Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= fl | |
= ll | |
= 1 tbst | |
= 5 tbst um ll-boga | |
= fl um ll-boga | |
= umferðin er útskýrð í uppskrift |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Nevertheless |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Paris. Stærð S - XXXL
DROPS 153-10 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrstu fl í hverri umf með fl er skipt út fyrir 1 ll. Fyrsti tbst í hverri umf er skipt út fyrir 4 ll. ÚTAUKNING: Aukið út með því að hekla 2 fl í 1 fl. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er hekluð ofan frá og niður, fram og til baka við miðju að framan. BERUSTYKKI: Heklið 156-166-177-188-198 lausar ll (meðtalin 1 ll til að snúa við með) með heklunál nr 5 með Paris. Heklið 1. umf þannig: Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, * 1 fl í hverja af 3 næstu ll, hoppið yfir 1 ll *, endurtakið frá *-* og endið á 1 fl í hverja af 2-4-3-2-4 síðustu ll = 117-125-133-141-149 fl (= fyrsta umf í mynstri) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR. Heklið nú þannig: A.4 (= kantur að framan), A.1, A.2 yfir næstu 96-104-112-120-128 fl (= 24-26-28-30-32 sinnum á breiddina), endið á A.3 og A.4 (kantur að framan). Heklið mynstur A.z 1 sinni á hæðina JAFNFRAMT í síðustu 2 umf er aukið út um 24-28-32-36-40 l jafnt yfir í hverri umf (= 48-56-64-72-80 l fleiri alls) – LESIÐ ÚTAUKNING að ofan. ATH: Aukið ekki út yfir A.4 = 165-181-197-213-229 l. Heklið nú A.z 1 sinni á hæðina (A.2 er heklað nú 36-40-44-48-52 sinnum á breiddina) JAFNFRAMT í 2 síðustu umf er aukið út um 22-26-30-34-38 l jafnt yfir í hverri umf (= 44-52-60-68-76 l fleiri alls). ATH: Ekki er aukið út yfir A.4 = 209-233-257-281-305 l. FRAM- OG BAKSTYKKI: HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Heklið nú þannig: A.4, A.1, A.2 yfir næstu 24-28-32-36-40 fl (= 6-7-8-9-10 sinnum á breiddina) (framstykki), 8 ll (undir ermi), hoppið yfir 40-44-48-52-56 fl frá fyrri umf (handvegur, l notaðar síðar fyrir ermi), A.2 yfir næstu 60-68-76-84-92 fl (bakstykki), 8 ll (undir ermi), hoppið yfir 40-44-48-52-56 fl frá fyrri umf (handvegur, l notaðar síðar fyrir ermi), A.2 yfir næstu 24-28-32-36-40 fl (framstykki) og endið á A.3 og A.4. Heklið nú þannig: Heklið A.4, A.1, A.2 yfir næstu 24-28-32-36-40 fl (= 6-7-8-9-10 sinnum á breiddina) (framstykki), hoppið yfir 8 ll (undir ermi), A.2 yfir næstu 60-68-76-84-92 fl (bakstykki), hoppið yfir 8 ll (undir ermi), A.2 yfir næstu 24-28-32-36-40 fl (framstykki) og endið á A.3 og A.4. Haldið áfram með A.z þar til stykkið mælist ca 28-28-35-35-35 cm, endið eftir heila mynstureiningu af A.z. Klippið frá og festið enda. Stykkið mælist 46-48-56-58-59 cm frá öxl. ERMI: Stykkið er heklað í hring. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Ermin er hekluð ofan frá og niður. Byrjið að hekla undir ermi þannig: Heklið 2 fl í fyrstu ll (af þeim 8 ll), 1 fl í hverja af næstu 7 ll og 1 fl í hverja af 40-44-48-52-56 fl frá berustykki = 49-53-57-61-65 fl. Heklið nú þannig: 4 ll, A.1, A.2 yfir næstu 40-44-48-52-56 l (= 10-11-12-13-14 sinnum á breiddina), endið á A.3 og 1 kl í fjórðu ll. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 14-14-21-21-21 cm, endið á heilli mynstureiningu á A.z. Klippið og festið enda. FRÁGANGUR: Heklið fl-kant í kringum hálsmálið til þess að fá fallegan kant þannig: Heklið * 1 fl í hverja af næstu 3 ll, hoppið yfir 1 ll *, endurtakið frá *-* og endið á 1 fl í hverja af 4-6-5-4-6 síðustu ll = 118-126-134-142-150 fl. Saumið tölur í með ca 7 cm millibili í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6939 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (128)
Karin wrote:
The armhole is just big enough if I crochet the 2 x 8 chains with a 9mm hook, but the next row says skip the 8's, which then makes the armhole much too small again, and would leave under arm holes in finished top. The pattern links to a video showing how to crochet a yoke top, and shows the chains as part of the body, but the pattern says not to do this. And how would you crochet 2nd row of A.z from simple chain stitches anyway? I am tempted to give up!
