Tutti frutti |
|
|
|
Hekluð karfa með ávöxtum og grænmeti úr DROPS Paris.
DROPS Children 23-56 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GALDRAHRINGUR: Byrjið með þessari aðferð til að koma í veg fyrir að það myndist gat í miðju (í staðinn fyrir loftlykkjuhring): Haldið í endann á þræðinum og snúið þræðinum einu sinni í hring utan um vinstri vísifingur til þess að úr verði hringur. Haldið í hringinn með vinstri þumli og löngutöng, þráðurinn liggur yfir vinstri vísifingur. Heklunálinni er stungið inn í hringinn, þræðinum er brugðið um heklunálina og þráðurinn dreginn upp úr hringnum, heklið 1 loftlykkju, heklið nú fastalykkju utan um galdrahringinn. Þegar sá fjöldi fastalykkja er kominn sem óskað er eftir, dragið í endann á þræðinum og herðið að. Festið enda á bakhlið. Haldið áfram að hekla í hring. HEKLAÐ Í HRING: Eftir síðustu fastalykkju í umferð, haldið áfram að næstu umferð með 1 fastalykkju í næstu fastalykkju (= 1. fastalykkja frá fyrri umferð). ATH: Merkið byrjun á umferð með prjónamerki á milli síðustu fastalykkju í umferð og 1. fastalykkju í næstu umferð, látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 fastalykkju með því að hekla 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju. ÚRTAKA: Fækkið um 1 fastalykkju með því að hekla næstu 2 fastalykkjur saman þannig: * Stingið heklunálinni í næstu fastalykkju, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. LITASKIPTI: Til að fá falleg litaskipti er síðasta fastalykkjan í umferð hekluð þannig: Stingið heklunálinni í síðustu fastalykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina með nýja litnum og dragið í gegnum allar lykkjur á heklunálinni. Haldið áfram að næstu umferð með nýja litnum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- GULRÓT: Stykkið er heklað í hring. Heklið 2 loftlykkjur með litnum ljós appelsínugulur með heklunál 4,5. UMFERÐ 1: Heklið 3 fastalykkjur í 1. loftlykkju sem var hekluð – SJÁ HEKLAÐ Í HRING! UMFERÐ 2: Aukið út um 1 fastalykkju í hverja fastalykkju – SJÁ ÚTAUKNING = 6 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 8 fastalykkjur. UMFERÐ 4 (og síðan allar jafnar umferðir): Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 5: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 10 fastalykkjur. UMFERÐ 7: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 9: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 5 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 14 fastalykkjur. UMFERÐ 11: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 6 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 16 fastalykkjur. Heklið síðan 1 fastalykkju í hverja fastalykkju í hring í 12 umferðir að auki. Fækkið nú lykkjum þannig: UMFERÐ 1: * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju – sjá ÚRTAKA, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 2: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, fækkið um 1 fastalykkju, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 8 fastalykkjur. UMFERÐ 3: Heklið allar fastalykkjur í umferð 2 og 2 saman = 4 fastalykkjur, klippið frá. Fyllið gulrótina með vatti, saumið saman síðustu 4 fastalykkjur með endanum. BLÖÐ: Heklið 3 loftlykkjur með litnum ópalgrænn, tengið lykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. Um hringinn er heklað þannig: * 1 fastalykkja, 9 loftlykkjur, 1 fastalykkja, 11 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju = alls 8 loftlykkjubogar, klippið frá og festið enda. Saumið blöðin á toppinn á gulrótinni. -------------------------------------------------------- EPLI: Stykkið er heklað í hring. Byrjið á að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan – neðst á epli með litnum rauður með heklunál 4,5. UMFERÐ 1: Heklið 7 fastalykkjur um galdrahringinn – sjá HEKLAÐ Í HRING! UMFERÐ 2: Aukið út um 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 14 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 21 fastalykkjur. UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 28 fastalykkjur. UMFERÐ 5: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 35 fastalykkjur. UMFERÐ 7: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 42 fastalykkjur. UMFERÐ 8 -16: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkjur. UMFERÐ 17: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 5 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 36 fastalykkjur. UMFERÐ 18: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 30 fastalykkjur. UMFERÐ 19: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 20: * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, fækkið um 1 UMFERÐ 21: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 22: Heklið allar fastalykkjur í umferð 2 og 2 saman = 6 fastalykkjur, klippið frá. Fyllið eplið með vatti, saumið saman síðustu 6 fastalykkjur með endanum. ATH: Dragið endann í gegnum toppinn og botninn á eplinu þannig að það myndist smá hola í hvorri hlið. STILKUR: Stykkið er heklað í hring. Heklið 3 loftlykkjur með litnum brúnn með heklunál 4,5, síðan 2 fastalykkjur í 1. og 2. loftlykkju sem var hekluð = 4 fastalykkjur. Heklið síðan 16 fastalykkjur með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju, klippið frá og festið enda. BLAÐ: Stykkið er heklað fram og til baka. Heklið 8 loftlykkjur með litnum pistasía með heklunál 4,5 og síðan er heklað meðfram loftlykkjukeðju þannig: 1 keðjulykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 loftlykkjum, 1 hálfur stuðull í næstu loftlykkju, 1 stuðull í hvora af næstu 2 loftlykkjum, 2 fastalykkjur í síðustu loftlykkju. Heklið síðan frá hinni hliðinni á loftlykkjukeðju þannig: 1 stuðull í hvora af næstu 2 loftlykkjum, 1 hálfur stuðull í næstu loftlykkju, 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 loftlykkjum, 1 keðjulykkja í síðustu loftlykkju, klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið stilk og blöð á toppinn á eplinu. -------------------------------------------------------- PERA: Stykkið er heklað í hring. Byrjið á að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan – neðst niðri á perunni með litnum pistasía með heklunál 4,5. UMFERÐ 1: Heklið 7 fastalykkjur um galdrahringinn – sjá HEKLAÐ Í HRING! UMFERÐ 2: Aukið út um 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 14 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 21 fastalykkja. UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 28 fastalykkjur. UMFERÐ 5: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 35 fastalykkjur. UMFERÐ 6: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 7: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 42 fastalykkjur. UMFERÐ 8 -13: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 14: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 35 fastalykkjur. UMFERÐ 15: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 28 fastalykkjur. UMFERÐ 16: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 5 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 17 - 22: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 23: * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 24: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 25: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 26: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 27: Heklið allar fastalykkjur í umferð 2 og 2 saman = 6 fastalykkjur, klippið frá. Fyllið peruna með vatti, saumið saman síðustu 6 fastalykkjur með endanum. STILKUR: Stykkið er heklað í hring. Heklið 3 loftlykkjur með litnum brúnn með heklunál 4,5 síðan 2 fastalykkjur í 1. og 2. loftlykkju sem var hekluð = 4 fastalykkjur. Heklið síðan 16 fastalykkjur með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju, klippið frá og festið enda. BLAÐ: Stykkið er heklað fram og til baka. Heklið 8 loftlykkjur með litnum opalgrænn með heklunál 4,5 og síðan er heklað meðfram loftlykkjukeðju þannig: 1 keðjulykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 loftlykkjum, 1 hálfur stuðull í næstu loftlykkju, 1 stuðull í hvora af næstu 2 loftlykkjum, 2 fastalykkjur í síðustu loftlykkju. Heklið síðan frá hinni hliðinni á loftlykkjukeðju þannig: 1 stuðull í hvora af næstu 2 loftlykkjum, 1 hálfur stuðull í næstu loftlykkju, 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 loftlykkjum, 1 keðjulykkja í síðustu loftlykkju, klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið stilk og blöð á toppinn á perunni. -------------------------------------------------------- KLEMENTÍNA: Stykkið er heklað í hring. Byrjið á að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan – neðst niðri á klementínunni með litnum appelsínugulur með heklunál 4,5. UMFERÐ 1: Heklið 7 fastalykkjur um galdrahringinn – sjá HEKLAÐ Í HRING! UMFERÐ 2: Aukið út um 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 14 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 21 fastalykkja. UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja hvora af næstu 2 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 28 fastalykkjur. UMFERÐ 5: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 35 fastalykkjur. UMFERÐ 6-10: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 11: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 5 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 30 fastalykkjur. UMFERÐ 12: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 13: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 14: * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 15: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 16: Heklið allar fastalykkjur í umferð 2 og 2 saman = 6 fastalykkjur, klippið frá. Fyllið klementínuna með vatti, saumið saman síðustu 6 fastalykkjur með endanum. ATH: Dragið endann í gegnum toppinn og botninn á klementínunni þannig að það myndist smá hola í hvorri hlið. BLAÐ: Stykkið er heklað fram og til baka. Heklið 6 loftlykkjur með litnum opalgrænn með heklunál 4,5 og síðan er heklað meðfram loftlykkjukeðju þannig: 1 keðjulykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í í næstu loftlykkju, 1 hálfur stuðull í næstu loftlykkju, 1 stuðull í næstu loftlykkju, 3 stuðlar í síðustu loftlykkju. Heklið síðan frá hinni hliðinni á loftlykkjukeðju þannig: 1 stuðull í næstu loftlykkju, 1 hálfur stuðull í næstu loftlykkju, 1 fastalykkja í næstu loftlykkju, 1 keðjulykkja í síðustu loftlykkju, klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Heklið annað blað alveg eins og saumið á