DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12298.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 178-3
DROPS Design: Mynstur cm-058
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
650-750-800-900-1000-1050 g litur 03, beige

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 26 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breitt og 10 cm á hæð. Og 22 lykkjur og 26 umferðir með áferðamynstri (A.2) verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3,5 – fyrir kant með garðaprjóni.
DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 2 st í öllum stærðum.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12298.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1:
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 4 lykkjur á hvorri hlið) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 9) = 10,6. í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis í ca 10. og 11. hverri lykkju. Ekki er aukið út yfir kantlykkjur.

ÚTAUKNING-2 (á við um ermar):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eins og áður þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni (= 2 lykkjur fleiri).
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat (útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.2A)

LEIÐBEININGAR (á við um 20-20-20-24-28-28 kantlykkjur við miðju að framan):
Til að kantur að framan í garðaprjóni dragist ekki saman á hæðina eru prjónaðar 2 umferðir garðaprjón einungis yfir síðustu 20-20-20-24-28-28 lykkjur eftir ca 5. hvern cm. ATH: Þegar snúið er við mitt í stykki er hert á þræði áður en prjónað er áfram svo að ekki myndist gat.

HNAPPAGAT:
Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir 20-20-20-24-28-28 kantlykkjur að framan á hægra framstykki er fellt af fyrir 2 hnappagötum frá réttu þannig: Prjónið 3 sléttar lykkjur, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir á kanti að framan, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið 3 síðustu kantlykkjur að framan slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum og saumað saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 104-110-118-128-140-154 lykkjur á hringprjóna 3,5 með Cotton Merino. Prjónið 8 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í 7. umferð (= rétta) er aukið út um 9-11-11-13-13-15 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 = 113-121-129-141-153-169 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjóna 4,5 og prjónið 2 umferðir sléttprjón með 4 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni (= 26-28-30-33-36-40 mynstureiningar 4 lykkjur), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 4 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið til baka eins og útskýrt er í A.1 með 4 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.2B (= 1 lykkja) og endið með 4 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið áfram með A.2 með 4 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm fellið af 3 lykkjur í byrjun 2 næstu umferða fyrir handveg = 107-115-123-135-147-163 lykkjur. Haldið áfram með A.2 eins og áður með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm setjið lykkjur á þráð í hvorri hlið fyrir öxl (til að sleppa við að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn fyrir öxl). Setjið fyrstu 6-6-7-7-8-9 lykkjur í byrjun umferðar á þráð, prjónið út umferðina og setjið fyrstu 6-6-7-7-8-9 lykkjur í byrjun næstu umferðar á þráð. Haldið svona áfram að setja 6-6-7-7-8-9 lykkjur á þráð alls 6 sinnum í hvorri hlið, setjið síðustu 6-10-8-12-10-12 lykkjur á þráð fyrir öxl í hvorri hlið.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm fellið af miðju 19-19-19-23-27-27 lykkjur fyrir háls og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með að setja lykkjur á þráð fyrir öxl og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsi. Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af fyrir háls/eru settar á þráð eru 42-46-50-54-58-66 lykkjur á þræði á hvorri öxl og stykkið mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá hæsta punkti á öxl og niður.
Setjið lykkjurnar af þræði á hringprjón 3,5. Byrjið frá réttu og prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur, en til að sleppa við göt í skiptingum þar sem lykkjur voru settar á þráð er þráðurinn á milli 2 lykkja tekinn upp og prjónaður snúinn slétt saman við fyrstu lykkju á vinstra prjóni. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu (mikilvægt er að affellingarkanturinn verði ekki stífur).
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 61-64-68-75-83-90 lykkjur á hringprjóna 3,5 með Cotton Merino. Prjónið 8 umferðir garðaprjón JAFNFRAMT í 7. umferð (= rétta) er aukið út um 4-5-5-6-6-7 lykkjur jafnt yfir = 65-69-73-81-89-97 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjóna 4,5 og prjónið 2 umferðir sléttprjón með 4 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur í garðaprjóni við miðju að framan, prjónið A.1A þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni (= 14-15-16-18-20-22 mynstureiningar 4 lykkjur), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 4 kantlykkjum í garðaprjóni í hlið. Prjónið til baka eins og útskýrt er í A.1 með 4 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.2B (= 1 lykkju) og endið með 4 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið áfram með A.2 með 4 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm fellið af fyrstu 3 lykkjur í byrjun umferðar frá hlið (þ.e.a.s. frá röngu) fyrir handveg = 62-66-70-78-86-94 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið garðaprjón yfir fyrstu 20-20-20-24-28-28 lykkjur (= kantur að framan – LESIÐ LEIÐBEININGAR), haldið áfram með A.2 eins og áður þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni við handveg. Haldið svona áfram með mynstur – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm setjið lykkjur á þráð fyrir öxl alveg eins og á bakstykki (lykkjur eru settar á þráð í hverri umferð frá röngu), þ.e.a.s. setjið 6-6-7-7-8-9 lykkjur á þráð alls 6 sinnum, síðan síðustu 6-10-8-12-10-12 lykkjur á þráð.
Þegar allar 42-46-50-54-58-66 lykkjur hafa verið settar á þráð fyrir öxl eru 20-20-20-24-28-28 kantlykkjur að framan í garðaprjóni eftir á prjóni fyrir kraga. Haldið áfram með garðaprjón fram og til baka yfir þessar lykkjur þannig: * Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, prjónið 2 umferðir garðaprjón einungis yfir síðustu 16-16-16-20-24-24 lykkjur við miðju að framan *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist ca 7-7-7-8-9-9 cm lengst inn þar sem stykkið er minnst, mælt frá þeim stað þar sem síðustu lykkjur voru settar á þráð fyrir öxl og fellið laust af.
Setjið til baka lykkjur af þræði fyrir öxl á hringprjóna 3,5. Byrjið frá réttu og prjónið 2 umferðir slétt alveg eins og á bakstykki áður en fellt er af með sléttum lykkjum frá réttu.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp alveg eins og hægra framstykki og prjónið eins og hægra framstykki, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. eftir garðaprjóni í byrjun á stykki eru prjónaðar 2 umferðir sléttprjón með 4 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til eftir eru 5 lykkjur á prjóni (= 14-15-16-18-20-22 mynstureiningar 4 lykkjur), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 4 kantlykkjur við miðju að framan í garðaprjóni. Prjónið eins og útskýrt er í A.1 með 4 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm fellið af fyrstu 3 lykkjur í byrjun umferðar frá hlið (þ.e.a.s. frá réttu) fyrir handveg = 62-66-70-78-86-94 lykkjur og prjónið út umferðina þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni við handveg, haldið áfram með A.2 eins og áður þar til eftir eru 20-20-20-24-28-28 lykkjur á prjóni og prjónið garðaprjón yfir þessar lykkjur (= kantur að framan). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm setjið lykkjur á þráð fyrir öxl alveg eins og á hægra framstykki og bakstykki (lykkjur eru settar á þráð í hverri umferð frá réttu). Prjónið afganginn af vinstra framstykki alveg eins og hægra framstykki.

