Paddy |
|
|
|
Heklaður bangsi úr 1 þræði DROPS Puddel eða 2 þráðum DROPS Alpaca Boucle og DROPS Paris
DROPS Baby 21-10 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GALDRAHRINGUR: Byrjið með þessari aðferð til að koma í veg fyrir að það myndist gat í miðju (í staðinn fyrir loftlykkjuhring): Haldið í endann á þræðinum og snúið þræðinum einu sinni í hring utan um vinstri vísifingur til þess að úr verði hringur. Haldið í hringinn með vinstri þumli og löngutöng, þráðurinn liggur yfir vinstri vísifingur. Heklunálinni er stungið inn í hringinn, þræðinum er brugðið um heklunálina og þráðurinn dreginn upp úr hringnum, heklið 1 loftlykkju, heklið nú fastalykkju utan um galdrahringinn. Þegar sá fjöldi fastalykkja er kominn sem óskað er eftir, dragið í endann á þræðinum og herðið að. Festið enda á bakhlið. Haldið áfram að hekla í hring. HEKLAÐ Í HRING: Eftir síðustu fastalykkju í umferð, haldið áfram að næstu umferð með 1 fastalykkju í næstu fastalykkju (= fyrsta fastalykkja frá fyrri umferð). ATH: Merkið byrjun umferðar með prjónamerki á milli síðustu fastalykkju í umferð og fyrstu fastalykkju í næstu umferð, látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. 2 FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN: * Stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. LITASKIPTI: Til að fá falleg litaskipti er síðasta fastalykkjan í umferð hekluð þannig: Stingið heklunálinni í síðustu fastalykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina með nýja litnum og dragið í gegnum allar lykkjur á heklunálinni. Haldið áfram að næstu umferð með nýja litnum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BANGSI: HÖFUÐ: Stykkið er heklað í hring með 1 þræði Puddel eða 2 þráðum Alpaca Boucle með heklunál 5. Byrjið efst á höfði með því að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan. UMFERÐ 1: Heklið 8 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 16 fastalykkjur. Sjá HEKLAÐ Í HRING að ofan. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í næstu 2 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 32 fastalykkjur. UMFERÐ 5-10: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 32 fastalykkjur í umferð. UMFERÐ 11: * 1 fastalykkja í næstu 2 fastalykkjur, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, - sjá 2 FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN – að ofan, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 12: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 13: * 1 fastalykkja í næstu 2 fastalykkjur, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 14: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 15: Heklið saman allar fastalykkjur 2 og 2 = 6 fastalykkjur. Klippið frá og fyllið höfuðið með vatti. BÚKUR: Stykkið er heklað í hring með 1 þræði Puddel eða 2 þráðum Alpaca Boucle með heklunál 5. Byrjið neðst á búk með því að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan. UMFERÐ 1: Heklið 8 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 16 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í næstu 2 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 32 fastalykkjur. UMFERÐ 5-12: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 32 fastalykkjur í umferð. UMFERÐ 13: * 1 fastalykkja í næstu 2 fastalykkjur, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 14: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 15: 1 fastalykkja í næstu 2 fastalykkjur, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtaakið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 16: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 17: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 18: Heklið saman allar fastalykkjur 2 og 2 = 6 fastalykkjur. Klippið frá en haldið eftir 30 cm fyrir frágang. Fyllið búkinn með vatti. FÓTUR: Stykkið er heklað í hring með Paris með heklunál 4. Byrjið yst á fæti með því að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan. UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 4-5: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju – ATH: Skiptið yfir í Pudel og heklunál 5 í síðustu lykkju í umferð 5 – sjá LITASKIPTI – FASTALYKKJA – að ofan = 18 fastalykkjur í umferð. UMFERÐ 6: 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 7-9: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur í umferð. UMFERÐ 10: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 8 fastalykkjur. UMFERÐ 11-12: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 8 fastalykkjur í umferð. Klippið frá en haldið eftir 30 cm fyrir frágang. Heklið hinn fótinn á sama hátt. Fyllið fæturna með vatti. HÖND: Stykkið er heklað í hring með Paris með heklunál 4. Byrjið yst á hönd með því að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan. UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í næstu 2 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 16 fastalykkjur. UMFERÐ 4-5: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju – ATH: Skiptið yfir í Pudel og heklunál 5 í síðustu lykkju í umferð 5 = 16 fastalykkjur í umferð. UMFERÐ 6: 1 fastalykkja í næstu 2 fastalykkjur, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 7: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur í umferð. UMFERÐ 