DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 172-27
DROPS Design: Mynstur nr u-786
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

EYRNABAND:
Stærð: S/M – M/L.
Höfuðmál: 54/56-56/58 cm.
Mál:
Ummál: 49-51 cm.
Breidd: 9 -9 cm.

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
50-50 g litur nr 01, natur

DROPS PRJÓNAR NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

HANDSTÚKUR:
Stærð: S/M – M/L
Mál:
Lengd 18-18 cm.
Ummál: 17-18 cm.

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
100-100 g litur nr 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka og er saumað saman við miðju að aftan.

EYRNABAND:
Fitjið upp 24 l með Karisma á prjóna nr 4.
Prjónið A.1a (= 2 umf) 1-2 sinnum. Haldið síðan áfram með A.1b. Þegar allt stykkið hefur verið prjónað til loka 1 sinni á hæðina mælist stykkið 7-8 cm.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Endurtakið A.1a og A.1b 6 sinnum á hæðina.
Stærð S/M er nú tilbúin. Stærð M/L heldur síðan áfram með 4 umf með sl yfir sl og br yfir br. Stykkið mælist 49-51 cm. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman uppfitjunarkantinn og affellingarkantinn fyrir miðju að aftan með lykkjuspori.

-------------------------------------------------------

HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

HÆGRI HANDSTÚKA:
Fitjið upp 48-51 l á sokkaprjóna nr 4 með Karisma.
Prjónið stroff þannig: (1 l sl, 2 l br) yfir fyrstu 18-21 l, 2 l sl, 2 l br, A.2a (= 20 l), 2 l br, 2 l sl, 2 l br. Haldið svona áfram með stroff þar til A.2a hefur verið prjónað til loka á hæðina = 46-49 l. Prjónið næstu umf þannig: Prjónið sl yfir fyrstu 16-19 l JAFNFRAMT er fækkað um 4 l jafnt yfir í báðum stærðum, prjónið síðan þær l sem eftir eru í umf eins og áður, þ.e.a.s. A.2b er prjónað yfir A.2a = 42-45 l.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar allt A.2b hefur verið prjónað til loka 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 9 cm. Haldið nú áfram með mynstur eins og áður (þ.e.a.s. A.2b er endurtekið einu sinni til viðbótar á hæðina) og aukið út fyrir opi fyrir þumal þannig:
Prjónið fyrstu 38-41 l í umf eins og áður. Prjónið síðan A.3a (= 2 l í fyrstu umf) yfir næstu 2 l, prjónið br yfir þær 2 l sem eftir eru í umf. Þegar fyrstu 14 umf í A.3a hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 56-59 l í umf. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 38-41 l eins og áður, setjið næstu 16 l á þráð fyrir þumal, fitjið upp 2 nýjar l fyrir aftan þumal, prjónið síðustu 2 l í umf = 42-45 l í umf.
Haldið áfram með mynstur hringinn þar til A.2b hefur verið prjónað til loka á hæðina. ATH. Þær 2 nýju l sem fitjaðar voru upp fyrir aftan þumal eru prjónaðar slétt. Prjónið síðan næstu umf þannig: Prjónið sl yfir fyrstu 12-15 l JAFNFRAMT er aukið út um 4-4 l jafnt yfir, haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br yfir næstu 6 l, prjónið A.2c yfir næstu 18 cm (= 4 l fleiri), prjónið sl yfir sl og br yfir br yfir þær 6 l sem eftir eru í umf = 50-53 l. Prjónið nú stroff þannig: (1 l sl, 2 l br) yfir fyrstu 18-21 l, 2 l sl, 2 l br, A.2c (= 22 l), 2 l br, 2 l sl, 2 l br. Þegar allt A.2c hefur verið prjónað til loka á hæðina er fellt af með sl yfir sl og br yfir br. Klippið frá og festið enda. Stykkið mælist ca 18 cm.

ÞUMALL:
Setjið 16 l af þræði á sokkaprjóna nr 4 og prjónið upp 2 l í 2 l sem fitjaðar voru upp fyrir aftan op á þumli = 18 l. Prjónið 1 umf með sl yfir sl og br yfir br þar sem fækkað er um 2 l í umf með því að prjóna 2 l br saman hvoru megin við kaðal = 16 l. Haldið síða áfram með mynstur A.3b hringinn. Þegar allt mynstrið hefur verið prjónað til loka á hæðina er fellt af með sl yfir sl og br yfir br. Klippið frá og festið enda.

VINSTRI HANDSTÚKA:
Prjónið á sama hátt og hægri handstúka nema spegilmynd. Þ.e.a.s. aukið er út fyrir þumal hvoru megin við 2 l sl á undan A.2b og 2 l br (= 15. og 16. l í umf).

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugði, 1 lykkja slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið af kaðlaprjóni
symbols = aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo að ekki myndist gat.
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 172-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Misa Hansson wrote:

Det var på på ett par andra flätmönster vantar 108-36 och på slipovern cooler Days ahead, den v-ringade.

