DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 180-10
DROPS Design: Mynstur ee-616
Garnflokkur E eða C + C
-----------------------------------------------------------

Í allt settið þarf ca 200 g DROPS Snow.

EYRNABAND:
Stærð: Ein stærð
Breidd: ca 11 cm
Ummál: ca 54 cm

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
100 g litur 06, ólífa

HÁLSSKJÓL:
Stærð: Ein stærð
Breidd: ca 17 cm

DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
150 g litur 06, ólífa

DROPS PRJÓNAR NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 lykkjur og 15 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Eyrnaband: Sjá mynstureiningu A.1.
Hálsskjól: Sjá mynstureiningu A.2.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

STUTTAR UMFERÐIR:
Prjónaðar eru stuttar umferðir í hvorri hlið á hálsskjóli þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið fyrstu 6 lykkjur í garðaprjóni, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (= ranga): Herðið á þræði og prjónið garðaprjóns lykkjur yfir 6 lykkjur í garðaprjóni.
UMFERÐ 3: Prjónið yfir allar lykkjur.
UMFERÐ 4: Prjónið fyrstu 6 lykkjur í garðaprjóni, snúið stykkinu.
UMFERÐ 5: Herðið á þræði og prjónið garðaprjóns lykkjur yfir 6 lykkjur í garðaprjóni.
UMFERÐ 6: Prjónið yfir allar lykkjur.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

EYRNABAND:
Fitjið upp 17 lykkjur á prjón 8 með Snow.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 (= 9 lykkjur), 4 lykkjur í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áframa með A.1 með 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 54 cm – endið með síðustu umferð í A.1. Fellið laust af allar lykkjur. Saumið saman eyrnabandið mitt að aftan með lykkjuspori.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 24 lykkjur á prjón 8 með Snow.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu: 6 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.2 (= 12 lykkjur), 6 lykkjur garðaprjón. Prjónið A.2 með 6 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið og prjónið STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan – í 6. hverjum cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið 1 prjónamerki í lok næstu umferðar frá réttu þegar stykkið mælist 22 cm (hér er hálsskjólið saumað saman saman í lokin).
Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 76 cm í miðju á hálsskjóli – endið með síðustu umferð í A.2, fellið laust af allar lykkjur.

FRÁGANGUR:
Saumið affellingarkantinn á milli uppfitjunarkants og prjónamerkis sem var sett í hlið, þannig að það myndist horn við miðju að framan – saumið fallega kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 19.09.2017
Tákn í mynsturtexta leiðrétt

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðin af kaðlaprjóni
symbols = Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, 1 lykkja brugðin, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón fyrir aftan stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið af kaðlaprjóni
symbols = Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón fyrir aftan stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 180-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag KJW wrote:

Hello, I too am having problems with the pattenr for the headband. Per your response above, we are supposed to start from “bottom corner on the right side from RS and read from the right towards the left, read the WS rows from the left towards the right.” To confirm this means on the diagram for thr 9 st: we start with the bottom row with the 3 cables on it (RS) from the right and then the next row above it (WS) we begin on the left and P2, K2, P4, K1. Correct?

27.01.2024 - 19:03

DROPS Design answered:

Hi KJW, Yes, the first row is with cables, the second row from left to right and from the wrong side is P2, K4, P4, K2 . Happy knitting!

29.01.2024 - 06:41

country flag Sharon Hunt wrote:

Thanks for your response. Am still a bit confused. The instruction says to work the short rows over 6cm and that is how I ended up with 10 rows by counting my swatch height. So my question is do I begin the short rows every time I work a first row? The answer to this would help because the 6cm is confusing me. Thanks.

04.09.2022 - 23:39

DROPS Design answered:

Dear Sharon, start working the short rows as explained below. After working the 6 rows explained in the SHORT ROWS section, you work A.2 normally (alongside the edge stitches) and when the work measures 6 cm (or a multiple of it) work short rows again. Happy knitting!

