-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Carry All |
|
|
|
Hekluð taska / net úr DROPS Lin og DROPS Cotton Viscose eða DROPS Safran og DROPS Muskat.
DROPS 139-11 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLIÐ FL Í UMFERÐ (á við um tösku): Allar umf byrja með 1 ll og 1 fl í 1. fl, endið með 1 kl í 1. fl. STUÐLAHÓPAR: 1 st-hópur = 2 st, 2 ll, 2 st um sama ll-boga. Allar umf með st-hópum byrja á kl að 1. ll-boga, heklið 3 ll, 1 st, 2 ll, 2 st um sama ll-boga, síðan 1 st-hóp í hvern ll-boga, endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf. HEKLIÐ FL Í HRING (á við um axlaról): Eftir síðasta fl í umf 1, er hekluð 1 fl í næstu fl, haldið áfram að hekla hring með 1 fl í hverja fl. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring með 1 þræði Lin natur/Muskat ljós moldvarpa og 1 þræði Cotton Viscose ljós beige/Safran beige með heklunál 5. TASKA: UMFERÐ 1: Heklið 2 ll, 8 fl í 1. ll, endið með 1 kl í 1. fl = 8 fl – lesið HEKLIÐ FM Í HRING að ofan. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 16 fl. UMFERÐ 3: Heklið * 1 fl í næstu fl, síðan 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* = 24 fl (8 nýjar l). UMFERÐ 4: Heklið * 1 fl í hvora af næstu 2 fl, síðan 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* = 32 fl. UMFERÐ 5: Heklið * 1 fl í hverja af næstu 3 fl, síðan 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* = 40 fl. UMFERÐ 6: Heklið * 1 fl í hverja af næstu 4 fl, síðan 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* = 48 fl. UMFERÐ 7: Heklið * 1 fl í hverja af næstu 5 fl, síðan 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* = 56 fl. UMFERÐ 8: Heklið 1 fl í hverja fl = 56 fl. Endurtakið umf 7 og 8 þannig að aukið er út um 8 nýjar l í annarri hverri umf (þ.e.a.s. heklið 1 fl í hverja af þeim næstu 6, 7, 8 o.s.frv, síðan 2 fl í næstu fl) þar til 96 fl eru eftir í umf, heklið 1 umf með 1 fl í hverja fl (= umf 18). UMFERÐ 19: Heklið * 1 fl í hverja af næstu 7 fl, síðan 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* = 108 fl (12 nýjar l). UMFERÐ 20: Heklið 1 fl í hverja fl = 108 fl. Endurtakið umf 19 og 20 þannig að aukið er út um 12 nýjar l í annarri hverri umf (þ.e.a.s. heklið 1 fl í hverja af næstu 8 og 9 fl, síðan 2 fl í næstu fl) þar til 132 fl eru í umf. Heklið nú 1 fl í hverja fl þar 9 cm eru frá síðustu útaukningu (stykkið mælist nú ca 22 cm frá umf 1). Nú er heklað þannig: Heklið þannig í 1. fl: 3 ll, 1 st, 2 ll, 2 st, * hoppið yfir 3 fl, 1 st-hópur í næstu fl * - Lesið STUÐLAHÓPAR að ofan, endurtakið frá *-* út umf, endið með að hoppa yfir 3 fl og 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 33 st-hópar. Heklið umf með st-hópum ca 23 cm (stykkið mælist ca 45 cm frá umf 1). Næsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 ll, 3 fl í hvern ll-boga út umf, endið með 4 fl í síðasta ll-boga á umf = 100 fl. Heklið 1 fl í hverja fl í 6 umf. Næsta umf er hekluð þannig: Heklið 10 fl, * 2 ll, hoppið yfir 2 fl, 26 fl, 2 ll, hoppið yfir 2 fl *, 20 fl, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, endið með 10 fl = 4 op fyrir axlaról. Haldið áfram með 1 fl í hverja fl (1 fl í hverja ll yfir opi) í 6 umf til viðbótar, klippið frá og festið enda (stykkið mælist ca 6 cm frá umf 1 með fl eftir síðustu umf með st-hóp). AXLARÓL: Stykkið er heklað í hring. Heklið 5 ll með 2 þráðum Lin brúnn/Muskat negull með heklunál nr 5 og tengið í hring með 1 kl í 1. ll. Heklið 1 fl í hverja ll = 5 fl. HEKLIÐ FL Í HRING – sjá útskýringu að ofan – ca 80 cm (eða óskaða lengd), klippið frá og festið enda. Heklið aðra axlaról á sama hátt. FRÁGANGUR: Þræðið enda á axlarólinni í gegnum opin á töskunni frá röngu, gerið hnút. Endurtakið á sama hátt í hinni hliðinni. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6939 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (44)
Fabiana wrote:
Hola, no entiendo como se sigue luego de llegar a la altura deseada con los avanicos. Como se llega a los 100 pts. Muchas gracias por la explicacion
02.12.2022 - 14:22DROPS Design answered:
Hola Fabiana, después de llegar a la altura deseada deberías tener 33 arcos de cadenetas. En la siguiente vuelta, trabajar 1 punto de cadeneta, 3 p.b en cada uno de los siguientes 32 arcos (= 96 pts) y 4 p.b en el último arco (= 4 pts). En total tienes 100 p.b.
