DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2465.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 171-45
DROPS Design: Mynstur nr ne-228
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: S/M – L/XL
Höfuðmál: 54/56 - 56/58 cm

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
100-100 g litur nr 8907, þoka

DROPS HEKLUNÁL NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 14 fl x 17 umf verði 10 x 10 cm.

HÁLSSKJÓL:
Stærð: S/M – L/XL
Mál:
Ummál: 61-66 cm,
Hæð: 25-27 cm.

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
150-150 g litur nr 8907, þoka

DROPS HEKLUNÁL NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 12 fl x 14 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2465.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HÚFA:
HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun hverrar umf með fl er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll. Hver umf endar með 1 kl í fyrstu ll í umf.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að hekla 2 fl í sömu l.

STJÖRNUMYNSTUR (í hring):
UMFERÐ 1: 3 ll, takið upp 5 l með byrjun í 2. ll frá heklunálinni, þegar teknar eru upp l í fl er tekið upp í aftari lykkjubogana (= 6 l á heklunálinni), bregðið þræðinum um heklunálina og dragið í gegnum allar 6 l, heklið 1 ll sem gera gat efst á 6 l, * takið upp 1 l í gatið, 1 l í hlið á síðustu af 6 l, 1 l í sömu ll eins og síðasta umf á 6 l sem teknar voru upp í, 1 l í aftari lykkjubogann í hvora af næstu 2 ll (= 6 l á heklunálinni), bregðið þræðinum um heklunálina og dragið í gegnum allar 6 l, 1 ll *, endurtakið frá *-*, endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
UMFERÐ 2: 2 ll, heklið 2 hst í hvert "stjörnugat", endið umf með 1 kl í 2. ll í byrjun umf = 34-36 stjörnur.
UMFERÐ 3: 3 ll, takið upp 1 l í 2. og 3. ll frá heklunálinni, 1 l í aftari lykkjubogann á fyrstu 3 hst í umf (= 6 l á heklunálinni), bregðið þræðinum um heklunálina og dragið í gegnum allar 6 l, 1 ll, * takið upp 1 l í gatið, 1 l í hlið á síðustu af 6 l, 1 l í aftari lykkjubogann á sama hst eins og síðasta af 6 l sem teknar voru upp í, 1 l í aftari lykkjubogann á hvorum af næstu 2 hst (= 6 l á heklunálinni), bregðið þræðinum um heklunálina og dragið í gegnum allar 6 l, 1 ll *, endurtakið frá *-*, endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
Endurtakið umf 2 og 3 alls 2 sinnum, heklið umf 2 1 sinni til viðbótar (= alls 6 umf á hæðina = 3 stjörnur á hæðina).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður.

HÚFA:
Heklið 4 ll með heklunál nr 5 með Nepal og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um hringinn – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR!

Heklið nú allar fl í aftari lykkjubogann af fl frá fyrri umf.
UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 12 fl.
UMFERÐ 3: * 1 fl í fyrstu fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl.
UMFERÐ 4: * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
UMFERÐ 5: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl.
UMFERÐ 6: * 1 fl í hverja af fyrstu 4 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 fl.
UMFERÐ 7: * 1 fl í hverja af fyrstu 5 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 42 fl.
UMFERÐ 8: * 1 fl í hverja af fyrstu 6 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 fl.
UMFERÐ 9: * 1 fl í hverja af fyrstu 7 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 54 fl.
UMFERÐ 10: * 1 fl í hverja af fyrstu 8 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 60 fl.
UMFERÐ 11: * 1 fl í hverja af fyrstu 9 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 66 fl.

STÆRÐ S/M:
UMFERÐ 12: Heklið 1 umf með 1 fl í hverja fl og aukið út um 3 fl jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 69 fl.

STÆRÐ L/XL:
UMFERÐ 12: * 1 fl í hverja af fyrstu 10 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 72 fl.
UMFERÐ 13: Heklið 1 umf með 1 fl í hverja fl og aukið út um 1 fl – LESIÐ ÚTAUKNING = 73 fl.

BÁÐAR STÆRÐIR:
Stykkið mælist nú ca 7-8 cm. Haldið áfram að hekla 1 fl í aftari lykkjubogann á hverri fl þar til stykkið mælist 18-19 cm. Heklið síðan STJÖRNUMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. Passið uppá að stjörnumynstrið verði ekki of stíft!

