DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5104.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Freja

Prjónuð peysa úr DROPS Belle með röndum, gatamynstri, ¾ ermum og laskalínu. Stærð S - XXXL.

DROPS 169-30
DROPS Design: Mynstur nr vs-023
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BELLE frá Garnstudio
350-400-400-450-500-550 g nr 03, ljós beige
50-50-50-50-50-50 g nr 02, natur
50-50-50-50-50-50 g nr 04, fífill
50-50-50-50-50-50 g nr 07, zink
50-50-50-50-50-50 g nr 16, malva

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 3 – fyrir kant með garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5104.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
1 umf br með litnum zink, 1 umf sl með, 6-6-6-6½-6½-6½ cm sléttprjón með litnum ljós beige, 1 umf br með litnum malva, 1 umf sl með, 6-6-6-6½-6½-6½ cm sléttprjón með litnum ljós beige, 1 umf br með litnum fífill, 1 umf sl með litnum fífill, 6-6-6-6½-6½-6½ cm sléttprjón með litnum ljós beige, 1 umf br með litnum natur, 1 umf br með litnum natur.

RENDUR Á ERMI:
1 umf br með litnum zink, 1 umf sl með litnum zink, 4 cm sléttprjón með litnum ljós beige, 1 umf br með litnum malva, 1 umf sl með litnum malva, 4 cm sléttprjón með litnum ljós beige, 1 umf br með litnum fífill, 1 umf sl með litnum fífill, 4 cm sléttprjón með litnum ljós beige, 1 umf br með litnum natur, 1 umf sl með litnum natur.

MYNSTU:
Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermi):
Aukið út hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 l sléttprjón (prjónamerki er staðsett mitt í þessum l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat (= 2 l fleiri).

LASKALÍNA:
Fækkið lykkjum fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

ÚRTAKA (á við um hálsmál):
Til þess að reikna út hversu oft eigi að fækka lykkjum í umf, teljið fjölda lykkja í umf (t.d. 126 l) og deilið með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 18 l) = 7. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá eru 6. og 7. l prjónaðar slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 160-176-192-216-240-264 l á hringprjóna nr 3 með litnum ljós beige. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8 cm er sett 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 80-88-96-108-120-132 l. Aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 8-8-8-9-9-9 cm millibili alls 4 sinnum = 176-192-208-232-256-280 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-11-12-10-11-12 cm prjónið RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar rendur hafa verið prjónaðar er haldið áfram með litnum ljós beige og sléttprjón. Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm er næsta umf prjónuð þannig: Fellið af 3-3-4-4-5-5 l fyrir handveg, prjónið 82-90-96-108-118-130 l (= bakstykki), fellið af 6-6-8-8-10-10 l fyrir handveg, prjónið 82-90-96-108-118-130 l (= framstykki) og fellið af síðustu 3-3-4-4-5-5 l fyrir handveg. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu l. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 54-56-58-60-62-64 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum ljós beige. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING.
Endurtakið útaukningu með 6-5-4-3½-3-2½ cm millibili alls 5-6-7-8-8-9 sinnum = 64-68-72-76-78-82 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 13-12-11-10-9-8 cm prjónið RENDUR Á ERMI – sjá útskýringu að ofan. Þegar rendur hafa verið prjónaðar til loka er haldið áfram með litnum ljós beige og sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 33-32-31-31-30-29 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið næstu umf þannig: Fellið af 3-3-4-4-5-5 l, prjónið næstu 58-62-64-68-68-72 l og fellið af þær 3-3-4-4-5-5 l sem eftir eru. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu l.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar á sama hringprjóna nr 4 og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 280-304-320-352-372-404 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Prjónið mynstur í hring eftir A.1 – ATH: A.1 er nú endurtekið. JAFNFRAMT í fyrstu umf er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 18-20-21-22-23-24 sinnum = 136-144-152-176-188-212 l eftir á prjóni. Klippið frá.

