DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Orange Dream Cardigan

Peysa prjónuð ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri á berustykki, ¾ ermum og A-formi úr DROPS Safran. Stærð S - XXXL.

DROPS 178-43
DROPS Design: Mynstur e-251
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
400-450-500-550-600-650 g litur 28, appelsínugulur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 2,5 – fyrir kant með garðaprjóni.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 6-6-6-7-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

UPPHÆKKUN:
Prjónið frá réttu og prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 67-67-67-77-77-77 lykkjur, setjið eitt prjónamerki (= mitt að aftan), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 7-7-7-8-8-8 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið 14-14-14-16-16-16 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 21-21-21-24-24-24 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 28-28-28-32-32-32 lykkjur slétt. Haldið svona áfram fram og til baka með því að prjóna yfir 7-7-7-8-8-8 lykkjur fleiri í hvert skipti sem prjónað er yfir miðju 70-70-70-80-80-80 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur út umferðina.

ÚTAUKNING-1:
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 114 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 5,2. í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 5. hverja lykkju. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Allar útaukningar eru gerðar frá réttu!
Byrjið 2 lykkjur á undan A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, A.1 (prjónamerki er staðsett mitt í A.1), prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykki og erma. Öll útaukning er gerð frá réttu og útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til þær ganga upp í mynstrið.

ÞEGAR AUKIÐ ER ÚT UM 2 LYKKJUR HVORU MEGIN VIÐ LYKKJU MEÐ PRJÓNAMERKI Í ÞÁ ER ÞAÐ GERT ÞANNIG:
Byrjið á undan lykkju með prjónamerki í, takið upp liðinn á undan lykkju og prjónið hann snúinn slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki í), sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið upp liðinn á undan næstu lykkju og prjónið hann snúinn slétt (= 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn brugðið svo að það myndist gat.

ÞEGAR AUKIÐ ER ÚT UM 1 LYKKJU HVORU MEGIN VIÐ LYKKJU MEÐ PRJÓNAMERKI Í ÞANNIG:
Byrjið á undan lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki í), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að það myndist gat.

LEIÐBEININGAR:
Þegar aukið er út fyrir laskalínu í 4. hverri umferð koma götin í laskalínu til með að fá lengri fjarlægð á milli hvers annars en þegar aukið er út í annarri hverri umferð. Til að koma í veg fyrir þetta eru prjónuð göt í umferðinni frá réttu án útaukninga þannig:
Byrjið 2 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki í), sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að það myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 2 lykkjum á undan A.1, prjónið 2 lykkjur slétt saman, A.1 (= 5 lykkjur), takið 1 lykkju óprjónaða eina og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir kanti með garðaprjóni í hálsi, síðan eru fellt af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu með ca 8 cm millibili.
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni (séð frá réttu), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og 1 lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 114-114-114-134-134-134 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjón 2,5 með Safran. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 20 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 = 134-134-134-154-154-154 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið.
Til að fá betra form er prjónuð smá UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkun hefur verið prjónuð til loka er skipt yfir á hringprjón 3. Prjónið 2 umferðir sléttprjón með 5 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Setjið 4 prjónamerki í stykkið (það er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Fyrsta prjónamerki er sett í 26.-26.-26.-31.-31.-31. lykkju í umferð, annað prjónamerki er sett í 47.-47.-47.-52.-52.-52. lykkju í umferð, þriðja merkið er sett í 88.-88.-88.-103.-103.-103. lykkju í umferð og fjórða merkið er sett í 109.-109.-109.-124.-124.-124. lykkju í umferð. Á milli prjónamerkja með prjónamerki í eru nú 25-25-25-30-30-30 lykkjur í hvoru framstykki, 40-40-40-50-50-50 lykkjur á bakstykki og 20 lykkjur í öllum stærðum fyrir hvora ermi.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 20-20-20-25-25-25 lykkjur (= 4-4-4-5-5-5 mynstureiningar með 5 lykkjum), aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við lykkju með prjónamerki í fyrir LASKALÍNA – sjá útskýring að ofan, prjónið A.1 yfir 20 lykkjur á ermi (= 4 mynstureiningar með 5 lykkjum), aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við lykkju með prjónamerki í, prjónið A.1 yfir 40-40-40-50-50-50 lykkjur á bakstykki (= 8-8-8-10-10-10 mynstureiningar með 5 lykkjum), aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við lykkju með prjónamerki í, prjónið A.1 yfir 20 lykkjur á ermi, aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við lykkju með prjónamerki í, prjónið A.1 yfir næstu 20-20-20-25-25-25 lykkjur á framstykki og endið með 5 kantlykkjum í garðaprjóni.

