DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Sweet As Candy Short Sleeve

Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Karisma með hringlaga hálsmáli og marglitum mynsturbekk. Stærð S - XXXL

DROPS Extra 0-1140
DROPS Design: Mynstur nr u-763
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
300-350-400-400-450-500 g litur 71, silfur bleikur
50-50-50-50-100-100 g litur 69, ljós grágrænn
50-50-50-50-50-50 g litur 39, dökk bleikvínrauður
50-50-50-50-50-50 g litur 40, ljós bleikfjólublár
50-50-50-50-50-50 g litur 52, sinnepsgulur
50-50-50-50-50-50 g litur 65, gallabuxnablár
50-50-50-50-50-50 g litur 68, ljós himinblár
50-50-50-50-50-50 g litur 74, fjólublár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3 – fyrir stroff.
DROPS PERLUTALA, bogalaga (hvít) NR 521: 7-7-8-8-9-9 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. A.1 er endurtekið upp að handveg á bæði fram- og bakstykki og ermum.

LEIÐBEININGAR-1 (á við um kant að framan):
Í þeim umf þar sem annað hvort eru rendur eða mynsturbekkur er prjónað með lit í röndum eða grunnlit í mynsturbekk einnig yfir 5 kantlykkjur í hvorri hlið.

ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Byrjið 4 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 l slétt saman, 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Byrjið 2 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn (2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo ekki myndist gat.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 2, 11, 20, 29, 38, 46 og 54 cm
STÆRÐ M: 2, 11, 20, 29, 38, 47 og 56 cm
STÆRÐ L: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50 og 58 cm
STÆRÐ XL: 2, 11, 20, 28, 36, 44, 52 og 60 cm
STÆRÐ XXL: 2, 9, 17, 24, 32, 39, 47, 54 og 62 cm
STÆRÐ XXXL: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50, 57 og 64 cm

LEIÐBEININGAR-2:
Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þegar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir í eitt númer grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 232-252-272-296-332-360 l (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 3 með litnum silfur bleikur DROPS Karisma.
Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið nú stroff (= 2 l sl, 2 l br) með 5 kantlykkjum að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og 2 l sl í hvorri hlið við miðju að framan (séð frá réttu). Þegar stroffið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf sl frá réttu þar sem fækkað er um 45-49-53-57-65-69 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 187-203-219-239-267-291 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón og mynstur eftir mynsturteikningu A.1 (1. umf = ranga), en 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan halda áfram í garðaprjóni til loka – LESIÐ LEIÐBEININGAR-1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 8 cm í öllum stærðum eru sett 2 prjónamerki 49-53-57-62-69-75 l inn frá hvorri hlið (= 89-97-105-115-129-141 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 3-3-3-3-4½-4½ cm millibili alls 4-4-4-4-3-3 sinnum á hvorri hlið = 171-187-203-223-255-279 l – ATH: Stillið úrtöku af þannig að fækkað er í einni umf með litnum ljós beige.
Þegar stykkið mælist 22-22-23-23-23-23 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 3½-3½-4-4-6-6 cm millibili alls 4-4-4-4-3-3 sinnum = 187-203-219-239-267-291 l.
Þegar stykkið mælist ca 37-38-39-40-41-42 cm – stillið af að prjónuð sé 1 eða 2 umf með litnum ljós beige á eftir 1 umf með “doppum" og að síðasta umf sé prjónuð frá röngu, prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 45-49-53-57-64-70 l (= hægra framstykki), fellið af 8-8-8-10-10-10 l fyrir handveg, prjónið 81-89-97-105-119-131 l (= bakstykki), fellið af 8-8-8-10-10-10 l fyrir handveg og prjónið næstu 45-49-53-57-64-70 l (= vinstra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 88-92-96-100-104-108 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum silfur bleikur. Prjónið 1 umf sl, prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 2 l br). Þegar stroffið mælist 3 cm er prjónuð 1 umf sl þar sem fækkað er um 18-18-20-20-22-22 l jafnt yfir = 70-74-76-80-82-86 l á prjóni. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt þar sem felldar eru af miðju 8-8-8-10-10-10 l mitt undir ermi = 62-66-68-70-72-76 l eftir á prjóni.
Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjóna nr 4 eins og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna l) = 295-319-339-359-391-423 l á prjóni. Prjónið 1 umf br frá röngu með litnum ljós beige (kantur að framan heldur áfram í garðaprjóni) þar sem fækkað er um 8-8-10-12-14-16 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 287-311-329-347-377-407 l á prjóni – munið eftir LEIÐBEININGAR-1 og LEIÐBEININGAR-2.
Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.2 þar til 6 l eru eftir á prjóni (veljið mynstur fyrir rétta stærð og byrjið umf merkta með ör í réttri stærð), prjónið fyrstu l í A.2 (þannig að mynstrið byrjar og endar á sama hátt í hvorri hlið við miðju að framan) og endið á 5 kantlykkjum í garðaprjóni eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur.
JAFNFRAMT í umf merktri með ör 1 í mynstri er fækkað um 36-40-42-48-50-56 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 251-271-287-299-327-351 l á prjóni. Haldið áfram með mynstur.
Í umf merktri með ör 2 í mynstri er fækkað um 40-40-44-48-52-56 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 211-231-243-251-275-295 l á prjóni.
Í umf merktri með ör 3 í mynstri er fækkað um 40-44-44-52-52-60 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 171-187-199-199-223-235 l á prjóni.
Í umf merktri með ör 4 í mynstri er fækkað um 48-60-60-60-64-68 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 123-127-139-139-159-167 l á prjóni.
Þegar A.2 er lokið mælist stykkið ca 53-55-57-59-61-63 cm upp að öxl.

