DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13090.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Sherwood

Prjónað poncho úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk með öldumynstri og lausum kraga í garðaprjóni. Stærð S - XXXL

DROPS 149-36
DROPS Design: Mynstur nr z-652
Garnflokkur A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL
Mál á lausum kraga: Ummál ca 70-83 cm. Hæð: ca 30-35 cm.

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
300-350-350-400-450-450 gr litur nr 7815, grænn/ turkos
Og einnig:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
125-125-150-150-175-200 gr litur nr 19, dökk grænn

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 18 l og 19 umf í öldumynstri eftir mynstri A.1, með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 x 10 cm og 15 l og 28 umf með garðaprjóni með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (40 cm) NR 5 – fyrir kant við hálsmál.
DROPS HORNATALA 538: 4-4-4-6-6-6 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13090.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

LEIÐBEININGAR:
Til þess að koma í veg fyrir að garðaprjón dragist saman í hliðum eru prjónaðar stuttar umferðir með jöfnu millibili yfir síðustu l í garðaprjóni í hvorri hlið þannig: * Byrjið frá réttu og prjónið sl yfir síðustu 16-20-22-16-20-26 l, snúið við, herðið á þræði og prjónið sl til baka. Snúið við og prjónið eins og áður yfir allar l, snúið við, prjónið sl yfir síðustu 16-20-22-16-20-26 l, snúið við, herðið á þræði og prjónið sl til baka *, endurtakið frá *-* eftir ca 5. hvern cm.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hvorri hlið á framstykki þannig: Prjónið fjórðu og fimmtu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eins og áður þar til 5 l eru eftir, sláið uppá prjóninn, prjónið 2 l slétt saman og prjónið síðustu 3 l á prjóni eins og áður. Fellið af fyrir hnappagötum í hvorri hlið þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 8 og 14 cm.
STÆRÐ M: 9 og 15 cm.
STÆRÐ L: 10 og 16 cm.
STÆRÐ XL: 8, 14 og 20 cm.
STÆRÐ XXL: 9, 15 og 21 cm.
STÆRÐ XXXL: 10, 16 og 22 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið LAUST upp 101-109-113-124-132-144 l á hringprjóna nr 6 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 5 cm er næsta umf prjónuð frá réttu þannig: 16-20-22-16-20-26 l sl, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 yfir næstu 69-69-69-92-92-92 l (= 3-3-3-4-4-4 mynstureiningar) og endið á 16-20-22-16-20-26 l sl.
Haldið svona áfram með mynstur.
LESIÐ LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm fellið af miðju 27-27-29-30-34-34 l af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið nú um 1 l í næstu umf frá hálsmáli = 36-40-41-46-48-54 l eftir á öxl – ATH: Þær l sem ekki ganga upp í mynstri þegar úrtaka er gerð í hálsmáli eru prjónaðar slétt, en í þeirri umf þar sem prjónað er sl frá röngu, er prjónað yfir allar l – passið einnig uppá að það sé slegið jafn oft uppá prjóninn og fækkað er í mynstri þannig að lykkjufjöldinn verði réttur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm og fellið LAUST af. Endurtakið á sama hátt í hinni hliðinni.

FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og bakstykki en þegar stykkið mælist 8-9-10-8-9-10 cm er fellt af fyrir HNAPPAGAT í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 46-48-49-51-52-54 cm eru miðju 17-17-19-20-24-24 l settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá hálsi þannig: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 2 sinnum = 36-40-41-46-48-54 l eftir á öxl – ATH: Þær l sem ekki ganga upp í mynstri þegar úrtaka er gerð í hálsmáli eru prjónaðar slétt, en í þeirri umf þar sem prjónað er sl frá röngu, er prjónað yfir allar l – passið einnig uppá að það sé slegið jafn oft uppá prjóninn og fækkað er í mynstri þannig að lykkjufjöldinn verði réttur. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm fellið LAUST af. Endurtakið á sama hátt í hinni hliðinni.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma innan við affellingarkantinn – passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp ca 64 til 84 l í kringum hálsmál (meðtaldar l af þræði að framan), á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið 1 umf br, 1 umf sl og 1 umf br áður en fellt er LAUST af með sl.

-------------------------------------------------------

LAUS KRAGI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

LAUS KRAGI:
Fitjið upp 105-110-115-120-125 l á hringprjóna nr 6 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 30-31-32-33-34-35 cm fellið LAUST af.

FRÁGANGUR:
Saumið kragann saman og myndið hring – saumið yst í lykkjubogann með 1 spori í hverja l.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 149-36

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (57)

country flag Alice wrote:

Møster A1. starter man øverst til venstre fra retsiden? Hvis ja, så strikker man 4 glatstrikning og skal derefter lave en række "ret fra vrangsiden" som er retsiden og derefter skal man strikke sammen og slå om, så man ender på samme maskeantal, dette er på vrangsiden. Det virker forkert, eller???

