Mrs. Bunny |
|
|
|
Prjónað leikfang, kanína / héri í buxum, peysu og með slaufu úr DROPS BabyMerino
DROPS Baby 25-36 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GALDRAHRINGUR: Til þess að koma í veg fyrir göt í miðju er byrjað með þessari aðferð: Haldið í endann og gerið lykkju utan um vinstri vísifingur (frá vinstri til hægri). Haldið í lykkjuna með vinstri þumli og vísifingur. Stingið prjóninum í gegnum lykkjuna, sækið þráðinn frá dokkunni (þ.e.a.s. leggið þráðinn 1 sinni yfir prjóninn frá þér), dragið þráðinn til baka í gegnum lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þráðurinn liggur nú aftan við og að þér) og dragið uppsláttinn í gegnum l á prjóni, * stingið inn prjóninum í gegnum lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þráðurinn liggur nú aftan við og að þér), dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn (aftan frá og að þér) og dragið uppsláttinn í gegnum síðustu l á hægri prjóni (þ.e.a.s. í síðustu l sem gerð var) *, endurtakið frá *-* þar til 6 l eru á prjóni. Prjónið síðan eins og útskýrt er í mynstri – JAFNFRAMT er dregið í endann á þræðinum svo að lykkjan dragist saman og gatið hverfi. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. RENDUR: * 4 umferðir í litnum ljós bleikur, 4 umferðir í litnum natur *, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KANÍNA / HÉRI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kanínan er hekluð í stykkjum og saumuð saman. HÖFUÐ: Stykkið er prjónað í hring á sokkprjóna frá nefi og aftur fyrir. Gerið GALDRAHRINGUR með litnum ljós beige – sjá útskýringu að ofan = 6 l á prjóni. Skiptið l á 3 sokkaprjóna nr 3 (prjónið með fjórða prjóninum) og prjónið í hring þannig: UMFERÐ 1: Prjónið slétt. UMFERÐ 2: * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 l. UMFERÐ 3: Prjónið slétt (uppslátturinn er alltaf prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat). UMFERÐ 4: * 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 l. UMFERÐ 5: Prjónið slétt. UMFERÐ 6: * 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 l. UMFERÐ 7: Prjónið slétt. UMFERÐ 8: * 4 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 l. UMFERÐ 9: Prjónið slétt. UMFERÐ 10: * 5 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 l. UMFERÐ 11-12: Prjónið slétt = 36 l. Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 3 l í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir næstu 6 l. Aukið síðan út um 1 l innan við 2 prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 2 l fleiri). Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf, 2 sinnum til viðbótar (= alls 3 útaukningar í hvorri hlið) = 42 l. UMFERÐ 18-19: Prjónið slétt = 42 l. UMFERÐ 20: * 5 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 l. UMFERÐ 21: Prjónið slétt. UMFERÐ 22: * 4 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 l. UMFERÐ 23: Prjónið slétt. Haldið áfram úrtöku í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf með úrtöku er prjónuð 1 færri áður en 2 l eru prjónaðar saman = 6 l færri í hverri umf) þar til 12 l eru eftir á prjóni, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum allar l (án þess að draga saman). Saumið út augu, munn og nef með litnum svartur, fyllið höfuðið með vatti, herðið að og festið enda (= miðja aftan á höfði). EYRA: Stykkið er prjónað í hring neðan frá og upp. Fitjið upp 8 l með litnum ljós beige og skiptið l niður á 2 sokkaprjóna (prjónið með þriðja prjóninum). UMFERÐ 1-2: Prjónið slétt. UMFERÐ 3: * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 12 l á prjóni. UMFERÐ 4: Prjónið slétt (uppslátturinn er alltaf prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat). UMFERÐ 5: * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 16 l á prjóni. UMFERÐ 6: Prjónið slétt. UMFERÐ 7: * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 20 l á prjóni. Prjónið síðan sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist ca 5½ cm. Fækkið lykkjum síðan þannig: UMFERÐ 1: * Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, 6 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 16 l. UMFERÐ 2: Prjónið slétt. UMFERÐ 3: * Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, 4 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 12 l. UMFERÐ 4: Prjónið slétt. Haldið áfram að fella af í annarri hverri umf þar til 4 l eru eftir á prjóni (þ.e.a.s. í hverri umf með úrtöku eru prjónaðar 2 l færri á milli úrtöku í hvorri hlið). Í næstu umf eru allar l prjónaðar saman 2 og 2. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum allar l, herðið að og festið. Brjótið uppá hvora hlið neðst niðri á eyranu inn við miðju svo að það myndist smá brot mitt í eyranu. Saumið saman neðst niðri með nokkrum sporum og saumið eyrað fast á höfuðið. Prjónið hitt eyrað á sama hátt og saumið niður. BÚKUR: Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. Fitjið upp 16 l með litnum ljós beige og skiptið niður á 4 sokkaprjóna (prjónið með þeim fimmta). UMFERÐ 1-2: Prjónið slétt. UMFERÐ 3: * 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 l. UMFERÐ 4: Prjónið slétt (uppslátturinn er alltaf prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat). UMFERÐ 5: * 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 l. UMFERÐ 6: Prjónið slétt. UMFERÐ 7: * 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 l. Prjónið síðan sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 5½ cm. Skiptið yfir í litinn ljós gulur og prjónið 1 umf slétt og 1 umf brugðið. Prjónið síðan 8 umf sléttprjón. Fellið nú af þannig: UMFERÐ 1: * 6 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 42 l. UMFERÐ 2: Prjónið slétt. UMFERÐ 3: * 5 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 l. UMFERÐ 4: Prjónið slétt. Haldið áfram úrtöku í annarri hverri umf (þ.e.a.s í hverri umf með úrtöku er prjónuð 1 l færri áður en 2 l eru prjónaðar saman = 6 l færri í hverri umf) þar til 12 l eru eftir á prjóni, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum l á prjóni (án þess að draga saman). Fyllið búkinn með vatti, dragið þráðinn saman og festið vel. Saumið höfuðið við búkinn (ljós gula stykkið á að snúa niður (= buxur). FÓTUR: Stykkið er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp. Fitjið upp 30 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum ljós beige. Prjónið sléttprjón fram og til baka í 3 cm. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 10 l sl, prjónið 8 næstu l slétt saman 2 og 2, 10 l sl og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 26 l. UMERÐ 2 (= ranga): 1 kantlykkja í garðaprjóni, 5 l br, fellið af næstu 14 l, 5 l br og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 6 l eftir í hvorri hlið. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 6 fyrstu l á prjóni og síðan 6 næstu l á prjóni (þær 14 l br l mynda nú “gat” í miðju stykki). Prjónið nú sléttprjón fram og til baka yfir 12 l með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar sem fæturnir mætast ca 8 cm. Skiptið yfir í litinn bleikur, prjónið 1 umf slétt frá réttu og 1 umf slétt frá röngu. Prjónið nú þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir og endið á 1 l sl = 23 l. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið br en kantlykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar slétt og uppslátturinn er prjónaður snúinn br svo ekki myndist gat. UMFERÐ 3: * 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir og endið á 1 l sl = 34 l. Prjónið nú sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til fóturinn mælist ca 12 cm, fellið af. Saumið saman op við miðju ofan á fæti með lykkjuspori. Saumið saman fótinn við miðju undir og haldið áfram upp við miðju að aftan – saumið yst í lykkjubogann. Fyllið fótinn með vatti. Þræðið þráð upp og niður í gegnum affellingarkantinn efst á fæti (á því bleika). Herðið að svo affellingarkanturinn verði aðeins pokalaga. Prjónið hinn fótinn á sama hátt og saumið báða fæturna við búkinn. Heklið blúndukant með heklunál nr 3 með litnum bleikur neðst niðri á buxum á hvorum fæti þannig (heklað er í br lykkjuna): 1 fl í fyrstu l, * 4 ll, 1 st í 4. ll frá heklunálinni, 1 fl í næstu br l á buxum *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf. Klippið frá og festið enda. HENDI: Stykkið er prjónað fram og til baka á sokkaprjóna, ofan frá og niður. Fitjið upp 10 l með litnum ljós beige og prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til hendin mælist 9 cm. Klippið frá (klippið niður nægilega langt til þess að geta saumað hendina saman), þræðið þráðinn í gegnum allar l á prjóni (= neðst niðri á hendi), herðið að og saumið síðan saman hendina yst í lykkjubogann. Fyllið hendina með vatti og saumið niður efst uppi á búk við háls (neðan við höfuð). Prjónið hina höndina á sama hátt og saumið niður í gagnstæða hlið. ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna upp við handveg síðan er prjónað fram og til baka. FRAMSTYKKI OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 60 l með litnum ljós bleikur. Prjónið 1 umf br, 1 umf sl og 1 umf br. Prjónið síðan sléttprjón og RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist ca 9 cm – passið að síðasta umf er rönd með litnum ljós bleikur verði eftir, prjónið næstu umf þannig: Fellið af 6 l fyrir handveg, prjónið 24 l, fellið af næstu 6 l fyrir handveg og prjónið síðustu 24 l. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 20 l með litnum ljós bleikur. Prjónið 1 umf sl og 1 umf br. Prjónið nú sléttprjón og RENDUR í hring. Þegar prjónaðar hafa verið 11 umf með röndum (þ.e.a.s. að síðasta umf með rönd með litnum ljós bleikur er eftir), prjónið næstu umf þannig: Fellið af 6 l fyrir handveg og prjónið næstu 14 l. Klippið frá, geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama prjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi (án þess að prjóna l) = 76 l á prjóni. Byrjið umf frá réttu við miðju að aftan á fram- og bakstykki og haldið áfram með rendur þannig (1. umf = natur): UMFERÐ 1: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 9 l sl, 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 10 l sl (= ermi), 2 l sl saman, 2 l snúnar slétt saman, 20 l sl (= fram), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 10 l sl (= ermi), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 9 l sl og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 68 l. Prjónið síðan stykki fram og til baka frá miðju að aftan. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið br, en kantlykkja er prjónuð í garðaprjóni. UMFERÐ 3 (= rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, 8 l sl, 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 8 l sl (= ermi), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 18 l sl (= fram), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 8 l sl (= ermi), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 8 l sl og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 60 l. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið br, en kantlykkjan er prjónuð í garðaprjóni. UMFERÐ 5 (= rétta): Skiptið yfir í litinn ljós bleikur og prjóni 1 kantlykkju í garðaprjóni, 7 l sl, 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 6 l sl (= ermi), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 16 l sl (= fram), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 6 l sl (= ermi), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 7 l sl og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 52 l. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið br, en kantlykkja er prjónuð í garðaprjóni. UMFERÐ 7 (= rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, 6 l sl, 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 4 l sl (= ermi), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 14 l sl (= fram), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 4 l sl (= ermi), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 6 l sl og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 44 l. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið br, en kantlykkjan er prjónuð í garðaprjóni. Skiptið yfir í litinn natur og prjónið næstu umf þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir og endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni = 30 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu, 1 umf slétt frá réttu og 1 umf slétt frá röngu áður en fellt er af með sl frá réttu. Klippið frá og festið enda. SLAUFA: Fitjið upp 5 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum bleikur. Prjónið garðaprjón fram og til baka í 8 cm, fellið af. Saumið saman skammhliðar yst í lykkjubogann svo að það myndist hringur. Klippið frá og festið enda. Takið annan þráð, snúið honum nokkrum sinnum utan um slaufuna og festið slaufuna við hálsinn á peysunni. Klæðið kanínuna / hérann í peysuna og saumið peysuna fasta við búkinn í gegnum bæði stykkin upp við hálsinn að aftan. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (18)
Suzanne St-Jacques wrote:
Est-ce vraiment 10 mailles pour les bras, il me semble que c'est peu. Merci
22.03.2023 - 01:35DROPS Design answered:
Bonjour Mme St-Jacques, il faut bien monter 10 mailles pour les bras et on tricote ensuite en jersey avec 1 m point mousse de chaque côté. Bon tricot!
