DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7062.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Henrietta

Prjónaður bolero með stuttum umferðum, gatamynstri og garðaprjóni úr DROPS BabyMerino og DROPS Kid-Silk. Stærð XS – XXL.

DROPS 178-58
DROPS Design: Mynstur nr bm-033
Garnflokkur A + A eða C
----------------------------------------------------------

Stærð: XS/S - M/L - XL/XXL

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-200 g litur 05, ljós bleikur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
75-75-75 g litur 03, ljós bleikur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 34 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir).

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7062.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

STUTTAR UMFERÐIR:
Prjónið 6 umferðir yfir allar lykkjur. * Prjónið 30 lykkjur (fram að fyrsta prjónamerki), snúið við, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið 1 umferð yfir allar lykkjur, snúið við, prjónið 30 lykkjur (fram að öðru prjónamerki), snúið við, herðið á þræði og prjónið til baka. Prjónið 5 umferðir yfir allar lykkjur *, endurtakið frá *-*.
1 mynstureining með snúningum = 6 umferðir garðaprjón yfir miðju 35-48-62 lykkjurnar og 8 umferðir garðaprjón yfir lykkjur í hvorri hlið.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ATH! Í lok umferðar 10 í A.1 og í lok umferðar 11 í A.2 eru fitjaðar upp 5 nýjar lykkjur. Í umferð 13 í A.1 er einungis prjónað yfir fyrstu 13 lykkjur í mynsturteikningu, snúið við og prjónið 13 lykkjur til baka. Í umferð 12 í A.2 er einungis prjónað yfir fyrstu 13 lykkjur í mynsturteikningu, snúið við og prjónið 13 lykkjur til baka.
ATH! Snúningarnir í A.1 og A.2 verða til viðbótar í stuttu umferðunum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Uppfitjunarkanturinn eð neðan á annarri erminni og affellingarkanturinn er neðan á hinni erminni. Að lokum er stykkið brotið saman tvöfalt á lengdina og erma- og hliðarsaumar saumaðir.

BOLERO:
Fitjið upp 45-50-52 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar ermin mælist 2 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið, aukið út með 1 cm millibili alls 5 sinnum = 55-60-62 lykkjur. Þegar ermin mælist 10 cm eru fitjaðar upp 20-24-30 nýjar lykkjur í hvorri hlið við hægri hliðarsaum = 95-108-122 lykkjur. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 30 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 35-48-62 lykkjur á milli prjónamerkja). Prjónið frá réttu – þannig: A.1 yfir fyrstu 17 lykkjur, GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir næstu 61-74-88 lykkjur, A.2 yfir síðustu 17 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram í garðaprjóni í miðju og mynstur yfir síðustu 17 lykkjur í hvorri hlið, JAFNFRAMT eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan! Þegar stykkið mælist ca 58-74-82 cm (mælt í miðju á stykki, meðtöldum ermum) fellið af 20-24-30 lykkjur í hvorri hlið = vinstri hliðarsaumur = 55-60-62 lykkjur. Nú á að prjóna vinstri ermi. Haldið áfram í garðaprjóni, þegar stykkið mælist 2 cm á eftir affellingarkanti er felld af 1 lykkja í hvorri hlið, fellið af með 1 cm millibili alls 5 sinnum = 45-50-52 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist = 68-84-92 cm frá uppfitjunarkanti.

FRÁGANGUR:
Brjótið stykkið saman tvöfaldan – mynsturteikning með máli sýnir hvernig brjóta á flíkina saman. Saumið ermasauma og saumið saman 20-24-30 lykkjur í hvorri hlið.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-58

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (34)

country flag Barbara Marrs wrote:

Hi! Are the patterns of casting on 5 new sts at the end of row 10 in A.1 and the end of row 11 in A.2, and then working only the first 13 sts in row 13 in A.1 and the first 13 sts in row 12 in A.2, are these only done once, or are they repeated over and over at end and beginning of the A.1 and A.2 sequences until you come to the second sleeve? Thankyou so much!

25.04.2024 - 17:21

DROPS Design answered:

Dear Barbara, that casting on and the off those stitches form the peaks of the edging and done at every repeat of the A.1/A.2 patterns. Happy Knitting!

25.04.2024 - 23:10

country flag Barbara Marrs wrote:

Hi! The instructions say to work the first and last 17 sts with the A.1 and A.2 patterns. However, Row 1 for each of these patterns shows only 16 sts. What is done for the 17th stitch?\r\nThank you so much!

24.04.2024 - 17:47

DROPS Design answered:

Dear Barbara, Both pattern has 17 stitches. A.1 starts with a knit stitch, then K2TOGs and yarnovers, and finishes woth 4 knit stitches. A.2 is the mirror image of A.1. Happy Knitting!