toppinn á klementínunni. Saumið nokkur spor með brúnum á milli þessa tveggja blaða. -------------------------------------------------------- JARÐABER: Stykkið er heklað í hring. Byrjið á að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan – neðst niðri á jarðaberinu með litnum skærbleikur með heklunál 4,5. UMFERÐ 1: Heklið 4 fastalykkjur um galdrahringinn – sjá HEKLAÐ Í HRING! UMFERÐ 2: Aukið út um 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 8 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 16 fastalykkjur. UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 6: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 20 fastalykkjur. UMFERÐ 7: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 8 * 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 9 og 10: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 11: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 2 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 12: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 13: Heklið allar fastalykkjur í umferð 2 og 2 saman = 6 fastalykkjur, klippið frá. Fyllið jarðaberið með vatti, saumið saman síðustu 6 fastalykkjur með endanum. BLAÐ: Stykkið er heklað í hring. Heklið 48 loftlykkjur með litnum pistasía með heklunál 4,5 og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í 1. loftlykkju, * hoppið yfir 5 loftlykkjur, 1 fastalykkja í næstu loftlykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn, endið með að hoppa yfir síðustu 5 loftlykkjurnar, 1 keðjulykkja í 1. fastalykkju = 8 fastalykkjur og 8 loftlykkjubogar. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju, endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju. UMFERÐ 3: Heklið 1 loftlykkju, heklið allar fastalykkjur í umferð 2 og 2 saman = 4 fastalykkjur. Heklið síðan 1 fastalykkju í hverja fastalykkju, klippið frá og festið enda. Saumið blöðin á toppinn á jaðaberinu. Saumið nokkur spor með litnum skærgulur á jarðaberið. -------------------------------------------------------- KIWI: Stykkið er heklað í hring. Byrjið á að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan – með litnum pistasía með heklunál 4,5 efst á opnu kiwi. UMFERÐ 1: Heklið 7 fastalykkjur um galdrahringinn – sjá HEKLAÐ Í HRING! UMFERÐ 2: Aukið út um 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 14 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 21 fastalykkjur. UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 28 fastalykkjur. UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju – skiptið yfir í litinn grænn í síðustu fastalykkjunni í umferð – SJÁ LITASKIPTI. UMFERÐ 6 – 10: Með litnum grænn, heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 11: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 5 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 12: 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 13: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 14: Heklið allar fastalykkjur 2 og 2 saman = 6 fastalykkjur, klippið frá. Fyllið stykkið með vatti og saumið saman síðustu 6 fastalykkjur með endanum. Saumið nokkur spor á brúnum á botni á stykki með litnum pistasía. -------------------------------------------------------- SVEPPUR: Stykkið er heklað í hring. Byrjið á að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan – efst á svepp með litnum brúnn með heklunál 4,5. UMFERÐ 1: Heklið 7 fastalykkjur um galdrahringinn – sjá HEKLAÐ Í HRING! UMFERÐ 2: Aukið út um 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 14 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 21 fastalykkjur. UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 28 fastalykkjur. UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 6: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 35 fastalykkjur. UMFERÐ 7: Aukið út um 1 fastalykkju í 1 fastalykkju, síðan 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 36 fastalykkjur. UMFERÐ 8 og 9: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 10: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 30 fastalykkjur, skiptið yfir í litinn dökk beige í síðustu fastalykkjunni í umferð – sjá LITASKIPTI. UMFERÐ 11: Með litnum dökk beige, heklið * 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 12: * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 13: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 14 og 15: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 16: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 5 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 14 fastalykkjur. UMFERÐ 17: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 18: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 6 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 16 fastalykkjur. UMFERÐ 19: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 20: * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 21: Heklið allar fastalykkjur í umferð 2 og 2 saman = 6 fastalykkjur, klippið frá. Fyllið sveppinn með vatti, saumið saman síðustu 6 fastalykkjur með endanum. -------------------------------------------------------- BANANI: Stykkið er heklað í hring. Heklið 2 loftlykkjur með litnum skærgulur með heklunál 4,5. UMFERÐ 1: Heklið 3 