DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5742.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Golden Summer

Prjónuð peysa með gatamynstri og laskalínu, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Belle. Stærð S - XXXL.

DROPS 176-15
DROPS Design: Mynstur vs-035
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-500-550-600-650-700 g litur 04, fífill

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkjur og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5742.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING Á ERMI:
Aukið er út um 2 lykkjur á hvorri ermi þannig:
Prjónið A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón þar til 7 lykkjur eru eftir (= A.2), sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið A.2. Útauknar lykkjur eru prjónaðar snúnar slétt í næstu umferð (svo að ekki myndist gat) og prjónið síðan sléttprjón.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.13. Sjá ör fyrir rétta stærð í mynsturteikningu A.3.

ÚRTAKA:
Byrjið 2 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju (= lykkja með prjónamerki), lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður og í hring á hringprjóna frá miðju að aftan. Á fram- og bakstykki eru útaukningar fyrir laskalínu teiknaðar inn í mynsturteikningu A.1 og A.3. Á ermum er aukið út innan við A.2 í hvorri hlið.

BERUSTYKKI:
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Fitjið upp 96 lykkjur í öllum stærðum á hringprjón 4 með Belle. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan frá miðju að aftan þannig: 1 lykkja sléttprjón, A.1 (= 15 lykkjur) (= hálft bakstykki), A.2 (= 7 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2 (= 17 lykkjur á ermi), A.1, 1 lykkja sléttprjón (= miðja að framan), A.1 (= alls 31 lykkja á framstykki), A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2 (= 17 lykkjur á ermi), A.1 (= hálft bakstykki). Haldið áfram með A.1 og A.2, JAFNFRAMT er aukið út um 2 lykkjur á hvorri ermi – LESIÐ ÚTAUKNING Á ERMI, aukið út í annarri hverri umferð 21-26-31-31-30-30 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 2-1-0-2-5-7 sinnum. Jafnframt þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina (nú eru 55 lykkjur í hverri mynstureiningu A.1) prjónið nú þannig yfir lykkjur í A.1 (aðrar lykkjur halda áfram eins og áður): Prjónið A.3 yfir fyrstu 4 lykkjurnar, A.4 yfir næstu 48 lykkjurnar (= 8 mynstureiningar af A.4) og A.5 yfir síðustu 3 lykkjurnar. Haldið áfram með A.3, A.4 og A.5.

Prjónið til og með umferð með ör, sjá ör fyrir rétta stærð = 388-428-468-508-556-596 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 66-72-78-86-96-104 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 63-71-79-83-87-91 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 5 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið næstu 131-143-155-171-191-207 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 63-71-79-83-87-91 lykkjur á þráð, fitjið upp 5 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið síðustu 65-71-77-85-95-103 lykkjur slétt (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 272-296-320-352-392-424 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan þannig: * 1 lykkja sléttprjón, A.6 A (= 2 lykkjur), A.6 B yfir næstu 32-38-44-52-62-70 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 8-2-6-8-8-10 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, A.6 C (= 31 lykkjur), A.7 (= 5 lykkjur = miðja í hlið), A.8 A (= 31 lykkjur), A.8 B yfir næstu 32-38-44-52-62-70 lykkjur JAFNFRAMT er aukið út um 8-2-6-8-8-10 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, A.8 C (= 2 lykkjur) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 304-304-344-384-424-464 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur, A.6 B og A.8 B prjónið yfir 40-40-50-60-70-80 lykkjur (= 4-4-5-6-7-8 mynstureiningar á breiddina). Þegar A.6 og A.8 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram þannig:

* 1 lykkja sléttprjón, A.9 A (= 2 lykkjur), A.9B yfir næstu 59-59-69-79-89-99 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 1-7-3-5-1-3 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, A.9 C (= 12 lykkjur), A.7 (= 5 lykkjur = miðja í hlið), A.10 A (= 12 lykkjur), A.10 B yfir næstu 59-59-69-79-89-99 lykkjur JAFNFRAMT er aukið út um 1-7-3-5-1-3 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, A.10 C (= 2 lykkjur) *, prjónið *-* 1 sinni til viðbótar = 308-332-356-404-428-476 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur, A.9 B og A.10 B er prjónað yfir 60-66-72-84-90-102 lykkjur (= 10-11-12-14-15-17 mynstureiningar á breiddina). Þegar A.9 og A.10 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er nú prjónað þannig:

* 1 lykkja sléttprjón, A.11 A (= 2 lykkjur), A.11 B yfir næstu 60-66-72-84-90-102 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 12-6-12-12-6-6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, A.11 C (= 12 lykkjur), A.7 (= 5 lykkjur = miðja í hlið), A.12 A (= 12 lykkjur), A.12 B yfir næstu 60-66-72-84-90-102 lykkjur JAFNFRAMT er aukið út um 12-6-12-12-6-6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, A.12 C (= 2 lykkjur) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 356-356-404-452-452-500 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur, A.11 B og A.12 B prjónið yfir 72-72-84-96-96-108 lykkjur (= 6-6-7-8-8-9 mynstureiningar á breiddina). Þegar A.11 og A.12 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er fellt af með sléttum lykkjum.