24.04.2024 - 22:54

country flag Barbara Marrs wrote:

Hi! Once I have casted the new sts on each side of the sleeve and have inserted the 2 markers 30 sts in each side, do I begin the short rows with first knitting 6 rows over all the sts (starting the A1 and A2 patterns) and then the short return rows, followed by 5 rows over all sts, and then repeat the short return rows, then back to 5 rows over all, etc.? Thank you!

16.04.2024 - 17:03

DROPS Design answered:

Dear Mrs Mars, yes work first 6 rows over all stitches, then repeat from * to * for the short rows to the required measurements for your size. Happy knitting!

17.04.2024 - 08:24

country flag Tove Rosland wrote:

Hvor mange ganger skal man gjenta rapportene med forkortede omganger? I oppskriften virker det som det bare er én gjentakelse. Stemmer dette?

10.04.2024 - 19:59

DROPS Design answered:

Hei Tove. Forkortede pinner står forklart bare 1 gang (øverst i oppskriften), men det strikkes flere ganger. Antall ganger avhenger av hvilken str. du strikker / hvor mange cm det skal strikkes. mvh DROPS Design

15.04.2024 - 09:26

country flag Essi wrote:

Hei! Tein tuon boleron XL/XXL kokoisena. Neuloin ilman kid silk- lankaa. Ohjeen mukaan 200g lankaa ois pitänyt riittää, mutta se ei riittänytkään. Piti ostaa yks kerä lisää.

31.10.2023 - 09:25

country flag Dominique wrote:

Bonjour Drops design Je ne comprends pas bien comment faire sur les mêmes rangs le raccourci à 30 mailles et le raccourci à 13 mailles. J'ai fait un premier rang raccourci au sixième rang puis au douzième rang et c'est au rang de retour , le treizième que je ne sais comment faire le raccourci sur A1 Merci de votre réponse Cordialement

11.08.2023 - 20:58

DROPS Design answered:

Bonjour Dominique, tricotez les rangs raccourcis comme indiqué, autrement dit, après 6 rangs sur toutes les mailles, *tricotez 30 m, tournez, et tricotez ces 30 m à nouveau; tournez et tricotez toutes les mailles, tournez, tricotez 30 m, tournez, tricotez ces 30 m, tournez et tricotez 5 rangs sur toutes les mailles*, en même temps, tricotez les diagrammes A.1 et A.2 de chaque côté; les rangs raccourcis de A.1/A.2 sont indiqués dans les diagrammes, ils ne comptent pas dans le nombre de rangs des rangs raccourcis mais se font en plus. Bon tricot!

14.08.2023 - 08:43

country flag Carmen-Gabriela wrote:

Hallo nochmal, wenn ich (richtig?) falte, Umbruch gestrichelte Linie, so trifft doch Anfang A.1 auf Anfang A.2 = rechte Seitennaht und endet mit je letzter Reihe A.1 trifft wieder auf A.2 = li Seitennaht. So ist doch die Zackenborte unschön unterbrochen fürs Zus.nähen. Anfang A.1 auf Ende A.1 sowie 1 R. A.2 auf letzte R. A.2 wäre schön aber so kann man doch nicht falten/Seiten zus.nähen wegen der Ärmel^^? - Haben Sie einen Tipp?

10.05.2023 - 17:50

DROPS Design answered:

Liebe Carmen-Gabriela, schauen Sie mal die Skizze von diesem Modell, so sieht Ihr Strickstück mit A.1 und A.2 unten und oben aus, die Naht sind beidseitig, dh die Naht unter die Ärmel dann an den Seiten und dann die Seiten vom Bolero - die neuen Maschen zusammen. Viel Spa beim stricken!

11.05.2023 - 07:41

country flag Juliette wrote:

Merci, ça va être beaucoup plus simple. Bonne journée

21.04.2023 - 12:27

country flag Juliette wrote:

Merci pour votre réponse. J'ai une autre question, dans le diagramme du point fantaisie la case avec un - indique 1 m envers sur endroit, endroit sur envers mais je tricote au point mousse donc toutes mes mailles sont à l'endroit ??

20.04.2023 - 21:05

DROPS Design answered:

Bonjour Juliette, effectivement, les diagrammes A.1 et A.2 se tricotent au point mousse (endroit sur l'endroit et sur l'envers). Bon tricot!

21.04.2023 - 08:00

country flag Juliette wrote:

Bonjour, pouvez-vous m'expliquer le diagramme du modèle Henrietta DROPS 178-58. Où se trouve le début de la manche car si je monte 50 mailles cela me fait 30cm normalement ? Merci

18.04.2023 - 18:44

DROPS Design answered:

Bonjour Juliette, je vais faire vérifier le schéma de ce modèle qui ne semble pas correspondre; en revanche, si vous regardez celui-ci, vous retrouverez la forme générale du boléro: vous commencez par une manche sur le côté, montez les mailles des devants de chaque côté et tricotez les rangs raccourcis jusqu'à toute la longueur du dos, on rabat ensuite les mailles des devants et on termine par la 2ème manche. Bon tricot!

19.04.2023 - 07:45