DROPS Kid-Silk uni colour 75% Mohair, 25% Silki |
1430.00 kr /25g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Kid-Silk uni colour 75% Mohair, 25% Silki 1430.00 kr /25g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu | |
= brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu | |
= sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja | |
= 2 lykkjur slétt saman | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir | |
= 2 lykkjur brugðið saman | |
= 2 lykkjur snúnar brugðið saman |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Sweet Fall |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónað vesti úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL
DROPS 140-2 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka) Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A-1 til A-5. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um úrtöku við hálsmál á framstykki): Fækkið lykkjum frá réttu innan við 1 l við miðju að framan þannig. Fækkið lykkjum í HÆGRA framstykki: Prjónið 2 l snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum í VINSTRA framstykki: Prjónið 2 l sl saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. BAKSTYKKI: Fitjið upp 127-137-147-157-167-177 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið (1. umf = ranga) þannig: Stærð S-L-XXL: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, mynstur A-1 þar til 6 l eru eftir, 5 l sl (þ.e.a.s. br frá réttu) og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Stærð M-XL-XXXL: 1 kantlykkja í garðaprjóni, mynstur A.4 þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 5 fyrstu lykkjur aftur í A.4 og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar A-1/A.4 hefur verið prjónað til loka eru 103-119-119-125-135-141 l á prjóni. Haldið áfram þannig (1. umf = rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 24-27-32-35-40-43 l sléttprjón, mynstur A-2 (= 53 l), 24-27-32-35-40-43 l sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar A-2 hefur verið prjónað til loka eru 71-77-87-93-103-109 l á prjóni. Haldið áfram með A-3 yfir miðju 21 l til loka, hinar l eru prjónaðar eins og áður. Þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm í hlið, prjónið 4 umf garðaprjón yfir þær 6-7-7-8-8-9 síðustu l í hvorri hlið (hinar l eru prjónaðar eins og áður). Fellið nú af 3-4-4-5-5-6 síðustu l í hvorri hlið (fellið af í byrjun á 2 næstu umf) = 65-69-79-83-93-97 l eftir á prjóni. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! MYNSTUR: Haldið áfram með A-3 fyrir miðju, sléttprjón í hvorri hlið og 3 síðustu l við handveg í garðaprjóni. HANDVEGUR (aukið út í 2 minnstu stærðum til þess að öxlin verði ekki of þröng, í hinum stærðum er fellt af svo að öxlin verði ekki of breið): STÆRÐ S: Jafnframt, 2 cm eftir að fellt var af fyrir handveg, aukið út um 1 l í hvorri hlið í næstu umf frá réttu, með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 3 l með garðaprjóni í hvorri hlið. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br til að koma í veg fyrir göt. Endurtakið útaukningu í 4. hverri umf 2 sinnum til viðbótar = 71 l. STÆRÐ M: Jafnframt, 3 cm eftir alla úrtöku fyrir handveg, aukið út um 1 l í hvorri hlið í næstu umf frá réttu, með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 3 l með garðaprjóni í hvorri hlið. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn sl til þess að koma í veg fyrir göt. Endurtakið útaukningu í 4. hverri umferð 1 sinni til viðbótar = 73 l. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Jafnframt í 1. umf frá réttu, fellið af 1 l í hvorri hlið innan við 3 l í garðaprjóni, fyrir handveg þannig: Á eftir 3 l garðaprjón: Prjónið 2 l snúnar slétt saman. Á undan 3 l í garðaprjóni: Prjónið 2 l sl saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 0-0-3-3 sinnum til viðbótar = 77-81-85-89 l. ALLAR STÆRÐIR: Eftir úrtöku/útaukningu fyrir handveg eru 71-73-77-81-85-89 l á prjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm í hlið. Í næstu umf eru felldar af miðju 19-19-19-21-21-21 l af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð fyrir sig til loka. Fellið af 1 l í næstu umf frá hálsi = 25-26-28-29-31-33 l eftir á öxl. Fellið af þær l sem eftir eru þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 37-37-47-47-57-57 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hlið) á prjóna nr 5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið(1. umf = ranga) þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A-4 yfir 35-35-45-45-55-55 l, 1 l í garðaprjóni. Eftir A-4 eru þá 29-29-37-37-45-45 l á prjóni. Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar l, en 1 l í hvorri hlið er prjónuð í garðaprjóni. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! ÚRTAKA VIÐ HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm, fellið af 1 l við miðju að framan í öllum stærðum nema stærð M – SJÁ ÚRTAKA, endurtakið úrtöku með 4 cm millibili 3-0-3-0-4-0 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. að alls fækkar um 4-0-4-1-5-1 l við háls). HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm, prjónið 4 umf garðaprjón yfir 6-7-7-8-8-9 l á hlið (hinar l eru prjónaðar eins og áður). Í næstu umf sem byrjar frá hlið, fellið af fyrstu 3-4-4-5-5-6 l. Haldið áfram með 3 l garðaprjón við handveg og aðrar l eins og áður. HANDVEGUR: Jafnframt er fellt af/aukið út fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki. Eftir alla útaukningu og úrtöku eru 25-26-28-29-31-33 l á prjóni. Fellið af þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma og hliðarsauma. KANTUR AÐ FRAMAN/KRAGI: Til þess að fá pláss fyrir allar l, verður að prjóna kantinn fram og til baka á hringprjóna nr 4. Prjónið upp með 1 þræði af hvorri tegund, ca 270 til 300 l upp meðfram hægri kanti að framan, í kringum hálsmál og niður meðfram vinstri kanti að framan (þ.e.a.s. ca 19 l á 10 cm). Prjónið 1 umf slétt til baka frá röngu jafnframt sem lykkjufjöldi er aukin út jafnt yfir að 303-310-317-324-331-338 l. Haldið áfram (frá réttu) þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, * 3 l sl, 4 l br *, endurtakið frá *-* þar til 6 l eru eftir, prjónið 3 l sl og 3 l garðaprjón. Þegar kanturinn mælist 8 cm, aukið allar 4 l br til 5 l br (aukið út frá réttu með því að prjóna 2 l í fyrstu br l í hverri br einingu) = 345-353-361-369-377-385 l. Þegar kanturinn mælist 11-11-12-12-13-13 cm, prjónið áfram (1. umf = ranga) þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, * A-5, 5 l sl (br frá réttu) *, endurtakið frá *-*, endið með A-5 og 3 l garðaprjóni. Þegar A-5 er hefur verið prjónað er fellt af frá réttu með sl yfir sl og br yfir br. Kanturinn mælist alls ca 17-17-18-18-19-19 cm. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6939 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (132)
Nuria wrote:
Buenos días, me encanta este modelo y lo voy a realizar con lana multicolor. Tengo una duda con los esquemas A1, A 4 y A5: parece que falta la primera vuelta ya que si se realiza tal cual, los motivos habría que hacerlos en las vueltas pares por lo que no quedaría bien. ¿estoy en lo cierto? les agradecería que me lo aclarasen. Muchas gracias por su trabajo.
04.09.2023 - 11:53Deshayes wrote:
Bonjour, je n'arrive pas à faire ce modèle 140-2,je fais le 1 er rang puis au retour je ne tombe pas sur les 5 m du milieu , ça fait 5 fois que je recommence Je ne vois pas ou se trouve l'erreur, tricoteuse confirmée
12.02.2022 - 15:05DROPS Design answered:
Bonjour Mme Deshayes, quelle taille tricotez-vous? avec quelle partie avez-vous du mal? Pouvez-vous nous en dire plus pour que l'on puisse vous aider? Merci!