Haldið áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig:
Aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við lykkjur með prjónamerki í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 6-6-6-8-8-10 sinnum (fyrsta útaukning hefur nú þegar verið prjónuð), aukið síðan um 1 lykkju hvoru megin við lykkjur með prjónamerki í annarri hverri umferð alls 8-8-8-9-9-10 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar aukið hefur verið alls út 14-14-14-17-17-20 sinnum eru 294-294-294-354-354-394 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 10-10-10-12-12-14 cm frá uppfitjunarkanti (mælt við miðju að framan). Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT heldur útaukningin áfram fyrir laskalínu og aukið er út um 1 lykkju hvoru megin við lykkjur með prjónamerki í annarri hverri umferð alls 0-7-12-4-13-12 sinnum og síðan í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 6-4-3-7-4-5 sinnum – LESIÐ LEIÐBEININGAR. Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 342-382-414-442-490-530 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 17-19-21-23-25-27 cm frá uppfitjunarkanti (mælt við miðju að framan).
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 52-57-61-67-73-78 lykkjur eins og áður (= hægra framstykki), setjið næstu 72-82-90-92-104-114 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-9-9-13-15 nýjar lykkjur á prjóninn (= hlið undir ermi), prjónið næstu 94-104-112-124-136-146 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 72-82-90-92-104-114 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-9-9-13-15 nýjar lykkjur á prjóninn (= á hlið undir ermi) og prjónið þær 52-57-61-67-73-78 lykkjur sem eftir eru eins og áður. Fram- og bakstykki og ermar eru síðan prjónað hvort fyrir sig. Takið prjónamerkin úr stykkinu. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 212-232-252-276-308-332 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju á 7-7-9-9-13-15 lykkjunum sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið prjónamerkin fylgja áfram með í stykkinu. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í hvorri hlið í garðaprjóni. Að auki er A.1 prjónað yfir miðju 5 lykkjur í hvorri hlið (lykkja með prjónamerki í er miðju lykkju í A.1). Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 6-6-6-5-5-4 cm millibili alls 5-5-5-6-6-7 sinnum = 232-252-272-300-332-360 lykkjur. Þegar stykkið mælist 32 cm er skipt yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Skiptið til baka yfir á hringprjón 3 og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 72-82-90-92-104-114 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki yfir á sokkaprjóna 3, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 7-7-9-9-13-15 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 79-89-99-101-117-129 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón hringinn, en yfir miðju 5 lykkjur undir ermi er prjónað A.1. Þegar stykkið mælist 3 cm í öllum stærðum er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona alls 9-13-17-17-23-28 sinnum í S: Í 10. hverri umferð, í M: Í 6. hverri umferð, í L og XL: Í 4. hverri umferð, í XXL: Í hverri umferð alls 4 sinnum og síðan í 3. hverri umferð alls 19 sinnum og í XXXL: Í hverri umferð alls 8 sinnum og síðan í annarri hverri umferð alls 20 sinnum = 61-63-65-67-71-73 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 33-32-31-28-27-26 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5, prjónið 6 umferðir með garðaprjóni hringinn. Skiptið aftur yfir á sokkaprjóna 3 og fellið af með sléttum lykkjum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-43

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Åsa wrote:

Hur ska de ökade maskorna stickas vid raglan? De passar ju inte in i mönstret?

16.07.2022 - 10:57

DROPS Design answered:

Hej Asa, de nye masker strikkes slätst till du har nok masker for at strikke mønster :)

02.08.2022 - 14:58

country flag ELENA CREMA wrote:

Buongiorno, per la taglia xl si inizia con 134 m, poi dopo le tre coste del bordo si aumentano 20 m per arrivare a 154 m. Poi però nelle spiegazioni sul giro successivo leggo che ci sono: 10 m del bordo a legaccio (5 m per lato), 25 + 25 m per i davanti, 50 m per il dietro e 20 + 20 m per le due maniche, totale 150, quindi mi mancano 4 maglie. Quindi dopo il bordo a legaccio del collo aumento solo 16 m invece di 20? Grazie per l'aiuto.

