DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6600.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Frosty's Christmas

Prjónuð peysa / jólapeysa með laskalínu og snjókalli, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Snow eða DROPS Wish.

DROPS 183-13
DROPS Design: Mynstur ee-597
Garnflokkur E eða C + C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
500-600-650-700-750-850 g litur 46, milligrár
50-50-50-50-50-50 g litur 01, natur
(þú þarft 50 g auka í lit 01 natur ef þú vilt hafa snjókall á bakstykki)
50-50-50-50-50-50 g litur 02, svartur
Afgangur af lit 07, appelsínugulur – fyrir nef
Afgangur af lit 05, turkos – fyrir trefil.

Eða notið:
DROPS WISH frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
400-450-450-500-550-650 g litur 7, milligrár
50-50-50-50-50-50 g litur 01, natur
(þú þarft 50 g auka í lit 01 natur ef þú vilt hafa snjókall á bakstykki)
50-50-50-50-50-50 g litur 06, dökkgrár
Afgangur af lit 11, tabasco- fyrir nef
Afgangur af lit 16, sæblár - fyrir trefil

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 lykkjur og 15 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 7 fyrir perluprjón – eða þá stærð sem þarf til að 12 lykkjur og 16 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6600.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning A.3 sýnir hnút.
Mynsturteikning A.2 (snjókall): Öll mynsturteikningin er prjónuð í sléttprjóni. Það er prjónað með 3 dokkur, þannig sleppur þú við löng hopp á röngu. Þ.e.a.s. prjónið með 1 dokku í litnum milligrár hvoru megin á peysu og 1 dokku með mynsturlit mitt í peysu. ATH: Til þess að koma í veg fyrir göt í litaskiptum verður að vefja þræðina um hvern annan

ÚTAUKNING (laskalína)
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið – það á að myndast gat.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan kantlykkju og prjónið 2 lykkjur slétt saman.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Framstykki, bakstykki og ermar er prjónað fram og til baka hvert fyrir sig. Þetta er gert til þess að auðveldara sé að prjóna mynstur. Síðan eru stykkin saumuð saman lykkju fyrir lykkju meðfram laskaútaukningu og í hliðum. Kantur í hálsmáli er prjónað í hring í lokin.

BAKSTYKKI (án snjókalls):
Fitjið upp 22-24-24-28-30-34 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 8 með litnum milligrár.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útaukning að ofan, í hvorri hlið. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING (laskalína) að ofan! Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 13-14-15-16-17-19 sinnum = 48-52-54-60-64-72 lykkjur – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið 4-4-4-2-2-2 umferðir án útaukninga. Stykkið mælist ca 20-21-23-23-24-27 cm. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Fitjið síðan upp 2-2-3-3-4-4 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok næstu 2 umferða = 52-56-60-66-72-80 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 30-29-30-31-32-30 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 2-2-2-0-2-2 lykkjur jafnt yfir = 54-58-62-66-74-82 lykkjur. Prjónið síðan þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 (= 4 lykkjur) þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til A.1 er lokið á hæðina. Fellið LAUST af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

BAKSTYKKI – með snjókalli:
Fitjið upp 22-24-24-28-30-34 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 8 með litnum milligrár. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN (sjá útskýringu að ofan) í hvorri hlið. Jafnframt í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING (laskalína) að ofan! Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 13-14-15-16-17-19 sinnum = 48-52-54-60-64-72 lykkjur – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! – JAFNFRAMT þegar 40-40-44-44-50-56 lykkjur eru eftir í umferð byrjar mynstur. Þ.e.a.s. í næstu umferð er prjónað þannig (meðtalin útaukning í hvorri hlið): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), 5-5-7-7-10-13 lykkjur slétt, MYNSTUR A.2 (= 26 lykkjur) – Lesið MYNSTUR að ofan, sjá myndband, prjónið 5-5-7-7-10-13 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 42-42-46-46-52-58 lykkjur. Haldið áfram með mynstur og útaukningu þar til það eru 48-52-54-60-64-72 lykkjur.

Prjónið 4-4-4-2-2-2 umferðir án útaukninga. Stykkið mælist ca 20-21-23-23-24-27 cm. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Fitjið nú upp 2-2-3-3-4-4 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok næstu 2 umferða = 52-56-60-66-72-80 lykkjur.

