DROPS Bomull-Lin uni colour 53% Bómull, 47% Hör |
726.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Bomull-Lin uni colour 53% Bómull, 47% Hör 726.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= loftlykkja | |
= stuðull | |
= STUÐLAHÓPUR: Í sama stuðul eru heklaðir 2 stuðlar, 2 loftlykkjur og 2 stuðlar | |
= umferð 1 |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Mara |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Heklaður hattur úr DROPS Bomull Lin eða DROPS Paris.
DROPS 146-31 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Allar umf með st eru heklaðar þannig: 1. st í umf er skipt út fyrir 3 ll, hoppið yfir 1. st frá fyrri umf, heklið nú st í hvern st, endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ST-HÓPUR: 1 st-hópur = í sama st eru heklaðir 2 st, 2 ll og 2 st. Í byrjun umf eru heklaðar 3 ll sem koma í stað 1. st í st-hópi. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HATTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring. HATTUR: Heklið 2 ll með Bomull Lin með heklunál nr 4,5. UMFERÐ 1: Heklið 12 st í 1. ll sem hekluð var – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR. UMFERÐ 2: Heklið 2 st í hvern st = 24 st. UMFERÐ 3: * Heklið 1 st í næsta st, heklið 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn (= 12 fleiri st) = 36 st. UMFERÐ 4: * Heklið 1 st í hvorn af næstu 2 st, heklið 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn= 48 st. UMFERÐ 5: * Heklið 1 st í hvern af næstu 3 st, heklið 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn= 60 st. UMFERÐ 6: * Heklið 1 st í hvern af næstu 4 st, heklið 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn= 72 st. UMFERÐ 7: * Heklið 1 st í hvern af næstu 8 st, heklið 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn= 80 st. Umferð 8 og 9: Heklið 1 st í hvern st. Heklið nú A.1 þannig: UMFERÐ 1: Heklið 4 ll (talið sem 1. st og 1 ll), hoppið yfir næstu 3 st, * 1 ST-HÓPUR – sjá útskýringu að ofan – í næsta st, 1 ll, hoppið yfir næstu 3 st, 1 st í næsta st, 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 10 st-hópar. UMFERÐ 2: Í sömu ll er heklaður 1 st-hópur, * 1 ll, 1 st um ll-boga í næsta st-hóp, 1 ll, 1 st-hópur í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 1 ll og 1 kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ 3: Heklið kl að ll-boga í 1. st-hópi, 4 ll (talið sem 1.st og 1 ll), * 1 st-hópur í næsta st, 1 ll, 1 st um ll-boga í næsta st-hóp, 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ 4: Heklið eins og umf 2. UMFERÐ 5: Heklið eins og umf 3. UMFERÐ 6: Heklið 1 ll, síðan 3 fl í hvern ll-boga í umf – JAFNFRAMT sem aukið er út um 6 fl jafnt yfir í umf = 96 fl. UMFERÐ 7: * Heklið 1 st í hvern af næstu 3 fl, heklið 2 st í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 120 st. UMFERÐ 8: * Heklið 1 st í hvern af næstu 9 st, heklið 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 132 st. UMFERÐ 9: * Heklið 1 st í hvern af næstu 10 st, heklið 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 144 st. UMFERÐ 10: * Heklið 1 st í hvern af næstu 11 st, heklið 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 156 st. UMFERÐ 11: * Heklið 1 st í hvern af næstu 38 st, heklið 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 160 st. UMFERÐ 12: Heklið 1 st í hvern st. Klippið frá og festið þráðinn. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (71)
Anne Marie wrote:
Très joli, mais tricoté en 3,5 pour approcher de l’échantillon (en Paris). Pas assez profond pour tenir bien sur la tête, j’ai donc ajouté 3 Rand de point fantaisie et un de bride, mais du coup, pas assez de fil. J’ai donc fait les 2 dernier rang avec un autre fil qui me restait, en beige.