10.05.2020 - 23:23

DROPS Design answered:

Buongiorno Elena. Le 4 maglie, sono quelle con i segnapunti. Nelle indicazioni al paragrafo RAGLAN, trova indicato come aumentare e come lavorare queste maglie con i segnapunti . Buon lavoro!

11.05.2020 - 09:27

country flag Anna wrote:

Buongiorno,ho un bubbio i punti aumentati ai lati del segnapunti come faccio a farli entrare nel motivo? Grazie per la risposta!

27.08.2018 - 10:59

DROPS Design answered:

Buongiorno Anna. Lavora le maglia aumentate inizialmente a maglia rasata. Quando ha aumentato sufficienti maglie per lavorare il motivo, lavora le maglie come indicato nel diagramma, assicurandosi che il motivo prosegua correttamente . Buon lavoro!

27.08.2018 - 18:32

country flag Krista De Backer wrote:

Bij de meerderingen van de raglan: hoe brei je die juist volgens patroon? Bij de eerste meerdering zijn er 2 steken aan iedere kant: hoe in patroon breien? Bij de tweede meerdering zij er 4 steken aan iedere kant: hoe in patroon breien. Bij de derde meerdering zijn er 6 steken aan iedere kant: dan is er 1 steek te veel volgens patroon.

04.06.2018 - 19:46

DROPS Design answered:

Dag Krista, De gemeerderde steken brei je steeds in tricotsteek totdat er genoeg gemeerderd zijn om in patroon te breien. De steken die je te veel hebt, waardoor je niet in het patroontje kan breien, brei je dus in tricotsteek.

08.06.2018 - 12:55

country flag Wendy Koelemij wrote:

Hallo! U heeft mijn vraag niet goed begrepen; ik heb er 134. Maar in het patroon staat dat ik tussen de markeerdraden 2x 25+ 2x20+ 40 steken= 130 steken moet hebben. Ik heb er dan 4 teveel, toch?

31.05.2018 - 17:43

DROPS Design answered:

Dag Wendy, Aha, nu snap ik wat je bedoelt. Bij het plaatsen van de markeerdraden, plaats je deze in de steken en niet tussen 2 steken. Dus de 4 steken waar elk een markeerdraad in zit komen nog bij deze 130 steken op, waardoor je op 134 komt.

03.06.2018 - 19:58

country flag Wendy wrote:

Hallo! Ik brei dit vest in mt L. Na de verhoging heb ik 134 steken op de naald. Klopt dat? Toch zie ik dat ik na plaatsen van de markeerdraden 130 steken over moet hebben .2x 25 voorpand, 40 achterpand. 2x 20 mouwen. Waar zijn de 4 steken geminderd?

29.05.2018 - 22:35

DROPS Design answered:

Hallo Wendy, Voordat je begint met de verhoging heb je 134 steken op de naald en als je de verhoging (= verkorte toeren) hebt gebreid, moet je nog steeds 134 steken op de naald hebben. Misschien moet je even goed kijken of je tijdens het breien van de verhoging niet per ongeluk steken hebt geminderd.

31.05.2018 - 16:23

country flag Heidi wrote:

Gemäß Anleitung sollen für die Ärmel die stillgelegten Maschen auf Nadelspiel 2,5 gelegt bzw. gestrickt werden. Richtig wäre Nadelspiel 3. Erst der Abschluss soll in Krausrippen mit Nadelspiel 2,5 gestrickt werden.

17.04.2018 - 15:05

DROPS Design answered:

Liebe Heidi, danke für den Hinweis, Anleitung wird korrigiert. Viel Spaß beim stricken!

17.04.2018 - 15:58

country flag Claudie wrote:

Je n'arrive pas à effectuer les 2 augmentations de chaque côté du raglan, malgré plusieurs tentatives existe-il une vidéo pour cette technique, car toutes les vidéos que je trouve ne parle que d'une augmentation de chaque côté merci

15.10.2017 - 16:04

DROPS Design answered:

Bonjour Claudie, pour augmenter en relevant le fil, vous trouverez cette vidéo et pour augmenter avec 1 jeté, c'est celle-ci. Quand on augmente 2 m avant/après chaque marqueur, on va augmenter 16 m par rang. Bon tricot!

16.10.2017 - 09:51