DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 924.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Odeta Pants

Settið samanstendur af: Prjónuðum stuttbuxum og tátiljum fyrir börn með gatamynstri og garðaprjóni. Stærð fyrirburar - 4 ára. Settið er prjónað úr DROPS BabyMerino.

DROPS Baby 31-4
DROPS Design: Mynstur bm-083-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:
Stærð: (<0) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2) ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
(40/44) 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92)
Lengd fótar: (8) 9-10-11-12 (14) cm

Efni:
DROPS BABYMERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
(50) 100-100-100-100 (100) g litur 43, ljós sægrænn

-----------------------------------------------------------

STUTTBUXUR:
Stærð: (<0) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
(40/44) 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS BABYMERINO frá Garnstudio
(50) 50-50-50-50 (100) g litur 43, ljós sægrænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 48 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferð með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HEKLUNÁL NR 2,5 – fyrir snúru
----------------------------------------------------------

TÁTILJUR:
Stærð: (<0) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Lengd á fæti: (8) 9-10-11-12 (14-16) cm

Efni:
DROPS BABYMERINO frá Garnstudio
(50) 50-50-50-50 (50-50) g litur 43, ljós sægrænn

DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 51 umferð með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 924.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Buxur: Sjá mynsturteikningu A.1.
Tátiljur: Sjá mynsturteikningu A.2 og A.3.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um buxur):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í hlið, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið 4 lykkjur (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), aukið svona út við bæði prjónamerkin (= alls 4 lykkjur fleiri).
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

STUTTBUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

STUTTBUXUR:
Fitjið upp (80) 96-96-112-112 (128) lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með BabyMerino. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= miðja að aftan). Prjónið stroff frá miðju að aftan þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til eftir eru 3 lykkjur, endið með 2 lykkjum brugðið og 1 lykkju slétt.
Þegar stroffið mælist (2) 2-2-3-3 (3) cm prjónið gataumferð fyrir snúru í næstu umferð þannig: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
Prjónið 1 umferð stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið.
Prjónið síðan upphækkun í stroff, að aftan þannig: Prjónið (7) 9-9-9-9 (9) lykkjur, snúið, herðið á þræði, prjónið (14) 18-18-18-18 (18) lykkjur til baka, snúið, herðið á þræði, prjónið (20) 24-24-24-26 (26) lykkjur, snúið, herðið á þræði, prjónið (26) 30-30-30-34 (34) lykkjur til baka, snúið, herðið á þræði, prjónið (32) 36-36-36-42 (42) lykkjur, snúið, herðið á þræði, prjónið (38) 42-42-42-50 (50) lykkjur til baka.
Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið (6) 6-6-6-8 (8) lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls (62) 66-66-66-82 (82) lykkjur. Snúið, herðið á þræði, prjónið síðan stroff hringinn aftur yfir allar lykkjur.
Þegar stykkið mælist (4) 4-5-5-5 (5) cm við miðju að framan er skipt yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um (10) 14-10-22-14 (26) lykkjur jafnt yfir = (70) 82-86-90-98 (102) lykkjur. Í næstu umferð er sett 1 prjónamerki í hvora hlið á stykki þannig: Prjónið (17) 20-21-22-24 (25) lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, setjið 1 prjónamerki (= hálft bakstykki), prjónið (35) 41-43-45-49 (51) lykkjur garðaprjón, setjið 1 prjónamerki (= framstykki), prjónið (18) 21-22-23-25 (26) lykkjur garðaprjón (= hálft bakstykki). Stykkið er nú prjónað áfram í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin í hvorri hlið á stykki (= 4 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út í hverjum cm alls (6) 7-8-11-11 (14) sinnum, síðan eru auknar út 2 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð = (96) 112-120-136-144 (160) lykkjur. Þegar stykkið mælist (10) 12-14-16-17 (19) cm, stillið af að síðasta umferð er prjónuð brugðið, prjónið mynstur A.1 yfir allar lykkjur (= alls (12) 14-15-17-18 (20) sinnum á breidd). Þegar A.1 hefur verið prjóna 1 sinni á hæðina, prjónið stykkið til loka í garðaprjóni.
Þegar stykkið mælist (15) 17-19-21-22 (24) cm, fellið af lykkjur fyrir skálmar þannig: Fellið af fyrstu (41) 49-53-61-63 (71) lykkjur, prjónið (14) 14-14-14-18 (18) lykkjur, fellið af síðustu (41) 49-53-61-63 (71) lykkjur = (14) 14-14-14-18 (18) lykkjur eftir. Klippið frá. Nú er stykkið prjónað áfram fram og til baka. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í ca (2) 2-2-3-4 (5) cm yfir lykkjur á prjóni. Fellið af. Saumið garðaprjón við affellingarkant á bakstykki, mitt í ystu lykkjubogana.