04.09.2022 - 23:48

country flag Sharon Hunt wrote:

Hi, it seems like the short rows will be done on every 10th row. Is this correct? In this case the 10 row does not always end on the right side. Would it be ok to assume that one adjust the pattern so the short rows begin on the right side? Thanks so much for your help. Sharon

03.09.2022 - 12:14

DROPS Design answered:

Dear Sharon, short rows are worked at the start of rows 1 and 4, one from the right side and the other one from the wrong side, so that you have short rows both in the left and right sides of the garment. At the same time, you work A.2 only in the rows which have no short rows (so only in rows 3 (from the right side) and row 6 (from the wrong side)). You can check in the following video how to work short rows (without including A.2): https://www.garnstudio.com/video.php?id=438&lang=en. Happy knitting!

04.09.2022 - 23:10

country flag Sharon Hunt wrote:

Where would I start the short row pattern on neckwarmer? On the short row pattern, row 3 it says to knit over all stitches. Does this mean the stitches on the chart included. Thanks for your help.

02.09.2022 - 07:32

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hunt, start the short rows with row 1 from right side and work 2 rows over the first 6 stitches, then work 1 row on all sts (row 3) as before and now work 2 rows over the first 6 sts. Turn and work 1 row from WS as before. You have now worked 2 extra rows (1 ridge) on each side of the cable. Happy knitting!

02.09.2022 - 09:03

country flag Elly Meye wrote:

Wat is de functie van de verkorte naalden in de halswarmer van Drops 180-10? Als je de instructie volgt wordt de sjaal aan beide zijkanten iets ruimer dan het middelste kabeldeel. Het lijkt mij eigenlijk logischer om alleen de buitenrand van de halswarmer meer ruimte te geven en de binnenrand (= de halsrand) juist niet. Of begrijp ik de instructie verkeerd?

12.10.2020 - 16:55

DROPS Design answered:

Dag Elly,

Dit wordt waarschijnlijk gedaan omdat anders het gedeelte in ribbelsteek gaat samentrekken t.o.v. de kabel, zodat de halswarmer beter valt. Als je wilt dat de hij aan de halskant meer aansluit, zou je daar de verkorte toeren over kunnen slaan of minder verkorte toeren kunnen maken.

05.11.2020 - 09:36

country flag Erika Walzl wrote:

Das Stirnband habe ich bereits gestrickt. Dort stimmt alles. Ich habe kein Problem damit Strickschriften zu lesen.

08.10.2020 - 20:40

country flag Erika Walzl wrote:

= 2 Maschen auf eine Zopfnadel hinter die Arbeit legen, 2 Maschen links, 2 Maschen rechts von der Zopfnadel Laut Punkt 5 der Diagrammschrift soll man erst 2 Maschen links stricken, lt. Diagramm sind dort aber rechte Maschen. Es müssten also 2 links, zwei rechts, ... gestrickt werden und nicht 4 rechts und 4 links?

08.10.2020 - 16:26

DROPS Design answered:

Liebe Frau Walzl, ganz herzlichen Dank für den Hinweis, die Beschreibung wird korrigiert. Viel Spaß beim stricken!

09.10.2020 - 10:53

country flag Erika Walzl wrote:

Sorry, aber die Anleitung stimmt nach wie vor nicht. Das Diagramm passt nicht zur Strickschrift. Was ist denn nun richtig. Die Korrektur ist nicht sichtbar.

07.10.2020 - 20:54

DROPS Design answered:

Liebe Frau Walzl, könnten Sie uns bitte erklären, was hier nicht stimmt? Wenn Sie dieses Modell nach der Korrektur gedruckt haben, dann stimmt die Anleitung, sonnst drücken Sie am besten die Anleitung nochmal. Haben Sie diese Lektion gelesen?

08.10.2020 - 10:22

country flag Christian wrote:

Bjr à toutes et a tous voilà la clef du problémes il s agit tout simplement de reprendre A1 et de rajouter 1 maille au symbole central du premier rang et d inverser ensuite les données de ce symbole ( 2 end, 2 env) ensuite une maille en + au deux symboles sur le coté; bon tricot

24.12.2019 - 07:59

country flag Eila Sillman wrote:

Har stickat pannbandet och det gick bra, men nu när jag skulle sticka halsvärmaren, så stämmer det inte med mönstret, får avjgmaskor på där det ska vara räta. Har gjort om och om igen. Måste vara fel någonstans i beskrivningen eller dom täcken som visar hur man gör, gäller A.2 Blir snart tokig

15.12.2019 - 17:43