23.02.2022 - 13:06

DROPS Design answered:

Hej Alice. Du startar mönster A.1 längst ner och stickar från höger till vänster (rätsidan). Läs gärna mer om strikkediagrammer här. Mvh DROPS Design

23.02.2022 - 13:21

country flag Nanci wrote:

The pattern says the yarn is sport weight but it calls for 2 yarns knit together. My question is, do the 2 yarns equal the sport weight, and could a single sport weight yarn be used instead?

02.10.2019 - 18:10

DROPS Design answered:

Dear Nanci, you can work this pattern either with 2 strands yarn group A or with 1 strand yarn group C - read more about alternatives here or use yarn converter. Happy knitting!

03.10.2019 - 08:53

country flag Maggie wrote:

Hallo ich komme mit dem Muster nicht zurecht. Man soll ja nach den rechten Maschen am Anfang 4 x 2 Maschen zusammen stricken. Soll man dann, nachdem man die 8 Umschläge gemacht hat auch 8 x 2 Maschen zusammen stricken oder nur 4 x?

14.01.2019 - 17:02

DROPS Design answered:

Liebe Maggie, in jedem A.1 haben Sie 4 x 2 M re zs, (1 Umschlag, 1 M re) x 7, 1 Umschlag, 4 x 2 M re zs. Aber wenn man A.1 in der Breite wiederholt, hat man dann 8 x 2 M re zs (= die 4 letzten Abnahmen der vorrigen Rapport + die 4 ersten Abnahmen der nächsten Rapport). Am besten setzen Sie Markierungen zwischen jedem Rapport, so kann es einfacher zu stricken (und die Maschenanzahl zu prüfen). Viel Spaß beim stricken!

14.01.2019 - 17:43

Dora Luz wrote:

Hola, me encantan sus patrones, he realizado muchos y siempre quedan muy bien. Quiero hacer este poncho pero no entiendo si ¿el cuello es una pieza aparte o va unido al poncho?

11.10.2018 - 21:34

DROPS Design answered:

Hola Dora. El cuello es una pieza aparte.

12.10.2018 - 13:56

country flag Lotte Kjøller Petersen wrote:

Hvordan er størrelserne sådan ca., er der nogen mål på dem?

12.03.2017 - 18:23

DROPS Design answered:

Hej Lotte. Se nederst i opskriften. Her staar maalene per str i cm.

13.03.2017 - 11:48

country flag Mylène wrote:

Bonjour, Je souhaiterai réaliser ce poncho en taille M. Pourriez-vous m'indiquer le nombre de pelotes Drops Alpaca et Drops Kid-silk dont j'aurai besoin pour réaliser cet article? Vous remerciant par avance.

20.10.2015 - 09:43

DROPS Design answered:

Bonjour Mylène, vous trouverez à droite de la photo le poids total pour chacune des 2 qualités pour chaque taille - divisez par le poids de la pelote pour avoir le nombre de pelotes (Alpaca = pelotes de 50 g - Kid-Silk = pelotes de 25 g). On a ainsi: 350 g/50 g= 7 - et 125/25=5. Il vous faut en taille M: 7 pelotes Alpaca et 5 pelotes Kid-Silk. Bon tricot!

20.10.2015 - 10:44

country flag Martina wrote:

Ich kenne mich nicht so gut aus, möchte aber sehr gerne diesen Poncho stricken. Wie muss ich den Maschenanschlag mit 2 Fäden machen?? Zähle ich dann nur eine Masche, die aus 2 Fäden besteht? Habe bisher nur mit einem Faden gestrickt...

16.10.2015 - 20:49

DROPS Design answered:

Sie nehmen den Faden einfach doppelt. So gesehen haben Sie dann eine Masche, die aus zwei Fäden besteht. Der Anschlag wird mit doppeltem Faden gemacht, damit der Anschlagrand stabiler wird.

18.10.2015 - 19:46

Su wrote:

Sorry. I guess I didn't make myself clear. I don't want to know how to sew the edges of the collar together. I want to know how the collar is attached to the rest of the poncho. The fact that it is detachable suggests it is attached at some point in some way. Hope you can help.

17.11.2014 - 14:57

DROPS Design answered:

Dear Su, sorry for misunderstanding. The "big collar" is worked separately and is worn as a neckwarmer over the poncho, but you may attach it at some places if you rather like to. Happy knitting!

17.11.2014 - 15:07

Su wrote:

HOw do you attach the detachable collar?

17.11.2014 - 13:17

DROPS Design answered:

Dear Sue, when you have cast off all sts, sew edge sts together - the video below shows a technique to sew pieces worked in garter st. Happy knitting!

17.11.2014 - 13:46

country flag Judith wrote:

I'm about to start knitting the poncho and have a couple questions. Can the collar be knitted in the round or is there a reason it's knitted back and forth? And is the collar sewn on to the neck of the poncho or is it detachable? Thanks for your fabulous patterns, I've made several and always loved the result.

02.10.2014 - 06:41

DROPS Design answered:

Dear Judith, the poncho do have a small neck edge (P1 round, K1 round, P1 round and cast off with K sts), then you work a detachable collar in garter st - you are free to work this collar in the round if you prefer. Happy knitting!

02.10.2014 - 09:59