Sigrid Jacket |
|||||||
|
|||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air með laskalínu, klauf og áferð. Stærð S - XXXL.
DROPS 166-11 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.6. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri) svo að ekki verði gat. ATH: Nýjar l eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.4! ÚRTAKA: Fækkið um 1 l þannig: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir A.3 þannig: 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á undan A.3 þannig: Prjónið að 2 l á undan A.3, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 25, 33, 41, 49, 57 og 65 cm. STÆRÐ M: 25, 33, 42, 50, 59 og 67 cm. STÆRÐ L: 27, 35, 44, 52, 61 og 69 cm. STÆRÐ XL: 28, 37, 45, 54, 62 og 71 cm. STÆRÐ XXL: 28, 37, 46, 55, 64 og 73 cm. STÆRÐ XXXL: 30, 39, 48, 57, 66 og 75 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna og saumað saman í lokin. BAKSTYKKI: Fitjið upp 95-98-101-107-113-116 l á hringprjóna nr 5 með Air. Prjónið stroff þannig: A.1 (= 8 l), 1 l sl, * 2 l br, 1 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 8 l eru eftir á prjóni, A.2 (= 8 l). Haldið svona fram og til baka þar til stykkið mælist 4 cm. Í næstu umf frá réttu er skipt yfir á hringprjóna nr 5,5 og prjónað þannig: A.1, sléttprjón yfir næstu 79-82-85-91-97-100 l, JAFNFRAMT er fækkað um 15-14-15-17-21-20 l jafnt yfir, A.2 = alls 80-84-86-90-92-96 l á prjóni. Haldið áfram í sléttprjóni, prjónið A.1 og A.2 í hvorri hlið eins og áður þar til stykkið mælist 22 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í lok 2 næstu umf eru fitjaðar upp 2 nýjar l (klauf) = 84-88-90-94-96-100 l. Prjónið nú þannig: 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.3 (= 9 l) sléttprjón fram að A.2, prjónið A.3 yfir A.2 og næst síðustu l og endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 26-24-24-23-23-23 cm byrjið tilfærslu á A.3 að miðju að aftan. Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, aukið út um 1 l – LESIÐ ÚTAUKNING, A.3, fækkið um 1 l – LESIÐ ÚRTAKA, sléttprjón þar til 2 l eru eftir á undan A.3, fækkið um 1 l, A.3, aukið út um 1 l, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Endurtakið tilfærslu af A.3 í 4. hverri umf 17-19-20-21-22-24 sinnum til viðbótar. ATH: Útaukning er alltaf gerð innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni i hvorri hlið! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 60-61-62-63-64-65 cm fitjið upp 1 nýja l í lok 2 næstu umf fyrir handveg = 86-90-92-96-98-102 l. Nú heldur mynstrið áfram innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni og 1 l sléttprjón í hvorri hlið. Þær 82-86-88-92-94-98 miðju l eru prjónað í mynstri eins og áður. Þegar stykkið mælist 74-76-78-80-82-84 cm fellið af miðju 24-24-24-26-26-26 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf frá hálsmáli er fækkað um 1 l = 30-32-33-34-35-37 l eftir á hvorri öxl. Þegar stykkið mælist 76-78-80-82-84-86 cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 55-55-58-61-64-64 l á hringprjóna nr 5 með Air. Prjónið stroff þannig: A.5 (= kantur að framan), 1 l sl, * 2 l br, 1 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 8 l eru eftir, A.2. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 4 cm. Í næstu umf frá réttu er skipt yfir á hringprjóna nr 5,5 og prjónað þannig: A.5 (= 7 l), sléttprjón þar til 8 l eru eftir, JAFNFRAMT er fækkað um 8-6-8-9-11-9 l jafnt yfir þessar l, A.2 = 47-49-50-52-53-55 l. Haldið áfram í sléttprjóni, prjónið A.5 yfir kant að framan og A.2 í hlið eins og áður þar til stykkið mælist 22 cm. Nú eru fitjaðar upp 2 nýjar l í hlið (klauf) = 49-51-52-54-55-57 l. Munið eftir HNAPPAGAT! Prjónið nú A.3 yfir A.2 og næst síðustu l í umf og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið. Þegar stykkið mælist 26-24-24-23-23-23 cm byrjar tilfærsla á A.3 að miðju að framan. Fækkið um 1 l á undan A.3 og aukið út um 1 l á undan síðustu l á prjóni. Endurtakið tilfærslu á A.3 í 4. hverri umf 17-19-20-21-22-24 sinnum til viðbótar. ATH: Útaukning er alltaf gerð innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 60-61-62-63-64-65 cm fitjið upp 1 nýja l í lok næstu umf frá réttu