ERMI:
Setjið til baka þær 63-71-79-83-87-91 lykkjur af þræði á prjóninn og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 5 lykkjunum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-76-84-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi (mitt í 5 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp). Prjónið síðan í hring á sokkaprjóna 4. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Fækkið lykkjum í 6.-4.-4.-3.-2.-2. hverri umferð alls 7-9-10-10-10-10 sinnum = 54-58-64-68-72-76 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 19-18-17-15-12-11 cm. Jafnið til lykkjufjöldann til 54-57-63-69-72-75, og prjónið A.13 yfir allar lykkju. Fellið af með sléttum lykkjum þegar A.13 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 26.04.2024
Uppfærsla á útskýringu í ÚTAUKNING.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem voru prjónaðar
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð

symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir 2 lykkjur sem voru prjónaðar saman
symbols = engin lykkja, hoppið yfir þessa rúðu
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 176-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Louise Johansen wrote:

Super fin bluse ! Jeg er blevet færdig med de 4 omgange retstrik (96masker) men synes ikke rigtig det bliver som den hals som jeres model har på . Hendes er en bred/dyb V udskæring, men den jeg er igang med er meget mindre; altså kommer til at ligge helt op mod halsen Er der noget jeg overser ?

23.04.2024 - 12:00

country flag Breige wrote:

Sorry my previous question was for Golden Summer Thanks

23.04.2024 - 08:03

DROPS Design answered:

See answer below :)

23.04.2024 - 08:21

country flag Breige wrote:

How do I knit row 8 on diagram A5 Thank you

23.04.2024 - 07:26

DROPS Design answered:

Dear Mrs Breige, on 8th row, you work the last 2 sts A.3 together with the first st of A.4 (the 2nd yarn over becomes the first st A.4), then you work the last 2 sts A.4 together with the first stitch next A.4, and work the last 2 sts last A.4 together with the first stitch A.5 (the 2nd yarn over in A.4 becomes the first st in A.5). Happy knitting!

23.04.2024 - 08:21

country flag Karen wrote:

Hvordan kan i få det til 17 masker til ærmet, når man skal slå om 2x i mellem de 7 masker mønster? Det får jeg til 19. Hvad gøre man med de 2x slå om i næste omgang?

25.02.2024 - 14:42

DROPS Design answered:

Hei Karen. Det er 17 masker (+ 2 kast, kastene telles ikke som masker før de blir strikket som en maske). mvh DROPS Design

04.03.2024 - 09:22

country flag Elena wrote:

YOKE: Says to cast on 96 stitches in all sizes but when you start the model (first row after the ridge edge) it does not equal with the 96 stitches. Am I missing something?

09.01.2024 - 15:52

DROPS Design answered:

Dear Elena, work the 96 sts as follows: 1 stitch in stocking stitch, A.1 (= 15 stitches), A.2 (= 7 stitches), 1 yarn over, 3 stitches in stocking stitch, 1 yarn over, A.2 (= 7 stitches), A.1 (= 15 stitches), 1 stitch in stocking stitch, A.1 (= 15 stitches), A.2 (= 7 stitches), 1 yarn over, 3 stitches in stocking stitch, 1 yarn over, A.2 (= 7 stitches), A.1 (= 15 stitches) = 1+15+7+3+7+15+1+15+7+3+7+15=96 stitches. Happy knitting!

10.01.2024 - 09:02

country flag Mariacristina wrote:

Buongiorno, è possibile usare questa lavorazione del davanti ma lavorando in piano con ferri dritti?

03.10.2023 - 08:01

DROPS Design answered:

Buonasera Mariacristina, questo modello è progettato per essere lavorato in tondo: se vuole lavorarlo in piano deve riprogettare il motivo per la lavorazione in piano. Buon lavoro!

03.10.2023 - 22:21

country flag Monica's Krok wrote:

Har akkurat satt masker til ermer på tråd. Strikker str XL, og oppskrifter sier 83 masker per erme, men jeg har bare 79... Skulle øking på ermer istedenfor 31 ggr annenhver omg deretter hver 4. omg 2 ggr blitt endret til annenhver omg 33 ggr?

17.07.2023 - 21:38

DROPS Design answered:

Hei Monica Du har riktig maskeantall, men når du skal sette masker på en tråd til erme, "tar" du 2 masker fra bakstykket og 2 masker fra forstykket, slik at disse 4 maskene blir nå til ermmasker 79+2+2=83 masker til 1 erme. mvh DROPS Design

26.07.2023 - 10:08

country flag Ros Rush wrote:

I would like to make this design but don't know how the sizes work. There are no measurements to say what sizes S - XXXL will fit. Please help

16.02.2023 - 03:41

DROPS Design answered:

Hi Ros, You will find a measurements chart at the bottom of the pattern. Happy crafting!

16.02.2023 - 06:53

country flag Mette Baagø wrote:

Begyndervanskeligheder! Jeg får kun 15 masker på ærmet hvor der i opskriften er angivet 17. Jeg er med på at der skal tages ud. Betyder det jeg skal slå om to gange lige efter hinanden? På forhånd tak for hjælpen.

08.03.2022 - 11:31

DROPS Design answered:

Hei Mette. Usikker på hvorfor det blir feil hos deg, men når du strikker første erme strikker du slik: A.2 (= 7 masker), 1 kast, 3 masker glattstrikk, 1 kast, A.2 (= 7+1kast + 3 + 1kast + 7= 17 masker og 2 kast på ermet). mvh DROPS Design

14.03.2022 - 10:26

country flag Ann wrote:

Why do you not make your patterns written,rather than graph?

01.04.2021 - 15:42

DROPS Design answered:

Dear Ann, we use diagrams, rather than written out patterns, partly because our patterns are available in several languages,, but also, because we believe that disgrams give the knitter visual aid, and show not only the very next stitch, but also how stitches and rows relate to each other en large. many of our knitters actually prefer diagrams. We have lassons on how to read a diagram here, and if you are still stuck, you can always ask for help (either in person, or over the phone) in the DROPS store where you bought your DROPS yarn from. Happy Knitting!

01.04.2021 - 16:01