12.03.2024 - 00:31DROPS Design answered:
Dear Karin, these 8 chain stitches under the sleeve are worked to help enlarge the armhole slightly, so that it won't be too small. You will work on the 8 chain stitches when working the sleeves. Once you join the sleeve to the body, the remaining hole won't be that big. Happy crochetting!
17.03.2024 - 19:01Petra Reider wrote:
Hallo liebes Team, Wie "überspringe: ich Maschen? Ist es richtig, dass ich 56 Maschen "überspringen" soll? Ich bin verwirrt. LG Petra
07.03.2024 - 18:33DROPS Design answered:
Liebe Frau Reider, um eine Masche zu überspringen wird diese Masche einfach nicht gearbeitet. Ganz am Anfang werden mehr Luftmaschen gehäkelt, als man Maschen braucht, denn die Luftmaschenkette ist oft fester als die nächsten Reihe danach, deshalb beginnt man hier mit mehr Luftmaschen als man feste Maschen braucht. Viel Spaß beim häkeln!
08.03.2024 - 08:18Karin wrote:
I've crocheted the yoke and row with 2 sets of 8 chains in it. Measuring the piece it's 22 across neck, 14 for shoulder/yoke depth, and 44 body width. However, sleeve depth is 14, not 18, and armhole is way too tight. How can this happen if everything else measures correctly? How best to fix this, please - very loose chaining for the 8, or chain 12 and add extra A2's to body, or skip 44 or 48 for sleeve instead of 40? Or something else? Thanks in advance
06.03.2024 - 22:34DROPS Design answered:
Dear Karin, if your tension is correct you might just have to crochet these 8 chains loosely to avoid losing tension and let you keep the correct finished measurements. Happy crocheting!
07.03.2024 - 08:11Karin wrote:
Thanks. Sorry, another query, I'm new to crocheting garments. I've chained 156 loose chains for size small, and done the double crochet row, skipping every 4th chain as instructed. If tension is 14 stitches to 10cm, should the resulting 117 stitches measure 84cm? This seems big for the neckline, and mine is even bigger. Before I undo, and just do normal (rather than loose) chains, it would help to know what length I'm aiming for, please.
17.02.2024 - 15:09DROPS Design answered:
Dear Karin, the gauge is 14 dtr, that is, double treble crochets. These are worked very differently from double crochets, so you can't apply the gauge of the pattern to the neckline. You can see the necessary length for the neck in the size chart: approx. 44cm (22 cm is half the neck in the size chart). Your gauge when working the neckline should be very different from the 14 stitches to 10cm of the dtr; the 117 stitches should be approx. 44cm. Happy crochetting!
18.02.2024 - 22:41Karin wrote:
I've crocheted my tension square, and it's the correct tension, but I've then crocheted a whole A.Z section, with A4, A1, A2 and A3, and the tension has come out looser in height - the 3 rows of double treble in the lacework measure 6.1cm instead of the 5.5cm it measured when I was just doing standard rows of double trebles. Is this normal, or are the lace rows meant to come out the same height as double treble rows do?
