DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9504.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 189-2
DROPS Design: Mynstur w-711
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Mál: ca 80 cm x 119 cm.

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150 g litur 101, ljós blár
150 g litur 100, ljós þveginn
150 g litur 41, sinnep
150 g litur 07, fjólublár
100 g litur 35, vanillugulur
100 g litur 33, millibleikur
100 g litur 38, kórall
100 g litur 05, ljós fjólublár
100 g litur 58, púður bleikur
100 g litur 30, gráblár
50 g litur 48, bensínblár
50 g litur 21, ljós mynta
50 g litur 25, mosagrænn

Ef teppið er heklað með einum lit þá þarf ca 900 g Paris.

DROPS HEKLUNÁL 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 stuðlar og 9 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð. Einn ferningur mælist ca 13 x 13 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9504.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

LITASAMSETNING (á við um heklaða ferninga):
FERNINGUR1:
UMFERÐ 1: ljós þveginn
UMFERÐ 2: ljós fjólublár
UMFERÐ 3: fjólublár
UMFERÐ 4: sinnep
UMFERÐ 5: millibleikur

FERNINGUR2:
UMFERÐ 1: ljós þveginn
UMFERÐ 2: fjólublár
UMFERÐ 3: sinnep
UMFERÐ 4: gráblár
UMFERÐ 5: ljós þveginn

FERNINGUR 3:
UMFERÐ 1: kórall
UMFERÐ 2: fjólublár
UMFERÐ 3: millibleikur
UMFERÐ 4: sinnep
UMFERÐ 5: vanillugulur

FERNINGUR 4:
UMFERÐ 1: sinnep
UMFERÐ 2: kórall
UMFERÐ 3: fjólublár
UMFERÐ 4: mosagrænn
UMFERÐ 5: ljós mynta

FERNINGUR 5:
UMFERÐ 1: millibleikur
UMFERÐ 2: sinnep
UMFERÐ 3: fjólublár
UMFERÐ 4: ljós fjólublár
UMFERÐ 5: ljós þveginn

FERNINGUR 6:
UMFERÐ 1: vanillugulur
UMFERÐ 2: sinnep
UMFERÐ 3: fjólublár
UMFERÐ 4: kórall
UMFERÐ 5: millibleikur

FERNINGUR 7:
UMFERÐ 1: millibleikur
UMFERÐ 2: fjólublár
UMFERÐ 3: mosagrænn
UMFERÐ 4: ljós mynta
UMFERÐ 5: vanillugulur

FERNINGUR 8:
UMFERÐ 1: púðurbleikur
UMFERÐ 2: ljós fjólublár
UMFERÐ 3: vanillugulur
UMFERÐ 4: gráblár
UMFERÐ 5: ljós þveginn

FERNINGUR 9:
UMFERÐ 1: ljós þveginn
UMFERÐ 2: gráblár
UMFERÐ 3: sinnep
UMFERÐ 4: fjólublár
UMFERÐ 5: púðurbleikur

FERNINGUR 10:
UMFERÐ 1: vanillugulur
UMFERÐ 2: sinnep
UMFERÐ 3: millibleikur
UMFERÐ 4: fjólublár
UMFERÐ 5: kórall

FERNINGUR 11:
UMFERÐ 1: sinnep
UMFERÐ 2: fjólublár
UMFERÐ 3: kórall
UMFERÐ 4: ljós mynta
UMFERÐ 5: ljós fjólublár

FERNINGUR 12:
UMFERÐ 1: sinnep
UMFERÐ 2: vanillugulur
UMFERÐ 3: kórall
UMFERÐ 4: ljós fjólublár
UMFERÐ 5: púðurbleikur

FERNINGUR 13:
UMFERÐ 1: ljós fjólublár
UMFERÐ 2: púðurbleikur
UMFERÐ 3: gráblár
UMFERÐ 4: bensínblár
UMFERÐ 5: ljós mynta