Haldið áfram í sléttprjóni og mynstur með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar A.2 er lokið á hæðina mælist stykkið ca 29-27-27-27-26-25 cm. Prjónið síðan með litnum milligrár eins og áður þar til stykkið mælist 30-29-30-31-32-30 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 2-2-2-0-2-2 lykkjur jafnt yfir = 54-58-62-66-74-82 lykkjur. Prjónið síðan þannig 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 (= 4 lykkjur) þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með A.1 til loka á hæðina. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 22-24-24-28-30-34 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 8 með litnum milligrár. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Í næstu umferð byrjar útaukning eins og á bakstykki. Haldið síðan áfram með útaukningu eins og á bakstykki – JAFNFRAMT þegar það eru 40-40-44-44-50-56 lykkjur í umferð byrjar mynstur. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig (meðtalin útaukning í hvorri hlið): Lesið MYNSTUR að ofan! Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), 5-5-7-7-10-13 lykkjur slétt, MYNSTUR A.2 (= 26 lykkjur), prjónið 5-5-7-7-10-13 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 42-42-46-46-52-58 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur, útaukning heldur áfram í hvorri hlið eins og á bakstykki = 48-52-54-60-64-72 lykkjur. Prjónið 4-4-4-2-2-2 umferðir án útaukninga. Stykkið mælist ca 20-21-23-23-24-27 cm. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Fitjið upp nýjar lykkjur fyrir handveg eins og á bakstykki = 52-56-60-66-72-80 lykkjur.
Haldið áfram í sléttprjóni og mynstur með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar A.2 er lokið á hæðina mælist stykkið ca 29-27-27-27-26-25 cm. Prjónið síðan með litnum milligrár. Haldið áfram eins og áður þar til stykkið mælist 30-29-30-31-32-30 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 2-2-2-0-2-2 lykkjur jafnt yfir = 54-58-62-66-74-82 lykkjur. Prjónið síðan þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 (= 4 lykkjur) þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram þar til A.1 er lokið á hæðina. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur.

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður.
Fitjið upp 10-12-12-12-10-8 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 8 með litnum milligrár. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – munið eftir ÚTAUKNING! Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 13-14-15-16-17-19 sinnum = 36-40-42-44-44-46 lykkjur. Prjónið 4-4-4-2-2-2 umferðir án útaukninga. Stykkið mælist ca 20-21-23-23-24-27 cm. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Fijtið síðan upp 2-2-3-3-4-4 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok næstu 2 umferða = 40-44-48-50-52-54 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA að ofan. Fækkið lykkjum svona með 7-5-4-3½-3½-3 cm millibili alls 6-8-9-10-10-11 sinnum = 28-28-30-30-32-32 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 41-40-39-39-39-37 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 2-2-0-0-2-2 lykkjur jafnt yfir = 30-30-30-30-34-34 lykkjur. Prjónið síðan þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 (= 4 lykkjur) þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið svona í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í við fram- og bakstykki – saumið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni – ATH! Passið uppá að saumurinn verði ekki stífur! Saumið sauma undir ermum – og hliðarsaum í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið saman op undir ermi.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp frá réttu 1 lykkju í hverja lykkju (= 56-64-64-72-72-76 lykkjur) á stuttan hringprjón 7. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8-12-12-16-16-16 lykkjur jafnt yfir = 48-52-52-56-56-60 lykkjur. Prjónið 3 umferðir hringinn eftir mynsturteikningu A.1 (= 4 lykkjur). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur.

NEF:
Fitjið upp 8 lykkjur með 2 þráðum í litnum appelsínugulur á prjón 7 (skiljið eftir ca 30 cm enda, hann er notaður í fyllingu í lokin). Prjónið síðan með 1 þræði.
Prjónið 1 umferð brugðið. Næsta umferð er prjónuð þannig: 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman, 5 lykkjur slétt = 7 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt = 6 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur slétt = 5 lykkjur. Klippið frá (skiljið eftir ca 30 cm enda, hann er notaður síðar í frágang), dragið endann í gegnum þær lykkjur sem eftir eru. Saumið saman hliðina og leggið löngu endana frá uppfitjuninni inn í nefið sem fyllingu. Saumið nefið saman mitt á höfuðið á snjókallinum.

TREFILL:
Fitjið upp 62 lykkjur á prjón 7 með litnum turkos. Prjónið 2 umferðir í sléttprjóni. Fellið af. Dragið trefilinn í gegnum peysuna við háls á snjókalli og upp að réttu í hinni hlið á hálsi. Hnýtið trefilinn saman með tvöföldum hnút á framhlið.

SNJÓR, TÖLUR OG AUGU:
Gerið 12 hnúta með litnum natur fyrir snjó og 5 hnúta með afgang af litnum svartur fyrir tölur og augu þannig: 1 hnútur: Klippið 1 þráð ca 40 cm. Gerið 4 hnúta utan um prjón 8 - sjá mynsturteikningu A.3 (þ.e.a.s. gerið 3 LAUSA hnúta, gerið 1 hnút til viðbótar og herðið á þræði á þessum hnút = 1 hnútur). Leggið hnútana yfir framstykki á peysu, dragið endana í gegn hvoru megin við lykkju á peysu og hnýtið á röngu – sjá mynd.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = natur
symbols = milligrár
symbols = svartur
symbols = prjónstefna
symbols = einfaldur hnútur
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Frosty's Christmas

TricotPR14, France

Frosty's Christmas

Valeri, Belgium

Frosty's christmas

Ilja, Netherlands

Christmas 2017

Elisabetta Ardagna, Italy

Christmas 2017

Maud Dubuisson, Belgium

Christmas 2017

Dinah Borchelt, Germany

Christmas 2017

@ablonde913, United Kingdom

Skrifaðu athugasemd um DROPS 183-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Anu Laaksolehto wrote:

Mallin ohjeen mukaan ostettu lanka loppui kesken, vaikka tehty ohjeen mukaan. Tarve olisi ollut yhdelle harmaalle kerälle.