ERMI.
Fitjið upp 50-50-54-58-58-62 lykkjur á hringprjóna 3,5 með Cotton Merino. Prjónið 8 umferðir sléttprjón JAFNFRAMT í 7. umferð (= rétta) er aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 54-54-58-62-62-66 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjóna 4,5 og prjónið 2 umferðir sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorir hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til eftir eru 1 lykkja á prjóni (= 13-13-14-15-15-16 mynstureiningar 4 lykkjur), endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið til baka eins og útskýrt er í A.1A með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með A.2A með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 5-5-4-3-3-5 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING-2. Aukið svona út alls 14-16-16-16-18-18 sinnum í S: Í 6. hverri umferð, í M, L og XL: Til skiptis í 4. og 6. hverri umferð, í XXL: Í 4. hverri umferð og í XXXL: Til skiptis í annarri hverri umferð og í 4. hverri umferð = 82-86-90-94-98-102 lykkjur á prjóni. Þegar stykkið mælist 37-36-35-34-32-29 cm er sett 1 prjónamerki í hvora hlið. Prjónið 4 umferðir fram og til baka í A.2A eins og áður, fellið síðan af 5 lykkjur í byrjun 2 næstu umferða áður en þær lykkjur sem eru eftir eru felldar af (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur).
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn þannig að það verða 4 umferðir garðaprjón á öxl. Saumið ermar í þannig að saumurinn snúi út (prjónamerki í hvorri hlið á ermum á að passa við handveg á fram- og bakstykki). Saumið saum undir ermum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið hliðarsaum á fram- og bakstykki frá handveg og niður – saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur, en endið þegar eftir eru ca 22 cm í hvorri hlið (= klauf).
Saumið saman kraga við miðju að aftan (passið uppá að saumurinn snúi inn þegar kraginn er brotinn niður). Saumið kraga við hálsmál aftan við hnakka. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = stingið hægri prjón í gegnum lykkjuna frá fyrri umferð, prjónið 1 lykkju slétt og sleppið lykkjunni niður af prjóni
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Monika wrote:

Hallo zusammen, eine Frage zum Rückenteil. Ich stricke Größe M mit 110 M, jetzt kommt die Schulterschräge dazu sind beidseitig 6x6M und 1x10 M stillzulegen, ergibt für mich einen Rest von 18 Maschen. Zusätzlich sollen für den Halsausschnitt 19 M und dann beidseitig 2 M abgekettet werden. Soviele habe ich gar nicht mehr. Wo liegt hier mein Fehler ?