fastalykkjur í 1. loftlykkju sem var hekluð – sjá HEKLAÐ Í HRING! UMFERÐ 2: Aukið út um 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 6 fastalykkjur. UMFERÐ 3: Aukið út um 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju – en aukið út um 1 fastalykkju í 1. og síðustu fastalykkju í umferð = 14 fastalykkjur. Endurtakið umferð 4 og 5 (þ.e.a.s. aukið út um 1 fastalykkju í 1. og síðustu fastalykkju í annarri hverri umferð) þannig að það verða 20 fastalykkjur í umferð. UMFERÐ 12: Aukið út um 1 fastalykkju í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 4 fastalykkjur yfir næstu 8 fastalykkjur – sjá ÚRTAKA, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í hvora af síðustu 2 fastalykkjum = 20 fastalykkjur. UMFERÐ 13 og 14: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 15: Aukið út um 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 3 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 4 fastalykkjur yfir næstu 8 fastalykkjur, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í síðustu fastalykkju. UMFERÐ 16 og 17: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 18: Aukið út um 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 4 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 4 fastalykkjur, 1 fastalykkja í hverja af síðustu 4 fastalykkjum. UMFERÐ 19 og 20: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 21: Heklið 1 fastalykkju í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 4 fastalykkjur yfir næstu 8 fastalykkjur, 1 fastalykkja í hvora af síðustu 2 fastalykkjum. UMFERÐ 22 og 23: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 24: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 4 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 4 fastalykkjur yfir síðustu 8 fastalykkjur. UMFERÐ 25 og 26: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 27: Fækkið um 1 fastalykkju yfir fyrstu 2 fastalykkjur, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 3 fastalykkjur yfir næstu 6 fastalykkjur. UMFERÐ 28 og 29: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 30: Fækkið um 2 fastalykkjur yfir fyrstu 4 fastalykkjur, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 2 fastalykkjur yfir næstu 4 fastalykkjur. UMFERÐ 31: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 32: Fækkið um 2 fastalykkjur yfir fyrstu 4 fastalykkjur, heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju þar til 4 fastalykkjur eru eftir, fækkið um 2 fastalykkjur yfir næstu 4 fastalykkjum = 16 fastalykkjur. Endurtakið umferð 32 2 sinnum til viðbótar = 8 fastalykkjur. Fyllið bananann með vatti. Í næstu umferð er fækkað um 2 fastalykkjur = 6 fastalykkjur eftir, heklið síðan 12 fastalykkjur með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju, klippið frá og festið enda. -------------------------------------------------------- BANANI MEÐ OPNU HÝÐI: Stykkið er heklað í hring. Heklið 2 loftlykkjur með litnum skærgulur með heklunál 4,5. UMFERÐ 1: Heklið 3 fastalykkjur í 1. loftlykkju sem var hekluð – sjá HEKLAÐ Í HRING! UMFERÐ 2: Aukið út um 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 6 fastalykkjur. UMFERÐ 3: Aukið út um 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju – en aukið út um 1 fastalykkju í 1. og síðustu fastalykkju í umferð = 14 fastalykkjur. Endurtakið umferð 4 og 5 (þ.e.a.s. aukið út um 1 fastalykkju í 1. og síðustu fastalykkju í annarri hverri umferð) þannig að það verða 20 fastalykkjur í umferð. UMFERÐ 12: Aukið út um 1 fastalykkju í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 4 fastalykkjur yfir næstu 8 fastalykkjur – sjá ÚRTAKA, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í hvora af síðustu 2 fastalykkjum = 20 fastalykkjur. UMFERÐ 13 og 14: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 15: Aukið út um 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 3 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 4 fastalykkjur yfir næstu 8 fastalykkjur, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í síðustu fastalykkju. UMFERÐ 16 og 17: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 18: Aukið út um 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 4 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 4 fastalykkjur, 1 fastalykkja í hverja af síðustu 4 fastalykkjum. UMFERÐ 19 og 20: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju, skiptið yfir í litinn natur í síðustu fastalykkjunni í síðustu umferð – sjá LITASKIPTI. UMFERÐ 21: Heklið með litnum natur, heklið 1 fastalykkju í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 4 fastalykkjur yfir næstu 8 fastalykkjur, 1 fastalykkja í hvora af síðustu 2 fastalykkjum. UMFERÐ 22 og 23: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 24: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 4 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 4 fastalykkjur yfir síðustu 8 fastalykkjur. UMFERÐ 25 og 26: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 27: Fækkið um 1 fastalykkju yfir fyrstu 2 fastalykkjur, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 3 fastalykkjur yfir næstu 6 fastalykkjur. UMFERÐ 28 og 29: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 30: Fækkið um 2 fastalykkjur yfir