Nostalgia |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Safran með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 152-3 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun hverrar umf með st, er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll. HEKLLEIÐBEININGAR-1: Þegar hekluð hefur verið ein heil mynstureining af mynstri á hæðina í mynstri A.1-A.4 er haldið síðan áfram með mynstur en nú er heklað A.X. HEKLLEIÐBEININGAR-2: UMFERÐ 3 af A.6 er heklað yfir 6 st þannig: Heklið 3 ll (til að snúa við með), 3 st í 3. st frá heklunálinni, 2 ll, 3 st í næsta st. Í hverri umf sem byrjar á A.6 (þ.e.a.s. með st-hópum) eru heklaðar 3 ll til að snúa við með áður en A.6 er heklað. Endurtakið mynstur frá umf 4. HEKLLEIÐBEININGAR-3: Þegar A.6 er heklað yfir kant að framan er heklað í fyrstu umf þannig: Heklið 3 ll (til að snúa við með), 3 st í 6 ll frá heklunálinni, 2 ll, 3 st í næstu ll. Í hverri umf sem byrjar á A.6 (þ.e.a.s. umf með st-hópum) eru heklaðar 3 ll til að snúa við með áður en A.6 er heklað. Endurtakið mynstur frá umf 4. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 – A.6. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Mælt frá kanti við hálsmál að framan og tölur saumaðar í vinstri kant að framan: STÆRÐ S: 2, 8, 14, 20 og 26 cm. STÆRÐ M: 2, 8, 14, 20 og 26 cm. STÆRÐ L: 2, 9, 16, 23 og 30 cm. STÆRÐ XL: 2, 9, 16, 23 og 30 cm. STÆRÐ XXL: 2, 10, 18, 26 og 34 cm. STÆRÐ XXXL: 2, 10, 18, 26 og 34 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. HÆGRA FRAMSTYKKI: Heklið 62-62-82-82-82-102 ll með heklunál nr 4 með Safran. UMFERÐ 1 (= umf 1 í mynstri A.1, A.2, A.3 og A.6) er hekluð þannig frá réttu: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, 1 st í næstu ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* alls 11-11-15-15-15-19 sinnum, hoppið yfir 1 ll, 1 st í síðustu ll = 48-48-64-64-64-80 st – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR. UMFERÐ 2 frá röngu: Heklið 1 st í hvern af 48-48-64-64-64-80 st. UMFERÐ 3 (= rétta): Heklið nú MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.6 yfir 6 st 1 sinni – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-2! Haldið áfram með A.1 yfir 18 st, A.2 yfir 16-16-32-32-32-48 st og A.3 yfir 8 st. Haldið svona áfram fram og til baka með mynstur alveg eins, JAFNFRAMT er aukið út fyrir hálsmáli í mynstri A.3. Þegar hekluð hefur verið 1 heil mynstureining á hæðina af A.3 eru heklaðar 23 nýjar ll við miðju að framan að A.4 og A.6 (= kantur að framan) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-1 OG HEKLLEIÐBEININGAR-3! Haldið nú svona áfram með mynstur frá röngu: A.6, A.4 yfir 17 ll, A.2 2-2-3-3-3-4 sinnum, A.1 1 sinni og A.6 1 sinni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist alls 20-21-22-23-24-25 cm = hægri ermi. Í næstu umf frá röngu er haldið áfram eins og áður með A.6, A.4 og A.2 þar til heklaðar hafa verið 1-1-2-2-2-3 mynstureining af A.2 á breiddina. Heklið nú ll-boga þannig: Heklið 1 fl í næstu l, * 3 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl *, endurtakið 1-2-0-1-2-0 sinnum til viðbótar (= alls 2-3-1-2-3-1 ll-bogar). Snúið við og heklið frá réttu þannig: Byrjið á umf 3 í A.6 og heklið 1 mynstureiningu í hvern af næstu 2-3-1-2-3-1 ll-bogum, haldið áfram með A.2, A.4 og A.6 eins og áður þar til stykkið mælist alls 52-54-56-58-60-62 cm – eða stillið af eftir eina heila mynstureiningu á hæðina. VINSTRA FRAMSTYKKI: Heklið 61-61-81-81-81-101 ll með heklunál nr 4 með Safran. UMFERÐ 1 (= umf 1 í mynstri A.2, A.4, A.5 og A.6) er heklað þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* alls 11-11-15-15-15-19 sinnum, hoppið yfir 1 ll, 1 st í síðustu ll = 47-47-63-63-63-79 st. UMFERÐ 2: Heklið 1 st í hvern af 47-47-63-63-63-79 st. Heklið nú eins og hægra framstykki, nema spegilmynd og heklað er eftir mynsturteikningu A.5 í stað A.3, A.4 í stað A.1 og A.1 í stað A.4. BAKSTYKKI: Heklið hægri öxl þannig: Heklið 62-62-82-82-82-102 ll með heklunál nr 4 með Safran. UMFERÐ 1: Heklið nú þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, 1 st í næstu ll * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* alls 11-11-15-15-15-19 sinnum, hoppið yfir 1 ll, 1 st í síðustu ll = 48-48-64-64-64-80 st. UMFERÐ 2: (= umf 1 í mynstri A.2, A.4, A.6) Heklið 1 st í hvern af fyrstu 47-47-63-63-63-79 st í umf, heklið 2 st í síðasta st í umf = 49-49-65-65-65-81 st. Klippið frá og geymið stykkið. Heklið nú vinstri öxl þannig: Heklið 61-61-81-81-81-101 ll með heklunál nr 4 með Safran. UMFERÐ 1: Heklið nú frá réttu þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* alls 11-11-15-15-15-19 sinnum, hoppið yfir 1 ll, 1 st í síðustu ll = 47-47-63-63-63-79 st. UMFERÐ 2: (= umf 1 í mynstri A.1, A.2 og A.6) Heklið 2 st í fyrsta st í umf, heklið nú 1 st í hvern af næstu 46-46-62-62-62-78 st í umf = 48-48-64-64-64-80 st. UMFERÐ 3: Heklið 1 st í hvern af næstu st á vinstri öxl, heklið 46 LAUSAR ll fyrir hálsmál, 1 st í hvern st á hægri öxl = 143-143-175-175-175-207 st. UMFERÐ 4: Heklið 1 mynstureiningu af A.6 yfir 6 st, A.4 yfir 17 st, A.2 yfir 96-96-128-128-128-160 st, A.1 yfir 18 st og að lokum A.6 yfir st - LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-2! Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist alls 20-21-22-23-24-25 cm (stillið af eftir framstykki). Klippið frá. Heklið nú ll-boga meðfram annarri erminni eins og á framstykki – stillið af að það byrji jafn langt frá kanti á ermi og á framstykki og heklið ll-boga þannig: * Heklið 1 fl, 3 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl *, endurtakið 1-2-0-1-2-0 sinnum til viðbótar (= alls 2-3-1-2-3-1 ll-bogar). Haldið áfram yfir bakstykki með mynstri eins og áður og endið á ll-bogum alveg eins í hinni hliðinni. Haldið síðan áfram eins og á framstykki með A.6 í hvorri hlið með mynstri eins og áður þar til stykkið mælist alls 52-54-56-58-60-62 cm. FRÁGANGUR: Saumið sauma á öxl. Leggið framstykki ofan á bakstykki og heklið saman hliðar og sauma undir ermum í eitt þannig: Heklið 1 fl í framstykki, 3 ll, 1 fl í bakstykki, * 3 ll, 1 fl í framstykki ca 1 cm lengra upp, 3 ll, 1 fl í bakstykki ca 1 cm lengra upp *, endurtakið frá *-*, endið á 1 kl. Klippið frá og festið enda. Endurtakið alveg eins í hinni hliðinni. Saumið tölur í vinstri kant að framan og hneppið í gegnum hægri kant að framan – sjá útskýringu að ofan. HÁLSMÁL: Þegar stykkið er tilbúið er heklað hálsmál þannig: Byrjið frá réttu við miðju að framan á hægri kant að framan, festið enda með 1 kl, * 3 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl *, endurtakið frá *-* í kringum allt hálsmálið. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (105)
Helen Lindblad wrote:
Jättefin!!! Ge oss myyyckeeeet mer virkat!!
11.12.2013 - 19:51Betty Ann wrote:
I enjoy this feminine look.
11.12.2013 - 17:13Trollguld wrote:
Blev helt såld när jag såg den här! Sååå vacker!
11.12.2013 - 11:10YOLANDA wrote:
HERMOSO
11.12.2013 - 09:14Rita Klevjer wrote:
Lekkert mønster og fin fasong
10.12.2013 - 20:21