UPPHÆKKUN AFTAN VIÐ HNAKKA:
Skiptið yfir á hringprjóna nr 3, byrjið fyrir miðju að aftan og prjónið 1 umf sl þar sem fækkað er um 10 l jafnt yfir = 126-134-142-166-178-202 l. Prjónið síðan garðaprjón fram og til baka þannig (1. umf = rétta): Prjónið 8-9-10-11-12-13 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 16-18-20-22-24-26 l sl til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 24-27-30-33-36-39 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 32-36-40-44-48-52 l sl til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 40-45-50-55-60-65 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 48-54-60-66-72-78 l sl til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið sl til baka að miðju að aftan. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

HÁLSMÁL:
Haldið áfram í garðaprjóni hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá prjónamerki (passið uppá að næsta umf sé umf frá réttu), fækkið um 18-18-17-16-16-16 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA = 108-116-125-150-162-186 l. Þegar kantur í garðaprjóni mælist 4 cm í öllum stærðum er fækkað um 24-24-23-23-23-23 l jafnt yfir = 84-92-102-127-139-163 l. Endurtakið úrtöku einu sinni til viðbótar í stærð XL + XXL + XXXL þegar kantur í garðaprjóni mælist 5 cm, fækkið nú um 23-25-39 l jafnt yfir. Eftir alla úrtöku eru 84-92-102-104-114-124 l eftir á prjóni. Fellið laust af þegar kantur í garðaprjóni mælist 5-5-5-6-6-6 cm, peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = prjónið sl með zink
symbols = prjónið slétt með malva
symbols = prjónið sl með fífill
symbols = prjónið sl með natur
symbols = prjónið br með ljós beige
symbols = 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn með ljós beige
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Freja

Joe5, France

Freja by DROPS Design

Niebo, Germany

Freja by DROPS Design

Svetlana Cox, United States

Skrifaðu athugasemd um DROPS 169-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Iija Auterinen wrote:

Ostin langat ohjeen mukaan 550 g, nyt olen neulonut yhden kerän ja saanut 7 cm neuletta. Todennäköisestit lanka ei riitä, kuinka paljon olisi ostettava lankaa lisää. puikot 3,5 tiheys 21 - 22 / 10 cm

17.02.2023 - 16:13

DROPS Design answered:

Hei, kunhan neuletiheytesi on oikea, lankojen tulisi riittää. Voi olla, että tarvitset n. 1-2 kerää lisää, jos neulot yhdellä kerällä 7 cm. Kaarrokkeessa neulotaan kuitenkin raitoja, joten tässä kohtaa pohjaväriä menee vähemmän.

22.02.2023 - 16:18

country flag Cheryl wrote:

When I start knitting the yolk doni start decreasing right away or knit a few rows first?

25.04.2022 - 01:04

DROPS Design answered:

Hi Cheryl, You begin to decrease for raglan on the first round of the yoke, straight after putting the sleeves and body on the same needle. Happy knitting!

25.04.2022 - 07:08

country flag Lourdes wrote:

Me gustaría hacer este jersey pero todo entero del color N.º 03, beige claro, sin añadirle ninguno de los demás colores. Me podríais decir cuantos ovillos necesitaría? Gracias!

30.04.2021 - 12:01

DROPS Design answered:

Hola Lourdes, necesitarías usar el mismo número de ovillos de color beige que ponga para tu talla y añadir 1 o 2 ovillos más, según la talla a trabajar, para sustituir los otros colores.

30.04.2021 - 22:37

country flag Karla Sollini wrote:

Is this uploadable to knit companion? If so how would this happen?

01.04.2021 - 23:11

DROPS Design answered:

Sear Karla, the pattern is downloadable in a PDF format. Just click on the print icon, and chose select "save as PDF". However we are not responsible for outside softwares, so you have to figure out how to upload the pattern elswhere. Happy Knitting!

02.04.2021 - 09:44

country flag Anne Jacobson wrote:

Har ni något tips på hur man fäster garnet utan att det blir fult och syns från rätsidan? (PS. Jag har repat upp hela tröjan för den blev för liten. För att få rätt masktäthet måste jag använda stickor nr 5...men det känns inte heller bra... tröjan blir sladdrig. Jag har hårt handlag som ni förstår. Vad göra, har ni något förslag? Sticka större storlek kanske?)

