DROPS Brushed Alpaca Silk uni colour 77% Alpakka, 23% Silki |
836.00 kr /25g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Brushed Alpaca Silk uni colour 77% Alpakka, 23% Silki 836.00 kr /25g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= loftlykkja | |
= fastalykkja á milli 2 stuðlahópa | |
= stuðull um loftlykkjuhringinn/loftlykkjuboga | |
= umferðin byrjar með 3 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð | |
= umferðin byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun umferðar | |
= 6 loftlykkjur, tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju – sjá punkt í hring, umferðin byrjar og endar hér |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
How To Be A Christmas Tree |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa / jólapeysa með jólatré, heklaðri stjörnu og dúskum. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Alpaca og DROPS Brushed Alpaca Silk og dúskum úr DROPS Snow.
DROPS 183-8 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. JÓLATRÉ: Jólatréð er prjónað í sléttprjóni með 1 þræði í litnum grænn/turkos Alpaca + 1 þræði í litnum skógargrænn Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir), aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður. Til að koma í veg fyrir langa þræði á bakhlið þegar mynstrið er prjónað er prjónað með 3 dokkum (með 2 þráðum). Þ.e.a.s. hafður er 1 þráður rauður Alpaca + 1 þráður rauður Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir) í annarri hlið á stykki, 1 þráður grænn/turkos Alpaca + 1 þráður skógargrænn Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir) í miðju á stykki og 1 þráður rauður Alpaca + 1 þráður rauður Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir) í annarri hlið á stykki. Til að koma í veg fyrir göt í litaskiptunum verður að vefja þræðina saman um hvern annan þegar skipt er um lit. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 72-76-82-90-98-106 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði í litnum rauður Alpaca + 1 þræði í litnum rauður Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 5 umferðir PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið sléttprjón með 3 lykkjum í perluprjóni í hvorri hlið á stykki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12-14-13-14-13-14 cm setjið 1 prjónamerki í hvora hlið sem merkir klauf. Í næstu umferð frá réttu er mynstur prjónað þannig: UMFERÐ 1-3: Prjónið 3 lykkjur í perluprjóni, prjónið 8-10-11-15-17-21 lykkjur í sléttprjóni, prjónið 50-50-54-54-58-58 lykkjur JÓLATRÉ – sjá útskýringu að ofan, prjónið 8-10-11-15-17-21 lykkjur í sléttprjóni og 3 lykkjum í perluprjóni. UMFERÐ 4-5: Prjónið 3 lykkjur í perluprjóni, prjónið 9-11-12-16-18-22 lykkjur í sléttprjóni, prjónið 48-48-52-52-56-56 lykkjur jólatré (= 2 lykkjur færri á jólatré), prjónið 9-11-12-16-18-22 lykkjur í sléttprjóni og 3 lykkjur í perluprjóni. UMFERÐ 6-8: Prjónið 3 lykkjur í perluprjóni, prjónið 10-12-13-17-19-23 lykkjur í sléttprjóni, prjónið 46-46-50-50-54-54 lykkjur jólatré (= 2 lykkjur færri á jólatré), prjónið 10-12-13-17-19-23 lykkjur í sléttprjóni og 3 lykkjur í perluprjóni. Endurtakið síðan umferð 4-5, en í hvert skipti eru prjónaðar 2 lykkjur færri á jólatré. Þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm fellið af 3 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 66-70-76-84-92-100 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, með 3 lykkjur í perluprjóni í hvorri hlið. Þegar eftir eru 2 lykkjur jólatré eru prjónaðar 3 umferðir yfir þær. Stykkið mælist ca 51-53-55-56-58-59 cm. Prjónið síðan með 1 þræði í litnum rauður Alpaca + 1 þræði í litnum rauður Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir) yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm setjið miðju 16-18-18-20-20-20 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af í hverri umferð frá hálsmáli þannig: 2 lykkjur 2 sinnum = 21-22-25-28-32-36 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI: Fitjið upp 72-76-82-90-98-106 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði í litnum rauður Alpaca + 1 þræði í litnum rauður Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 5 umferðir í perluprjóni. Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið sléttprjón með 3 lykkjur perluprjón í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 12-14-13-14-13-14 cm er sett 1 prjónamerki í hvora hlið sem merkir klauf. Haldið áfram í sléttprjóni og perluprjóni. Þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm fellið af með 3 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 66-70-76-84-92-100 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 3 lykkjur í perluprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm fellið af miðju 22-24-24-26-26-26 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 21-22-25-28-32-36 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 31-32-34-35-36-37 lykkjur á sokkaprjón 5,5 með 1 þræði í litnum rauður Alpaca + 1 þræði í litnum rauður Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 5 umferðir perluprjón. Skiptið yfir á sokkaprjón 6 og setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = mitt undir ermi. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 7-7-6-6-6-7 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING að ofan. Aukið svona út með 6½-5½-5½-4½-3½-3 cm millibili alls 7-8-8-9-10-11 sinnum = 45-48-50-53-56-59 lykkjur. Þegar stykkið mælist 49-48-47-45-43-41 cm fellið af 6 lykkjur mitt undir ermi (= 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið smá ermakúpu fram og til baka í sléttprjóni. Fellið af lykkjur í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fellið af 4-4-5-5-6-6 lykkjur 2 sinnum, fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Stykkið mælist ca 51-50-49-47-45-43 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið hliðarsaum niður að klauf. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 60-68 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 5,5 með 1 þræði í litnum rauður Alpaca + 1 þræði í litnum rauður Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 60-66-66-66-68-68 lykkjur. Prjónið perluprjón hringinn í 5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. STJARNA: Heklið 6 loftlykkjur með heklunál 3 með litnum sinnepsgulur Alpaca og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Haldið áfram hringinn með mynstri eftir mynsturteikningu A.1. Þegar A.1 er lokið er klippt frá og endi festur. Stjarnan mælist ca 6 cm að þvermáli. LJÓSAKEÐJUR: Klippið 4 langa þræði í litnum sinnepsgulur Alpaca og heklið með öllum 4 þráðum með heklunál 6 þannig: Heklið eina loftlykkjuumferð ca 9 cm (skiljið eftir ca 10 cm þráð bæði í byrjun og í lok loftlykkjuumferðar, þessir þræðir eru notaðir í frágang). Heklið síðan snúru 16 cm, 22 cm og 23 cm á sama hátt. DÚSKUR: Gerið 5 dúska með Snow ca 5 cm að þvermáli (skiljið eftir ca 10 cm af þráðarenda, þessir endar eru notaðir í frágang). FRÁGANGUR: Sjá mynd. Saumið stjörnuna fasta efst á tréð með smáu, fínu spori. Leggið 4 ljósakeðjurnar jafnt yfir niður þversum yfir tréð, með stystu keðjuna efst. Deilið þráðarendanum í tvennt, dragið þá í gegn hvoru megin við lykkju og út á bakhlið á flíkinni. Hnýtið fastan hnút á bakhlið og klippið afganginn frá. Gerið það sama við allar keðjurnar. Festið 3 dúska í aðra hliðina á trénu og 2 dúska í hina hliðina á trénu. Festið þá yfir enda á hverri ljósakeðju. Festið 1 jólakúlu í efstu ljósakeðjuna, 2 jólakúlur í næstu ljósakeðju, 3 jólakúlur í næstu ljósakeðju og 4 jólakúlur í neðstu ljósakeðju. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6939 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (7)
COENS wrote:
Ce modèle est très facile à tricoter sauf qu' au premier lavage à froid le pull pour adulte est devenu pull pour poupée. La laine est défectueuse. Malheureusement ce n'est pas la seule laine. J'en ai achetée d une autre couleur et j'ai eu le même résultat. Malheureusement pour moi, je n'ai pas gardé les bons de livraison donc je ne peux pas faire de réclamation.
