DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11832.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Comfort Chronicles

Prjónað poncho úr DROPS Nepal með ermum og klauf í hliðum. Kaðlar og áferðamynstur í ferningum. Ein stærð.

DROPS 172-22
DROPS Design: Mynstur nr ne-221
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: Ein stærð

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
1200 g litur nr 0100, natur

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 60 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l x 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11832.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

LENGJUR:
1. Lengja: Ferningur 1, 2 og 3.
2. Lengja: Ferningur 3, 1 og 4 (= úrtaka í hálsmáli).
3. Lengja: Ferningur 2, 3 og 1.

FERNINGAR:
Fyrsti ferningur á einni lengju: Fitjið upp 38 l á hringprjóna nr 5 með Nepal. Prjónið 1 umf slétt frá réttu og 1 umf slétt frá röngu. Prjónið ferning eftir útskýringu. Endið með 1 umf slétt frá röngu.

Annar ferningur á einni lengju: Prjónið 1 umf slétt frá réttu og 1 umf slétt frá röngu. Prjónið ferning eftir útskýringu. Endið með 1 umf slétt frá röngu.

Síðasti ferningur á einni lengju: Prjónið 1 umf slétt frá réttu og 1 umf slétt frá röngu. Prjónið ferning eftir útskýringu. Endið með 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu. Fellið síðan af frá röngu með sl yfir allar l.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykki og bakstykki eru prjónuð eins og 2 stykki, nema ferningur 4 sem er með affellingu fyrir hálsmáli. Fyrir hvert stykki eru prjónaðar 3 lengjur með 3 mismunandi ferningum. Allt 4 mismunandi ferningar. Ferningarnir eru saumaðir saman á lengdina. LESIÐ LENGJUR og FERNINGAR, sjá teikningu. Lengjurnar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

FERNINGUR 1:
Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er aukið út um 12 l jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir síðustu 2 l í hvorri hlið) = 50 l. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið A.1a. Prjónið síðan A.1b alls 2 sinnum á hæðina, endið með A.1c. Prjónið síðan 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 12 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir síðustu 2 l í hvorri hlið) = 38 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu.

FERNINGUR 2:
Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er aukið út um 7 l jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir síðustu 2 l í hvorri hlið) = 45 l. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið síðan A.2a, A.2b alls 9 sinnum á breiddina, endið með A.2c. Endurtakið A.2 þar til ferningurinn mælist ca 1 cm minni en fullkláraður FERNINGUR 1 (stillið af eftir umf frá röngu). Prjónið nú 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 7 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir síðustu 2 l í hvorri hið) = 38 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu.

FERNINGUR 3:
Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er aukið út um 18 l jafnt yfir (ekki er aukið út yfir síðustu 2 l í hvorri hlið) = 56 l. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið síðan A.3a, A.3b alls 3 sinnum á breiddina, endið með A.3c. Haldið svona áfram og endurtakið A.3 þar til ferningurinn mælist ca 1 cm minni en fullkláraður FERNINGUR 1 (stillið af að prjónaðar séu 3 umf á eftir síðasta kaðli). Prjónið nú 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAM er fækkað um 18 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir síðustu 2 l í hvorri hlið) = 38 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu.

FERNINGUR 4 – BAKSTYKKI:
Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er aukið út um 2 l jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir síðustu 2 l í hvorri hlið) = 40 l. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið síðan A.4 með 2 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í hvorri hlið. Endurtakið A.4 á breiddina og á hæðina – JAFNFRAMT þegar ferningurinn mælist 20 cm er fellt af fyrir hálsmáli með byrjun frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 7 l, fellið af næstu 26 l, prjónið þær 7 l sem eftir eru eins og áður. ATH: 1 kantlykkja við háls er prjónuð í garðaprjóni. Prjónið síðan hvora öxl til loka fyrir sig. Í næstu umf frá hálsmáli er felld af 1 l = 6 l eftir á öxl. Haldið svona áfram þar til ferningurinn mælist ca 1 cm minni en fullkláraður FERNINGUR 1 (stillið af að prjónað sé til loka hálf eða heil mynstureining á hæðina). Prjónið nú 1 umf slétt frá réttu, 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu. Þegar fellt hefur verið af þá er hin öxlin prjónuð á sama hátt.