22.03.2022 - 14:34

DROPS Design answered:

Hei Misa. Har testet ut både 108-36 og 216-35 (CoolerDaysAhead), og har ingen problemer med å lagre de som PDF der diagrammene vises. Men diagrammene hos meg kommer på en annen side enn diagramteksten. Det jeg gjør er å klikke på Skriv ut ikonet (ikke ctrl+P), velger Oppskrift og velger Lagre til PDF og klikker på Lagre (før du klikker på Lagre, sjekk om det er noen med dine innstillinger her du bør klikke/hake av (f.eks Papirretning/Sider/Papirstr./Skalering/Marger/Format/Innstillinger)). mvh DROPS Design

28.03.2022 - 09:08

country flag Hansson wrote:

När jag ska spara mönstret som pdf, så kommer inte Diagrammet med på vissa mönster, medans det fungerar på vissa. Det är alltså inte någon inställning på min surfplatta el dator jag behöver göra, utan verkar vara något fel i era mönster? Någon annan som har märkt det? Vänligen Hansson

21.03.2022 - 15:12

DROPS Design answered:

Hej! Är det på detta mönster (172-27) som du inte får med diagrammen? Mvh DROPS Design

22.03.2022 - 14:25

country flag Maite wrote:

El patrón en español está mal! En el diagrama pone que la aguja en espera debe ir delante en todas y hay uno que va detrás de la labor. (lo encontré bien en el patrón en inglés)

16.11.2021 - 14:27

country flag Caroline wrote:

Does this pattern start with row 1 as the wrong side or the right side? I'm taking the bottom right corner to start row 1 (and all odd rows) as the right side, but when I'm knitting it up it appears to be the opposite way round, so rows odd rows appear to be the wrong side and even rows appear to be the right side. I think I'm doing something wrong but no idea what. I'm reading the chart correctly, right to left, next row left to right etc...

08.03.2020 - 22:33

DROPS Design answered:

Dear Caroline, 1st row in A.1a is worked from RS and 2nd row in A.1a will be worked from WS (= read from the left towards the right, ie a "-" = K from WS, white square = P from WS, row 2 in A.1a is worked: K2, P2, K1, P1, K3, P1, K4, P1, K3, P1, K1, P2, K2. Happy knitting!

09.03.2020 - 12:32

country flag Ursula wrote:

Hallo liebes Drops-Team, Ich habe das Stirnband gestrickt und zum Abschluss steht: "Die Maschen abketten und im unsichtbaren Maschenstich verwenden. Das verwirrt mich etwas. Ich dachte mit dem Maschenstich verbindet man "offene" Strickstücke. Was mir auch bei einem Stirnband besser gefällt, als das "übliche" Zusammennähen. Nun habe ich hier auch linke Maschen, und keine Anleitung für den Maschenstich. 💚liche Grüße Ursula

12.10.2019 - 19:06

DROPS Design answered:

Liebe Ursula, Sie können zusammennähen wie in diesem Video gezeigt. Viel Spaß beim stricken!

14.10.2019 - 09:52

country flag Anne-Marie Borgersen wrote:

Spørsmål: Jeg har begynt på pannebåndet, men skjønner ikke hvordan vrangsida skal strikkes. Det står i beskrivelsen at diagrammet viser alle p i mønsteret sett fra retten, men hva strikkes da tilbake på vrangen. I butikken hvor jeg kjøpte garnet sier de at jeg stikker vrangen som linje 2 er vist i mønsteret, men det kan umulig være riktig? Kommer altså ikke igang! Takknemlig for forklaring på dette.

02.03.2017 - 18:17

DROPS Design answered:

Hej Anne-Marie. Du ser mönstret fra retten, men alle pinde vises i diagrammet. Dvs, raekke 2, 4, 6 osv er vrangpinne. Du strikker retten fra höjre mod venstre og vrangen fra venstre mod höjre. I symbolbeskrivelsen staar hvordan du strikker baade fra retten og fra vrangen.

06.03.2017 - 14:50

country flag Nath09 wrote:

Ah merci je vais pouvoir continuer. Donc il y a une erreur dans les explications, il manque les 2 premières mailles envers.

27.02.2017 - 20:48

DROPS Design answered:

Bonjour Nath09, les 2 premières m env sont les 2 dernières des 18 m tricotées en côtes 1 m end/2 m env au tout début de la mitaine. Bon tricot!

28.02.2017 - 08:54

country flag Nath09 wrote:

Je fais les mitaines. J'ai tricoté 1 fois A2a = 46m. Ensuite je ne comprends pas les 16 premieres mailles avec 4 dim = 12m + A2b (18m) je n'obtiens pas 42m. Pouvez-vous me dire exactement ce que je dois tricoter ? merci

26.02.2017 - 10:57

DROPS Design answered:

Bonjour Nath09, au tour suivant, tricotez les 16 premières m du tour à l'end, en même temps, répartissez 4 diminutions = il reste 12 m, puis 2 m env, 2 m end, 2 m env, A.2b (= 18 m), 2 m env, 2 m end, 2 m env = 42 m au total. Bon tricot!

27.02.2017 - 10:44

country flag Jos Schinkel wrote:

Ik heb de hoofdband gemaakt in een roodbruine kleur, erg leuk. Maar hij heeft bij het dragen steeds de neiging om in de breedte om te krullen, waardoor hij smaller wordt. Ik had hem wel, voor ik hem in elkaar zette, onder een vrij natte lap gelegd om dat te voorkomen. Maar het heeft niet geholpen. Heeft u een advies voor me? Vriendelijk bedankt, Jos.

17.12.2016 - 12:05

DROPS Design answered:

Hoi Jos. Probeer te persen met een strijkijzer (met een theedoek ertussen). Of probeer een paar toeren vasten te haken. Dat maakt de randen wat steviger en misschien krullen ze dan wat minder.

21.12.2016 - 14:47

country flag Johanna wrote:

Love this set! The mitts look so cozy and stylish. I hope these make the collection!

13.06.2016 - 12:36