15.01.2020 - 15:30DROPS Design answered:
Bonjour Mme Coens, nous sommes désolés de lire vos mésaventures - Brushed Alpaca Silk se lave à 30°, pas à froid, si l'eau que vous avez utilisé était trop froide, elle a également pu faire feutrer la laine - rappelez-vous de bien lire les indications de l'étiquette (disponibles sur le nuancier) ainsi que ces généralités, en cas de doute, votre magasin DROPS saura toujours vous répondre, même par mail ou téléphone. Happy knitting!
15.01.2020 - 15:48Brigitta Schmidt wrote:
Kann ich die Wolle für den Weihnachtsbaumpullover und die Anleitung bei Ihnen bestellen?
07.12.2019 - 14:11DROPS Design answered:
Liebe Frau Schmidt, hier finden Sie einen DROPS Händler - Onlineshop sowie Läden. Die Anleitung können Sie einfach frei drucken. Vile Spaß beim stricken!
09.12.2019 - 08:20Karin wrote:
Hello I have an issue, I bought the yarn and the needles recommended, I wanted size medium but the dimensions were way too smaller than in the description so I decided to make L size and it is equal a S, what can I do in this case? Why is becoming so small? Am I doing something wrong?
16.11.2019 - 02:15DROPS Design answered:
Dear Karin, since everybody knits and crochets soewhat differently, it is very important that you always check your gauge. If your result is to small you are probably work to thightly and in this case you should use bigger needles / hooks than the recomended size. Happy crafting!
16.11.2019 - 07:51Monika Opočenská wrote:
Dobrý den,\\\\r\\\\nbohužel jsem upletla přední stranu podle návodu a asi celou špatně. Píše se, opakujte 4-8. řadu ( o 2 oka vánočního stromečku méně). Zároveň se ve 4.řadě plete o 2 oka vánočního stromečku méně a v 6.řadě taktéž o 2 oka vánočního stromečku méně. Z toho mi vyplývá, že na 4-8.řadu je celkem o 4 oka vánočního stromečku méně. Prosím o dodatečné vysvětlení, jak jsem to měla plést? Děkuji
23.09.2018 - 19:54Sabrina wrote:
Hallo, I like this pattern so much! I would like to knit a jumper with a subject "coming out". But I would like to knit something not strictly related to Christmas. I have also seen another (similar) project with a snow man. Are you planning to publish another pattern with a different subject? Thanks
21.03.2018 - 23:15DROPS Design answered:
Dear Sabrina, your request have been forwarded our design team. Sign up our newsletter and/or follow us on Facebook to not miss any new pattern. Happy knitting!
06.04.2018 - 09:31Jane wrote:
The instructions for the front say "Repeat rows 4-8 but every time work two stitches less of Christmas tree." This is wrong - should it be 'repeat rows 6-8' OR 'every time work four stitches less of Christmas tree'. I've tried to zoom in to the photo to see if it is three rows before each decrease or two and three alternating, but I just can't see. Could you confirm please?
15.12.2017 - 18:16DROPS Design answered:
Dear Jane, when repeating row 4-8 work 2 sts less on Christmas tree, ie on next both rows work only 44 sts for the Christmas tree, then on next both rows work 42 sts for the Christmas tree and so on, and at the same time work 1 more st red on each side of Christmas tree. Happy knitting!
18.12.2017 - 08:03Esther Van De Geijn wrote:
Hallo, ik ben groot fan van jullie patronen! Maar nu heb ik sinds een paar jaar een breimachine en zou ik graag een aantal patronen voor de machine vinden. Hebben jullie die ook? Of zouden jullie die willen maken? Ik merk dat het aantal machinebreisters weer aan het groeien is, dus dit zou een goede markt zijn. :-)
12.12.2017 - 10:24DROPS Design answered:
Hallo Esther, Er zijn op dit moment geen plannen om patronen voor de breimachine te publiceren, maar bedankt voor je tip. Het is doorgegeven aan de afdeling design!
13.12.2017 - 18:08