Nala |
|
|
|
Heklað ljóna eyrnaband og fléttað ljónaskott fyrir börn úr DROPS Paris. Stærð 1 - 10 ára.
DROPS Extra 0-1076 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umf með fl er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll. 2 FL SAMAN: * Stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. ÖRYGGISLEIÐBEININGAR: Verið varkár við leik með beltið á skottinu. Beltið er einungis ætlað til að festa skottið með. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka og saumað saman í lokin. EYRNABAND: Heklið 11-13-13-14-14 ll (meðtalin 1 ll til að snúa við með) með heklunál nr 4,5 með litnum ljós appelsínugulur. Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni (= 2 fl). Heklið nú 1 fl í hverja ll = 11-13-13-14-14 fl. Haldið áfram fram og til baka með 1 fl í hverja fl – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR – þar til stykkið mælist ca 44-45-46-47-48 cm (eða að óskaðri lengd. Eyrnabandið á að vera ca 6-7 cm minna en höfuðmál) – ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Klippið frá og festið enda. Saumið saman skammhliðar kant í kant við miðju að aftan. TRÝNI: Heklið 24 ll (meðtalin 1 ll til að snúa við með) með heklunál nr 4,5 með litnum hvítur. UMFERÐ 1: MUNIÐ EFTIR HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni (= 2 fl), 1 fl í hvora af næstu 2 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar = 20 fl. Snúið við. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 18 fl, 2 fl í ll frá byrjun fyrri umf = 22 fl. Snúið við. UMFERÐ 3: Heklið 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 20 fl, 2 fl í ll frá byrjun fyrri umf = 24 fl. Snúið við. UMFERÐ 4-6: Heklið 1 fl í hverja fl. Snúið við. UMFERÐ 7: Heklið 2 FL SAMAN – sjá útskýringu að ofan, 1 fl í hverja af næstu 20 fl, 2 fl saman = 22 fl. Snúið við. UMFERÐ 8: Heklið 2 fl saman, 1 fl í hverja af næstu 5 fl, 1 kl í hverja af næstu 8 fl, 1 fl í hverja af næstu 5 fl, 2 fl saman = 12 fl og 8 kl. Snúið við. UMFERÐ 9: Heklið 2 fl saman, 1 fl í hverja af næstu 3 fl, 1 kl í hverja af næstu 10 l, 1 fl í hverja af næstu 3 fl, 2 fl saman = 8 fl og 10 kl. Látið endann vera ca 20 cm langan áður en klippt er frá, hann er notaður við frágang. NEF OG MUNNUR: Nefið er heklað þannig: Heklið 3 ll (meðtalin 1 ll til að snúa við með) með heklunál nr 4,5 með litnum svartur. UMFERÐ 1: MUNIÐ EFTIR HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni (= 2 fl), 1 fl í næstu ll = 3 fl. Snúið við . UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í næstu fl, 2 fl í ll frá byrjun fyrri umf = 5 fl. Snúið við. UMFERÐ 3: Heklið 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 3 fl, 2 fl í ll frá byrjun fyrri umf = 7 fl. UMFERÐ 4: Heklið 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 5 fl, 2 fl í síðustu ll, frá byrjun fyrri umf = 9 fl. UMFERÐ 5 og 6: Heklið 1 fl í hverja fl. Látið endann vera ca 20 cm langan áður en klippt er frá, það á að nota hann í frágang. Munnurinn er heklaður þannig: Heklið eina ll-umf með 14 ll, festið munninn við nefið með 1 kl í 2. ll frá uppfitjunarkanti, 1 ll, 1 fl í hvora af næstu 2 ll í ll-umf, heklið 12 ll. Látið endann vera ca 20 cm langan áður en klippt er frá, hann er notaður við frágang. AUGA: Heklið 3 ll með heklunál nr 4,5 með litnum svartur og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 1 ll, 6 fl um hringinn, endið á 1 kl í fyrstu ll. Látið endann vera ca 20 cm langan áður en klippt er frá, hann er notaður við frágang – herðið að með því að þræða nokkur spor aftan við þannig að fl myndi kúlu. Heklið annað auga á sama hátt. EYRA: Heklið 8 ll (meðtalin 1 ll til að snúa við með) með heklunál nr 4,5 með litnum ljós appelsínugulur. UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni (= 2 fl). Heklið 1 fl í hverja ll = 8 fl. Snúið við . UMFERÐ 2-5: MUNIÐ EFTIR HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 fl í hverja fl. Snúið við. UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í fyrstu fl, 2 fl saman, 1 fl í næstu fl, 2 fl saman, 1 fl í síðustu fl = 6 fl. Snúið við. UMFERÐ 7: Heklið 1 fl í fyrstu fl, 2 fl saman, 2 fl saman, 1 fl í síðustu fl = 4 fl. Snúið við. UMFERÐ 8: Heklið 1 fl í fyrstu fl, 2 fl saman, 1 fl í síðustu fl. Klippið frá og festið enda. Heklið kant meðfram eyra með byrjun frá réttu í hægra horni á uppfitjunarkanti þannig: Heklið 1 fl í hverja umf (= 8 fl), í 2. fl í umf 8 (þ.e.a.s. efst í horni á eyra) heklið 2 fl + 2 ll + 2 fl, heklið 1 fl í hverja umf (= 8 fl). Látið endann vera ca 20 cm langan áður en klippt er frá, hann er notaður í frágang. Heklið annað eyra á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið niður trýni framan á eyrnabandið, látið trýnið hanga ca 1 cm neðan við kant. Saumið nefið fast, munnurinn er saumaður þannig að hann beygist upp í hvorri hlið – sjá mynd. Saumið niður augu með því að staðsetja eitt auga ofan við hvort munnvikið. Saumið niður eyru á toppinn á eyrnabandinu. Uppfitjunarkanturinn á eyranu er saumaður á bakhlið á eyrnabandi ca 1 cm frá kanti, látið vera ca 5 cm bil á milli eyrna. MAKKI: 1 KÖGUR: Klippið 8 þræði í litnum ljós appelsínugulur ca 17 cm langa. Leggið þá saman tvöfalda og þræðið lykkjunni í gegnum eina umf efst á eyrnabandinu, þræðið endana í gegnum lykkjuna. Festið kögur meðfram öllum kantinum með ca 2,5 cm millibili – ATH! Ekki setja kögur fyrir framan eyru. SKOTT: Klippið þræði sem er eftir af litnum ljós appelsínugulur eftir að hafa heklað eyrnabandið (þ.e.a.s. ca 2 heilar dokkur) ca 3 m. Leggið þræðina saman tvöfalda og hnýtið þráð í kringum brotið. Deilið þráðunum í þrennt og fléttið stífa fléttu. Hnýtið hnút neðst á fléttunni og klippið endana þannig að þeir verði í misjafnri lengd, látið þá vera ca 8 cm langa þar sem þeir eru lengstir. Heklið belti þannig: Heklið 170 ll (snúran mælist ca 110 cm) með 2 þráðum í litnum svartur með heklunál nr 4,5. Klippið frá og festið enda. Þræðið snúruna í gegnum brotið á skottinu efst – LESIÐ ÖRYGGISLEIÐBEININGAR. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |