DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 894.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 167-34
DROPS Design: Mynstur nr fa-341
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: 22 - 24 - 27 cm

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
100-100-100 g nr 904, bláfjólublár

DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5 (60 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 24 l x 48 umf með garðaprjóni 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 894.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚRTAKA:
Prjónið 2 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Allur sokkurinn er prjónaður í garðaprjóni og saumaður saman í lokin.

HÆGRI SOKKUR:
Fitjið upp 85-91-99 l á hringprjón nr 2,5 með Fabel. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar prjónaðar hafa verið 12-14-16 umf í garðaprjóni eru fitjaðar upp 6-7-8 nýjar l í lok umf frá röngu = 91-98-107 l. Haldið áfram í garðaprjóni, þegar prjónaðar hafa verið 12-14-16 umf í garðaprjóni eru fitjaðar upp 6-7-8 nýjar l í lok umf frá röngu (nú hafa verið prjónaðar 24-28-32 umf í garðaprjóni) = 97-105-115 l. Setjið síðustu 58-64-72 l (séð frá réttu) á þráð, nú er einungis prjónað yfir fyrstu 39-41-43 l. Prjónið 24-28-32 umf í garðaprjóni, JAFNFRAMT eftir 12.-14.-16 og 24.-28.-32. umf í garðaprjóni eru fitjaðar upp 6-7-8 nýjar l í lok umf frá röngu = 51-55-59 l.
Næsta umf er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið 51-55-59 l, prjónið upp 1 l í hverri rönd með garðaprjóni meðfram skammhlið í lok umf (= 12-14-16 l), prjónið til baka síðustu 58-64-72 l á prjóninn, JAFNFRAMT eru prjónaðar 2 síðustu l af þræði slétt saman = 120-132-146 l. Haldið áfram í garðaprjóni og fækkið um 1 l í lok hverrar umf frá réttu – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku 4-5-6 sinnum til viðbótar (= 5-6-7 l færri), síðan eru fitjaðar upp 6-7-8 nýjar l í lok umf frá röngu = 121-133-147 l. Næsta umf er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið 50-54-58 l, prjónið 2 l slétt saman, prjónið 56-62-70 l sl, prjónið næstu 2 l slétt saman, snúið við (nú eru eftir 11-13-15 l á prjóni), * 56-62-70 l sl, prjónið næstu 2 l slétt saman, (nú eru eftir 50-54-58 l á prjóni) snúið við og prjónið 56-62-70 l sl, prjónið næstu 2 l slétt saman (nú eru eftir 10-12-14 l á prjóni), snúið við *, endurtakið frá *-* 10-12-14 sinnum til viðbótar – nú er engin l eftir í lok umf (séð frá réttu), í síðustu umf frá röngu eru prjónaðar 39-41-43 l til baka á prjóninn. Prjónið síðan yfir allar l = 97-105-115 l. Haldið áfram í garðaprjóni og fækkið um 1 l í lok hverrar umf frá réttu. Endurtakið úrtöku 5-6-7 sinnum til viðbótar, fitjið síðan upp 6-7-8 nýjar l í lok umf frá röngu (lykkjufjöldinn er sá sami). Fellið af.

FRÁGANGUR:
Byrjið í vinstri hlið á stykki. Saumið síðustu 12-14-16 l frá affellingarkanti saman við 12-14-16 fyrstu rendur í garðaprjóni sem prjónaðar voru í vinstri hlið, saumið 1 l frá affellingarkanti saman við l frá uppfitjunarkanti. Saumið saman op framan á sokk (= tá).

VINSTRI SOKKUR:
Prjónið á sama hátt og hægri sokkur, nema gagnstætt, þ.e.a.s. það sem var gert í hægri sokk frá réttu er nú gert frá röngu og öfugt.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 167-34

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (34)

country flag Corinne wrote:

Bonjour, l’échantillon est correct. Ma tension semble correcte mais le chausson est trop petit. Mon 38-40 ressemble plutôt à du 35…. J’ai recommandé la laine spécifique au modèle et elle a l’air pareille que celle que j’ai utilisé… du côté dentelé du tricot, je compte 6 “marches” et l’augmentation. Finale que l’on rabat directement et que je trouve étrange. Est-ce que vous voyez ce que j’ai fait faux ?

08.02.2024 - 20:51

DROPS Design answered:

Bonjour Corinne, avez-vous bien la bonne tension en hauteur également? Dans ce modèle, elle est tout aussi importante que celle en largeur, il vous faut ici 48 rangs point mousse (soit 24 côtes) = 10 cm. Il y a 3 vidéos pour ce modèle, découvrez-les en bas de page, sous les explications, ces vidéos pourront vous aider à comprendre comment ce modèle se tricote et comment il est assemblé pour former un chausson. Bon tricot!

09.02.2024 - 07:48

country flag Monica wrote:

Sto lavorando la misura più piccola. Quando lavoro la calza sinistra a specchio vuol dire che dopo aver fatto le prime 6 coste a legaccio gli aumenti li faccio all'inizio o alla fine del 13 ferro?

07.01.2022 - 09:09

DROPS Design answered:

Buongiorno Monica, esatto, deve procedere a specchio rispetto alla calza destra. Buon lavoro!

08.01.2022 - 13:13

country flag Jakus Tiborné wrote:

Amikor ketté választjuk a munkát és a rövidebb oldalon dolgozunk, 14 lustasor után visszaszedjük a félre rakott szemeket. Ott keletkezik egy lyuk. Nem olvasom jól a leírást? Köszönöm a segítséget.

10.06.2021 - 15:51

country flag Inez wrote:

In dit sokken patroon staat Fabel wol, maar wel de steken verhouding 23x48? Fabel heeft 24x32! Kan Fabel wol dan wel gebruikt worden?

26.02.2021 - 10:18

DROPS Design answered:

Dag Inez,

De stekenverhouding in het patroon kan soms iets afwijken van het de stekenverhouding die bij het betreffende garen staat. In dit geval gaat het om ribbelsteek, daardoor wijkt de stekenverhouding ietsje af.

02.03.2021 - 10:02

country flag Jordyn K Lee wrote:

Would you be able to do this same pattern in stock knit or does that destroy the measurements?

02.02.2021 - 22:45

DROPS Design answered:

Dear Mrs Lee, this pattern wouldn't work if you work them in stocking stitch because garter stitch hasn't the same tension in height. See our videos showing these socks. Happy knitting!

03.02.2021 - 08:55

country flag Lydia Bonaldo wrote:

Reicht es nicht die fertigen Strickzeuge einmal non links und einmal von rechts zusammen zu nähen anstatt hin und Rückreisen zu tauschen

20.11.2020 - 19:13

DROPS Design answered:

Liebe Frau Bonaldo, damit beide Socken ganz gleich sind, sollen Sie spiegelverkehrt gestrickt werden. Viel Spaß beim stricken!

23.11.2020 - 08:03

country flag LLena wrote:

Frågat tidigare idag men läste tokigt när jag körde fast på att maskantal efter minskning i slutet av räta v totalt 6 ggr stämmer ej. Blir ju 134m när jag o ökat 7 i andra ändan. (strl 38/40). Tack ändå för stickglädjen ni sprider!!!

16.03.2020 - 13:46

DROPS Design answered:

Hej Efter att du stickat ihop de 2 sista maskorna från tråden så har du 132 m. Sedan minskar du 1 maska i slutet av varje varv från rätsidan totalt 6 gånger; 132-6= 126 m. Efter det lägger du upp 7 nya maskor i slutet av varvet från avigsidan; 126+7= 133 m. Mvh DROPS Design

18.03.2020 - 10:18

country flag Lena wrote:

JÄTTEROLIG idé till sockor. Men mönstret verkar helkonstigt - maskantal stämmer inte - o det som utvecklas på filmen stämmer inte heller... Snälla rätta till och/eller förklara. Strl. 38/40. Har räknat. Stämmer t.o.m 64m på tråd, sticka endast första 39-41-43 m. SEDAN blir det helkonstigt. Inga maskantal stämmer. Antal "flikar" som bildas efter ökningarna i slutet av aviga varv stämmer ej heller med de man ser på filmen. SNÄLLA HJÄLP!

16.03.2020 - 11:01

DROPS Design answered:

Hej Se svar över. Mvh DROPS Design

18.03.2020 - 10:18

country flag Antonia wrote:

J'en ai tricoté une paire l'an dernier en Fabel dans des tons rouges, dont je n'arrive pas à retrouver le modèle, a-t-il été supprimé ? Est-ce les mêmes ? Très beau modèle en tout cas. Merci à vous !

13.11.2019 - 17:17

DROPS Design answered:

Bonjour Antonia, nos modèles ne sont pas supprimées, nous avons un autre modèle similaire présenté dans les tons rouges, en Big Delight: Red Sand. Bon tricot!

14.11.2019 - 09:20

country flag Sofia wrote:

Hvordan ved man hvilken side er ret eller vrang når man striker retstrik???

01.08.2018 - 10:55

DROPS Design answered:

Hej Sofia, det er egentlig ikke så vigtigt bare du sørger for at have ud og indtagninger i den rigtige side (i forhold til retsiden). Du kan jo markere den side du vil bruge som ret, så det bliver rigtigt :)

14.08.2018 - 16:14