DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15510.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Irish Winter

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk með köðlum og klauf í hlið. Stærð S - XXXL.

DROPS 172-2
DROPS Design: Mynstur nr z-760
Garnflokkur A + A eða C
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
350-350-350-450-500-500 g nr 100, natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
150-150-150-175-200-200 g nr 01, natur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l x 22 umf með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 60 cm) NR 4,5 fyrir stroff og kant í hálsi – eða þá stærð sem þarf til að 18 l x 23 umf með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) verði 10 x 10 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15510.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6 – sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð! Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l br með því að prjóna 2 l br saman.

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum sem síðan eru saumuð saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 124-130-140-150-160-174 l með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir) á hringprjóna nr 4,5. Prjónið 1 umf br frá röngu, síðan er stoffið prjónað þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið A.5 (= 4-7-4-9-14-13 l), A.1a (= 8 l) 1-1-2-2-2-3 sinnum, A.2a (= 31 l), A.3a (= 34 l), A.2a (= 31 l), A.4a (= 8 l) 1-1-2-2-2-3 sinnum, A.6 (= 4-7-4-9-14-13 l), 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Endurtakið 2 fyrstu umf í mynstri þar til stykkið mælist 4 cm. Prjónið síðan 2 umf = 106-112-118-128-138-148 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið nú mynstur frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, 4-7-4-9-14-13 l sléttprjón, A.1b (= 6 l) 1-1-2-2-2-3 sinnum, A.2b (= 26 l), A.3b (= 30 l), A.2b, A.4b (= 6 l) 1-1-2-2-2-3 sinnum, 4-7-4-9-14-13 l sléttprjón, 2 kantlykkjur í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 14 cm í öllum stærðum er fitjuð upp 1 ný l í lok 2 næstu umf (merkir klauf) = 108-114-120-130-140-150 l. Nýjar l eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm fellið af 2-2-3-4-4-5 l í byrjun næstu 2 umf fyrir handveg = 104-110-114-122-132-140 l. Haldið áfram með mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 4-7-3-7-12-10 l sléttprjón, mynstur eins og áður yfir næstu 94-94-106-106-106-118 l, 4-7-3-7-12-10 l sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm fækkið um 4 l br jafnt yfir miðju 24 l – LESIÐ ÚRTAKA = 100-106-110-118-128-136 l. Í næstu umf frá réttu eru felldar af miðju 20 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 l í næstu umf frá hálsi = 39-42-44-48-53-57 l. Þegar stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l á öxl þar sem felldar eru af 3 l jafnt yfir = 36-39-41-45-50-54 l. Prjónið 1 umf slétt frá réttu og fellið af með sl frá röngu.
Prjónið hina öxlina á sama hátt, nema spegilmynd.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki. Þegar stykkið mælist 58-59-60-61-62-63 cm er prjónað þannig: Prjónið fyrstu 45-48-50-54-59-63 l eins og áður, prjónið næstu 14 l JAFNFRAMT er fækkað um 4 l br jafnt yfir og setjið þessar l á þráð fyrir hálsmáli (= 10 l á þræði), prjónið þær l sem eftir eru á prjóni = 45-48-50-54-59-63 l fyrir hvora öxl. Prjónið nú hvora öxl til loka fyrir sig og mynstur eins og áður. Fellið síðan af í hverri umf frá hálsi þannig: Fellið af 2 l 2 sinnum og 1 l 2 sinnum = 39-42-44-48-53-57 l eftir fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l á öxl þar sem fækkað er um 3 l jafnt yfir = 36-39-41-45-50-54 l. Prjónið 1 umf slétt frá réttu og fellið af með sl frá röngu.
Prjónið hina öxlina á sama hátt, nema spegilmynd.

