DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6622.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Summer Dance

Prjónað pils úr DROPS Cotton Merino með pífum með öldumynstri. Stærð S-XXXL.

DROPS 159-19
DROPS Design: Mynstur nr cm-028
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio
350-400-450-500-550-600 gr litur nr 01, natur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm. 1 mynstureining A.1 mælist ca 4,5 cm á breiddina.
TEYGJA: ca 66-110 cm

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6622.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

LEIÐBEININGAR:
Ef það verða of margar l á prjóni, prjónið þá í hring með báðum hringprjónum þar til nægilegt pláss er á prjóninum.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l til skiptis hægra og vinstra megin við öll prjónamerkin. Þ.e.a.s. í fyrsta skipti er lykkjum fækkað hægra megin við öll prjónamerkin, í annað skipti er lykkjum fækkað vinstra megin við öll prjónamerkin, o.s.frv.
Fækkið um 2 l á undan prjónamerki þannig: 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Neðri hluti af pilsi samanstendur af 4 pífum sem liggja í lögum ofan á hverri annarri.

1. PÍFA:
Fitjið upp 299-325-364-403-429-468 l á hringprjóna nr 4 með Cotton Merino – LESIÐ LEIÐBEININGAR! Prjónið nú mynstur í hring þannig: A.1 (= 13 l) 23-25-28-31-33-36 sinnum á breiddina = 253-275-308-341-363-396 l. Haldið síðan áfram með A.2 (= 11 l). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað 6 sinnum á hæðina, prjónið 2 fyrstu umf í A.2 einu sinni til viðbótar. Prjónið nú áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 51-51-57-64-58-64 l jafnt yfir = 202-224-251-277-305-332 l. Þegar stykkið mælist 14 cm er það lagt til hliðar.

2. PÍFA:
Fitjið upp 286-312-351-390-416-455 l á hringprjóna nr 4 með Cotton Merino. Prjónið nú mynstur í hring þannig: A.1 (= 13 l) 22-24-27-30-32-35 sinnum á breiddina = 242-264-297-330-352-385 l. Haldið síðan áfram með A.2 (= 11 l). Þegar A.2 hefur verið prjónað 6 sinnum á hæðina, prjónið 2 fyrstu umf í A.2 einu sinni til viðbótar. Prjónið nú áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 40-40-46-53-47-53 l jafnt yfir = 202-224-251-277-305-332 l. Leggið 2. pífuna ofan á 1. pífu og prjónið þær saman þannig: 1 l frá fyrri pífu er prjónuð slétt saman með 1 l frá hinni pífunni, gerið þetta þar til allar l hafa verið prjónaðar saman = 202-224-251-277-305-332 l. Prjónið 6 cm sléttprjón yfir allar l. Leggið stykkið til hliðar.

3. PÍFA:
Fitjið upp 273-299-338-377-403-442 l á hringprjóna nr 4 með Cotton Merino. Prjónið nú mynstur í hring þannig: A.1 (= 13 l) 21-23-26-29-31-34 sinnum á breiddina = 231-253-286-319-341-374 l. Haldið síðan áfram með A.2 (= 11 l). Þegar A.2 hefur verið prjónað 6 sinnum á hæðina, prjónið 2 fyrstu umf í A.2 einu sinni til viðbótar. Prjónið nú áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 29-29-35-42-36-42 l jafnt yfir = 202-224-251-277-305-332 l.
Prjónið saman 3. pífuna við 2. pífu alveg eins og 1. og 2. pífa voru prjónaðar saman. Haldið áfram með 6 cm sléttprjón, JAFNFRAMT í síðustu umf eru felldar af 10-14-17-19-17-20 l jafnt yfir = 192-210-234-258-288-312 l.