22.03.2023 - 09:02Gry Frafjord wrote:
Hei, Har spørsmål ang. hode. Lurer på om omgang starter i siden og bakover til bakhodet, eller i siden og fremover mot ansiktet? Ref. "Sett 1 merke etter de første 3 m på beg av omg og 1 merke etter ytterligere 6 m. Videre økes det 1 m på innsiden av de 2 merkene – LES ØKETIPS (= 2 m økt). Gjenta økningen på hver 2.omg, 2 ganger til (= totalt 3 økninger i hver side) = 42 m." er dette til ansiktet?
05.02.2023 - 18:04DROPS Design answered:
Hei Gry. Hodet strikkes rundt på fra snuten og bakover (mot bakhodet). Når du skal sette 2 merker i arbeidet og øke, er snuten/ansiktet allerede strikket, nå strikkes det rundt selve hodet. Etter 20. omgang starter fellingene til bakhodet. mvh DROPS Design
06.02.2023 - 11:54Nelly De Nil wrote:
Er staan geen armen op van het konijn de mouw heeft ook geen hand anders zou ik denken dat dat de arm was voor op te vullen
26.02.2022 - 12:34DROPS Design answered:
Dag Nelly,
De armen van het konijn staan onder de paragraaf 'Voorpoot' :)
26.02.2022 - 16:23Solis wrote:
Ska börja på örat. Hur stickar man runt på 2 stickor? Får inte ihop det.
01.04.2019 - 22:05DROPS Design answered:
Hej. Du stickar på samma sätt som när du har fler stickor. och stickar runt. Du har i detta fall maskorna på två stickor och stickar med en tredje. Lycka till!
05.04.2019 - 10:26Tanja wrote:
Wo kann ich das Foto des nachgemachten Hasen posten?
28.03.2019 - 09:51DROPS Design answered:
Liebe Tanja, gerne können Sie das Foto auf unserem Facebook posten, und auch in unserem DROPS Workshop :)
01.04.2019 - 09:36Marion Böhm wrote:
Stellt der Bereich zwischen den Markierungen am Kopf eine bestimmte Stelle dar?
07.03.2018 - 13:38DROPS Design answered:
Liebe Frau Böhm, 2 Markierungen werden eingesetzt, und danach nach 1. und vor 2. Markierung zunehmen. Viel Spaß beim stricken!
07.03.2018 - 15:53Marion Böhm wrote:
Stellt der Bereich zwischen den Markierungen am Kopf eine bestimmte Stelle dar???
03.03.2018 - 16:54Marion Böhm wrote:
Beim Übergang zu rosa am Bein soll man nach der ersten Reihe 23 Maschen auf der Nadel haben. Das geht jedoch nicht auf, da das Bein aus "zwei" Teilen besteht und 23 nicht durch 2 teilbar ist. Zudem stricke ich den Bär in Nadelstärke 4, da die Beine ansonsten viel zu dünn würden und keinesfalls die Stärke des Fotos erreichen würden.
08.02.2018 - 17:38DROPS Design answered:
Liebe Frau Böhm, bei der 3. Reihe werden Sie (2 re, 1 Umschlag) stricken = 34 M am Ende der 3. Reihe. Viel Spaß beim stricken!
09.02.2018 - 09:17Cindy Marie Vorkinn wrote:
Glem det spørsmålet, oppdaget feilen selv 😊
12.06.2017 - 15:07Cindy Marie Vorkinn wrote:
Hei, jeg driver for øyeblikket med benet til kaninen, men skjønner ikke helt hva jeg skal gjøre med foten? Har felt av de 14 maskene så de danner et hull eller løkke eller hva dere vil kalle det, men står ikke noe mer om hva man gjør med dette hullet? Syr jeg det sammen så blir det jo verdens minste fot? 🙈
12.06.2017 - 15:01DROPS Design answered:
Hei Cindy Marie, Benet strikkes nedenfra og opp så du burde ha begynt med foten of avslutte på toppen av benet. De 14 felte maskene er hullet i benet hvor du skal fylle benet med vatt. Så da fortsetter du oppover benet og syr sammen hullet etter du har fylt benet. Håper dette hjelper, Med vennlig hilsen, Deirdre
12.06.2017 - 16:37