DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1056.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 154-10
DROPS Design: Mynstur nr w-497
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL
Höfuðmál: ca 54/56 - 58/60 cm

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
150-150 gr litur nr 38, kórall

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 st og 9 umf verði 10 x 10 cm.

1½ m þunnur stálþráður í barð á hatti.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1056.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Allar umferðir með stuðlum eru heklaðar þannig:
Fyrsta stuðli í umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1. stuðul frá fyrri umferð og endið á 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HATTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring.

HATTUR:
Heklið 2-2 ll með Paris með heklunál nr 4,5.
UMFERÐ 1: Heklið 12-12 st í 1. ll sem hekluð var – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR.
UMFERÐ 2: Heklið 2 st í hvern st = 24-24 st.
UMFERÐ 3: Heklið * 2 st í næsta st, 1 st í næsta st, * endurtakið frá *-* umf hringinn = 36-36 st.
UMFERÐ 4: Heklið * 2 st í næsta st, 1 st í hvorn af næstu 2 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48-48 st.
UMFERÐ 5: Heklið * 2 st í næsta st, 1 st í hvern af næstu 3 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 60-60 st.
Nú eru stærðir S/M klárar, haldið áfram með stærð L/XL þannig:
UMFERÐ 6: Heklið * 2 st í næsta st, 1 st í hvern af næstu 4 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 72 st.
UMFERÐ 7: Þessi umferð er hekluð mismunandi í þessum tveimur stærðum:

STÆRÐ S/M: Heklið 1 ll, 1 fl í fyrsta st, * 5 ll, hoppið yfir 2 st, heklið 1 fl í næsta st, 5 ll, hoppið yfir 1 st, heklið 1 fl í næsta st, 5 ll, hoppið yfir 2 st, heklið 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum (= 18 ll-bogar), * 5 ll, hoppið yfir 2 st, heklið 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 5 ll, hoppið yfir 2 st og endið á 1 kl í fyrstu fl í umf = 22 ll-bogar.

STÆRÐ L/XL: Heklið 1 ll, 1 fl í fyrsta st, * 5 ll, hoppið yfir 2 st, heklið 1 fl í næsta st *,endurtakið frá *-* þar til 2 st eru eftir, endið á 5 ll og 1 kl í fyrstu fl í umf = 24 ll-bogar.
UMFERÐ 8: Heklið 2 ll, 1 fl í fyrsta ll-bogann, * 5 ll, heklið 1 fl um næsta boga *, endurtakið frá *-* í hringum alla umf, endið á 5 ll og 1 kl í fyrstu fl í umf = 22-24 ll-bogar.
UMFERÐ 9: Heklið eins og umf 8.
UMFERÐ 10: Þessi umf er hekluð mismunandi í þessum tveimur stærðum:
STÆRÐ S/M: Heklið 1 ll, 1 fl í fyrstu fl, * 2 fl um næsta ll-boga, 1 fl í næstu fl, heklið 1 fl um næsta ll-boga, heklið 1 fl í næstu fl, 2 fl um næsta ll-boga, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum, * 2 fl um næsta ll-boga, heklið 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, endið á 2 fl um síðasta ll-bogann og 1 kl í fyrstu fl í umf = 60 fl.
STÆRÐ L/XL: Heklið 1 fl í fyrstu fl, * 2 fl um næsta ll-boga, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* þar til 1 ll-bogi er eftir, endið á 2 fl um síðasta ll-bogann og 1 kl í fyrstu fl í umf = 72 fl.
UMFERÐ 11-13: Heklið 1 ll, 1 fl í hverja fl í umf, endið á 1 kl í fyrstu fl = 60-72 fl.
UMFERÐ 14: Heklið eins og umf 7, en nú eru heklaðar fl í stað st = 22-24 ll-bogar.
UMFERÐ 15-16: Heklið eins og umf 8 og 9 = 22-24 ll-bogar.
UMFERÐ 17: Heklið eins og umf 10 = 60-72 fl.
UMFERÐ 18-19: Heklið 1 fl, 1 fl í hverja l í umf, endið á 1 kl í fyrstu fl = 60-72 fl.
UMFERÐ 20: Heklið * 1 kl í hverja og eina af næstu 6-9 fl, 1 ll *,endurtakið frá *-* alls 10-8 sinnum (= 10-8 l fleiri), endið á 1 kl í fyrstu kl = 10-8 ll og 60-72 kl.
UMFERÐ 21: Heklið 1 ll, 1 fl í hverja l í umf, endið á 1 kl í fyrstu fl = 70-80 fl.
UMFERÐ 22: Heklið 1 ll, * 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 5-10 fl *, endurtakið frá *-* þar til 4-3 fl eru eftir, 1 fl í hverja af 4-3 fl, endið á 1 kl í fyrstu fl = 81-87 fl.