SNÚRA:
Heklið snúru þannig: Heklið loftlykkjur með heklunál 2,5 með BabyMerino í 75-80-85-90-95 cm, snúið og heklið 1 keðjulykkju til baka í hverja loftlykkju. Klippið frá og festið enda. Þræðið snúruna út og inn í gegnum gataumferðina (byrjið og endið við miðju að framan).
----------------------------------------------------------

TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tátiljurnar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður, þ.e.a.s. fyrst er stroffið prjónað á tátiljuna, síðan fóturinn.

TÁTILJA:
Fitjið upp (36) 38-40-44-48 (52-56) lykkjur á hringprjón 2,5 með BabyMerino.
Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN - lesið útskýringu að ofan, A.2 (= 2 lykkjur) þar til 1 lykkja er eftir og prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: Prjónið (2) 3-0-2-0 (2-0) lykkjur sléttprjón, A.3 (= 8 lykkjur) alls (4) 4-5-5-6 (6-7) sinnum á breidd og endið með (2) 3-0-2-0 (2-0) lykkjur sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað A.2 þannig: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, A.2 þar til 1 lykkja er eftir og prjónið 1 lykkju í garðaprjóni (snúra er þrædd í gegnum þessa gataumferð í lokin).
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og fækkið um (6) 8-6-6-6- (10-14) lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð frá réttu = (30) 30-34-38-38 (42-42) lykkjur. Klippið frá.
Setjið nú fyrstu (11) 11-12-13-13 (15-15) lykkjur og síðustu (11) 11-12-13-13 (15-15) lykkjurnar á sitt hvorn þráðinn. Stykkið er nú prjónað í garðaprjóni til loka. Prjónið (3) 3½-4-4½-5½ (6½-8) cm, yfir miðju (8) 8-10-12-12 (12-12) lykkjurnar (= mitt ofan á tátilju), klippið frá.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið til baka lykkjur af þræði í annarri hlið á hringprjóninn, prjónið upp (7) 9-10-11-13 (16-21) lykkjur í ystu lykkjubogana meðfram hlið á miðju stykki, prjónið (8) 8-10-12-12 (12-12) lykkjur á prjóni (= fram), prjónið upp (7) 9-10-11-13 (16-21) lykkjur í ystu lykkjubogana meðfram annarri hlið á miðju stykki og prjónið til baka lykkjur frá seinni þræði á hringprjóninn = (44) 48-54-60-64 (74-84) lykkjur í umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið alls (2½) 3-3-4-5 (5-5) cm garðaprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT þegar prjónaðar hafa verið ca (1) 1½-1½-2-3 (3-3) cm, setjið 1 prjónamerki (22) 24-27-30-32 (37-42) lykkjur inn (= mitt á tátilju). Fækkið nú lykkjum í annarri hverri umferð til loka þannig:
Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið næstu 4 lykkjurnar 2 og 2 slétt saman (= 2 lykkjur færri), prjónið sléttar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 1 lykkju slétt (= 4 lykkjur færri í annarri hverri umferð) = ca (32) 36-42-48-52 (62-72) lykkjur.
Fellið af og saumið saum undir fæti og upp meðfram miðju að aftan í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur.

Prjónið aðra tátilju á sama hátt.

SNÚRA:
Heklið snúru þannig: Heklið loftlykkjur með heklunál 2,5 með BabyMerino í ca 30-40 cm, snúið og heklið 1 keðjulykkju til baka í hverja loftlykkju. Klippið frá og festið enda.
Þræðið snúruna út og inn í gegnum gataumferð á tátilju (byrjið og endið við miðju framan á tátilju).

----------------------------------------------------------
Sjá peysu DROPS Baby 31-3
----------------------------------------------------------

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 24.04.2019
Leiðrétting: SNÚRA:..Heklið loftlykkjur með heklunál 2,5 með BabyMerino í 75-80-85-90-95 cm, snúið og heklið 1 keðjulykkju til baka í hverja loftlykkju.
Yfirfarið á vefsvæði: 10.05.2023
TÁTILJA:...Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og fækkið um (6) 8-6-6-6- (10-14) lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð frá réttu...
Yfirfarið á vefsvæði: 08.11.2023
Þegar mynstur A.2 er prjónað í tátilju, er fyrsta og síðasta lykkja prjónuð í garðaprjóni.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, bruðið frá röngu
symbols = slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
symbols = 2 lykkjur slétt saman

symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
symbols = prjónstefna
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 31-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (41)

country flag G. Hoogeboom wrote:

Leuke patronen, maar vaak onduidelijke uitleg. Helaas ook altijd weer dat rondbreien, wat ikzelf zwaar irritant breien vind, ook met rondbreinaalden, omdat je altijd weer een andere lengte nodig hebt. T zou fijn zijn, als er ook eens rekening gehouden zou worden, met beginnende breiers, ik ben geen beginner, maar zelfs ik snap t vaak niet.