Þegar stjörnumynstrið hefur verið heklað, heklið kant hringinn þannig: Heklið 1 fl í aftari lykkjubogann af fyrsta hst, * 1 ll, hoppið yfir 1 hst, 1 fl í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Klippið frá og festið enda.

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL:

STJÖRNUMYNSTUR:
UMFERÐ 1: 3 ll, takið upp 5 l með byrjun í 2. ll frá heklunálinni, þegar teknar eru upp l í fl er tekið upp í aftari lykkjubogana (= 6 l á heklunálinni), bregðið þræðinum um heklunálina og dragið í gegnum allar 6 l, heklið 1 ll sem gera gat efst á 6 l, * takið upp 1 l í gatið, 1 l í hlið á síðustu af 6 l, 1 l í sömu ll eins og síðasta umf á 6 l sem teknar voru upp í, 1 l í aftari lykkjubogann í hvora af næstu 2 ll (= 6 l á heklunálinni), bregðið þræðinum um heklunálina og dragið í gegnum allar 6 l, 1 ll *, endurtakið frá *-*, endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
UMFERÐ 2: 2 ll, heklið 2 hst í hvert "stjörnugat", endið umf með 1 kl í 2. ll í byrjun umf = 36-39 stjörnur.
UMFERÐ 3: 3 ll, takið upp 1 l í 2. og 3. ll frá heklunálinni, 1 l í aftari lykkjubogann á fyrstu 3 hst í umf (= 6 l á heklunálinni), bregðið þræðinum um heklunálina og dragið í gegnum allar 6 l, 1 ll, * takið upp 1 l í gatið, 1 l í hlið á síðustu af 6 l, 1 l í aftari lykkjubogann á sama hst eins og síðasta af 6 l sem teknar voru upp í, 1 l í aftari lykkjubogann á hverjum og einum af næstu 2 hst (= 6 l á heklunálinni), bregðið þræðinum um heklunálina og dragið í gegnum allar 6 l, 1 ll *, endurtakið frá *-*, endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
Endurtakið umf 2 og 3.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring.

HÁLSSKJÓL:
Heklið 73-79 LAUSAR ll með heklunál nr 6 með Nepal og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið STJÖRNUMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Hálsskjólið á að mælast ca 61-66 cm að ummáli, passið uppá að hálsskjólið dragist ekki saman. Þegar stykkið mælist 24-26 cm, passið uppá að síðasta umf sé 2. umf.
Heklið kant í kringum hálsskjólið þannig: Heklið 1 ll (kemur í stað fyrstu fl), * 1 ll, hoppið yfir 1 hst, 1 fl í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn allt hálsskjólið, endið með 1 kl í fyrstu ll. Klippið frá og festið enda. Heklið sama kant í gagnstæðri hlið á stykki, þ.e.a.s. í ll-umf frá réttu. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 27.01.2020
Leiðrétting HÚFA: UMFERÐ 12 og 13 tilheyrir stærð L/XL.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-45

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (45)

country flag Claire O'Flaherty wrote:

Is there any increasing after round 13 or will the circumference of my hat grow as I continue after round 13? It's hard to see how the hat will fit an adult head. My tension is correct.

14.03.2024 - 20:10

DROPS Design answered:

Dear Mrs O'Flaherty, after last increase you should have 69 sts in first size, 73 sts in 2nd size, now work without any further increase until piece measures 18-19 cm before starting star pattern. Happy crocheting!

15.03.2024 - 08:31

country flag Chrystelle wrote:

Bonjour, J'ai fait les 3 étoiles en hauteur. Faut-il refaire crocheter encore le 2ème tour et si oui où faut il crocheter les dB ? Merci pour votre réponse

28.01.2024 - 22:33

country flag Steffi wrote:

Liebes Drops-Team,\r\ndanke für die schöne Anleitung.\r\nIch bin mit unsicher, ob ich ab Runde 14 weiterhin mit einer Luftmasche beginne und die Runde mit einer Kettmasche schließe (Häkelinfo und Video) oder ob ich dann nur noch feste Maschen häkel bis zur Länge von 18cm.\r\nHerzlichen Dank für eure Hilfe!

26.03.2023 - 09:10

DROPS Design answered:

Liebe Steffi, ja genauso sollen Sie häkeln, wie unter HÄKELINFO: erklärt. Viel Spaß beim häkeln!