UMFERÐ 23: Heklið 1 ll, 1 fl í fyrstu fl, * 5 ll, hoppið yfir 2 fl, heklið 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* þar til 2 fl eru eftir, endið á 5 ll og 1 kl í fyrstu fl í umf = 27-29 ll-bogar.
UMFERÐ 24-25: Heklið eins og umf 8 og 9 = 27-29 ll-bogar.

UMFERÐ 26: Þessi umferð er hekluð mismunandi í þessum tveimur stærðum:
STÆRÐ S/M: Heklið 1 ll, 1 fl í fyrstu fl, * 3 fl um næsta ll-boga, 1 fl í næstu fl, 2 fl um næsta ll-boga, 1 fl í næstu fl, 2 fl um næsta ll-boga, 1 fl í næstu fl, 3 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum, heklið síðan 1 fl í næstu fl, 3 fl um næsta ll-boga, 1 fl í næstu fl, 2 fl um næsta ll-boga, 1 fl í næstu fl, 3 fl um síðasta ll-bogann, endið á 1 kl í fyrstu fl í umf = 90 fl (= 9 l fleiri).
STÆRÐ L/XL: Heklið 1 ll, 1 fl í fyrstu fl, * 3 fl um næsta ll-boga, 1 fl í næstu fl, 2 fl um næsta ll-boga, 1 fl í næstu fl, 2 fl um næsta ll-boga, 1 fl í næstu fl, 3 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum, heklið síðan * 1 fl í næstu fl, 3 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, endið á 1 kl í fyrstu fl í umf = 99 fl (= 12 l fleiri).
UMFERÐ 27: Heklið * 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 9-10 fl *, endurtakið frá *-* í kringum alla umf, endið á 1 kl í fyrstu fl = 99-108 fl.
UMFERÐ 28: Heklið * 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 10-11 fl *, endurtakið frá *-* í kringum alla umf, endið á 1 kl í fyrstu fl = 108-117 fl.
UMFERÐ 29: Heklið * 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 11-12 fl *, endurtakið frá *-* í kringum alla umf, endið á 1 kl í fyrstu fl = 117-126 fl.

UMFERÐ 30: Heklið eins og umf 23 = 39-42 ll-bogar.
UMFERÐ 31-32: Heklið eins og umf 8 og 9 = 39-42 ll-bogar.
UMFERÐ 33: Heklið 1 fl í fyrstu fl, *** 2 fl um næsta ll-boga, 1 fl í næstu fl **, endurtakið frá **-** alls 3 sinnum, 3 fl um næsta ll-boga, 1 fl í næstu fl, ** 2 fl um næsta ll-boga, 1 fl í næstu fl **, endurtakið frá **-** 4 sinnum, 3 fl um næsta ll-boga, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* þar til 3-6 ll-bogar eru eftir (= alls 4-4 sinnum), * 2 fl um næsta ll-boga, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 0-3 sinnum, 3 fl um næsta ll-boga, 1 fl í næstu fl, 2 fl um næsta ll-boga, 1 fl í næstu fl, 2 fl um næsta ll-boga, endið á 1 kl í fyrstu fl í umf = 126-135 fl (= 9-9 l fleiri).

UMFERÐ 34: Heklið *2 fl í fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 13-14 fl *, endurtakið frá *-* í kringum alla umf endið á 1 kl í fyrstu fl = 135-144 fl.
UMFERÐ 35: Heklið *2 fl í fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 14-15 fl *, endurtakið frá *-* í kringum alla umf endið á 1 kl í fyrstu fl = 144-153 fl.
UMFERÐ 36: Heklið *2 fl í fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 15-16 fl *, endurtakið frá *-* í kringum alla umf endið á 1 kl í fyrstu fl = 153-162 fl.
UMFERÐ 37-38: Heklið 1 fl í hverja fl.
UMFERÐ 39: Leggið 1 þunnan stálþráð meðfram kantinum á barðinu. Heklið 1 fl í hverja fl í kringum stálþráðinn. Þetta er gert svo að kanturinn verði stífari. Klippið frá og festið endann.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 154-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (47)

country flag Martine wrote:

Bonjour, Pour terminer le bord, avec un fil métallique de 0,5 mm faut-il aussi le doubler comme sur la vidéo ? (Coton Paris) Merci d'avance

25.03.2024 - 15:31

DROPS Design answered:

Bonjour Martine, vous pouvez essayer sans le doubler ou en le doublant pour vérifier la tenue de la bordure et ajuster si besoin. Bon crochet!