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 44-44-49-49-54-54 l (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir) á hringprjóna nr 4,5. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni (2 l sl, 3 l br) þar til 3 l eru eftir, 2 l sl, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 5 cm er fækkað um 6-4-7-7-10-8 l jafnt yfir = 38-40-42-42-44-46 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8 cm í öllum stærðum er aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING! Aukið svona út í 4. hverri umf 15-14-13-10-6-4 sinnum og í annarri hverri umf 1-3-4-9-14-17 sinnum = 70-74-76-80-84-88 l. Þegar stykkið mælist 40-40-39-38-36-35 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við affellingarkant. Saumið ermar í við fram- og bakstykki. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni niður að klauf (klauf = 14 cm). Endurtakið í hinni hliðinni.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp 60-70 l í kringum hálsmál á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 6 umf garðaprjón og fellið af.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 24.06.2021
Ný mynsturteikning A.3b (umferð 18, lykkja 22)

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = prjónið 2 lykkjur brugðið saman
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 172-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Lynne wrote:

Can you recommend a single-strand yarn to use, instead of using two strands? And the quantity of the single-strand yarn to buy? Thank you!

28.08.2023 - 19:58

DROPS Design answered:

Dear Lynne, sure, you can use any yarn from our yarn group C - read more here, scroll down to 2 strands of different meterage to 1 strand.. Happy knitting!

29.08.2023 - 09:10

country flag Kathie wrote:

This has been a very interesting pattern and the first time, for me, from charts. Love the intricate pattern design combinations. There is one stitch on Chart A3b line 26 stitch 25 that I was wondering if it should be a Purl stitch instead Knit. Thank you so much!

05.01.2022 - 05:20

DROPS Design answered:

Dear Kathie, you are right, our design team will check and edit diagram as soon as possible. Thanks for your feedback. Happy knitting!

05.01.2022 - 08:14

country flag Ariela Cohen wrote:

Can i have translation of the instructions to hebrew i dont mind paying for it

12.05.2021 - 14:57

country flag Jean Purnell wrote:

The only way I could cope was to enlarge and print out the charts and number the rows, then use a row counter. I also printed out all the charts for the initial part and payed them out in sequence. Then I used marker threads for each chart.

22.12.2020 - 10:24

country flag Erika wrote:

Hello again. I have figured out the triangle from the 9th raw. K r

14.11.2020 - 21:27

country flag Erika wrote:

Good morning. I have got a couple of questions. First one, when it says in Ab1 in tbe3rd raw "slip stitch behind, then K1,K1 from behind, isn't it supposed to be K1 and P1 from behind? Also there is no explanation A1b in the 9th raw what the full triangle means. Thank you in advance and good day.

14.11.2020 - 08:23

country flag Linda Ovens wrote:

What do the missing squares in blocks A.1a and A.2a signify ?

09.04.2020 - 21:07

DROPS Design answered:

Dear Mrs Ovens, on next to last row on these diagrams you will decrease by purling 2 sts together, on next row (= last row), there will be 1 stitch less because of this decrease, ie in A.1a 6 sts remain and work these 6 sts as follows: P2, K1, P2, K1. Happy knitting!

14.04.2020 - 09:57

country flag Paola Lontani wrote:

Possibile che al ferro numero 18 al diagramma a b3 ci sia un errrore nella parte finale dovrebbe un risultare solo un diritto invece il diagramma ne riporta due

31.10.2019 - 08:12

DROPS Design answered:

Buongiorno Paola. La ringraziamo della segnalazione che inoltriamo al settore design. Alla riga 18 ci deve essere una sola maglia a diritto e non due. Buon lavoro!

31.10.2019 - 11:52

country flag Margaret wrote:

How do you read your pattern and what is the dark section in pattern a2b

08.02.2019 - 21:09

DROPS Design answered:

Hi Margaret, The symbols used in diagram A.2b are described above the diagrams. So if you are working row 3 in A.2b, you start from the right side and purl 2 (from right side) or knit 2 (from wrong side), then the dark triangle which slopes up right to left means: place 1 stitch on cable needle in front of piece, purl 1 and knit the stitch from the cable needle, then the dark triangle which slopes down from right to left means: place 1 stitch on cable needle behind piece, knit 1 and purl stitch on cable needle. Then continue with purl/knit 3 etc. Hope this helps and happy knitting!

09.02.2019 - 08:43

country flag Mercedes wrote:

¡hecho! me ha quedado de cine. gracias

18.01.2017 - 12:36