06.11.2018 - 12:59

country flag Gerlinda Hoogeboom wrote:

Ik ben met t broekje bezig, maar zit even te martelen op het punt van de verdeling met markeerdraden. Het middenvoor heb ik maar uitgeteld, omdat het daar 5 cm hoog moet zijn voor mijn maat. Maar het verdelen vind ik raar beschreven. Vanaf waar begin je nu met verdelen? Wat wordt t begin van de naald nou, m.a of m.v? Ik had graag het hele setje af willen hebben voor mn kleindochters eerste verjaardag, maar ben bang dat dit m niet gaat worden.

06.11.2018 - 12:54

DROPS Design answered:

Dag Gerlinda,

Je breit steeds van midden achter naar midden achter in de rondte, dus bij het plaatsen van markeerdraden begin je ook te tellen vanaf midden achter. Als je vanaf het begin een markeerdraad invoegt aan het begin van de naald (zoals aangegeven in het patroon) kun je makkelijker zien waar het begin van de naald is.

07.11.2018 - 15:18

country flag Gerlinda Hoogeboom wrote:

Ik ben met Odette broekje bezig. Ik heb helaas al de pech, dat ik diverse naalden geprobeerd heb, maar geen juiste steken verhouding krijg, iets wat mij met origineel garen nooit eerder is gebeurd. Maar ik gok t er op. Maar wil even voor alle zekerheid navragen, of je vanaf midden voor, begint tetellen, om het werk verdelen met markeerdraad, lijkt mij wel. Dit omdat er nergens eerde een midden voor wordt aangegeven.

04.11.2018 - 15:28

DROPS Design answered:

Dag Gerlinda,

Nee, je begint de naald steeds midden achter, ook wanneer je maarkeerdraden plaatst. (Je meet het werk wel midden voor, omdat er aan de achterkant een verhoging gebreid is.

04.11.2018 - 19:59

country flag Gerlinda Hoogeboom wrote:

Op de foto heeft het kindje ook een bijpassend hesje, vestje of bolero aan. Is hier ook een gratis breipatroon van? Ik wil het namelijk voor de 1e verjaardag van mijn jongste kleindochter breien.

10.10.2018 - 10:39

DROPS Design answered:

Dag Gerlinda Hoogeboom, Het vestje vind je in dit patroon. Veel breiplezier!

11.10.2018 - 16:32

country flag EJ wrote:

Hello,\r\nI\'m currently working on this in size 0/1 months and have a question about elevation. \r\nYour video shows the technique with stockinette stitch, and when I try to apply it to the rib stitch as needed in this pattern, I end up with holes and twisted stitches. Could you help me figure out how to do the elevation in rib stitch?\r\nThank you in advance!

18.06.2018 - 06:44

DROPS Design answered:

Dear Ej, when working the elevation in rib, just work sts K over K and P over P on next row from WS. Turn, and tighten the thread before working 1st st at the beg of next row, make sure to not twist the sts when working them. Happy knitting!

18.06.2018 - 09:39

country flag Inger Marie Ihsan wrote:

Hei! Hva menes med beskrivelsen "øk slik på hver cm totalt (14) ganger, deretter økes det 2 masker jevnt fordelt på neste omgang". At man skal øke med ytterligere 4 masker pr omgang for hver cm man strikker i høyden?

09.05.2018 - 23:43

DROPS Design answered:

Hei Inger Marie, Du har forstått det riktig. Du skal øke 4 masker hver høyde-cm 14 ganger og deretter 2 masker på neste omgangen. God fornøyelse!

11.05.2018 - 08:06

country flag Lena wrote:

Hej! Innan mönsterstickning står att arbetet ska mäta 12 cm (1-3 mån). Ska det måttet vara mätt framifrån eller bakifrån arbetet?

22.04.2018 - 19:59

DROPS Design answered:

Hej Lena, du mäter mitt fram. Lycka till :)

24.04.2018 - 11:49

country flag Marian wrote:

Tengo que rematar para las piernas. Estoy haciendo el tamaño 6/9 meses por tanto tengo 136 puntos en total. si remato, como pone en el patrón 61 puntos, tejo 14, remato 61 y 14 restantes suman 150 puntos.\r\nPor otro lado imagino que los 14 puntos tienen que estar centrados por lo que no se puede empezar remantando sino tejiendo 7 puntos y luego rematar, tejer 14 y rematar y tejer los últimos 7puntos.\r\n

05.04.2018 - 11:57

DROPS Design answered:

Hola Marian, los 14 puntos restantes son los 14 puntos centrales trabajados. 136-61-61= 14

08.04.2018 - 18:52

country flag Marian wrote:

La última parte del patrón del pantalón, cuando hay que rematar para las piernas, creo que tiene errores o yo no lo entiendo.

01.04.2018 - 19:55

DROPS Design answered:

Hola Marian. ¿Puedes especificar qué problema tienes?

04.04.2018 - 23:19

country flag Tineke Van Rijn-Smits wrote:

Sorry voor mijn vraag van net ... ik zie het aan het broekje gerelateerde patroon al. Tineke van Rijn-Smits

10.03.2018 - 16:27