DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 188-38
DROPS Design: Mynstur w-673
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S /M – L/XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-300-300 g litur 16, hvítur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Síðan er prjónaður kantur hringinn.

BOLERO:
Fitjið upp 105-117-129 lykkjur á hringprjón 5 með Paris.
Prjónið 4 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 yfir næstu 96-108-120 lykkjur (= 16-18-20 mynstureiningar), 1 lykkja sléttprjón og 4 lykkjur garðaprjón. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram þannig: 4 lykkjur garðaprjón, A.2 yfir næstu 96-108-120 lykkjur (= 8-9-10 mynstureiningar á breidd), 1 lykkja sléttprjón, 4 lykkjur garðaprjón. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram þannig: 4 lykkjur garðaprjón, A.1 yfir næstu 96-108-120 lykkjur, 1 lykkja sléttprjón og 4 lykkjur garðaprjón.
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað þannig: 4 lykkjur garðaprjón, A.3A yfir fyrstu 5 lykkjur, endurtakið A.3B yfir næstu 84-96-108 lykkjur (= 14-16-18 sinnum), A.3 C yfir næstu 8 lykkjur og endið með 4 lykkjur garðaprjón.
Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram með A.4 A-C yfir lykkjur í A.3 A-C. Prjónið A.4 1-2-3 sinnum á hæðina. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er prjónað þannig: 4 lykkjur garðaprjón, A.1 yfir næstu 96-108-120 lykkjur, 1 lykkja sléttprjón og 4 lykkjur garðaprjón, JAFNFRAMT í síðustu umferð í A.1 er aukið út um 4-2-0 lykkjur jafnt yfir = 109-119-129 lykkjur. Prjónið síðan þannig: 4 lykkjur garðaprjón, A.5 yfir næstu 100-110-120 lykkjur (= 10-11-12 mynstureiningar á breidd), 1 lykkja sléttprjón og 4 lykkjur garðaprjón. Í síðustu umferð í A.5 er fækkað um 4-2-0 lykkjur jafnt yfir = 105-117-129 lykkjur. Prjónið 4 lykkjur garðaprjón, A.1 yfir næstu 96-108-120 lykkjur, 1 lykkja sléttprjón og 4 lykkjur garðaprjón.

Nú mælist stykkið ca 46-50-54 cm. Prjónið síðan frá réttu þannig: Prjónið 1 umferð sléttprjón, ekki snúa stykkinu, hoppið yfir kant í vinstri hlið, haldið áfram að prjóna upp 105-117-129 lykkjur frá uppfitjunarkanti (séð frá réttu) = 210-234-258 lykkjur í umferð (þ.e.a.s. að brotið er uppá stykkið áður en lykkjur eru prjónaðar upp meðfram uppfitjunarkanti). Prjónið síðan stykkið í hring á hringprjón. Haldið áfram í GARÐAPRJÓN hringinn þar til kanturinn mælist 6 cm – sjá útskýringu að ofan. Fellið síðan af með picotkanti.

PICOT KANTUR MEÐ AFFELLINGU:
Prjónið 1 lykkju slétt, (* stingið inn hægri prjón á milli 2 fyrstu lykkja á vinstri prjón (þ.e.a.s. á milli lykkja á prjóni, ekki í gegnum lykkjurnar), sláið 1 sinni uppá hægri prjón, dragið uppsláttinn fram á milli lykkja og setjið uppsláttinn yfir á vinstri prjón *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar = 3 nýjar lykkjur á vinstri prjón. ** Prjónið fyrstu lykkju á vinstri prjón slétt, takið fyrstu lykkju yfir á hægri prjón yfir síðustu lykkju sem var prjónuð **), endurtakið frá **-** alls 6 sinnum og endurtakið frá (-) meðfram öllum kantinum þar til eftir eru 2 lykkjur, fellið af 2 síðustu lykkjurnar. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = svona er flíkin notuð
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 188-38

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Mie wrote:

Sidste afsnit inden aflukningskantbmedvpicot forstår jeg ikke Skal jeg strikke 1 pind glatstrik over alle 105 m og så bukke strikketøjet på midten og så samle 105 m op i opslagskanten på rundpind? Hvilken kant i Venstre side skal jeg springe over? Vh Mie

18.09.2023 - 19:10

DROPS Design answered:

Hej Mie, det er korsiderne i hver side du hopper over, så du får en kant (som du kan se mod forstykket) når du gør det får du et ærmegab :)

26.09.2023 - 14:45

country flag Catherine Perard wrote:

Houps.. .... Je viens de voir la vidéo, donc plus de souci, elle est très bien expliquée. Merci

16.04.2023 - 18:15

country flag Catherine Perard wrote:

Bonjour. Je ne comprends pas la bordure Picot. Pourriez vous me donner une autre explication . Merci de votre retour rapi

15.04.2023 - 21:43

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Perard, dans cette vidéo, nous montrons comment réaliser ce type de bordure picot. Attention à bien suivre les nombres indiqués dans ce modèle, ils peuvent ne pas être exactement les mêmes que dans la vidéo, toutefois, la technique sera la même. Bon tricot!