fyrir handveg = 50-52-53-55-56-58 l. Haldið áfram mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni og 1 l sléttprjóni í hlið. Þegar stykkið mælist 64-66-68-69-71-73 cm setjið fyrstu 14-14-14-15-15-15 l á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af l í hveri umf frá hálsi þannig: 3 l 1 sinni, 2 l 1 sinni og 1 l 1 sinni = 30-32-33-34-35-37 l fyrir öxl. Kantlykkjur við hálsmál eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 76-78-80-82-84-86 cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki nema spegilmynd. Þ.e.a.s. prjónið í fyrstu umf þannig: A.1, 1 l sl, * 2 l br, 1 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 7 l eru eftir, A.6 (= kantur að framan). Þegar stykkið mælist 22 cm eru fitjaðar upp 2 nýjar l í hlið (klauf). Prjónið nú A.3 yfir 2. l í umf og A.1. Þegar stykkið mælist 26-24-24-23-23-23 cm byrjar tilfærslan á A.3 að miðju að framan. Aukið út um 1 l á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið og fækkað er um 1 l á eftir A.3. Haldið áfram með tilfærsluna alveg eins og á hægra framstykki, JAFNFRAMT er fitjuð upp 1 ný l fyrir handveg, - stillið af eftir hægra framstykki! Þegar stykkið mælist 64-66-68-69-74-73 cm setjið fyrstu 14-14-14-15-15-15 l séð frá röngu á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af l í hverri umf frá hálsi þannig: 3 l 1 sinni, 2 l 1 sinni og 1 l 1 sinni = 30-32-33-34-35-37 l. Kantlykkjur við hálsmál eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 76-78-80-82-84-86 cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af. ERMI: Prjónið fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 39-41-43-43-43-45 l á hringprjóna nr 5 með Air. Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1 l sl, * 1 l br, 1 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5 og haldið áfram með mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið síðustu l í A.4, endurtakið A.4 þar til 1 l er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 10 cm aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Útauknu l eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.4. Endurtakið útaukningu með 5½-4½-4½-3½-3-3 cm millibili, 6-7-7-9-11-11 sinnum til viðbótar = 53-57-59-63-67-69 l. Þegar ermin mælist 46 cm í öllum stærðum, prjónið ermakúpu með stuttum umf frá réttu þannig: Prjónið þar til 8-9-9-10-11-12 l eru eftir, snúið við og prjónið til baka þar til 8-9-9-10-11-12 l eru eftir, snúið við og prjónið þar til 17-19-19-21-22-23 l eru eftir, snúið við og prjónið til baka þar til 17-19-19-21-22-23 l eru eftir. Snúið við og prjónið út umf, snúið við og prjónið yfir allar l. Fellið af með sl frá réttu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, en skiljið eftir 22 cm fyrir klauf neðst niðri á fram- og bakstykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan. HÁLSMÁL: Byrjið frá réttu á hægra framstykki og takið upp ca 120-130 l (meðtaldar l af þræði að framan). Prjónið 1 umf sl til baka frá röngu þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 90-90-90-96-96-96 l – en ekki yfir kant að framan, þær eru prjónaðar eins og áður. Prjónið nú stroff (1 l sl, 2 l br) innan við kantlykkjur að framan í hvorri hlið, endið á 1 l sl á undan síðasta kant að framan. Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (73)
Bex wrote:
I don’t know if someone has asked this, I can only read the English. When doing the displacement of A3/increasing stitches - what stitch do I use for those extra stitches? After the edge garter stitch & before A3 are they stocking stitch or garter stitch pls?
07.02.2024 - 16:37DROPS Design answered:
Hi Bex, The increased stitches are in stocking stitch. Happy knitting!
08.02.2024 - 07:03Luz Pinilla wrote:
Me gustaría contar con un tutorial de vueltas acortadas para la manga , con el fin de entenderlo mejor .
14.11.2023 - 21:34DROPS Design answered:
Hola Luz, aquí tienes un video sobre cómo trabajar filas acortadas: https://www.garnstudio.com/video.php?id=66&page=2&lang=es.
26.11.2023 - 23:46Esther Deppendorf wrote:
Hallo liebes Team, könnte ich diese Anleitung auch mit dem Garn Melody stricken? Das ist ja nun Garngruppe D. Vielen Dank für Ihre Rückmeldung.