17.10.2021 - 14:44

DROPS Design answered:

Liebe Monika, es soll auch bei der 7. Reihe zugenommen werden = 121 M. Dann nehmen Sie 3 M beidseiting für den Armausschnitt = 115 M; es sind 19 M + 2 M auf beiden Seiten für den Halsausschnitt abgekettet (= totalt 2+19+2=23 M) und die verkürzten Reihen 6 Mal auf 6 Maschen gestrickt = 10 M Schulter + (6M x 6) + 23 M + (6 M x 6) + 10 M Schulter = 115 M. Kann es Ihnen helfen?

18.10.2021 - 09:25

country flag Jose Gagnon wrote:

I’am having a problem with the back piece. For size large I have 19 stiches in the middle and it measures 64cm. When I finish the shoulders it says that it should measure 66 cm at the highest point of the shoulder. I followed the pattern as best I could and it measures 61 cm at the highest. Each piece is now finished but I seemed to have a problem with the assembly of the back. Anyone can help me by maybe show me a picture of the back piece completed so I can see what’s wrong ?

28.03.2021 - 19:11

DROPS Design answered:

Dear Mrs Gagnon, you cast off for neck when piece measures 64 cm then continue each shoulder separately for 2 more cm continuing to slip sts for shoulder on a thread= piece measures 66 cm in total. Now work 1 row from RS over the 50 sts on shoulder, 1 row from WS and cast off (= 1 ridge on top of shoulder). Hope this helps. Happy knitting!

06.04.2021 - 08:27

country flag Lianne Ippel wrote:

Ik heb een vraag over het rechter voorpand en dan met name de tip voor het breien: de buitenste 20 steken zijn dat de bedoelen ze dan de voorbies steken (Dus rechts aan de goede kant) of juist de steken aan de andere kant (links aan de goede kant) ?

10.07.2020 - 16:58

DROPS Design answered:

Dag Lianne,

Ja, deze tip voor het breien geldt inderdaad voor de 20 biessteken die bij het breien op het rechter voorpand aan de rechter kant zitten, gezien vanaf de goede kant.

12.07.2020 - 14:43

country flag Katja Schmidtpott wrote:

Ik zie steeds vaker dat er op rondbreinaalden gebreid wordt. Ik vind het bijna onmogelijk om daarmee te breien. Is er een manier om zulke patroon om te zetten van rondbrei- naar normale naalden?

14.04.2019 - 22:41

country flag Heike wrote:

Liebes Garnstudio Team,\r\nich habe die Jacke \"Zoey\" genau nach Maschenprobe in Größe L gestrickt und habe nun 4,5 Knäuel der Wolle übrig. In der Anleitung waren 800 g als Verbrauch angegeben. Ist das vielleicht ein Fehler, oder habe ich die Anleitung nicht richtig verstanden?

25.03.2019 - 08:23

country flag Dagmar Pakulat wrote:

Hallo zusammen, Frage zur Fertigstellung - wie nähe ich die Ärmel mit einer außenliegenden Naht ein? Habe ich noch nie gemacht. Vielen Dank für Ihre Hilfe.

08.11.2018 - 13:26

DROPS Design answered:

Liebe Frau Pakulat, die Ärmel legen Sie unter die Armausschnitt und dann zusammen nähen. Gerne wird Ihnen Ihr DROPS Laden noch dazu weiterhelfen - auch telefonisch oder per Email. Viel Spaß beim stricken!

08.11.2018 - 15:42

country flag Elliard Huizing wrote:

Ik reageer op mijn eigen vraag (haha) het zou kunnen kloppen wanneer er sprake is van verkorte naalden om de kraag rond te laten lopen? Maar nergens wordt over verkorte naalden gesproken, dat zou dan verbetert kunnen worden in het patroon.

17.05.2018 - 20:59

country flag Elliard Huizing wrote:

Ik heb een vraag over voorpand/voorbies/hraag, het patroon zegt: * brei 1 ribbel over alle steken (20 st ) brei 1 ribbel over alleen de buitenste (16 st ) middenvoor * en herhaal van *-* Wat doe ik met de 4 steken die 'over' blijven?

17.05.2018 - 20:32

DROPS Design answered:

Hallo Elliard, De ene keer brei je een ribbel over alle 20 steken en dan brei je een ribbel over alleen de eerste 16 steken. Dus je keert het werk na 16 steken en dan brei je terug. Op deze manier brei je verkorte toeren, waardoor de halslijn aan de buitenkant wijder wordt en mooier valt.

03.06.2018 - 20:26

country flag Inge wrote:

Nu har jag fattat det! Tusen tack för det snabba svaret!

28.03.2018 - 20:46

country flag Inge wrote:

Hej, jag blir irriterad på vilken höjd jag ska sticka knapphålen... Det låter som om man ska börja med första knapphålet längst ner men det har jag nog missförstått, det ska ju bara bli 2 knappar. Snälla ni, på vilken höjd har ni gjort knapphålen? Tack för hjälp i förväg!

24.03.2018 - 12:39

DROPS Design answered:

Hej, knapphålen ska göras först då man börjat sticka rätstickning över de 20 yttersta maskorna mot mitt fram, dvs. efter avmaskningen för ärmhål.

26.03.2018 - 13:59