DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1341.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Mexican Sunset

Prjónaðir sokkar með norrænu mynstri, prjónaðir frá tá og upp úr DROPS Fabel. Stærð 35-43.

DROPS 170-11
DROPS Design: Mynstur nr fa-339
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: ca 22 - 24 - 27 cm
Hæð á sokk: ca 27 - 27 - 27 cm

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
100-100-100 g litur nr 310, sólsetur
50-50-50 g litur nr 100, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l x 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1341.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GALDRAHRINGUR:
Til þess að koma í veg fyrir göt í miðju er byrjað á þessari aðferð:
Haldið í endann með vinstri hendi og gerið lykkju utan um vinstri vísifingur (frá vinstri að hægri).
Haldið í lykkjuna með vinstri þumli og vísifingri. Stingið prjóninum í gegnum lykkjuna, sækið þráðinn frá dokkunni og dragið þráðinn til baka í gegnum lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. dragið þráðinn aftan frá og að þér) og dragið uppsláttinn í gegnum l á prjóninum, * stingið prjóninum í gegnum lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn, dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn og dragið uppsláttinn í gegnum síðustu l á hægri prjón (þ.e.a.s. að síðasta l sem var gerð) *, endurtakið frá *-* þar til 10-10-12 l eru á prjóni. Skiptið l á sokkaprjóna nr 2,5. Prjónið síðan eins og útskýrt er frá í uppskrift – JAFNFRAMT er dregið í endann á þræðinum þannig að hringurinn dragist saman og gatið hverfi.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.12 (veljið mynstur fyrir rétta stærð). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

HÆLL:
Prjónað er fram og til baka.
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 1 l er eftir, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Takið fyrstu l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, herðið á þræði og prjónið þar til 1 l er eftir, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Takið fyrstu l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, herðið á þræði og prjónið þar til 2 l eru eftir, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Takið fyrstu l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, herðið á þræði og prjónið þar til 2 l eru eftir, snúið við.
Haldið áfram með snúningana alveg eins þar til 15 l eru eftir í umf. Setjið 1 prjónamerki.
Haldið áfram fram og til baka, nema nú er prjónuð 1 l fleiri í hverri umf yfir hæl. Til þess að sleppa við göt í skiptingunum lyftið lárétta þræðinum sem er á undan l sem prjónuð var meira upp og setjið snúið uppá prjóninn. Prjónið þráðinn saman með næstu lykkju (frá réttu er þráðurinn og lykkja prjónað slétt saman og frá röngu er þráðurinn og lykkjan prjónað brugðið saman). Prjónið svona þar til prjónað hefur verið yfir allar l á hæl.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað frá tá og upp.

SOKKUR:
Byrjið með litnum sólsetur og GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan – á sokkaprjóna nr 2,5. Næsta umf er prjónuð þannig: * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn (prjónið uppsláttinn snúinn slétt í næstu umf) = 20-20-24 l. Setjið 1 prjónamerki í eina l í hvorri hlið með 9-9-11 l á milli prjónamerkja. Aukið út hvoru megin við hvor prjónamerki þannig: * Prjónið þar til 1 l er eftir á undan l með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 l sl (prjónamerki er staðsett í 2. l), sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum (= 4 l fleiri) – ATH: Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Endurtakið útaukningu í hverri umf alls 5-3-3 sinnum og síðan í annarri hverri umf alls 4-4-4 sinnum = 56-60-64 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið 1 umf slétt. Prjónið nú mynstur í hring eftir mynsturteikningu a.1 (= 14-15-16 mynstureiningar í umf). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er prjónuð 1 umf slétt með litnum sólsetur þar sem aukið er út um 2-2-0 l jafnt yfir = 58-62-64 l. Næsta umf er prjónuð þannig: A.2 (= 23-27-29 l ofan á fæti), A.3 (= 3 l), A.4 (= 29 l undir fæti), A.5 (= 3 l). Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 13-15-18 cm frá tá. Haldið áfram eins og áður, en nú er prjónað A.6 á milli A.3 og A.4, A.7 á milli A.4 og A.5. Haldið svona áfram þar til A.6 og A.7 hefur verið prjónað til loka á hæðina = 70-74-76 l.
Prjónið A.2 eins og áður (= 23-27-29 l), skiptið yfir í litinn sólsetur og prjónið út umf. Klippið frá. Stykkið mælist ca 17-19-22 cm frá tá. Setjið 41-45-47 l mitt ofan á fæti á þráð (þ.e.a.s. A.7, A.5, A.2, A.3 og A.6) = 29 l á prjóni fyrir hæl (= A.4). Prjónið – sjá útskýringu að ofan, allur hællinn er prjónaður með litnum sólsetur. Eftir stuttar umf yfir hæl er haldið áfram í sléttprjóni og með litnum sólsetur yfir 29 l á hæl – JAFNFRAMT í lok hverrar umf (bæði frá réttu og röngu), prjónið síðustu l í umf saman með ystu l af þræði (frá réttu eru prjónaðar 2 l snúnar slétt saman og frá röngu eru prjónaðar 2 l brugðið saman). Haldið svona áfram fram og til baka þar til 6 ystu l í hvorri hlið á þræði hafa verið prjónaðar saman með l á hæl. Setjið til baka þær 29-33-35 l sem eftir eru á þræði á prjóninn = 58-62-64 l. Klippið frá. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