FERNINGUR 4 – FRAMSTYKKI:
Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er aukið út um 2 l jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir síðustu 2 l í hvorri hlið) = 40 l. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið síðan A.4 með 2 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í hvorri hlið. Endurtakið A.4 á breidd og á hæð – JAFNFRAMT þegar ferningurinn mælist 18 cm (stillað af eftir heilli eða hálfri mynstureiningu á hæðina) fellið af fyrir hálsmáli með byrjun frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 12 l í mynstri eins og áður, setjið næstu 16 l á þráð fyrir hálsmáli og prjónið þær 12 l sem eftir eru eins og áður. Fellið síðan af l fyrir hálsmáli í hverri umf frá hálsmáli þannig: 3 l 1 sinni, 2 l 1 sinni og 1 l 1 sinni = 6 l eftir fyrir öxl. Haldið svona áfram þar til ferningurinn mælist ca 1 cm minni en fullkláraður FERNINGUR 1 (og stillið af eftir FERNINGUR 4 á bakstykki). Prjónið nú 1 umf slétt frá réttu, 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu. Þegar fellt hefur verið af er hin öxlin prjónuð á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman lengjurnar á lengdina eins og útskýrt er í mynsturteikningu – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið síðan axlasauma.

KRAGI:
Kraginn er prjónaður í hring á stutta hringprjóna.
Byrjið frá réttu með Nepal og hringprjóna nr 5 mitt ofan á annarri öxlinni og prjónið upp 96 l (meðtaldar 16 l af þræði á framstykki). Prjónið 1 umf br. Prjónið síðan GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram þar til kraginn mælist 13 cm. Fellið af með * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-* þar til allar l hafa verið felldar af (þetta er gert til að affellingarkanturinn verði ekki of stífur). Brjótið kragann út.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á stutta hringprjóna.
Fitjið upp 106 l á hringprjóna nr 5 með Nepal. Prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 6 l jafnt yfir = 112 l. Prjónið síðan A.5a yfir allar l (= 14 mynstureiningar hringinn). Þegar A.5a hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað A.5b. Endurtakið síðan A.5b á hæðina þar til stykkið mælist 19 cm. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermina niður ca 33 cm neðan við öxl, hinir 38 cm (= klauf). Saumið niður hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 17.10.2016
Leiðrétting:Breyting í mynstri A.1b.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = prjónstefna
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 172-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Evertdina wrote:

Ik heb hem pas gemaakt in twee kleuren. Prima te volgen patroon. Al heb ik wel wat aanpassingen gemaakt. Jammer dat ik geen foto kan plaatsen met het eindresultaat.

26.04.2023 - 13:49

country flag Brigitte wrote:

Da hat mir doch jemand Wolle geschenkt, mit der ich erst nichts anfangen konnte und dann sah ich diese Anleitung. Ich stricke die Quadrate nicht einzeln, sondern stricke sie direkt zusammen. Es sieht einfach nur toll aus. Die Maße passen absolut. Ich bin total begeistert. Werde auch Vorder- und Rückenteil in einem Teil stricken, so muß ich nicht soviel vernähen ;) Danke für die Anleitung zu diesem wunderschönen Poncho.

09.09.2022 - 13:44

country flag Valérie wrote:

Bonjour, Si j'ai bien compris, on doit tricoter 18 carrés individuellement, puis les coudre pour former d'abord des bandes puis coudre les bandes entre elles pour faire le poncho ? Et alors pourquoi une aiguille circulaire pour les carrés ? Je suis perdue, désolée...

30.08.2022 - 15:21

DROPS Design answered:

Bonjour Valérie, pas exactement, vous tricotez des bandes de carrés (cf flèche au milieu du schéma) - cf BANDES; vous allez tricoter 3 bandes pour le devant et autant pour le dos et les assembler entre elles. On tricote ici sur aiguille circulaire en allers et retours, habitude nordique; le col et les manches sont tricotés en rond, sur la petite aiguille circulaire. Bon tricot!