02.12.2020 - 14:38

DROPS Design answered:

Hei Anna. Ja, det kan du gjøre. Men sjekk den strikkefastheten du fikk og regn ut til hvilken størrelse du da må strikke. Når du skal feste trådene, kan du dele opp 1 tråd til flere tynne tråder. Det blir flere tråder å feste, men kanskje du syns det er verdt det. Se video: Hur man fäster bomullstrådar. Evnt alltid få et trådbytte / trådfeste i sidene. God Fornøyelse!

09.12.2020 - 13:16

country flag Anne Jacobson wrote:

Hej! När jag stickar oket och byter färg så blir det inte så fint vid färgbytena. Jag började varvet mitt bak . Det är ju även mönsterstickning där. Är det lämpligare att börja varvet vid hopstickningen med ärmen, alltså där minskningen för raglan ska göras? Mönstrets hoptagningar "kolliderar"med minskning för raglan, har ni något tips där för att få det snyggt?

15.11.2019 - 11:39

DROPS Design answered:

Hej Anne, ja det vil altid blive lidt forskudt når du bytter farve. Du må gerne flytte overgangen til raglanovergangen, hvis du synes det bliver finere :)

03.12.2019 - 14:47

country flag Margaretha wrote:

Hej! I beskrivningen av halskanten står att jag ska sticka rätstickning i 2 cm efter det förhöjningen för nacken är klar. Innebär det att jag ska sticka vartannat varv räta och vartannat avigt?

14.03.2019 - 07:07

DROPS Design answered:

Hej. Ja när du stickar runt så stickar du rätstickning genom att sticka vartannat varv rät och vartannat avigt (när du stickar fram och tillbaka stickar du alla varav räta för att få rätstickning). Lycka till!

14.03.2019 - 08:42

country flag Irina wrote:

Hallo liebes Drops-Team, ich hätte 2 Fragen: 1. Hätten Sie für mich einen Tipp wo ich die Rd in Passe am besten beginnen soll. 2. Wenn ich die Reglanabnahmen nach Anleitung mache, dann klappt es nicht so gut in den Rd. mit Umschlägen. Wenn ich die letzten 2 Maschen vor Reglan zusammen stricke und dann Umschlag, dann Abnahme, Markierer, Abnahme und jetzt Umschlag? oder keinen , gleich mit 2 Zusammen weiter? Vielen Dank im Voraus

02.02.2019 - 15:55

DROPS Design answered:

Liebe Irina, Passe können Sie an der hinteren Mitte beginnen, bei den Löchernreihe, beachten Sie, dass Sie richtig abnehmen, dh wenn nur 1 M übrig bleibe (vor den 2 Maschen der Raglan linie), diese Masche rechts stricken, dann die Abnahme für den Raglan stricken. Viel Spaß beim stricken!

04.02.2019 - 11:18

country flag Annelise Holst wrote:

Jeg er igang med denne Freja by Drops design Jeg kan ikke få det til at passe med st strikke ret strik rundt i halskantrn, på billedet ser det ud til at der er riller, altså at der strikkes en p. Ret og en p. Vrang. Håber i kan hjælpe Mvh Annelise Holst.

23.01.2019 - 14:18

DROPS Design answered:

Hej Annelise, jo det stemmer, når du strikker retstrik rundt på rundpind strikkes hver 2.p ret og hver 2.p vrang. Retstrik frem og tilbage på pinden = ret på hver pind. God fornøjelse!

28.01.2019 - 09:53

country flag Monique Vd Burg wrote:

Op de foto lijkt het of de strepen op het lijf een ribbel is. Klopt het wel zoals het in de beschrijving staat? Moet dat niet zijn: 2 nld averecht? Dank voor uitleg.

06.02.2018 - 19:13

DROPS Design answered:

Hoi Monique, De strepen op het lijf zijn inderdaad ribbels en als je in de rondte breit is dat 1 naald averecht.

07.02.2018 - 21:03