DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 175-2
DROPS Design: Mynstur ml-020
Garnflokkur D – eða A + A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL - lesið MÁL!

Efni:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
300-300-350-400-400-450 g litur 01, natur
100-150-150-150-150-200 g litur 09, ljós sægrænn

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 9 – eða þá stærð sem þarf til að 10 lykkjur og 18 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

RENDUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð.

MÁL:
Öll mál eru gerð þegar stykkinu er haldið uppi, annars kemur peysan til með að verða of löng þegar hún er mátuð miðað við mál í mynsturteikningu. Þetta er mikilvægt þar sem áferðin gerir það að flíkin teygist á lengdina.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjun innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman. Öll úrtaka er gerð frá réttu!

ÚTAUKNING-1 (á við um ermar):
Aukið út um 1 lykkju innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2:
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 56 lykkjur), mínus 16 kantlykkjur í hvorri hlið að framan og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 1,6. Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca til skiptis hverja og aðra hverja lykkju.
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum og saumað saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 54-58-62-68-74-78 lykkjur á hringprjóna 9 með 2 þráðum í litnum ljós sægrænn. Takið frá annan þráðinn og prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm – LESIÐ MÁL, prjónið RENDUR eins og útskýrt er í A.1. JAFNFRAMT þegar lykkjufjöldinn mælist 24 cm í öllum stærðum er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 7-7-7-8-8-8 cm millibili alls 6 sinnum í öllum stærðum = 42-46-50-56-62-66 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er haldið áfram með litnum natur til loka. Þegar stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm – munið eftir MÁL, fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: 3 lykkjur 0-0-1-1-1-1 sinnum, 2 lykkjur 1-1-0-1-2-2 sinnum og 1 lykkja 1-2-2-3-3-4 sinnum = 36-38-40-40-42-44 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 81-84-87-90-93-96 cm. Fellið nú af miðju 8-8-10-10-12-12 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 13-14-14-14-14-15 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 83-86-89-92-95-98 cm – munið eftir MÁL og fellið af með 2 þráðum (þetta er gert til að affellingarkanturinn verði ekki stífur).
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 43-45-47-50-53-55 lykkjur (meðtaldar 16 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjóna 9 með 2 þráðum í litnum ljós sægrænn. Takið frá annað þráðinn og prjónið garðaprjón. Þegar stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm prjónið rendur eins og útskýrt er í A.1 á sama hátt og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 24 cm í öllum stærðum byrjar úrtaka í hlið og fækkið lykkjum á sama hátt og á bakstykki = 37-39-41-44-47-49 lykkjur. Þegar stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar frá hlið á sama hátt og á bakstykki = 34-35-36-36-37-38 lykkjur. Þegar stykkið mælist 77-80-83-86-89-92 cm setjið ystu 17-17-18-18-19-19 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli (til að sleppa við að klippa frá þráðinn sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn). Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsmáli þannig: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 13-14-14-14-14-15 lykkjur eftir á prjóni fyrir öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 83-86-89-92-95-98 cm – munið eftir MÁL og fellið af með 2 þráðum í litnum natur.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og framstykki, en með úrtöku í gangstæðri hlið.

ERMI:
Fitjið upp 20-22-22-24-24-26 lykkjur á hringprjóna 9 með 2 þráðum í litnum natur. Takið frá annan þráðinn og prjónið garðaprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 5-5-4-3½-3-3 cm millibili alls 8-8-9-10-11-11 sinnum = 36-38-40-44-46-48 lykkjur. Þegar stykkið mælist 47-47-46-45-44-43 cm fellið af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-1-2-2-2-2 sinnum og 1 lykkja 3-3-3-5-6-7 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þar til stykkið mælist 54-54-54-55-55-55 cm. Fellið af 3 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum og fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru með 2 þráðum í litnum natur. Öll ermin mælist ca 55-55-55-56-56-56 cm ofan frá og niður.
Prjónið aðra ermi á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt – saumið kant í kant yst í lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur, en skiljið eftir ca 20 cm neðst niðri í hvorri hlið á fram- og bakstykki fyrir klauf.

HETTA:
Prjónið upp frá réttu ca 56 til 68 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á böndum við miðju að framan) á hringprjóna 9 með litnum natur. Prjónið garðaprjón fram og til baka og aukið JAFNFRAMT úr jafnt yfir til 80-82-84-86-88-90 lykkjur í fyrstu umferð – LESIÐ ÚTAUKNING-2 (ekki er aukið út yfir ystu 16 lykkjur í hvorri hlið). Þegar hettan mælist 35-35-36-36-37-37 cm fellið laust af með 2 þræði natur.
Leggið hettuna saman tvöfalda og saumið hana saman efst uppi með lykkjuspori.

SNÚRA:
Peysan er með 4 snúrubönd, 2 stykki með 2 þráðum í litnum natur og 2 stykki með 1 þræði í litnum natur + 1 þræði í litnum ljós sægrænn.
1 snúruband = klippið 2 þræði ca 2,8 metra. Tvinnið þræðina saman þar til þeir taka í, leggið snúruna aftur saman þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda (snúrubandið á að vera ca 1 meter þegar það er tilbúið, klippið e.t.v. í rétta lengd).
Festið eitt snúruband í litnum natur + í litnum sægrænn á utanverða peysuna í vinstri hlið ca 2 cm undir handveg (mátið e.t.v. peysuna og staðsetjið snúrubandið eftir hvað passar).
Hitt snúrubandið er fest yst á hægra framstykki ca 22-23-24-25-26-27 cm frá öxl og niður.
Festið eitt snúruband í litnum natur ca 2 cm undir handveg á innanverðir peysu í hægri hlið.
Festið annað snúruband í litnum natur er fest yst á vinstra framstykki ca 22-23-24-25-26-27 cm frá öxl og niður.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu með natur
symbols = slétt frá röngu með natur
symbols = slétt frá réttu með sægrænn
symbols = slétt frá röngu með sægrænn
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 175-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (32)

country flag Eveline wrote:

Ik heb 450 gram melody, maar nu ik het patroon lees is me niet duidelijk of ik met 2 draden brei of met een. wer staat toch na de opzet " verwijder een draad! en er staat nergens dat het vest met dubbele draad of met 1 draad gebreid wordt.