19.01.2024 - 18:12Tuula Isaksson wrote:
Varv 6 i mönster 146-32 förstår jag inte vad som menas med lm båge då föregående varv består av bara stolpar i stolpar. Hjälp mig tack
24.08.2023 - 09:04DROPS Design answered:
Hei Tuula 5. omgang i diagram A.1 består av 1 stav, 1 luftmaske, 1 stav-gruppe, 1 luftmaske, 1 stav, 1 luftmaske, 1 stav-gruppe, 1 luftmaske osv osv. I oppskriften er det forklart kun med tekst 1. - 9. omgang, deretter er det forklar hvordan diagram A.1 hekles og da starter det på 1. omgang igjen. 5. omgang i tekstforklaringen (begynnelsen av oppskriften) er det kun heklet staver, men 5. omgang i diagram A.1 har både staver, luftmasker og stav-grupper. Har du kanskje sett litt feil? mvh DROPS Design
28.08.2023 - 14:02Britt wrote:
Hoe kan ik de hoed groter maken? Waar en hoeveel kan ik meerderen met het voorgeschreven garen? Ik hoor het graag!
11.07.2020 - 16:58DROPS Design answered:
Dag Britt,
Je zou bijv nog een toer van stokjes kunnen haken (zorg dat je een meervoud van 8 stokjes op de toer hebt, zodat het patroon past) voordat je met A.1 begint en/of dat je nog een extra toer van A.1 haakt.
12.07.2020 - 14:28Grognier Françoise wrote:
Bonjour, Je viens de réaliser le chapeau Drop Mara en BOMULL-LIN, il est très beau mais le bord est tout mou ! J'ai pourtant bien respecté l'échantillon et me demande vraiment si le fil Bromull-lin est adapté à cette réalisation? Pouvez-vous me donner la "recette" pour que le bord soit un peu plus rigide, notamment s'il faut l'amidonner: comment procéder? Cordialement Françoise
24.05.2020 - 13:59DROPS Design answered:
Bonjour Françoise, vous pouvez l'amidonner plus ou moins légèrement en fonction de l'effet voulu. Bon crochet!
25.05.2020 - 09:49Cotting Christine wrote:
Avec le Boll-mull la ceinture du chapeau n'a pas assez de tenue ! Dommage
15.03.2020 - 16:06DROPS Design answered:
Bonjour Mme Cotting, aviez-vous le bon échantillon/la bonne tension, soit 20 brides x 8 rangs = 10 x 10 cm? Vous pouvez essayer de l'amidonner un peu si besoin. Bon crochet!
16.03.2020 - 10:16Lea wrote:
I would prefer to use Drops Muskrat. Do I need to hold two (2) strands together to equal the size of Drops Bomull-Lin? Or is there a better yarn that would match size holding 2 strands together? Thank you for your help.
27.03.2019 - 21:38DROPS Design answered:
Dear Lea, Bomull-Lin and Paris both belongs to yarn group C while Muskat is yarn group B, this means Muskat will not be an alternative here and you would have to check the tension and might have to recalculate the pattern to fit the right size. But you could use instead 2 strands Safran (= yarn group A). Happy crocheting!
01.04.2019 - 09:11Sharon L. Ford wrote:
Thank you for making a hat for smaller adult heads. I have a 20" head, and this fits great!! New at crocheting and directions were great!
27.07.2018 - 15:48Ina wrote:
Det er vigtigt at vide om det er Bomull-Lin med hvid eller brun banderole, der skal bruges til denne opskrift. Drops har ændret garnet meget her i 2017. Der er stor forskel i tykkelsen. Forhandlere har ikke fået at vide at de skal gøre kunderne opmærksomme på den nye tykkelse på garn med brun banderole.
04.06.2017 - 10:57Monique wrote:
Ik heb andere hoeden bekeken hier op garnstudio en die worden ook van Bomull-lin gemaakt op haaknaald 4.5 maar daar staat de stekenverhouding die ik heb. Bomull-lin rekt niet mee dus is de hoed te klein. In ieder geval is mijn hoed prachtig geworden.
07.05.2017 - 23:13Monique wrote:
Ik heb met haaknaald 4.5 st.verhouding van 16 stk x 9.5. Hij is af en past perfect. Met jullie stekenverhouding op haakpen 3 werd het echt een kinderhoed.Patroon is verder super. Alleen jullie stekenverhouding is niet mogelijk voor een volwassen vrouw.
07.05.2017 - 23:10