DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5808.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 176-23
DROPS Design: Mynstur l-143
Garnflokkur C + C eða E
-----------------------------------------------------------

Mál:
Breidd: 30 cm.
Hæð: 39 cm.

Efni:
DROPS BOMULL-LIN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200 g litur nr 02, natur
200 g litur nr 11, beige

DROPS HEKLUNÁL NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 12 fastalykkjur með 2 þráðum verða 10 cm á breidd.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5808.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. A.2 útskýrir hvernig umferðin byrjar og endar.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Hver umferð með fastalykkjum byrjar með 1 loftlykkju, endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
Hver umferð með stuðlum byrjar með 3 loftlykkjum, endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju.

ÚTAUKNING:
Á eftir prjónamerki: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju.
Á undan prjónamerki: Heklið þar til 2 fastalykkjur eru eftir á undan prjónamerki, heklið 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring frá botni og upp.

TASKA:
Heklið eina loftlykkjuumferð með 30 loftlykkjum með heklunál 6 með 2 þráðum í litnum beige. Heklið 1 fastalykkju i 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í hverja og eina af næstu 3 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar = 24 fastalykkjur. Heklið síðan í hring á gagnstæðri hlið á loftlykkjuumferðum – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju með fastalykkju í (= 24 fastalykkjur), endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð = 48 fastalykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu fastalykkju og 1 prjónamerki í 25. fastalykkju.
Heklið síðan 6 umferðir með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju JAFNFRAMT er aukið út um 1 fastalykkju hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 fastalykkjur útauknar í hverri umferð) – LESIÐ ÚTAUKNING og ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar útaukningu er lokið eru 72 fastalykkjur í síðustu umferð.
Í næstu umferð er heklað mynstur í hring eftir A.1 (= 12 mynstureiningar á breidd) – A.2 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar. Heklið mynsturteikningu A.1 þar til A.y er lokið. Endurtakið A.x og A.y 1 sinni til viðbótar. Heklið síðan 1. umferð í A.y. Skiptið yfir í 2 þræði í litnum natur og heklið 2. umferð af A.4, heklið síðan A.z alls 3 sinnum á hæðina. Heklið síðan 1 umferð með 1 fastalykkju í hvern stuðul = 72 fastalykkjur. Heklið 3 umferðir til viðbótar með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. Stykkið mælist ca 35 cm. Klippið frá og festið enda.

AXLARÓL:
Byrjun umferðar færist til með mynstri, þess vegna er taskan lögð flöt svo að umferðin byrjar nú frá hlið. Byrjið í næstu umferð í annarri hlið á töskunni, heklið næstu umferð þannig: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 12 fastalykkjum, heklið 58 loftlykkjur (= axlaról), hoppið yfir 12 fastalykkjur, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af næstu 24 fastalykkjum, heklið 58 loftlykkjur (= axlaról), hoppið yfir 12 fastalykkjur, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af síðustu 12 fastalykkjum.
Heklið næstu umferð þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 12 fastalykkjum, 58 fastalykkjur um axlaról, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af næstu 24 fastalykkjum, heklið 58 fastalykkjur um axlarólina, heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 12 fastalykkjum.
Heklið 3 umferðir með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju, klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 29.05.2018
Leiðrétting:...Í næstu umferð er heklað mynstur í hring eftir A.1 (= 12 mynstureiningar á breidd) – A.2 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar. Heklið mynsturteikningu A.1 þar til A.y er lokið. Endurtakið A.x og A.y 1 sinni til viðbótar.

Mynstur

symbols = loftlykkja
symbols = keðjulykkja
symbols = fastalykkja
symbols = stuðull í lykkju
symbols = stuðull um loftlykkju
symbols = stuðull á milli 2 stuðlahópa
symbols = þessi umferð er ekki hekluð, hún hefur nú þegar verið hekluð, byrjið á næstu umferð
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

176-23 To the Beach!

szocskeagi, Hungary

Skrifaðu athugasemd um DROPS 176-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (34)

country flag Hanne wrote:

Jeg har heklet denne vesken i dag, denne gangen med to hanker. Det ser ikke riktig ut, skal det i grunnen bare hekles en hanke?

23.04.2024 - 21:06

DROPS Design answered:

Hei Hanne, Ja, i denne oppskriften har vesken bare en hank. God fornøyelse!

24.04.2024 - 06:44

country flag Silje wrote:

Hei, nå har jeg heklet ferdig 6 omganger med fm, men jeg sitter igjen med 78 fm, så det ser ut som at jeg har lagt til en ekstra maske hver omgang. Lurer på om det er fordi jeg avslutter med en kjedemaske og begynner med lm? Skal jeg egentlig hoppe over en maske før jeg lager kjedemasken i forrige lm? Og betyr dette at jeg må ta opp og starte på nytt eller kan jeg fortsette med det jeg har? Veldig fin oppskrift forresten! Gleder meg til resultatet :)

03.09.2023 - 14:59

DROPS Design answered:

Hei Silje. Litt vanskelig å si nøyaktig hva som er blitt gjort galt. En god ide er å telle maskene etter hver omgang, så har du kontroll på maskeantallet. Om du nå har 78 masker istedenfor 72 masker, vil du få problemer når du skal starte på A.1. Da vil det være 6 masker igjen når du har heklet A.1 12 ganger. Enten rekke opp og få riktig maskeantall, eller rekk opp de 2 siste omgangene og kun øke 2 masker på en av omgangene og ingen økning på den andre omgangen. mvh DROPS Design

11.09.2023 - 14:45

country flag Nathalie wrote:

Bonjour, pouvez vous m'expliquer comment faire 1 bride dans un groupe de de 2 brides, et aussi 1 bride autour de la maille en l'air ? Merci

20.08.2023 - 09:52

country flag Nathalie wrote:

Bonjour, pouvez vous m'expliquer comment faire 1 bride dans un groupe de de 2 brides, et aussi 1 bride autour de la maille en l'air ? Merci

20.08.2023 - 09:51

DROPS Design answered:

Bonjour Nathalie, pour crocheter autour d'une maille en l'air, insérez simplement votre crochet sous la maille en l'air (dans l'arceau d'1 maille en l'air) - pour ce qui est d'une bride dans un groupe de 2 brides je ne suis pas bien sûre de voir à quelle partie du diagramme vous faites référence. Le 6ème symbole indique de faire 3 brides entre les 2 groupes de brides du rang précédent; et lorsque vous devez crocheter 1 bride dans la maille (ex. 2ème rang de A.x, crochetez simplement 3 brides dans la bride au milieu du groupe de brides du tour précédent. Bon crochet!

21.08.2023 - 08:54

country flag Klara wrote:

Hej jeg er nået til der hvor man skal hækle 6 omgange med fastmasker, men jeg er i tvivl om man stadig skal starte omgangen med luftmasker og slutte med kædemasker, når man jo skal tage ud omkring markørene, og den ene er ved starten.

07.04.2023 - 20:09

DROPS Design answered:

Hej Klara, ja hver omgang med fm starter med 1 luftmaske :)

13.04.2023 - 14:28

country flag Ghislaine wrote:

No entiendo muy bien donde hay que empezar con la asa. Los 12 puntos se empiezan donde has acabado el borde de los puntos bajos?

18.02.2023 - 17:00

DROPS Design answered:

Hola Ghislaine, empiezas en el borde de puntos bajos, pero en el lateral del bolso.

19.02.2023 - 19:30

country flag Monica wrote:

Hej\r\nJag vill höra med er kan man virka väskan \" to the beach\" bomull lin med hålmönster i storlek bred: 20 och höjd: 25 cm istället för det som står i mönstret? \r\nMvh/ Monica

18.01.2023 - 12:39

country flag Gloria wrote:

Nochmal Guten Tag, muss man bei dem Boden mit KM und einer LM zum Anfang einer Reihe arbeiten, ja oder nein? Und zählt dann diese Lm als die erste M. ? Ich komme nämlich nicht mit der Anzahl hin incl. Zunahmen. Ein Video zu der Bodenanfertigung wäre echt genial. Bei dem Video mit den "Häkeln: auf beiden Seiten einer Lm-Kette" wird weder zugenommen noch mit KM +LM am Anfang der Reihe gearbeitet. Würde gerne endlich weiter kommen.

14.07.2022 - 16:12

DROPS Design answered:

Liebe Gloria, Sie häkeln wie in der HÄKELINFO beschrieben, d.h. die Runden enden mit 1 Kettmasche und am Anfang häkeln Sie 1 Luftmasche bzw. 3 Luftmaschen. Diese Maschen kommen zusätzlich hinzu, damit später die Diagramme aufgehen. Gutes Gelingen weiterhin!

18.07.2022 - 13:45

country flag Gloria wrote:

Guten Tag, ich komme mit der Zunahme Erklärung nicht zurecht. Einerseits steht im Text man soll "... GLEICHZEITIG je 1 feste Masche pro Seite zunehmen...(=4 M.)", aber andererseits auf den Zunahmetipp achten , der allerdings insgesamt 3 M je vor und nach dem Markierer (= für alle 4 Ecken 12 M./Runde) beschreibt. An welche Zunahmen halte ich mich denn nun?? Danke !!!

13.07.2022 - 20:51

DROPS Design answered:

Liebe Gloria, der Zunahmetipp beschreibt ja je 1 Zunahme vor und nach jedem Markierer - bei 2 Markierern sind das 4 Zunahmen. Im Zunahmetipp ist erklärt, wo genau Sie die Zunahmen machen: Sie häkeln an beiden Seiten jedes Markierers je eine normale feste Masche und nehmen daneben zu. D.h. um den Markierer herum sind 2 feste Maschen, daneben liegen die Zunahme-Maschen. Gutes Gelingen weiterhin!

18.07.2022 - 13:28

country flag Camilla wrote:

Hei! Jeg har lyst å hekle denne i Muskat, og lurer på å bruke tre tråder. Hva vil strikkefastheten bli med tre tråder på pinne 6 være? Jeg lurer også på hva strikkefastheten vil bli på pinne 4,5.

30.05.2022 - 13:37

DROPS Design answered:

Hej Camilla, det vil være individuelt, du er nødt til at prøve dig frem :)

02.06.2022 - 09:08