Byrjið á nýrri umf í hlið, þ.e.a.s. 15-13-12 l á undan fyrstu l í A.2 og prjónið næstu umf þannig: Prjónið A.8 (= 15-13-12 l) – ATH: Byrjið í sömu umf og næsta umf í A.2 - A.2 heldur áfram eins og áður, prjónið A.9 (= 15-13-12 l), endið umf á A.10 (= 5-9-11 l aftan á fæti). Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 16 cm – stillið af eftir heila eða hálfa mynstureiningu af A.8/A.9 á hæðina = 64-68-70 l. Þegar A.11 er lokið er prjónað A.12 (= 12 l) yfir allar l – JAFNFRAMT í fyrstu umf er aukið út um 4-4-0 l jafnt yfir = 72 l. Þegar A.12 er lokið, skiptið yfir á sokkaprjóna nr 2 og prjónið stroff (= 1 l sl, 2 l br) með litnum sólsetur þar til stroffið mælist ca 4 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Klippið frá og festið enda.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 24.06.2021
Ný mynsturteikning A.2 (umferð 17, lykkja 28 - svartur punktur (sólsetur) hefur verið færður 1 umferð ofar).

Mynstur

symbols = natur
symbols = sólsetur
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf til þess að koma í veg fyrir göt)
symbols = umferð sem er endurtekin
symbols = engin l (sýnir fyrstu/síðustu l í A.4)
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 170-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Inge Vab Erkel wrote:

Ik zie de patronen voor de scandinavische sokken. Kunnen deze ook met een andere hiel gebreid worden, dus zonder spie en bijvoorbeeld wel met een shadowwrap hiel?

30.04.2024 - 14:14

DROPS Design answered:

Dag Inge,

Je bent natuurlijk vrij om het patroon aan te passen naar eigen wensen en je kunt er inderdaad een andere hak in breien.

30.04.2024 - 21:00

country flag Dorothee wrote:

Ik zie de telpatroontekening van A1, A2, A3 en A7 er niet bij staan, terwijl de beschrijving er wel naar verwijst. Kunnen die nog toegevoegd worden?

19.06.2023 - 14:02

DROPS Design answered:

Dag Dorothee,

A.7 staat helemaal links onderaan (naast A.6), A.1, A.2 en A.3 staan helemaal bovenaan bij de telpatronen. Misschien dat de pagina tijdelijk niet goed laadde.

21.06.2023 - 20:57

country flag Norsk wrote:

Bonjour, Merci pour la vidéo pour réaliser le rond magique au tricot (elle est très utile !). Avez-vous à présent une vidéo pour réaliser le talon de cette chaussette ? Je n'ai jamais réalisé une chaussette à partir de la pointe et je ne comprends pas les explications. En outre, la vidéo pour le talon ne correspond pas à la technique utilisée pour cette chaussette. Merci !

26.12.2022 - 17:23

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Norsk, le talon se tricote comme dans cette vidéo (même si le modèle est de haut en bas dans la vidéo), autrement dit, on tricote des rangs raccourcis en laissant 1 maille à la fin de chaque rang jusqu'à ce qu'il reste 15 m (4 dans la vidéo) puis on tricote 1 m en plus à la fin de chaque rang jusqu'à ce que toutes les mailles du talon aient été tricotées (2ème partie du talon à partir de 4:59 dans la vidéo). Bon tricot!

02.01.2023 - 09:28

country flag Norsk wrote:

Avez-vous une vidéo pour réaliser le rond magique au tricot ? Je ne trouve un tuto que pour le crochet. Merci !

17.12.2022 - 17:16

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Norsk, tout à fait, vous la retrouverez ici. Bon tricot!

19.12.2022 - 08:55

country flag Pia Johansson wrote:

Förstår inte hur jag ska sticka hälen...

22.11.2022 - 21:24

DROPS Design answered:

Hei Pia. Hvordan hælen strikkes står beskrevet under HÄL, øverst i oppskriften. Hva er det du ikke helt skjønner med hva som står der? mvh DROPS Design

28.11.2022 - 09:56

country flag Pia Johansson wrote:

Stickar strumpor 170-11, förstår inte alla hur jag ska sticka hälen. Har stickat många strumpor förut, men då börjat från skaftet och ned.

22.11.2022 - 21:22

country flag My wrote:

Sidan bara laddar och laddar utan att några bilder eller diagram visas, spelar ingen roll om jag byter browser heller. :(

13.01.2022 - 14:55

country flag Pia Johansson wrote:

20 maskor på stickorna , ska sätta ett märke i var sida , med 9 maskor emellan...? Borde vara 10 maskor mellan ....,?

02.01.2022 - 21:53

DROPS Design answered:

Hej Pia. Du sätter markörer i maskorna (inte mellan maskor) på varje sida så då blir det 9 maskor mellan maskorna med markörer i. Mvh DROPS Design

03.01.2022 - 09:48

country flag Myriam wrote:

Bonjour et merci pour ce très beau modèle. Mais je sèche sur le talon. Où faut-il commencer le « en même temps » ! Est-ce après tous les rangs raccourcis ? Merci pour votre aide.

27.12.2021 - 17:06

DROPS Design answered:

Bonjour Myriam, vous le faites après tous les rangs raccourcis. Bon tricot!

28.12.2021 - 09:57

country flag Cathis wrote:

Är det inte ett litet fel på A2, mönsterbildens vänstersida straxt ovanför mitten? Det är inte symmetriskt.

30.10.2020 - 21:31

DROPS Design answered:

Hei Cathis. Hvilken størrelse mener du da? Man strikker forskjellige utsnitt av A.2 ved de ulike størrelsene. mvh DROPS design

02.11.2020 - 12:46