fyrstu 4 fastalykkjur, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 2 fastalykkjur yfir næstu 4 fastalykkjur. UMFERÐ 31: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 32: Fækkið um 2 fastalykkjur yfir fyrstu 4 fastalykkjur, heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju þar til 4 fastalykkjur eru eftir, fækkið um 2 fastalykkjur yfir næstu 4 fastalykkjum = 16 fastalykkjur. Endurtakið umferð 32 2 sinnum til viðbótar = 8 fastalykkjur. Fyllið bananann með vatti. Í næstu umferð er fækkað um 2 fastalykkjur = 6 fastalykkjur eftir, klippið frá, saumið saman síðustu 6 fastalykkjur með endanum. BANANAHÝÐI: Stykkið er heklað fram og til baka. Með litnum skærgulur og heklunál 4,5 er hekluð síðasta umferð með litnum skærgulur þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 6 fastalykkjum, snúið. Heklið 12 umferðir með fastalykkjum (allar umferðir byrja á 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju). Í næstu umferð er fækkað um 1 fastalykkju í byrjun og í lokin á umferð, síðan eru þær fastalykkjur sem eftir eru heklaðar 2 og 2 saman í næstu umferð, klippið frá. Endurtakið yfir næstu 8 fastalykkjur í umferð og síðan síðustu 6 fastalykkjur í umferð = 3 bananahýði. -------------------------------------------------------- KARFA: Mál: Ca 12 cm á hæðina. Stykkið er heklað í hring. Byrjið á að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan – neðst á körfu með litnum dökk beige með heklunál 4,5. UMFERÐ 1: Heklið 8 fastalykkjur um galdrahringinn – sjá HEKLAÐ Í HRING! UMFERÐ 2: Aukið út um 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 16 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 32 fastalykkjur. UMFERÐ 5: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 40 fastalykkjur. UMFERÐ 6 (og síðan allar jafnar umferðir): Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 7: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 48 fastalykkjur. UMFERÐ 9: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 5 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 56 fastalykkjur. UMFERÐ 11: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 6 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 64 fastalykkjur. UMFERÐ 13: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 7 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 72 fastalykkjur. UMFERÐ 15: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 5 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 84 fastalykkjur. UMFERÐ 17: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 6 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 96 fastalykkjur. UMFERÐ 19: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 7 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 108 fastalykkjur. UMFERÐ 21: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 8 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 120 fastalykkjur. UMFERÐ 22 - 26: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju, skiptið yfir í litinn pistasía í síðustu fastalykkjunni í síðustu umferð – sjá LITASKIPTI. Heklið síðan rendur þannig: Heklið 2 umferðir í litnum pistasía, 2 umferðir í litnum dökk beige, 2 umferðir í litnum pistasía. Heklið síðan 1 fastalykkju í hverja fastalykkju með litnum dökk beige þar til karfan mælist ca 10 cm á hæðina (mælt frá efsta kanti þegar karfan liggur flöt). Skiptið yfir í litinn pistasía í síðustu fastalykkjunni í síðustu umferð og heklið 1 umferð með litnum pistasía. Næsta (= síðasta) umferð er hekluð með litnum pistasía þannig: * Heklið 1 fastalykkju, heklið loftlykkjur í ca 14 cm (fyrir handfang), hoppið yfir næstu 16 lykkjur, 1 fastalykkja í hverja af næstu 43 fastalykkjum *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferð = 2 loftlykkjubogar fyrir handfang í hvorri hlið á körfu. Heklið með 2 þráðum litnum pistasía með heklunál 5 utan um hvort handfang þannig: Heklið 32 fastalykkjur, klippið frá og festið enda. ---------------------------------------------------------- Gulrót – sjá DROPS Children: 23-57 ---------------------------------------------------------- Kiwi - sjá DROPS Children: 23-58 ---------------------------------------------------------- Jarðaber - sjá DROPS Children: 23-59 ---------------------------------------------------------- Epli - sjá DROPS Children: 23-60 ---------------------------------------------------------- Pera - sjá DROPS Children: 23-61 ---------------------------------------------------------- Klementína - sjá DROPS Children: 23-62 ---------------------------------------------------------- Banani - sjá DROPS Children: 23-63 ---------------------------------------------------------- Sveppur - sjá DROPS Children: 23-64 ---------------------------------------------------------- |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (32)
Pina wrote:
Salve, ho confezionato il fungo, che mi piaceva molto, buona spiegazione, più difficile fare gli aumenti e diminuzioni, che dovevo gestire io nei giri. Grazie per i tutorial gratis. È venuto un bel lavoro! Pina
10.10.2023 - 08:43Birgit Kofoed wrote:
Jeg forstår slet ikke hele opskriften på bananskrællen. Skal den hækles på bananen, eller skal man slå luftmasker op! Det er meget forvirrende.