22.12.2021 - 21:19DROPS Design answered:
Liebe Frau Deppendorf, DROPS Air gehört zur Garngruppe C so wird Melody nicht das richtige Garn um Air zu erseten. Hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim stricken!
03.01.2022 - 08:16Angel wrote:
I agree with the lady who has been knitting for 70 years. Your videos are as poor as the pattern instructions, no sound or explanations given.
14.11.2021 - 15:16Ute wrote:
Hallo Drops-Team, Ich habe eine Frage direkt am Beginn der Anleitung. Stricke ich den Anfang des Rückenteils an dem später der Schlitz sein soll, ganz ohne Randmasche, d.h. Hinreihe links und Rückreihe rechts? Viele Grüße, Ute
24.08.2021 - 08:47DROPS Design answered:
Liebe Ute, die Randmaschen sind in A.1 und A.2 gestrickt (= die erste Masche in A.1 und die letzte Masche in A.2 ist kraus rechts gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
03.01.2022 - 08:04Wenny wrote:
Dankjewel voor de reacties, in de opmerkingen staat het volgende: DROPS Design 18.05.2018 kl. 13:32: displacement will be worked from RS, ie on a RS row increase 1 st before A.3 and dec 1 st after A.3 at the beg of row and dec 1 st before last A.3 and inc 1 st after last A.3 at the end of row. The new sts increased will be then worked in A.4 see INCREASE-TIP. Happy knitting! Zo lijkt het op de foto ook of het patroon door gebreid wordt.
17.02.2021 - 09:06Wenny wrote:
Vervolg op de eerste vraag , Net een proeflapje gemaakt met de verschuivingen in het A3 patroon, er komt dus iedere 4 pen een steek aan iedere kant bij, ik kan niet goed vinden wat ik hiermee ga doen, moeten die in a3 mee gebreid worden zodat de steken gaan verspringen of komen er steeds meer steken in A3 gebreid en steeds minder tricot steken in het middelste deel, Erg onduidelijk patroon, Hoop dat jullie mij snappen
14.02.2021 - 14:35DROPS Design answered:
Dag Wendy,
Aan het begin van de naald meerder je 1 steek voor A.3 en minder je 1 steek na A.3 en aan het eind van de naald minder je 1 steek voor A.3 en meerder je 1 steek na A.3. Het totaal aantal steken blijft dus hetzelfde, maar door het meerderen en minderen verplaatst het patroon zich richting midden voor. De gemeerderde steken brei je in tricotsteek. Lees ook de tips voor het meerderen en minderen bovenaan bij de instructies.
15.02.2021 - 10:07Wenny wrote:
Ik ben begonnen met dit patroon,het einge waar ik even niet uit komis het volgende: Begin bij een hoogte van 26-24-24-23-23-23 cm met het verschuiven van A.3 middenachter. dat verspringen is niet het probleem maar ik begrijp het middenachter niet, misschien kunnen jullie helpen m.v.g Wenny
14.02.2021 - 13:04DROPS Design answered:
Dag Wendy,
Het 'midden achter' stond er een beetje ongelukkig; er wordt mee bedoeld dat je A.3 richting midden achter verschuift, dus door de meerderingen en minderingen aan beide kanten verschuift het patroon vanaf beide zijkanten richting midden achter. Ik heb de tekst nu aangepast.
15.02.2021 - 10:04Shirley Ray wrote:
I have been knitting for more than 70 years, and I have never seen a pattern as difficult to understand as this one. And with so many questions, none of which Americans can understand. Is there anyone on thisl ist who has completed this sweater without problems or confusion?
11.05.2020 - 19:31DROPS Design answered:
Dear Mrs Ray, The DROPS patterns are knitted and crocheted by thousands and thousands of people around the world. We understand however that in certain countries, with different knitting/crochet traditions than Scandinavia, our patterns might be written in a way that differs from what some are used to. But of course we want everyone to understand our patterns, so that’s why we have created an extensive library of tutorial videos as well as step by step lessons that explain how to follow the techniques we use and how to read the diagrams in our patterns. Give them a try!
12.05.2020 - 10:11Velia wrote:
Me quedo muy lindo el suéter las explicaciones son excelentes agradezco mucho la ayuda. Y aclaró que no es la primera vez que hago un trabajo bajo la dirección de ustedes gracias
07.07.2019 - 17:57