27.03.2024 - 23:33

DROPS Design answered:

Dag Eveline,

Je breit met 1 draad. Je zet alleen op met 2 draden. Na het opzetten brei je verder met 1 draad en knip je de andere draad af (die blijft dus wel in de opzetrand zitten).

28.03.2024 - 17:32

country flag Claudia wrote:

Liebes DROPS-Team, könnt Ihr mir hier bitte sagen, wieviel Garn ich benötige, wenn ich die Jacke einfarbig stricken möchte? Vielen Dank Euch! Liebe Grüße

01.10.2022 - 10:36

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, leider haben wir keine Erfahrung damit, da diese Jacke mit Streifen gestrickt wurde, und die haben wir nicht mehr um sie auszuwieggen - am besten kalkulieren Sie beide Farben zusammen - sicher brauchen Sie etwas weniger, gerne kann Ihnen Ihr DROPS Laden damit (auch per Telefon oder per E-Mail) weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!

03.10.2022 - 08:31

country flag Mirjam Van Der Panne wrote:

Ik ben begonnen met de mouwen op nld. 7 omdat 8 echt te grof werd. Nu heb ik de grootste maat gekozen maar vind de mouw erg smal, klopt dat?

25.03.2021 - 08:31

DROPS Design answered:

Dag Mirjam,

Als je een kleinere naald neemt wordt het breiwerk ook kleiner. Het beste kun je een proeflapje maken om te kijken of de stekenverhouding klopt. Pas eventueel de naalddikte aan totdat je de juiste stekenverhouding hebt, zoals aangegeven in het patroon.

26.03.2021 - 15:54

country flag Dania wrote:

Ich möchte diese Jacke gern mit Drops Bomull-Lin Stricken in Größe M Stricken. Können Sie mir sagen soviel Wolle ich dann dafür brauchen würde ? Vielen Dank Mit freundlichen Grüßen D. Sult

02.02.2021 - 11:25

DROPS Design answered:

Liebe Dania, sorry für die verspäte Antwort, Ihre Frage wurde leider übersehen; Bomull-Lin gehört zur Garngruppe C und diese Jacke wird mit Melody = Garngruppe D gestrickt. So wird hier Bomull-Lin keine Alternative zur Melody sein. Hier lesen Sie mehr über Garnalternativen. Viel Spaß beim stricken!

26.04.2021 - 14:06

country flag Ioana wrote:

Thank you very much for the swift reply! I forgot to also aks: are the measurement in gauge swatch given after the swatch is blocked? I assume so, but just to be sure 🙂

11.01.2021 - 14:32

DROPS Design answered:

Dear Ilona, the measurements for the gauge should be the one of the finished garment, you can wash and let your swatch dry before measuring it - and then adjust needle size if required. Happy knitting!

11.01.2021 - 15:19

country flag Ioana wrote:

Hi! I would like to knitt this garnment in Air but unfortunately the yarn converted doesn't give this alternative. I have sufficient yarn for the garnment for sure but I am not sure if I should stick to the measurements in the pattern or alterations should be made.

11.01.2021 - 11:51

DROPS Design answered:

Dear Iona, this jacket is worked with Melody, which is Yarn group D while Air is yarn group C - Air isn't therefore a possible alternative to Melody, reason why yarn converter doesn't give any result - you can try out with 2 strands: Air (= yarn group C) + 1 yarn group A (= to match 3 strands yarn group A). Happy knitting!

11.01.2021 - 14:19

country flag Ruth wrote:

Das Melody Garn fusselt sehr stark, gibt es da einen Trick um das zu reduzieren?

09.07.2019 - 09:43

DROPS Design answered:

Liebe Ruth, hier finden Sie einige Tipps. Viel Spaß beim stricken!

09.07.2019 - 13:45

country flag Ruth wrote:

Hallo, ich habe die Jacke gestrickt und finde sie super gemütlich! Allerdings fusselt das Garn sehr sehr stark. Gibt es dafür eine Lösung? Viele Grüße Ruth

09.07.2019 - 09:42

country flag Fi wrote:

How many balls of each colour do I need to make the largest size Thanks

25.04.2019 - 09:56

DROPS Design answered:

Dear Fi, you will find the required total amount of each colour under the header, ie in size XXXL you require 450 g off white / 50 g a ball Melody = 9 balls off white + 200 g light sea green/50 a ball Melody = 4 balls light sea green. Happy knitting!

25.04.2019 - 09:58

country flag Karin wrote:

Kriebelt/prikt dit garen?

30.01.2019 - 15:41

DROPS Design answered:

Dag Karin,

Ja, hier zit o.a. alpaca in, dus als je gevoelig bent voor 'kriebelen' dan is dit garen minder geschikt/

30.01.2019 - 16:08