DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 14190.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 184-32
DROPS Design: Mynstur cm-069
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
750-900-1000-1100 g litur 03, beige

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 26 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 fyrir garðaprjón – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 14190.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, (prjónamerki), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring í ferning á sokkaprjóna/hringprjóna með byrjun frá miðju aftan á baki. Fellt er af fyrir handvegi, síðan heldur ferningurinn áfram út að fullri lengd. Síðan er prjnað áfram fram og til baka út í hvora hlið við miðju framan á peysu, en án útaukninga. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

PEYSA:
Fitjið upp 8-8-8-8 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með Cotton Merino.
Prjónið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1 alls 4 sinnum í umferð – lesið MYNSTUR að ofan. Skiptið yfir á hringprjón þegar aukið hefur verið nægilega út. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar öll mynsturteikning A.1 hefur verið prjónuð til loka eru 128 lykkjur í umferð. Setjið 4 prjónamerki án þess að prjóna þannig: Setjið fyrsta prjónamerkið í byrjun umferðar, setjið annað prjónamerki eftir 32 lykkjur, setjið þriðja prjónamerkið eftir 32 lykkjur og setjið fjórða prjónamerkið eftir 32 lykkjur, látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.
Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið * A.2 (= 2 lykkjur), A.3 yfir næstu 28 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 14 lykkjum) og A.4 (= 2 lykkjur) *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum í umferð. Þegar A.2/A.3/A.4 er lokið á hæðina eru 60 lykkjur á milli hverra prjónamerkja (= 240 lykkjur í umferð).
Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið * A.2 (= 2 lykkjur), A.3 yfir næstu 56 lykkjurnar (= 4 mynstureiningar með 14 lykkjum) og A.4 (= 2 lykkjur) *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum í umferð. Þegar A.2/A.3/A.4 er lokið á hæðina eru 88 lykkjur á milli hverra prjónamerkja (= 352 lykkjur í umferð).
Haldið svona áfram með mynstur – í hvert skipti sem mynsturteikning er endurtekin á hæðina eru prjónaðar 2 mynstureiningar fleiri af A.3 á milli A.2 og A.4 (= 8 fleiri mynstureiningar í umferð). Þegar ferningurinn mælist ca 36-38-40-42 x 36-38-40-42 cm (stillið af að næsta umferð sé prjónuð án þess að slá uppá prjóninn) fellið af fyrir handveg þannig: Fellið af fyrstu 38-42-44-46 lykkjur fyrir handveg, prjónið þar til 38-42-44-46 lykkjur eru eftir á undan fjórða prjónamerkinu, fellið af næstu 38-42-44-46 lykkjur fyrir handveg, prjónið fram að fyrsta prjónamerki. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 38-42-44-46 lykkjur yfir handveg og lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Haldið áfram með mynstur þar til A.3 hefur verið prjónað alls 3-4-4-4 sinnum á hæðina (nú er eftir 1-½-1-1 mynstureining á hæðina til loka á ferningnum). Prjónið nú fyrstu 22-10-22-22 umferðirnar eins og áður. Prjónið næstu umferð í mynstri, en hoppið yfir fyrstu 2 umferðir í A.2 og hoppið yfir síðasta uppsláttinn í A.4.
Næsta umferð í mynstri er prjónuð þannig: ATH: Hoppið yfir 2 fyrstu rúðurnar í A.2 og hoppið yfir síðustu rúðuna í A.4 – Prjónið frá fyrsta og öðru prjónamerki og setjið 141-155-169-169 lykkjur á þráð (= vinstra framstykki), prjónið að þriðja prjónamerki og setjið 141-155-169-169 lykkjur á þráð (= neðri kantur), prjónið að fjórða prjónamerki og setjið 141-155-169-169 lykkjur á þráð (= hægra framstykki), prjónið að fyrsta prjónamerki = 141-155-169-169 lykkjur í umferð (= kantur í hálsi). Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan, yfir þessar lykkjur.
Fellið laust af – lesið AFFELLING að ofan. Setjið 141-155-169-169 lykkjur af neðri kanti á hringprjón 4 og prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir þessar lykkjur, fellið laust af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Setjið 141-155-169-169 lykkjur á hringprjón 4,5. Byrjið frá réttu og prjónið þannig: Prjónið upp 3 lykkjur í hlið á garðaprjóni frá kanti í hálsi, prjónið A.5 (= 7 lykkjur) – lesið MYNSTUR að ofan, prjónið A:6 (= 14 lykkjur) alls 9-9-11-11 sinnum á breidd, prjónið A.7 (= 8 lykkjur) og prjónið upp 3 lykkjur í hlið á garðaprjóni frá neðri kanti = 147-161-175-175 lykkjur. Þær 3 lykkjur í hvorri hlið eru síðan prjónaðar í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur þar til A.5/A.6/A.7 hefur verið prjónað 2-2-2-2 sinnum á hæðina, prjónið fyrstu 0-0-0-12 umferðir í mynstri. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 4 umferðir garðaprjón, fellið laust af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Setjið 141-155-169-169 lykkjur á hringprjón 4,5. Prjónið eins og vinstra framstykki, en í fyrstu umferð er byrjað með að prjóna upp lykkjur í hlið á garðaprjóni frá neðri kanti og endað er með að prjóna upp lykkjur í hlið á garðaprjóni frá kanti í hálsmáli.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.
Fitjið upp 75-85-89-93 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með Cotton Merino. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, látið prjónamerkið fylgja áfram með = mitt undir ermi. Prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 30-35-37-39 lykkjur slétt, mynsturteikning A.8 (= 15 lykkjur), prjónið 30-35-37-39 lykkjur slétt. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚRTAKA að ofan. Fækkið lykkjum svona með 3-2½-2½-2½ cm millibili alls 14-17-18-19 sinnum = 47-51-53-55 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-49-54-54 cm – stillið af eftir 12. eða 24. umferð í mynstri, skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellið laust af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í. Lokið gati frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan, þræðið upp og niður í lykkjurnar, herðið að og festið vel.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat

symbols = vísað er í síðustu 2 umferðir í uppskrift
symbols = prjónstefna
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 184-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Lilli Saranpää wrote:

Tack för svaret. Jag förklarade otydligt. När det är 169 maskor på varje sida ska man börja med framstycket. när 4 rapporter finns på höjden, räknat från armhålet. Nu har jag redan 179 maskor på varje sida och saknar ännu fjärde rapporten. Jag har alltså inte ännu börjat med framochtillbaka- skedet. Jag har gjort alla hoptagningar. Annars skulle ju mönstret inte stämma. Vet inte hur jag ska fortsätta.

20.04.2023 - 18:27

DROPS Design answered:

Hej Lilli, har lidt svært ved at forstå nøjagtig hvor du er... men har du hoppet over omslagene i A.2 og A.4? Du bør kun have 169 masker når du fortsætter med A.5,A.6,A.7 som er helt uden udtagninger.

25.04.2023 - 15:42

country flag Lilli Saranpää wrote:

Hej Det ska stickas 4 rapporter av A3 efter armhålet. Avkastning på två sidor och stickning på två sidor. Nu har jag redan 179 maskor på varje sida fast jag inte har rapporterna färdiga. Vad gör jag fel?

16.04.2023 - 11:39

DROPS Design answered:

Det ska ökas 14 maskor i varje rapport med A.2/A.4. Kontrollera noggrannt att du gjort alla minskningar i diagrammen. Rutorna med svarta cirklar ska stickas avigt från rätsidan och räta från avigsidan.

20.04.2023 - 17:04

country flag Julie wrote:

Bonjour, Je n’arrive pas à trouver le single qui donne cette consigne dans le patron. faire 1 jeté entre 2 mailles, au rang suivant tricoter le jeté torse pour éviter un trou

07.11.2022 - 02:06

DROPS Design answered:

Bonjour Julie, vous retrouvez ce symbole au tout premier rang de A.1: vous tricotez ainsi: *1 m end, 1 jeté, 1 m end, 1 jeté*, et répétez de *-*; au tour suivant, (tricotez les jetés torse. Bon tricot!