17.04.2023 - 09:10

country flag Jennie Hast wrote:

Hej! Förstår inte sista partiet. Vilken kant är det jag ska hoppa över? Och vad menas med "sticka upp" är det samma som att "plocka upp"? Och vad är det som ska vikas? Mvh Jennie

29.07.2021 - 19:03

DROPS Design answered:

Hei Jennie. Når arbeidet måler ca 46-50-54 cm, strikker du neste pinne fra retten i glattstrikk. Når du har strikket denne pinnen, vri arbeidet slik at du hopper over sidekanten på arbeidet og starter med å strikke opp (plukke opp ) masker i oppleggskanten. Du får nå et stort "hull" i den ene siden = 1 ermhull. Fortsett videre med å strikke opp (plukke opp) 105-117-129 masker fra oppleggskanten (sett fra retten) = 210-234-258 masker på pinnen (dvs at arbeidet brettes opp før det strikkes opp masker langs oppleggskanten). Videre strikkes arbeidet rundt på rundpinne og du har nå 2 store "hull" til ermene. mvh DROPS design

12.08.2021 - 06:57

country flag Melinda Fülöp wrote:

Jag håller på med A1. Har gjort varvet med omslag och hoptagning. Men ska göra avigsidan och då ska jag väl göra avigmaskor hela vägen, men ska omslagen göras räta ändå eller göras aviga?

09.11.2020 - 12:06

DROPS Design answered:

Hej Melinda. Du stickar omslagen enligt diagram (dvs avigt här) men du stickar de inte vridet, för det ska bli ett hål. Mvh DROPS Design

10.11.2020 - 09:54

country flag Audrée wrote:

On April 10, 2019, you provided clarification for the Adalmina pattern but I don't understand what you mean! You wrote: work YO so does this mean to pass it over the knit that follows? If so, this makes two decreases. Then you said: knit together the last stitch in A with the first stitch in B but the pattern asks for a YO, slip, knit and passover. I can't figure out how to work the B section 14 times with section A crossing over it and B section crossing over C. Thanks for your help!

18.07.2020 - 15:27

DROPS Design answered:

Dear Audrée, on row 3 for example you work A= K1, K2 tog, YO, K1, then make a yarn over (as shown in diagram), 1 stitch remain in A - K tog this last st in A. with first st in B (= the last st in A is now the YO and the first st in B is now the K2 tog). At the end of B, work the yarn over, then slip 1 as if to K (= last st in B), K first st in B/C, and psso = the YO is now the last st in B and the decrease is the first stitch next B / C. A. will be worked only once at the beg, then you repeat B and finish row with C; Hope this will help :) Happy knitting!

20.07.2020 - 09:23

country flag Raffaella wrote:

Ciao, non riesco a capire questo passaggio iniziale in cui si dice dopo il diagramma A.1 lavorare 1 maglia a maglia rasata e 4 maglie a Lavorare 4 maglie a PUNTO LEGACCIO – vedere le spiegazioni sopra, diagramma A.1 sulle 96-108-120 maglie successive (= 16-18-20 ripetizioni), 1 maglia a maglia rasata e 4 maglie a punto legaccio. Mi aspetto di trovare simmetricamente un’altra maglia rasata e 4 punti a legaccio alla fine del ferro, ma la maglia rasata non la trovo, è corretto così?

20.07.2019 - 21:00

DROPS Design answered:

Buongiorno Raffaella. È corretto come indicato. La maglia rasata prima delle ultime 4 m legaccio serve per rendere simmetrico il lavoro nella riga con le maglie gettate. Buon lavoro!

21.07.2019 - 14:41

country flag Silke Spröd wrote:

Wie wird die rechte Masche am Ende des Mustersatzes in den Rückreihen gestrickt? Diese Masche irririert mich.

16.06.2019 - 19:53

DROPS Design answered:

Liebe Frau Spröd, nach A.2 stricken Sie 1 Masche glatt rechts (vor den 4 M krausrechts), dh diese Masche wird rechts bei den Hinreihen und links bei den Rückreihen gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

17.06.2019 - 08:24

country flag Amanda wrote:

Jag förstår inte riktigt hur den maskan mad slätstickning blir. Det står "Sticka 4 maskor RÄTSTICKNING, A.1 över de nästa 96 maskorna, 1 maska slätstickning och 4 maskor rätstickning." Ska där enda maskan slätstickning stickas varannan gång på höger och varannan gång på vänster, så att det alltid blir 5e maskan före slutet? Eller ska den alltid vara på samma sida, dvs varannan gång 5e maskan innan slutet, och varannan gång 5e maskan från början?

23.05.2019 - 19:31

DROPS Design answered:

Hei Amanda. Det strikkes frem og tilbake, altså annenhver pinne fra rettsiden og annenhver pinne fra vrangsiden. Mønsteret blir forklart fra første pinne (= rettsiden), så når det strikkes fra vrangsiden må du strikke motsatt av forklaringen. Den slettstrikkede masken skal strikkes på samme sted hele veien, altså: fra rettsiden strikkes den ETTER A.1, og fra vrangsiden strikkes den FØR A.1. I dette tilfelle strikkes slik fra vrangsiden: 4 masker rettstrikning, 1 maske slettstrikkning (=vrang fra vrangen), A.1 over 96 masker (husk å lese diagrammet motsatt vei: fra høyre mot venstre når du strikker fra vrangen) og avslutt med 4 masker rettstrikning. God fornøyelse.

24.05.2019 - 08:00

country flag Lynn wrote:

I'm working this pattern at the moment, I've done the A1, A2, then A1, then the pattern says work A.3A over the first 5 stitches, repeat A.3B over the next 84 stitches, I cant understand how I can work the 6 stitches in the A.3B part when you have to knit 2 together or slip stitch knit 2 together slip stitch over when this part goes over to part A.3C, hope you can understand what i'm trying to say.

09.04.2019 - 17:08

DROPS Design answered:

Dear Lynn, on row 3 for example you work A= K1, K2 tog, YO, K1, then work YO, K tog the last st in A. with first st in B (= the last st in A is now the YO and the first st in B is now the K2 tog). At the end of B, work the yarn over, then slip 1 as if to K (= last st in B), K first st in B/C, and psso = the YO is now the last st in B and the decrease is the first stitch next B / C. Happy knitting!

10.04.2019 - 10:02