. Which is the next nearest shade?
28.11.2022 - 13:07DROPS Design answered:
Dear Michelle, we only have the amount of yarn of each piece and don't have the set anymore - you can add the total weight of each colour for each piece, you might require somewhat less - please contact your DROPS Store for any further assistance, they will even help you choosing the best matching colours, even per Mail or telephone. Happy knitting!
28.11.2022 - 16:45Vivia wrote:
Hvor meget garn består hele sættet af? (I burde havt det skrevet på alle jeres opskrifter, fordig jeg køber altid for meget garn)
14.03.2022 - 02:40DROPS Design answered:
Hej Vivia, det gør vi faktisk også nu mere :) det her er en ældre opskrift så vi kan desværre ikke svare på dit spørgsmål.
15.03.2022 - 15:28Marja wrote:
Ongelma selvisi omatoimisesti. Ruutupiirrosta luetaan edestakaisin. Sääli että suomenkielisiä vastauksia ei saa
16.02.2022 - 09:25Marja wrote:
Kai mallipiirrosta, esim M3, luetaan koko ajan oikealta vasemmalle? Myös nurjalta neuloessa?
15.02.2022 - 17:08DROPS Design answered:
Piirros luetaan oikean puolen kerroksilla oikealta vasemmalle, mutta nurjan puolen kerroksilla piirros luetaan vasemmalta oikealle.
16.02.2022 - 17:50