07.11.2022 - 09:55

country flag Sabine wrote:

Would you be so kind putting this pattern in the Ravelry database? (somehow it was forgotten in this issue...)

15.11.2020 - 11:36

DROPS Design answered:

Dear Sabine, thanks for noticing! you will now find this pattern in Ravelry here. Happy knitting!

16.11.2020 - 10:31

country flag Joubert Patricia wrote:

Bonsoir ! merci pour votre réponse ; mais impossible d'enlever des favoris . J'ai suivi vos conseils , rien ne marche ! ce n'est pas grave . Merci encore .

11.09.2019 - 23:14

country flag Joubert Patricia wrote:

Bonjour ! j'ai réussi à ajouter dans mes favoris , bien que ce soit 1 carré et non 1 cœur à côté de "imprimer " ; mais je ne vois pas de croix sur les photos des favoris ???? Merci pour vos explications .

06.09.2019 - 20:33

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Joubert, en fonction du fond de la photo, il est possible que cette croix soit moins visible, car cette croix est légèrement grisée, en cliquant dans le coin à droite de la photo, vous pouvez le supprimez, n'hésitez pas à essayer sur un modèle avec un fond plus clair. Bon crochet!

09.09.2019 - 08:04

country flag Joubert Patricia wrote:

Bonjour ! comment ajouter 1 modèle dans mes favoris , et comment retirer 1 favori ? Merci pour tous vos jolis tricots .

06.09.2019 - 03:12

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Joubert, pour ajouter un modèle à vos favoris, cliquez sur le petit coeur à droite de l'icône pour imprimer, indiquez votre adresse mail, et "envoyer", vous verrez la liste de vos favoris s'afficher. Pour retirer un modèle de vos favoris, cliquez sur la croix en haut à droite de la photo dans la liste de vos favoris. Bon tricot!

06.09.2019 - 08:29

country flag Maria Carlsson wrote:

Hej! Jag igen, jag har läst igenom beskrivningen och blir inte klok. Fastnat i meningen ”När rutan mäter ca 36 cm *36 cm osv maskas det av för ärmhål” Det jag inte förstår är hur jag ska mäta rutan, hur, var mäter jag rutan? Antal maskor på varvet är 352 st, 20 m är 10cm, så varvet borde vara ca 176cm, hittar inga rutor att mäta, bara trianglar möjligtvis? Hoppas på hjälp, klarhet.

19.04.2019 - 16:16

DROPS Design answered:

Hej, arb får formen av en fyrkant. Du ska mäta längs fyrkantens raka sidor.

23.04.2019 - 14:30

country flag Maria Carlsson wrote:

Hej! Jag får inte ihop antal maskor med mönsterbeskrivningen. Det står att jag ska lägga upp 8-8-8-8 m dvs 32 maskor. diagram A1 börjar med två maskor, när jag sedan räknar alla ökningar, så blir bara ökningarna 120 m står att det ska bli 128m i slutet så vore mest logiskt att lägga upp 2-2-2-2 eller hur är det tänkt att jag ska göra, blir inte klok...

26.02.2019 - 09:19

DROPS Design answered:

Hej, du ska börja med att lägga upp 8 maskor i din storlek, sedan ökas det enligt diagram A.1 som upprepas totalt 4 gånger på varvet.

27.02.2019 - 14:29

country flag Andrea Stolpe wrote:

Also die anderen Anleitung lassen sich alle problemlos ausdrucken. Ich hab mehrere Drucker, und auf jedem druckt es nur die erste Seite. In der Druckvorschau zeigt es auch nur die erste Seite an :(

19.07.2018 - 11:56

DROPS Design answered:

Liebe Frau Stolpe, können Sie uns bitte sagen, welchen Browser/Betriebsystem Sie benutzen?

19.07.2018 - 14:40