4. PÍFA:
Fitjið upp 260-286-325-364-390-429 á hringprjóna nr 4 með Cotton Merino. Prjónið nú mynstur í hring þannig: A.1 (= 13 l) 20-22-25-28-30-33 sinnum á breiddina = 220-242-275-308-330-363 l. Haldið síðan áfram með A.2 (= 11 l). Þegar A.2 hefur verið prjónað 6 sinnum á hæðina, prjónið 2 fyrstu umf í A.2 einu sinni til viðbótar. Prjónið nú áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 28-32-41-50-42-51 l jafnt yfir = 192-210-234-258-288-312 l.
Prjónið saman 4. pífuna við 3. pífu alveg eins og 1. og 2. pífa voru prjónaðar saman = 192-210-234-258-288-312 l. Stykkið mælist nú ca 26 cm.

Haldið nú áfram í sléttprjóni til loka. Í næstu umf eru sett 6 prjónamerki í stykkið með byrjun frá miðju að aftan (= byrjun á umf) þannig: Prjónið 16-18-20-22-24-26 l, setjið eitt prjónamerki, setjið síðan 5 prjónamerki með 32-35-39-43-48-52 l millibili á milli prjónamerkja. Nú eru 16-17-19-21-24-26 l eftir í umf eftir síðasta prjónamerki. Í næstu umf byrjar úrtaka – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í öðrum hverjum cm 3-4-5-6-7-8 sinnum til viðbótar og í hverjum cm 4 sinnum = 144-156-174-192-216-234 l. Þegar stykkið mælist 40-42-44-46-48-50 cm prjónið 1 umf br (= uppábrot), síðan eru prjónaðir 2 cm fyrir fald áður en fellt er laust af.

FRÁGANGUR:
Brjótið faldinn saman tvöfaldan að röngu og saumið fallega niður. Skiljið eftir smá op til þess að þræða teygju í gegn.

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = 2 l slétt saman
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 159-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Ranu wrote:

Ich versuche grade diese Maßskizze zu verstehen. Die obere Angabe kann sich ja nicht auf den Rockumfang beziehen, 34 cm Taillenumfang haben nur kleine Kinder. Ich habe normalerweise Größe S/M und möchte, dass der Rock mehr auf der Hüfte sitzt als in der Taille. Da habe ich einen Umfang von 90 cm. Selbst wenn auf der Maßskizze nicht der Umfang sondern nur die halbe Seite des Rockes gemessen wurde, würde ich dann hier XL stricken müssen. Stimmt das?

25.10.2022 - 15:05

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ranu, in die 1. Größe werden die übrigen 144 Maschen ca 68 cm messen, so hat man die Maße von 34 cm - gerne können Sie je nach Wunsch und Maßen die Anleitung so anpassen damit der Rock Ihre Hüfte sowie Ihre Taille passt. Viel Spaß beim stricken!

25.10.2022 - 15:59

country flag Myra Jane Sloan wrote:

For some reason, I am having a hard time following this pattern. I basically would just like to get the basic flounce pattern as I would like to make a ruffle around a sleeve. How can I do just the basic pattern in simple terms and then I can repeat it as many times as I want around the sleeve cuff. Thank you so much for your time.

18.09.2020 - 04:41

DROPS Design answered:

Dear Mrs Sloan, you first work A.1 (= knit 1 round with decreases, purl 1 round), then repeat A.2 (= round 1 = K2 tog, K2 tog, (YO, K1)x3, YO, K2 tog, K2 tog - round 2+3: knit, round 4 = purl) - read more about diagrams here. Then work flounces together as shown in this video. Happy knitting!

18.09.2020 - 08:47

country flag Jessica wrote:

I see you have size listed as S-M-L-XL and such,but what does that correspond to? If I am an XL in US sizings, it is not the same as European sizes. Please help?

17.04.2017 - 03:15

DROPS Design answered:

Dear Jessica, the actual size of a garment depends on style and design. Please refer to the measurements on the drawig at the bottom of the pattern. Also of the knitting style and gauge also plays a big role- please always do a gauge swatch and check it, change needle size if necessary. I hope this helps. Happy Knitting!