8: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 8 fastalykkjur. UMFERÐ 9-12: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 8 fastalykkjur í umferð. Klippið frá en haldið eftir 30 cm fyrir frágang. Heklið hina höndina á sama hátt. Fyllið hendurnar með vatti. NEF: Stykkið er heklað í hring með Paris með heklunál 4. Byrjið yst á nefi með því að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan. UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í næstu 8 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 20 fastalykkjur. UMFERÐ 5-6: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 20 fastalykkjur í umferð. Klippið frá en haldið eftir 30 cm fyrir frágang. Fyllið nefið með vatti. EYRA: Stykkið er heklað í hring með Paris með heklunál 4. Byrjið efst á eyra með því að hekla GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan. UMFERÐ 1: Heklið 4 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 8 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í næstu 2 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 16 fastalykkjur. UMFERÐ 5-6: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 16 fastalykkjur í umferð. Klippið frá en haldið eftir 30 cm fyrir frágang. Fyllið ekki með vatti. Heklið hitt eyrað á sama hátt. RÓFA: Stykkið er heklað í hring með Paris með heklunál 4. Byrjið yst á rófu með því að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan. UMFERÐ 1: Heklið 4 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 8 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 4-6: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur í umferð. Klippið frá en haldið eftir 30 cm fyrir frágang. Fyllið rófuna með vatti. FRÁGANGUR: Saumið nefið framan á höfuð. Leggið eyrun flöt og saumið þau niður í hvora hlið á höfði. Saumið út nokkur spor yst á nefi, saumið augu með litnum svartur. Saumið höfuð fast á búkinn með smáu spori. Saumið fætur og hendur á búk, saumið rófu á bakhlið á búk. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (21)
Morena wrote:
Mi sapreste dire le dimensioni dell'orsetto per favore? Non riesco a trovarle. Grazie
17.06.2023 - 16:02DROPS Design answered:
Buonasera Morena, l'orsetto ha un'altezza di circa 22 cm. E' indicato sulla destra della foto, insieme alle informazioni sui filati e uncinetti. Buon lavoro!
19.06.2023 - 08:41Paula wrote:
This is so cute ,can it also be done with chunky yarn??
05.10.2022 - 01:47Josephine wrote:
Please can you advise the best way to crochet with this yarn. It is so tricky with all the little loops.
02.03.2021 - 08:01DROPS Design answered:
Dear Josephine, unfortunately, there isn't a way around, you do have to pay attention, and constatnly adjusting the loops. Also , I found that using a blunter than usual hook may help. Happy Crafting!
02.03.2021 - 09:11Cricri69 wrote:
Bonjour ! Trop mignon mais comment faites vous car avec les boucles je ne vois pas les mailles ? Merci pour votre aide
24.06.2019 - 13:24DROPS Design answered:
Bonjour Cricri69, il faut bien regarder les mailles pour bien crocheter au bon endroit, ça peut paraître un peu complexe avec le fil, mais avec un peu d'habitude, on y arrive. Bon crochet!
24.06.2019 - 14:45Lynne wrote:
I've used the pattern many times with "furry" yarn. it can be hard to work with, but gets easier as you get used to it. And small mistakes go unnoticed! I adapted the ear pattern a bit, and make the arms and legs a tiny bit longer, but that's just my preference. Keeping the tension loose for the first round helps with the magic loop,
29.06.2018 - 02:30Sali wrote:
This yarn is almost impossible to crochet!! Please any tips how to handle the alpaca boucle?! Can’t see the stitches-just feeling and hoping for best each round. Also, it’s so bobbly that the magic circle is no use as yarn snags and snaps. I see others had similar issues- how do Drops suggest we handle the yarn?
18.02.2018 - 23:40DROPS Design answered:
Dear Sali, you can first make a ball with both strands Alpaca Bouclé if it can help you. Happy crocheting!
19.02.2018 - 10:19Aurélie wrote:
Impossible de crocheter quoi que ce soit avec l'Alpaca bouclé. On ne voit pas les mailles. À réessayer avec de la laine simple.
09.09.2017 - 10:27Sofia wrote:
Hej, Jag är förbryllad över rekommendationen 150 g Alpaca Bouclé. Jag har precis virkat färdigt nallen med två trådar Alpaca Bouclé och virknål 5. Men det har endast gått åt 50 g. Väldigt stor skillnad, hur kommer det sig?
05.09.2017 - 08:41Laura Vazquez wrote:
Hola que mide el osito una vez tejido? gracias
02.09.2016 - 16:33DROPS Design answered:
Hola Laura. El osito mide aprox. 22 cm. El tamaño depende del número de ganchillo, la tensión del trabajo y la calidad del hilo.
04.09.2016 - 22:16Christa Roggensack wrote:
Ich habe folgendes übersehen: Puddle war ein Garn das normalerweise für Nadelstärke 7 ist, also wird hier mit einer kleineren Nadel deutlich fester gehäkelt. Ich habe einen 2. Teddy mit der Bouclewolle gemacht, bei dem ich den Faden doppelt genommen habe. Merkwürdigerweise lässt sich das Garn doppelt genommen viel besser häkeln. Der Teddy wird dann etwas größer und dichter. Beim einfädigen Teddy sieht man mit kritischem Blick etwas die Füllwatte durch.
03.11.2015 - 08:52