DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3960.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 177-1
DROPS Design: Mynstur e-256
Garnflokkur A + A eða C
-----------------------------------------------------------

Mál
Ummál: ca 80 cm
Hæð: ca 34 cm

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200 g litur 17, hvítur
150 g litur 06, gallabuxnablár
100 g litur 05, ljós bláfjólublár

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 18 stuðlar og 10,5 umferðir með 2 þráðum verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3960.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir liti í mynstri. 1 rúða = 1 stuðull.

TVEIR ÞRÆÐIR:
Notið þráðinn innan í og utan með dokkunni. Gott er að skipta ekki um báða þræðina í einu, annars verða samskeytin of þykk. Það er einnig gott að festa endana með því að leggja þá meðfram lykkjunum frá fyrri umferð og síðan að hekla utan um þá og festa á meðan heklað er áfram.

LITAMYNSTUR (heklað í hring):
Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðasta stuðul með fyrri litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn í lokin, heklið síðan næsta stuðul. Þegar heklað er með tveimur litum þá eru þræðirnir með þeim lit sem ekki er heklað með lagðir yfir lykkjurnar frá fyrri umferð og heklað er utan um þræðina þannig að þeir sjáist ekki og eru alltaf til staðar þegar á þeim þarf að halda.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsta stuðul í umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur, endið umferð með 1 keðjulykkju í þriðju loftlykkju.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring með 2 þráðum.

TASKA:
Heklið 5 loftlykkjur með 2 þráðum í litnum gallabuxnablár með heklunál 3,5 og tengið saman í hring með einni keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
Heklið síðan í hring eftir mynsturteikningu A.1 (heklaðar eru 12 mynstureiningar af A.1 á breidd) – LESIÐ LITAMYNSTUR!
UMFERÐ 1: Heklið 12 stuðla um hringinn – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR!
UMFERÐ 2: Heklið 2 stuðla í hvern stuðul = 24 stuðlar.
UMFERÐ 3: Heklið * 1 stuðul í fyrsta stuðul, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 36 stuðlar.
UMFERÐ 4: Heklið * 1 stuðul í hvorn af fyrstu 2 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 48 stuðlar.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
UMFERÐ 5-12: Haldið áfram með útaukningu og mynstur A.1 eins og áður, þ.e.a.s. fyrir hverja umferð er heklaður 1 stuðull fleiri á milli útaukninga = 144 stuðlar. Aukið út um 12 stuðla í hverri umferð.
UMFERÐ 13: Haldið áfram með að hekla í hring, en án útaukningar og heklið eftir A.2 (= 8 mynstureiningar á breidd). Haldið áfram þar til A.2 hefur verið heklað til loka, klippið frá og festið enda.

SNÚRA:
Klippið 12 þræði ca 10 metra af hvorum og einum í litnum ljós blár og í litnum gallabuxnablár (= 24 þræðir). Tvinnið þræðina fast saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda.

Þræðið snúruna í töskuna á milli 2 stuðla í þriðju síðustu umferðina á töskunni, þannig: Byrjið eftir 21. stuðul í umferð: Þræðið snúruna frá innanverðri tösku og út, hoppið yfir 30 stuðla og þræðið snúruna frá utanverðri töskunni og inn. Hoppið yfir 12 stuðla og þræðið snúruna frá innanverðu og út, hoppið yfir 18 stuðla og þræðið snúruna frá utanverðu og inn. Hoppið yfir 12 stuðla og þræðið snúruna frá innanverðu og út, hoppið yfir 30 stuðla og þræðið snúruna frá utanverðu og inn. Hoppið yfir 12 stuðla og þræðið snúruna frá innanverðu og út, hoppið yfir 18 stuðla og þræðið snúruna frá utanverðu og inn. Jafnið að lokum lengdina á snúrunni og hnýtið saman endana frá innanverðri töskunni.

Mynstur

symbols = hvítur
symbols = ljós bláfjólublár
symbols = gallabuxnablár
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 177-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (26)

country flag Brigitte Prange wrote:

Ich habe die Tasche noch mit Fleece abgefüttert und sie bekommt noch einen Magnetverschluss. Die Anleitung war einfach zu verstehen. Habe selbst ich als jemand, die selten häkelt, verstanden

29.10.2023 - 09:56

country flag Mouton wrote:

Bonjour, je souhaite réaliser ce sac avec du coton Drops Paris. Pouvez-vous m’indiquer les quantités requises? Merci

07.06.2022 - 19:40

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Mouton, utilisez notre convertisseur en indiquant bien "2 fils" car Safran est crochetée en double, vous aurez ainsi la quantité équivalente en DROPS Paris. Bon crochet!