17.04.2017 - 10:12

country flag Line Margrete Normann wrote:

Kære rette vedkommende Jeg er ikke sikker på om jeg forstår opskriften rigtigt? Betyder det at jeg skal strikke A1 først, men ikke hele omgangen? og så starte A2 efter 275 masker (str. m). Synes det lyder mærkeligt, at man ikke skal have det samme mønster omg ud, for derefter at starte A2. Håber I kan hjælpe mig til at blive lidt klogere. Tak :-)

22.10.2016 - 15:52

DROPS Design answered:

Hej Line. Du har 325 m paa pinden og strikker först A.1 1 gang i höjden (gentages 25 gange paa omgangen). Naar A.1 er faerdig har du taget ind saa du har 275 m. Herefter strikker du A.2 over alle masker.

25.10.2016 - 12:51

country flag Jessica wrote:

Also wanted to know possible yardage ranges if I wanted to make the flounces in one color and the body of the skirt another?

19.02.2016 - 10:51

DROPS Design answered:

Dear Jessica, you are welcome to contact your DROPS store for any help adjusting the pattern/colours to your own wishes. Happy knitting!

19.02.2016 - 10:59

country flag Jessica wrote:

In reading through the pattern, I am stumped. At the beginning of the flounces I understand to work Chart A1 first then A2. But it doesn't specify how many times of each? Thanks Jessica

19.02.2016 - 10:04

DROPS Design answered:

Dear Jessica, you work diagram A.1 1 time in height, then repeat A.2 6 times in height, then work the first 2 rounds in A.2 again. Happy knitting!

19.02.2016 - 10:58

country flag Marja Jokiniemi wrote:

Miten lasken kuinka monen silmukan välein teen kavennukset noissa röyhelöissä? Onko siihen joku laskukaava. Terveisin eräs joka AINA tuskailee näiden tasavälein kavennusten kanssa.

09.07.2015 - 11:30

DROPS Design answered:

Hei! Voit laskea lisäysten s-välin seuraavasti: Laske kuinka monta silmukkaa kerroksella on (esim. 1. liehureunuksessa koossa S on 253 s). Jaa tämä luku lisäysten määrän kanssa (51 s) = n. 5. Eli kavennukset tehdään tässä esimerkissä aina kerran 5 silmukan kohdalla (voit neuloa esim. 3 s, 2 s yhteen, 3 s, 2 s yhteen jne.).

13.07.2015 - 14:00

country flag Sandrine wrote:

Attention si vous réaliser cette jupe en muskat prévoir 14 pelotes au lieu de 9 en taille M

11.05.2015 - 07:49

DROPS Design answered:

Bonjour Sandrine, pensez à bien vérifier votre tension et à la conserver tout au long de votre ouvrage, soit ici 21 m x 28 rangs en jersey = 10 x 10 cm et 1 motif de A.1 = environ 4.5 cm de large. Bon tricot!

11.05.2015 - 11:15

country flag Yvette Delage wrote:

Bonjour' je souhaiterai savoir pour la réalisation du deuxième volant combien je dois faire de cm de jersey avant de rattacher ce volant au premier volant, même question pour les volants 3 et 4, merci

13.04.2015 - 00:32

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Delage, on attache le volant 1 au volant 2 au 2ème tour jersey du volant 2 (après A.2) (au 1er tour jersey, on fait les diminutions), puis on continue en jersey pendant 6 cm et on met en attente. On répète ainsi pour chaque volant: après le motif, on répartit des diminutions, on tricote le volant précédent, on continue en jersey pendant 6 cm et on met en attente. Bon tricot!

13.04.2015 - 09:48

country flag Yvonne Andersson wrote:

Undrar över mönstret? Är det räta varv både dom öppna rutorna o dom med kryss i??? Hoppas på svar MVH! Yvonne.

11.03.2015 - 17:31

DROPS Design answered:

Hej Beklagar, felet är nu rättat!

13.05.2015 - 14:45