13.02.2024 - 19:08DROPS Design answered:
Dear Karin, lace is generally softer, and looser, but you can compensate for that, by changing to a smaller hook. Make sure, that your finished piece is blocjed to the size of the schematic drawing found at the bottom of the pattern. Happy Crafting!
14.02.2024 - 02:47Ana wrote:
Creo que la sisa sería así: sólo hacer 3 cadenas si no quieres aumentar más "V" bajo la manga, y si quieres aumentar, tendrían que ser un nº de cadenas múltiplo de 4 +3, o sea, 7, 11, etc. y en la siguiente fila sería así: 5 puntos altos dobles en cada "V" y al llegar a las cadenas: *saltar 3 cadenas, y hacer 5 puntos altos dobles en la siguiente cadena*, las veces que necesites y después saltar 3 cadenas y hacer 5 puntos altos dobles en la siguiente "V"
27.12.2022 - 18:56Pilar wrote:
Hola,estoy completamente liada no entiendo bien el gráfico. En la segunda hilera de a-z según entiendo hay que hacer: en A2 1pad,1cad,1pad y 3cad= 6 puntos q sacamos de 4 ( si lo multiplicamos por 24 veces salen 144)+ los 7 q salen de A1+ 4 q salen de A3+ 12 de borde= 167 puntos
28.09.2021 - 21:17DROPS Design answered:
Hola Pilar, A.2 (= 4 puntos), 4x24 son 96 puntos. A.1 (=6 puntos) + A.3 (= 3 puntos) y A.4/ los bordes son 12 puntos (6 a cada lado). Por lo que se tienen 117 puntos para la talla S. Tienes que contar el número de puntos según el número de puntos bajos debajo; las cadenetas no cuentan como puntos, solo se utilizan para formar el dibujo de calados.
06.10.2021 - 23:07Carina Britt Sofia Bäcklund wrote:
Hej! Jag håller på att virka koftan w-524. Allt har gått bra, men när jag ska börja virka fortsättningen efter mönstret där arbetet ska mätas vet inte jag om jag fortfarande ska öka på fm-varven eller inte t ex öka 26 fm jämt fördelade på båda fm-varven? Det syns ju inte på diagrammet.? Tack! /Carina
03.07.2021 - 20:56DROPS Design answered:
Hej Carina, når du fortsætter med fram- och bakst skal du ikke øke mere :)
14.07.2021 - 11:09Marlies Lindemann wrote:
Liebes DROPS-Team , ich fange gerade mit dem Armloch an. Sehe ich das richtig: A2 endet jeweils mit 3 Luftmaschen, dann 8 Luftmaschen , also insgesamt 11 LM, bevor die Maschen für das Armloch übersprungen werden?
27.02.2021 - 14:36DROPS Design answered:
Liebe Frau Lindemann, ja genau, Sie sollen A.2 in der Breite wiederholen, so brauchen Sie diese 3 Luftmaschen vor den 8 Lm - wenn Sie dann die Ärmel häkeln, nicht vergessen, daß 3 von den 8 sind die von Rumfpteil. Viel Spaß beim häkeln!
01.03.2021 - 08:16Liliia wrote:
Dear Drops Design, After work first 3raws (for the yoke part, size L) the lenght is 117 cm, it is super big for the neck. I checked it's 10 cm for 14 tr and the tension looks similar to photo. Could you tell me tge approximate length of first 166 loose ch?
23.11.2020 - 09:53DROPS Design answered:
Dear Lillia, at the very beginning you are casting on much more chains (177 in size L) than you will have double crochets on the first row (= 133 dc on first row) - since the chains are more often quite tight, you cast on more chains and skip chains evenly on first row, this means you should have 133 dc at the end of first row = approx. 95 cm width. Happy crocheting!
23.11.2020 - 10:39