08.06.2022 - 08:02

country flag Susanne wrote:

Hallo Drops Team! Können Sie noch mal genauer beschreiben wie Die Kordel gefädelt wird. Werden das Henkel? Ich komme leider nicht mit der Beschreibung nicht zurecht. Danke!

11.07.2021 - 21:57

DROPS Design answered:

Liebe Susanne, ja genau, die Kordel bildet die Träger und gleichzeitig den Verschluss (wenn Sie die Tasche an den Trägern tragen, zieht sich die Tasche oben zusammen). Die Kordel wird oben durch die drittletzte Runde einmal rundum durchgefädelt, im Abstand der jeweils genannten Stäbchen. Sie fädeln die Kordel also abwechselnd von innen nach außen und wieder von außen nach innen und lassen dazwischen den angegebenen Abstand. Zuletzt verknoten Sie die beiden Enden miteinander auf der Innenseite der Tasche (das Durchfädeln beginnt und endet ja innen, es sind 12 Stäbchen zwischen dem Anfang und dem Ende der Kordel). Gutes Gelingen!

12.07.2021 - 08:59

country flag Agáta Manasková wrote:

Dobrý den, prosím vás absolutně jsem nepochopila jak se dělá to ucho, mám šnůru dlouhou 10 metrů a je to hrozně dlouhé, už týden se s tím trápím:-( Děkuji za odpověď

28.06.2021 - 18:57

DROPS Design answered:

Dobrý den, Agáto! Nevzdávejte to! :-) Jak na kroucenou šňůru uvidíte např. v této naší video-ukázce Hodně zdaru a pěkné léto s novou taškou! Hana

30.06.2021 - 16:57

country flag Martha Kent wrote:

What is the final length of the straps?

04.05.2021 - 15:19

DROPS Design answered:

Dear Martha, the final length depends on how thightly you will twist the strands, but it is not so important to get the exact length, as you can adjust it to your own need. Happy Crafting!

04.05.2021 - 16:58

country flag Deanne Stoddart wrote:

Why does your site not have any images of the patterns anymore? Not one single pattern has an image today3/31/21.

01.04.2021 - 07:23

DROPS Design answered:

Dear Deanne, the site is experiencing a tecnical problem, but the appropriate department is working hard to solve the issue as soon as possible. We need to ask a little patience from you. Thank you for understanding!

01.04.2021 - 09:41

country flag Annamaria Anzisi wrote:

Buongiorno ho terminato la borsa ed ora ,prima di fare la bretella ,volevo essere sicura che i capi di fili da tagliare debbano essere lunghi 10 metri . Grazie e complimenti per i modelli

27.05.2019 - 09:04

DROPS Design answered:

Buongiorno Annamaria. Deve tagliare 24 capi (12 per ogni colore), ognuno lungo 10 metri. Buon lavoro!

27.05.2019 - 09:23

country flag Sofia Broborg wrote:

Hej! När jag klickar på länken för garnet till detta mönster, DROPS Safran, skickas jag till Garnaffären men DROPS PUNA, inte Safran?? Sökte efter Safran direkt på Garnaffärens sida och det finns där så det verkar bara ha kopplats fel länk till detta mönster.

16.04.2019 - 18:48

country flag Saskia wrote:

Hallo, ich verzweifle leider völlig an eurer Anleitung :( Das Farbmuster nach Diagramm A.1 irritiert mich, da es nicht mit den Fotografien zusammen passt :/ Z.B. die zweite Runde: lt. Diagramm 1 Stb weiß, 1 Stb jeansblau, 4 Stb weiß. Aber auf der Fotografie sind weiß und jeansblau im Wechsel.Eigentlich habe ich bisher all eure Anleitungen super verstanden - aber bei den Taschen bin ich raus. Kann mir jemand helfen? Danke!!

08.04.2019 - 13:37

DROPS Design answered:

Liebe Saska, Diagram lesen Sie von unten nach oben, dh bei der 1. Reihe in A.1 häkeln Sie 12 x A.1 = 12 x 1 Stb mit jeansblau - bei der 2. Reihe in A.1 häkeln Sie (1 Stb mit Jeansblau, 2 Stb mit hell blaulila) x 12. und so weiter. Hier lesen Sie mehr über Diagram. Viel Spaß beim häkeln!

08.04.2019 - 13:56

Anke Reefs wrote:

Hallo, ich habe eine Frage, kann man dieses Haekelmuster auch mit festen maschen haekeln oder nur mit Staebchen, vielen Dank fuer Ihre Antwort

27.09.2018 - 14:18

DROPS Design answered:

Liebe Frau Reefs, diese Tasche wird nur mit Stäbchen gehäkelt, sollten Sie sie mit festen Maschen häkeln, würde die Tasche viel kleiner (in der Höhe) sein. Viel Spaß beim häkeln!

27.09.2018 - 15:45