Dining Elegance |
|
|
|
Hekluð diskamotta og servéttuhringur úr DROPS Delight og DROPS Alpaca.
DROPS Extra 0-728 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta stuðli í hverri umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur og hver umferð endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- DISKAMOTTA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, frá miðju og út. DISKAMOTTA: Heklað er frá miðju og út með 1 þræði í hvorri tegund með heklunál 4. UPPFITJUN + 1 UMFERÐ: Heklið 18 loftlykkjur, snúið, hoppið yfir fyrstu loftlykkju og heklið 3 fastalykkjur í næstu loftlykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja af næstu 15 loftlykkjur, í síðustu loftlykkju eru heklaðar 3 fastalykkjur, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja loftlykkju í hinni hliðinni á loftlykkjubandinu, endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar. Nú hafa verið heklaðar alls 36 fastalykkjur hringinn. Setjið 1 merki í 1., 3., 19. og 21. fastalykkju (= horn). UMFERÐ 2: 1 loftlykkja, heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju, en í hornin eru heklaðar 3 fastalykkjur = 44 fastalykkjur. UMFERÐ 3: 4 loftlykkjur (= 1 stuðull + 1 loftlykkja), hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 stuðull í næstu fastalykkju (= í hornið), 3 loftlykkjur, 1 stuðull í sömu fastalykkju, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 stuðull í næstu fastalykkju, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 stuðull í næstu fastalykkju (= horn), 3 loftlykkjur, 1 stuðull í sömu fastalykkju * 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 stuðull í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* meðfram allri langhliðinni að næsta horni, 3 stuðlar, 1 stuðull í sömu fastalykkju, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 stuðull í næstu fastalykkju, 1 loftlykkja, 1 stuðull í næstu fastalykkju (= horn), 3 loftlykkjur, 1 stuðull í sömu fastalykkju, endurtakið frá *-* meðfram langhliðinni að byrjun umferðar, endið með 1 loftlykkju og 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar = 26 loftlykkjubogar. UMFERÐ 4: Lesið LEIÐBEININGAR! Heklið 1 stuðul í hvern stuðul og 1 stuðul um hverja loftlykkju – í hornið eru heklaðir 5 stuðlar um hvern loftlykkjuboga = 68 stuðlar. UMFERÐ 5: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul og 3 stuðlar í hvert horn = 76 stuðlar. UMFERÐ 6. Heklið á sama hátt og umferð 3, þ.e.a.s. 1 stuðul í annan hvern stuðul með 1 loftlykkju á milli, í stuðul í hornum er heklað þannig: 1 stuðull, 3 loftlykkjur, 1 stuðull = 43 loftlykkjubogar. UMFERÐ 7: Heklið á sama hátt og umferð 4 = 100 stuðlar. UMFERÐ 8: Heklið á sama hátt og umferð 5 = 108 stuðlar. UMFERÐ 9: * 5 loftlykkjur, hoppið yfir 1 stuðul, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* hringinn, en í stuðla í hornum er heklað: 1 fastalykkja, 5 loftlykkju, 1 fastalykkja í sama stuðul = 58 loftlykkjubogar. UMFERÐ 10: Heklið keðjulykkju að miðju á fyrsta loftlykkjuboga, * 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* hringinn, en um loftlykkjuboga í hornum er heklað þannig: 1 fastalykkja, 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja = 62 loftlykkjubogar. UMFERÐ 11: Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju og 1 stuðul um hvern loftlykkjuboga – en um loftlykkjuboga í hornum eru heklaðir 3 stuðlar = 132 stuðlar. UMFERÐ 11: Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju og 1 stuðul í hvern loftlykkjuboga – en um loftlykkjubogann í hornum eru heklaðir 3 stuðlar = 132 stuðlar. UMFERÐ 12: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul og 3 stuðlar í stuðul í hverju horni = 140 stuðlar. UMFERÐ 13: * 5 loftlykkjur, hoppið yfir 1 stuðul, 1 fastalykkja í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* fram að 1 stuðli á undan horni, 7 loftlykkjur, hoppið yfir 1 stuðul (= í horni), 1 fastalykkja í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* hringinn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun umferðar = 70 loftlykkjubogar. UMFERÐ 14: Heklið eins og umferð 10 = 74 loftlykkjubogar. UMFERÐ 15: 1 fastalykkja um fyrsta loftlykkjuboga, * 5 loftlykkjur, 1 fastalykkja í næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* hringinn (það er ekki heklað aukalega í hornin í þessari umferð, í hvert horn kemur nú til með að vera 1 fastalykkja) = 74 loftlykkjubogar. UMFERÐ 16: Heklið keðjulykkju að miðju á fyrsta loftlykkjuboga, * 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* hringinn, en í hornin eru heklaðar 5 loftlykkjur í stað 2 loftlykkjur = 74 loftlykkjubogar. UMFERÐ 17: Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju og 1 stuðul um hvern loftlykkjuboga – en um loftlykkjuboga í hornum eru heklaðar 5 stuðlar = 164 stuðlar. UMFERÐ 18: Heklið á sama hátt og umferð 13 = 82 loftlykkjubogar. UMFERÐ 19: Heklið á sama hátt og umferð 14 = 86 loftlykkjubogar. UMFERÐ 20 (= picotkantur): * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu loftlykkju (= 1 picot), 1 fastalykkja í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* hringinn = 86 picot, klippið og festið þræðina. ------------------------------------------------------- SERVÉTTUHRINGUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka og saumað saman í lokin. SERVÉTTUHRINGUR: Heklið 27 lausar loftlykkjur með 1 þræði í hvorri tegund með heklunál 4. UMFERÐ 1: Hoppið yfir 3 fyrstu loftlykkjur og heklið 1 stuðul í hverja af næstu 24 loftlykkjur, snúið stykkinu. UMFERÐ 2: 4 loftlykkjur (= 1 stuðull + 1 loftlykkja), hoppið yfir 1 stuðul, 1 stuðull í næsta stuðul, * 1 loftlykkja, 1 stuðull í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* út umferðina = 12 loftlykkjubogar, snúið stykkinu. UMFERÐ 3: 1 stuðull í hvern stuðul og 1 stuðull í hverja loftlykkju (fyrsta stuðli er skipt út fyrir 3 loftlykkjur) = 25 stuðlar, snúið stykkinu. UMFERÐ 4: Heklið á sama hátt og umferð 2. UMFERÐ 5: Heklið á sama hátt og umferð 3. UMFERÐ 6 (= picot kantur): * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu loftlykkju (= 1 picot), hoppið yfir 2 stuðla, 1 fastalykkja í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* út umferðina = 8 picot, klippið og festið þræðina. Heklið 1 picot kant á sama hátt meðfram uppfitjunarkanti. Saumið servéttuhringinn saman kant í kant. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (8)
Lee Ann wrote:
I’ve enjoyed this pattern but now I’m stuck. ROUND 19 - crochet as round 14 Well that just sends me to round 10. Is that correct? Because doing the stitches as 10 states DOES NOT WORK.. Pleasee help asap SUGGESTION- place correction notes at TOP of pattern so it’s not missed, as I did when I printed it.
27.09.2023 - 15:43DROPS Design answered:
Dear Lee Ann, the corrections notes are for those who printed the pattern before it was corrected. The online version is now correct so, if you printed the pattern after the correction was made (see date in the correction), then your version of the pattern should be fine. On the other hand, the instructions in round 10 are expanded, so that you work over as many chain-loops as necessary (the instructions state: repeat from *-* all the way around). Rounds 9-10, 13-14 and 18-19 are all worked in the same way, just with different number of stitches, if you could work the previous rounds then round 19 should be correct as well. Happy crocheting!
30.09.2023 - 20:37Cinzia Di Nunzio wrote:
Ho seguito lo schema correttamente ma il risultato non è lo stesso della foto Da quello che ho visto il risultato è costituito da archetti di catenelle mentre le spiegazioni portano a dei quadratini Non ho capito cosa sbaglio
20.04.2021 - 14:07DROPS Design answered:
Buonasera Cinzia, è sicura di aver lavorato correttamente ATTORNO alle maglie come indicato nel modello? Per un'assistenza più personalizzata, può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!
20.04.2021 - 18:12Rebecca Groseclose wrote:
Round 11 says to crochet 1 dc into 1 dc, but row 10 does not contain any dcs. What am I supposed to do? Should it be to crochet 1 dc in each sc and one dc in each ch space?
11.01.2019 - 20:30DROPS Design answered:
Dear Mrs Groseclose, you are right on round 11 you are supposed to crochet 1 dc in each sc from previous round (+ around each ch-space). Pattern will be edited asap. Thanks for your feedback. Happy crocheting!
14.01.2019 - 08:58Barbara Albitz wrote:
In der Beschreibung zur Arbeit des Serviettenringes ist ein Schreibfehler. In der Arbeitsanleitung für die erste Reihe muss es heißen: .....und danach je ein Stäbchen in die nächsten 24 Lm häkeln. Im Original steht auch 24 Lm.
21.10.2013 - 10:12DROPS Design answered:
Liebe Barbara, Sie haben völlig Recht. Da ist unserer damaligen Übersetzerin ein Fehler passiert. Vielen Dank für die Rückmeldung, wir haben es gleich korrigiert.
21.10.2013 - 13:43Youmna wrote:
It est ecris de metter des marquers dans les 1, 3, 9, 19, 21 ms du 1er rang. Ca fait 5coins!? Pouver-vous m'expilquer comment fair parce-que je n'arrive pas ou je dois fair l'augmatation. Merci beaucoup
01.01.2013 - 06:12DROPS Design answered:
Bonjour Youmna, effectivement, on met un marqueurs dans la 1ère, 3ème, 19ème et 21 ème m seulement = 4 coins. La correction a été faite, merci. Bon crochet !
02.01.2013 - 10:58Unnur wrote:
Hej Skulle det ikke være 24 st (i stedet for 25 st) i servietteringen?
16.12.2010 - 15:55DROPs Design DE wrote:
Stimmt genau, vielen Dank! Ich habe es gleich korrigiert.
11.12.2010 - 21:21Maria wrote:
8.R.: Wie die 5.R. und nicht wie die 4.R.
11.12.2010 - 14:51