14.02.2022 - 11:10Solweig Wallin wrote:
För storlek M ska första varvet efter upplägg stickas efter diagram A-4. Sedan står det bara talas om A-1 i fortsättningen . Ska man sticka A-4 och sedan fortsätta enl mönstret med A-2 o A-3 osv . Det är väldigt otydligt i mönstret. Ska jag sticka storlek L i stället för då kan jag ju följa instruktionerna
15.04.2021 - 10:20DROPS Design answered:
Hej Solweig. Jag ser att A-4 hade försvunnit i den svenska översättningen, detta är nu rättat: "När A-1/A-4 är färdigstickat är det 103-109-119-125-135-141 m på st...." Tack för info! Mvh DROPS Design
16.04.2021 - 10:37Anna=Maija wrote:
Suomennos ohjeesta on täysin pielessä esim. Koossa XL pitäisi alussa käyttää kaaviota A4 eikä A1 ja reunasilmukan lisäksi neulotaan 35 silmukkaa eikä 36. Luulin että pienestä numerovirheestä kyse, mutta olikin täysin pielessä ohje ja purkuun meni.
28.03.2021 - 18:44Virginia wrote:
El patrón central parece que tiene uno que disminuir un punto de cada lado creo hay que aclarar ese detalle
01.02.2021 - 15:43Steph wrote:
Jetzt hat es geklappt!!! Vielen Dank für die freundliche Hilfe
04.06.2020 - 00:09Steph wrote:
Hallo und danke für Ihre schnelle Antwort, sie hilft mir nur leider nicht weiter Wo nehme ich denn ab? Die glatt rechts Maschen werden bei mir mehr, die 21 Muster Maschen bleiben gleich, Stricke ich irgendwo Maschen zusammen, da das Muster ja schräg nach oben verläuft? Bei mir kam in jeder 4.Reihe eine rechts Masche dazu?
03.06.2020 - 08:54DROPS Design answered:
Liebe Steph, wenn Sie A.2 stricken wird bei der 1. Reihe A.2 über 53 Maschen gestrickt, dann wird es in A.2 abgenommen (siehe 7. und 8. Symbol) und wenn A.2 fertig ist (= nach 65 Reihen) sind es nur noch 21 Maschen in A.2. Viel Spaß beim stricken!
03.06.2020 - 11:29Steph wrote:
Ich stricke die Weste in xxxl und habe das Muster A2 gerade 1x in Höhe fertig gestrickt - nun steht in der Anleitung, es sollen sich nun 109M auf der Nadel befinden, das kann ich gar nicht nachvollziehen??? Ich habe sehr viel mehr Maschen- nämlich 139M - wo liegt mein Fehler??? Ich würde mich sehr über Ihre Hilfe freuen, danke dafür im Voraus!
02.06.2020 - 19:25DROPS Design answered:
Liebe Steph, haben Sie 21 Maschen übrig in A.2? Wenn A.2 fertig ist sollen Sie folgende Maschen haben: 1 Randmasche, 43 M glatt re, 21 M A.2, 43 M glatt re, 1 Randmasche. Viel Spaß beim stricken!
03.06.2020 - 06:44Janne wrote:
Det er kommentert tidligere angående mulig feil i oppskriften: Når man i str M går fra A1 til A2 passer ikke flettene. Kantm + 28 glstr før man starter på A2 fører til at flettene kommer over vrangpartiene. Hvorfor er ikke dette rettet da det er kommentarer på dette for mange år siden?
16.08.2019 - 20:45DROPS Design answered:
Hej. Ber om ursäkt för sent svar, mönstret är nu rättat i storlek M-XL-XXXL. Mvh DROPS Design
07.10.2019 - 07:30Gabriela wrote:
Hola! Estoy haciendo el cuello y no me queda claro si al tejer A5 se invierten los puntos o se tejen como se presentan. Gracias
20.06.2019 - 05:24DROPS Design answered:
Hola Gabriela. Los diagramas presentan todas las filas del patrón vistas por el lado derecho, es decir, las filas pares ( las filas por el lado revés) se trabajan a la inversa de lo que se ve en el diagrama ( por ejemplo, el cuadrado blanco se trabaja como un punto de revés).
20.06.2019 - 22:38