10.12.2023 - 17:30

country flag SB Van Den Brink wrote:

Waar kan ik het telpatroon A3 vinden?

11.11.2022 - 16:56

country flag Raquel wrote:

Hola, me gustaría saber si este patrón se puede hacer con agujas rectas de una sola punta. Gracias

09.11.2021 - 19:17

DROPS Design answered:

Hola Raquel, se puede. Happy knitting!

10.11.2021 - 08:22

country flag Carmen wrote:

Hola, Hace unos días que la pàgina web no funciona del todo bien. No carga los patrones ni las fotos. He provado con diferentes navegadores, pero no funciona bien con ninguno. Es provisional? He comprado la lana que necesito para este modelo y me gustaría poder ver el patrón con sus fotos. Muchas grácias y un saludo cordial.

05.10.2021 - 10:44

DROPS Design answered:

Hola Carmen, esta situacion es provisional. Perdónanos, estamos tratando de arreglar esto.

05.10.2021 - 11:26

country flag Nikki B wrote:

If it’s knit from top down why is the snowman pattern A2 upside down ?? I think this might be confusing for some knitters

08.08.2021 - 00:26

country flag Erika wrote:

Lieve DD , die verhouding van mijn proeflap is 11 en1/2 steek . Met een lagere priemdikte = 6en1/2 statt 7 is het bekomen breisel iets te vast om goed te zijn . Wat beraadt u mij . Vriendelijke Groet van Erika

15.11.2020 - 18:34

DROPS Design answered:

Dag Erika,

Als je bij een naalddikte van 8 mm 11,5 steken in de breedte hebt, dan zou ik dat aanhouden. Kijk of je evt. wat minder steken op wilt zetten, zodat de breedte van de panden weer overeenkomen.

18.11.2020 - 12:15

country flag Sian Brown wrote:

I am working on a book on intarsia for Crowwod Press and would love to show the image of the cover of the pattern as an example of Christmas intarsia jumpers. Could you please let me know who to contact about this. Thnaks. Regards Sian.

20.03.2020 - 12:45

DROPS Design answered:

Dear Mrs Brown, can you please write us at media@garnstudio.com ? Thank you very much!

20.03.2020 - 14:40

country flag NicZwick wrote:

Guten Tag, wie ist das gemeint mit: 4-4-4-2-2-2 Reihen ohne Zunahmen stricken. Die Arbeit hat eine Länge von ca. 20-21-23-23-24-27 cm. DIE ARBEIT WIRD NUN AB HIER GEMESSEN! Nun am Ende der nächsten 2 Reihen, d.h. beidseitig, je 2-2-3-3-4-4 neue Maschen für die Armausschnitte anschlagen = 52-56-60-66-72-80 Maschen. Muss ich zuerst 4 Reihen stricken und dann noch zwei extra und erst in diesen die M für den Arm anschlagen? Mfg Nicole

17.02.2020 - 09:58

DROPS Design answered:

Liebe NicZwick, Sie stricken zuerst 4 Reihen dann am Ende der 2 nächsten Reihen schlagen Sie 2 neuen Maschen an. Viel Spaß beim stricken!

17.02.2020 - 12:46

country flag Karin wrote:

Hello, I'm not sure which size to choose, my height is 158cm and weight 59 and bust 90 but I want it to fit a little loose

10.11.2019 - 06:50

DROPS Design answered:

Dear Karin, for sizing please refer to the shcematics drawing at the bottom of the pattern, it has the measurements of the sweater. If you are unsure, take an existing sweater of yours that you find comfortable and compar the sizes givenon the drawing. Happy Knitting!

10.11.2019 - 10:55

country flag Kathrin wrote:

Bei mir fällt der Pullover mega-riesig aus. Ich habe Gr. L gestrickt mit Eskimo und Nadeln Nr. 8, die Hüftbreite war dann bei 73!!! cm (anstatt 53). Ich stricke nun Gr. S mit Nadelstärke 7 und hoffe, dass ich zu einem tragbaren Ergebnis komme. Ansonsten muss ich das ganze noch umrechnen... Die Größen sind wirklich sehr reichlich bemessen.

02.02.2019 - 12:30

DROPS Design answered:

Liebe Kathrin, stimmte Ihre Maschenprobe? mit 11 M = 10 cm, haben Sie dann 60 M vor dem Bündchen = ca 54 cm., etwas weniger mit A.1 und Nadeln Nr7. Viel Spaß beim stricken!

04.02.2019 - 14:46