27.03.2023 - 10:01

country flag Debra Jacobson wrote:

Hi! The circumference of my hat after completed round 13 73 stitches, is 18 inches. Will this yield me a size L/XL hat for a head that measures about 22" around? Thanks again! Deb

06.03.2023 - 18:26

DROPS Design answered:

Dear Mrs Jacobson, do you have correct tension? You should have 14 sc = 4" - and the hat will be then somewhat tigher than the head circumference in order to fit perfectly. Happy crocheting!

07.03.2023 - 10:09

country flag Debra Jacobson wrote:

Hi! Ready to start star pattern. Ended round 13 with slip stitch. Is the following correct? Chain 3, pick up 2nd chain from hook, pick 3rd chain from hook. ?Then do I pick up the chain stitch next to the slip stitch in the hat body Or the first genuine single crochet stitch back loop? Thanks for all your help! Deb

04.03.2023 - 19:03

DROPS Design answered:

Dear Mrs Jacobsson, finish every round with a slip stitch, then work the star stitch pattern in the round just as shown in this video. Happy crocheting!

06.03.2023 - 09:24

country flag Deb Jacobson wrote:

Hi! Finished round 13, size L/XL Hat. Do I measure diameter of hat, or radius-- from center (starting circle) to one edge (half diameter)? Deb j

16.02.2023 - 19:51

DROPS Design answered:

Dear Deb, yes, it's measured from the starting circle down towards an edge (the radius of the hat). Happy knitting!

16.02.2023 - 20:51

country flag Debra Jacobson wrote:

Want to use magic circle for my first in the round project using DROPS queen of chill pattern. About counting stitches: is the chain stitch used to lock the magic circle counted as stitch? Pattern says substitute a chain stitch for the first single crotchet in every round. So make 5 additional single crochet and count that chain stitch? Or not count that first magic circle chain stitch and make 6 single crochet? Tearing my hair out :-) Deb

01.02.2023 - 19:46

country flag Debra Jacobson wrote:

Want to use magic circle (no issue making this) for my first in the round project. Using DROPS queen of chill pattern. Wondering about counting stitches: do I count the chain stitch used to lock the magic circle In a pattern that says to substitute a chain stitch for the first single crotchet in every round? So do I make 5 additional single crochet and count that chain stitch, or not count that first magic circle chain stitch and make 6 single crochet? Tearing my hair out :-) Deb

01.02.2023 - 19:42

DROPS Design answered:

Dear Mrs Jacobson, both techniques are possible you can replace the first single crochet with 1 chain (then crochet 1 chain and 5 sc to get 6 sc) or use the first chain just to start the round and do not count this chain as 1st stitch (then crochet 1 chain and 6 sc) - just as you prefer. But then remember to use the same technique all the piece, either counting the first chain as the first stitch or not. Happy crocheting!

02.02.2023 - 09:26

country flag Debra Jacobson wrote:

Hi! I love workibg from charts or graphic depiction of pattern. Is that by any chance available for this hat? Best wishes!

28.01.2023 - 19:52

DROPS Design answered:

Dear Debra, this pattern is only available as seen online, as full written instructions. Happy crocheting!

29.01.2023 - 20:58

country flag Mali wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas comment remplacer la 1ère ms du tour par 1 maille en l'air. Est-ce que quand ensuite on fait la 2ème ms(qui du coup est la 1ère ms) on doit la faire dans la 2de maille en partant du crochet? C'est ce que j'ai fait mais je me retrouve avec une démarcation sur mon ouvrage, en forme de spirale, à cause de la maille sautée.

19.11.2021 - 10:41

DROPS Design answered:

Bonjour Mali, cette vidéo montre comment crocheter des mailles serrée en rond, en remplaçant la 1ère maille du tour par 1 maille en l'air, autrement dit, commencez par 1 maille en l'air (= 1ère maille serrée), crochetez comme indiqué et terminez par 1 maille coulée dans cette maille en l'air. Vérifiez bien votre nombre de mailles à chaque tour pour être bien sûre de ce que vous faites. Soit au 1er tour du bonnet: 1 maille en l'air, 5 mailles serrées, 1 mc dans la maille en l'air; 2ème tour: 1 ml, 2 ms dans la ms suivante, *1 ms dans la ms suiv, 2 ms dans la ms suiv*, répétez de *-*. Bon crochet!

19.11.2021 - 11:48