02.04.2024 - 09:43

country flag Martine wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas le tout début : Monter une chaînette de 2-2ml ? Faire 4 mailles en l'air ?? Merci d'avance ! Merci d'avance !

20.03.2024 - 18:57

DROPS Design answered:

Bonjour Martine, ce chapeau est disponible en 2 tailles, la quantité de mailles est ainsi indiquée pour chaque taille, autrement dit, on va monter 2 mailles en l'air dans les 2 tailles, soit 2 mailles en l'air, puis crocheter 12 brides dans la 1ère de ces 2 mailles en l'air . Bon crochet!

21.03.2024 - 08:46

country flag Emília Oliveira wrote:

Como posso obter o vídeo da confecção do chapéu?

02.05.2023 - 17:55

DROPS Design answered:

Bom dia, Na página das instruções deste modelo, encontra, ao fundo, vários tutoriais em vídeo que a ajudarão a fazer o chapéu. Bons crochés!

03.05.2023 - 09:08

country flag Michelle Locke wrote:

I would like to make this hat, how do I stiffen it please?

27.07.2022 - 14:37

DROPS Design answered:

Hi Michelle, you can stiffen your crochet hat with cornstarch, To make the brim a bit stiffer, you can use a thin steel wire on the last round. Watch the video HERE. Best wishes!

27.07.2022 - 21:14

country flag Martina wrote:

Ein wundervoller Hut, und zwei sind schon fertig! Ich hab allerdings ein Problem damit, 1,5 Meter Draht unterzubringen… Sicher, dass es so viel sein muss? Und wie mache ich das am besten? Habt ihr Tipps, wie man das am leichtesten schafft? Danke 🥰

02.06.2022 - 13:33

DROPS Design answered:

Liebe Martina, die letzte Runde ist ca 101,5 cm, deshalb braucht mach etwas mehr, damit er richtig schön hält - siehe auch das Video. Viel Spaß beim häkeln!

02.06.2022 - 15:00

country flag Anna wrote:

Salve! Mi potreste dire di che diametro dovrebbe essere il fil di ferro per un buon sostegno? Grazie

05.07.2020 - 19:32

DROPS Design answered:

Magro, 0,5mm. Happy crocheting!

04.11.2020 - 20:24

country flag Deanne Roberts wrote:

I am having trouble following round 33 from pattern, Drops 154–10 Would you be able to help me understand it clearer as I am confused by the *

28.03.2020 - 10:55

DROPS Design answered:

Dear Deanne,*-* encloses the stitches that should be repeated the number of times given in the pattern. Also, please remember that you can always ask for help either in person or over the phone for help if you are still confused, in the store where you bought your DROPS yarn from. Happy Crafting!

29.03.2020 - 22:39

country flag Maede wrote:

I believe the last part of the pattern of round 26 L/XL should change to this: then work * 1 sc in next sc, 2 sc in next ch-space *, repeat from *-* 5 times in total, It needed 2 sc in each ch-space to have 99 sc.

02.07.2019 - 11:00

country flag Maede wrote:

I'm working on round 26, L/XL, but at the end of the round, I have 104 sc instead of 99. I calculated it to double check and found 104 correct. I counted it like this: (1+3+1+2+1+2+1+3)*6 + (1+3)*5= (14*6)+(4*5)= 84 +20= 104 Is any bug in the pattern or I did something wrong? could you please let me know?

02.07.2019 - 10:52

DROPS Design answered:

Dear Maede, work this round as follows: 1 ch, 1 dc in first dc (UK-English) (= 1 dc), * 3 dc in next ch-space, 1 dc in next dc, 2 dc in next ch-space, 1 dc in next dc, 2 dc in next ch-space, 1 dc in next dc, 3 dc in next ch-space *, repeat from *-* 6 times in total (= (3 + 1 + 2 + 1 + 2 + 1 + 3) = 13 x 6 = 78 dc in total), then work * 1 dc in next dc, 3 dc in next ch-space *, repeat from *-* 5 times in total (= (1 +3) x 5 = 20 dc and finish with 1 sl st in first dc on round = 1 + 78 + 20 = 99 dc. Happy crocheting!

02.07.2019 - 11:42

country flag Inger Berit Magnussen wrote:

Hei, hvordan får du bremmen til å stå ut på den måten? Hilsen Inger Berit 😊

14.05.2019 - 23:01

DROPS Design answered:

Hei Inger Berit. Det er dette ståltråden brukes til. God fornøyelse

15.05.2019 - 12:49