UPPHÆKKUN AFTAN VIÐ HNAKKA:
Til þess að flíkin passi betur er prjónuð upphækkun aftan við hnakka þannig: Setjið 1 prjónamerki fyrir miðju að aftan. Byrjið frá réttu með litnum silfur bleikur og prjónið sl þar til prjónaðar hafa verið 12-12-14-14-15-15 l framhjá prjónamerki, snúið við, herðið á þræði og prjónið 24-24-28-28-30-30 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 36-36-40-40-44-44 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 48-48-52-52-58-58 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 60-60-64-64-72-72 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 72-72-76-76-86-86 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 84-84-88-88-100-100 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 96-96-100-100-114-114 l br til baka. Snúið við og prjónið út umf.

HÁLSMÁL:
Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 1 umf br frá röngu (kantur að framan heldur áfram í garðaprjóni) þar sem lykkjum er fækkað um 27-31-31-31-43-51 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 96-96-108-108-116-116 l á prjóni. Prjónið nú stroff (= 2 l sl, 2 l br) með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og 2 l sl í hvorri hlið við miðju að framan (séð frá réttu) – ATH: Síðasta hnappagatið er fellt af í hægri kanti að framan og þegar hálsmálið mælist ca 1½-2 cm. Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br í stroffi og sl yfir garðaprjóns l í kanti að framan.
Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm upp að öxl.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í.
----------------------------------------------------------
Handstúkur:
Sjá DROPS 165-5.
----------------------------------------------------------

Mynstur

symbols = ljós beige
symbols = ljós grágrænn
symbols = sinnepsgulur
symbols = ljós bleikfjólublár
symbols = dökk bleikvínrauður
symbols = gallabuxnablár
symbols = fjólublár
symbols = ljós himinblár
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1140

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (4)

country flag Vera wrote:

Liebes Drops Team, Wie viel Garn wird benötigt, wenn die Jacke einfarbig gestrickt wird (Größe M)? Vielen Dank, Vera

23.11.2017 - 21:19

DROPS Design answered:

Liebe Vera, Sie können alle Garnmenge zusammenrechnen, vielleicht brauchen Sie etwas weniger. Hier finden Sie unsere Anleitung für Weste in diese Garngruppe. Viel Spaß beim stricken!

24.11.2017 - 08:44

country flag Marit wrote:

Hur mycket garn går åt om man vill göra den enfärgad? Mvh Marit

28.11.2016 - 13:38

DROPS Design answered:

Hej Marit. Det ved jeg desvaerre ikke. Men en lignende jakke i Karisma kan du finde her. Jeg vil gaa ud fra nogenlunde det samme her - evt med et nöste ekstra for at vaere helt sikker.

28.11.2016 - 16:44

Liz wrote:

I think I'm putting the sleeve pieces in wrong when doing the yoke section. Any advice about getting it right?

29.02.2016 - 19:37

DROPS Design answered:

Dear Liz, the video below shows how to insert sleeves on the same circular needle as both front pieces and back piece, ie the 8-10 sts cast off mid under sleeve should face the 8-10 sts you cast off for armhole on body. Happy knitting!

01.03.2016 - 09:00

country flag Sarah Jenny wrote:

Hello, in choosing amongst the lovely variety of Sweet As Candy fair isle pattern shapes, which all appear to be done in the SAME COLORS, I noticed while loading my cart with yarn that all versions EXCEPT the short sleeve cardigan - #7225 - list ALL the same colors except in 7225 #69 light grey green is changed to #68 light sky blue. So which color is used in the photos? Which color should I buy to get the same look as the photos of 7225? Thank you!

14.09.2015 - 20:39

DROPS Design answered:

Dear Sarah Jenny, all patterns are worked with the same colors, DROPS Extra 0-1140 also use color no 69, light gray green (50-100 g - see size) + 50 g color no 68, light sky blue (+ all other colors). Happy knitting!

15.09.2015 - 09:48