30.08.2022 - 16:07

country flag Patti Fisher wrote:

Hi . Am starting the sleeve. Is it sewn together into a circle before attached or left open at the bottom?

23.10.2021 - 22:07

DROPS Design answered:

Dear Patti, the sleeve is knitted ON THE ROUND. It is not open, but you will not need to sew it, into a circle as it is already a circle. Happy Stitching!

24.10.2021 - 03:11

country flag Diane Caron wrote:

Does anyone know how to knit square 1 flat and achieve the cable. Very confused here.

13.02.2021 - 17:57

country flag Diane Caron wrote:

How is it possible to net square 1 flat and still achieve the cable?

13.02.2021 - 17:56

DROPS Design answered:

Dear Mrs Caron, at the end of square, you will first decrease evenly 12 stitches then knit2 rows over the 38 stitches. The decreases should compensate the stitches incraesed at the beginning for the cables, and that way you should have same height at the top as at the bottom. Happy knitting!

15.02.2021 - 08:24

country flag Ann-Kristin wrote:

Hvorfor skal man legge opp 38 masker for så å ta ut til 50, så felle til 38på rute 1, for så øke til 45 igjen på rute 2,og så felle til 38,for så å legge ut til 56 og felle til 38 på rute 3.forstår ikke alle disse inn og ut leggene. Skal ikke rutene være kvadratiske?

27.06.2019 - 15:05

DROPS Design answered:

Hei Ann-Kristin. Jo, rutene skal være kvadratiske og like store. Fordi det er ulike strukturer og mønster på de ulike rutene må du legge til/trekke fra masker for å få dem til å bli like store. En flette trekker seg sammen, og trenger derfor fler masker for å oppnå samme størrelse som feks glattstrikk. Det er derfor vanlig å øke rett før du begynner å strikke flette, og felle det samme antall masker når fletten er ferdig. Andre strukturer med rett og vrang oppfører seg også ulikt i forhold til både fletter og glattstrikk. Det er derfor det økes og felles ulikt for hver rute. God fornøyelse

28.06.2019 - 14:42

country flag Vincent wrote:

Bonjour, sur le carré 4 devant, je ne comprends pas comment faire concrètement \"Tricoter les 12 premières m comme avant, glisser les 16 m suivantes sur un arrêt de mailles pour l\'encolure, et tricoter les 12 dernières m comme avant\", car si je mets de côté 16 mailles de coté, puis je tricote les 12 mailles suivantes à la suite, cela fait un \"pli\". Auriez-vous une vidéo de ce passage? Merci beaucoup

22.01.2019 - 22:36

DROPS Design answered:

Bonjour Vincent, tricotez les 16 mailles de l'encolure avant de les glisser en attente, ainsi vous n'avez pas à couper le fil, et vous n'avez pas de pli. Bon tricot!

23.01.2019 - 10:06

country flag Birgit Mehl wrote:

Hej Kan man ikke strikke de 3 ruder til henholdsvis forstykke og bagstykke, således man er fri for at sy dem sammen? Det er jo et spørgsmål om, der er samme antal pinden hver rude. Mvh Birgit

18.01.2019 - 15:04

DROPS Design answered:

Hei Birgit. Rutene er omtrent like store, så du kan gjerne strikke dem i ett stykke om du ønsker det. God fornøyelse.

25.01.2019 - 14:24

country flag Nicole wrote:

Hallo Würden Sie bitte noch ein Video einstellen wie man am besten die Streifen zusammen fügt damit die Naht flach bleibt. Vielen Dank vorab. Liebe Grüße

03.12.2017 - 20:42

DROPS Design answered:

Liebe Nicole, dieses Video zeigt wie man die Streifen (mit Krausmaschen auf beiden Seiten) zusammennähen wird. Viel Spaß beim fertigstellen!

04.12.2017 - 10:27