06.12.2022 - 19:00Ida wrote:
Buongiorno , mi ruotano 35 gruppi di maglia alte e non 33; forse sbaglio l'inizio. È corretto fare tre maglie bassissime è poi le tre catenelle che sostituiscono la prima maglia alta? Grazie mille siete bravissime.
21.07.2022 - 11:18DROPS Design answered:
Buongiorno Ida, deve lavorare il giro come indicato nelle spiegazioni. Buon lavoro!
23.07.2022 - 14:20Karoline wrote:
Hallo! Häkelt man alle 30 Stb. Gruppen weiter in die Höhe? Ohne Kettm. am Ende der Runden? Die Tasche scheint nach oben hin immer weiter zu werden. Danke!
26.03.2020 - 17:29DROPS Design answered:
Liebe Karoline, Sie häkeln 33 Stb-Gruppen wie unter STB-GRUPPE erklärt (Anfang +Ende der Runden) bis 23 cm mit Stb-Gruppen gehäkelt wird. Dann häkeln Sie weiter mit fM. Viel Spaß beim häkeln!
27.03.2020 - 09:37Jutta wrote:
Hallo! Bitte um Hilfe! Ersetzt die erste Luftmasche die erste feste Masche? Zähle ich die erste feste Masche die ich mache dann also schon als 2. Masche der Runde? Z. B. Runde 3: Eine Luftmasche ( ersetzt die erste feste Masche) und dann gleich 2 feste Maschen in die nächste feste Masche? Danke!! Liebe Grüße
25.03.2020 - 09:31DROPS Design answered:
Liebe Jutta, die 1. Luftmasche erzetzt nicht die erste feste Maschen am Anfang der Runde, dh jede Runde wird mit 1 Luftmaschen anfangen und am Ende der Runde häkeln Sie 1 KettMasche in die 1. feste Masche der Runde. Viel Smpaß beim häkeln!
25.03.2020 - 10:18Monique Kruissen wrote:
Boven genoemd garen is er niet meer, met welk garen kan ik deze tas haken? Bij voorbaat dank.
28.05.2018 - 12:00DROPS Design answered:
Dag Monique, Een katoengaren uit categorie A is een goed alternatief, bijvoorbeeld DROPS Safran of DROPS ♥ You #9 of #7.
30.05.2018 - 13:37Irene Bolovis wrote:
I have restarted this bag twice now. I am up to row 22 and so far I have a large disk. When will the bag start looking like a cylinder. Shouldn't I do a row in the back loops only so it will start shaping upward instead of flat. I'm very confused.
19.06.2017 - 13:21DROPS Design answered:
Dear Mrs Bolovis, you are increasing until there are 132 sts in the round, then continue without increasing until piece measures 22 cm from 1st round (not in diameter). Sts are not worked into back loop, just as usual. Happy crocheting!
19.06.2017 - 16:52PK Ang wrote:
Is the bag begins from the bottom? Is the DC ROUNDS applies to every round of the bag and "sl" is needed for end of every round? Thks
22.04.2016 - 02:31DROPS Design answered:
Dear PK Ang, correct, the bag is worked from bottom up, starting with the bottom. The bottom consists of a round of dc, start each round with 1 ch (des not replace 1st dc) and finish with round with 1 sl st in 1st dc at the beg of round. Happy crocheting!
22.04.2016 - 08:58Anne Louise Spencer wrote:
Is Drops Bomull Lin colour light beige (03) or colour beige (11) a better blend with DROPS COTTON VISCOSE colour light beige (17) for this pattern? Thankyou.
31.12.2015 - 02:58DROPS Design answered:
Dear Mrs Spencer, please contact your DROPS Store for any help choosing your colours. They will answer even per mail or telephone. Happy crocheting!
02.01.2016 - 15:56Kuba Margit wrote:
Liebes Drops-Team, hilfe!!! Bin gerade bei der 4. Reihe des Muschelmusters, und muss leider feststellen, dass die Wolle bei Weitem nicht reichen wird. Mach ich da irgendwas falsch? Sollte ich vielleicht fester häkeln, da es mir ab diesem Muster auch sehr weit und locker vorkommt?
27.07.2015 - 15:15DROPS Design answered:
Liebe Margit, haben Sie die Maschenprobe genau eingehalten? Das ist ganz wichtig, damit die Menge des Garns reicht. Wenn Sie den Eindruck haben, dass das Muschelmuster sehr locker ausfällt, versuchen Sie, es fester zu häkeln oder eine dünnere Nadelstärke zu verwenden. Es sollte auch zum unteren Teil der Tasche passen und sich nicht stark wellen oder zusammenziehen.
28.07.2015 - 13:12Claudio Pradella wrote:
Buon giorno, io vorrei realizzare la borsa Drops Carry All modello n°LN-O25 ma non riesco a trovare nei vs. prodotti il filato DROPS LIN, mi potreste comunicare con quale prodotto è possibile sostituirlo per poter effettuare l'ordine? Grazie.
31.01.2015 - 13:53DROPS Design answered:
Buongiorno Claudio, purtroppo il filato Lin è fuori produzione, ma quiqui può vedere la pagina con le sue caratteristiche e trovare un filato sostitutivo, ad esempio in cotone, visto che la borsa è estiva. Si ricordi di controllare il metraggio corretto prima di effettuare l'ordine: nella pagina indicata troverà un link che le indica come fare. Buon lavoro!!
31.01.2015 - 14:38