14.10.2022 - 16:31DROPS Design answered:
Hei Birgit. Du hekler bananen som forklart og når den er ferdig skal bananskallene hekles hver for seg selv, men de festes med fastmasker på bananen første rad de hekles. Hekle 1 fastmaske i rundt hver av de første 6 fastmasker (på bananen, omgang 20), snu. Hekle 12 fastmaske-rader (hver rad begynner med 1 luftmaske, 1 fastmaske i hver fastmaske). På neste rad (rad 13) felles 1 fastmaske på begynnelsen og på slutten av raden, deretter hekles resterende fastmaske 2 og 2 sammen på neste rad, klipp tråden. Hekle neste bananskal på omgang 20 på selve bananen og da over 8 fastmasker. 3. bananskal hekles over 6 fastmasker. mvh DROPS Design
24.10.2022 - 11:11Maria wrote:
Me gusta mucho pero si le pusieran para marcar en la vuelta que ya insiste el resto genial
27.09.2022 - 19:45Szpulka wrote:
Właśnie czegoś takiego szukałam! Wszystko wyjaśnione, krok po kroku zapisane. Fantastyczne! Bardzo dziękuję.
20.03.2022 - 10:32Sandra Larsson wrote:
Hej! Söker ersättare till DROPS Paris nr 45 till moroten. Funderar på dubbel tråd DROPS Safran nr 08 eller 11. Vilket är mest likt? Eller har ni något annat förslag? Mvh. Sandra
18.11.2020 - 17:30DROPS Design answered:
Hej Sandra. Du kan antingen välja Paris nr 13 orange även till moroten eller dubbel tråd av Safran nr 28 apelsin. Mvh DROPS Design
19.11.2020 - 08:55Theresa Contreras wrote:
I just wanted to say that I love your patterns. Your tips and explanations are very clearly written. Thank you! I had fun making the banana. I will be back to make more.
04.05.2020 - 18:35Szilvi wrote:
Kedves Drops! Köszönöm a mintát. Szeretnék segítséget kérni. Hogy kell az alma szárát horgolni? Üdv. Szilvi
10.09.2019 - 16:47DROPS Design answered:
Kedves Szilvia, ezt a mintát még nem fordítottuk le magyarra... a szárat a köv módon kell készíteni: Körben horgoljuk. 3 sz a barna fonallal, 4,5 mm vastag horg tűvel., majd 2 rp az 1. és 2. sz-be = 4 rp. folytassuk körben haladva, 1-1 rp-t minden szembe, 16 sorig. Vágjuk el a fonalat, és rögzítsük a szálat. Sikeres kézimunkázást!
30.09.2019 - 22:31Kathrin wrote:
Schaffe ich mit der angegebenen Wollmenge (50g pro Farbe) genau die Menge an Obst/Gemüse, die im Korb liegt? Also von jedem Obst/Gemüse 3 Stück? (Reichen 50g = 75m Lauflänge für 3 Teile?)
31.08.2019 - 11:32DROPS Design answered:
Liebe Kathrin, ja genau, es sollte reichen für die Obst/Gemüse im Foto. Viel Spaß beim häkeln!
02.09.2019 - 09:29Jennifer wrote:
Vielen Dank für die tollen Anleitungen! Wir haben schon einen ganzen Kaufmannsladen zusammen dadurch. Wirklich gelungen! :-)
30.05.2019 - 18:45Lorraine wrote:
Bonjour, j'aimerai me lancer dans ce projet mais avant cela je désirerais savoir combien de fruits et légumes peut on réaliser avec les indications données.
22.05.2019 - 16:17DROPS Design answered:
Bonjour Lorraine, nous n'avons malheureusement pas le poids de chaque modèle, vous devriez toutefois être en mesure de pouvoir réaliser approximativement le nombre de fruits/légumes sur la photo. Bon crochet!
23.05.2019 - 10:05