FERNINGUR 14:
UMFERÐ 1: vanillugulur
UMFERÐ 2: sinnep
UMFERÐ 3: fjólublár
UMFERÐ 4: bensínblár
UMFERÐ 5: ljós þveginn

FERNINGUR 15:
UMFERÐ 1: fjólublár
UMFERÐ 2: gráblár
UMFERÐ 3: ljós þveginn
UMFERÐ 4: bensínblár
UMFERÐ 5: púðurbleikur

FERNINGUR 16:
UMFERÐ 1: vanillugulur
UMFERÐ 2: púðurbleikur
UMFERÐ 3: kórall
UMFERÐ 4: fjólublár
UMFERÐ 5: mosagrænn

FERNINGUR 17:
UMFERÐ 1: vanillugulur
UMFERÐ 2: sinnep
UMFERÐ 3: fjólublár
UMFERÐ 4: ljós þveginn
UMFERÐ 5: gráblár

FERNINGUR 18:
UMFERÐ 1: fjólublár
UMFERÐ 2: kórall
UMFERÐ 3: sinnep
UMFERÐ 4: ljós fjólublár
UMFERÐ 5: púðurbleikur

SKIPT UM ÞRÁÐ:
Til þess að sleppa við að sauma inn svona marga þræði er hægt að festa endana í byrjun á hverri umferð jafnóðum þannig:
UMFERÐ 1: Leggið uppfitjunarþráðinn saman við loftlykkjuhringinn og heklið um þessa umferð hringinn, síðan er hægt að klippa uppfitjunarþráðinn frá.
UMFERÐ 2-5: Fyrstu 3 loftlykkjurnar í umferð eru heklaðar með tvöföldum þræði með nýja litnum (enda á þræði + þræði frá nýrri dokku), síðan er heklað áfram með 1 þræði frá dokkunni, endinn er síðan klipptur frá. Í lok hverrar umferðar verður að festa endann frá þeirri umferð, þ.e.a.s. að í hverjum ferning eru 5 þræðir sem verður að festa.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Teppið samanstendur af 54 ferningum. Heklið fyrst alla ferningana, síðan eru þeir heklaðir saman og að lokum er heklaður kantur í kringum allt teppið.

HEKLAÐUR FERNINGUR:
Byrjið með heklunál 4,5 og Paris og heklið MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.1. Skipt er um lit í hverri umferð og heklaðar eru 3 ferningar í hverri LITASAMSETNINGU – sjá útskýringu að ofan = 54 ferningar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! 1 ferningur mælist ca 13 x 13 cm. Festið enda jafnóðum – lesið SKIPT UM ÞRÁÐ.

FRÁGANGUR:
Leggið ferningana með réttu númeri á ferning eins og útskýrt er á teikningu (6 ferningar á breidd og 9 ferningar á lengd). Númer á ferningum á teikningu sýnir ferninga með sama númeri og útskýrt er í LITASAMSETNING.
Ferningarnir eru heklaðir saman í lengju á lengdina, síðan eru lengjurnar heklaðar saman á breiddina.
Heklið ferningana saman þannig:
Leggið 2 ferninga saman með röngu að röngu. Heklið um bæði lögin með lit 101, ljós blár: ** 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *. Heklið frá *-* fram til og með næsta horni (= 6 loftlykkjubogar) og heklið 2 loftlykkjur (= skipting við næstu 2 ferninga) **. Endurtakið frá **-** meðfram allri lengjunni og endið með 1 fastalykkju um síðasta hornið. Klippið frá og festið enda. Heklið svona þar til allir ferningarnir hafa verið heklaðir saman á lengdina. Heklið síðan lengjurnar saman alveg eins á breiddina.

KANTUR:
Heklið nú kant í kringum allt teppið með lit 101, ljós blár.
Byrjið á að hekla um eitt af hornum á teppinu. Festið endann með 1 keðjulykkju um loftlykkjurnar í horni og heklið síðan: 3 loftlykkjur (koma í stað 1 stuðul), 1 loftlykkja, 1 stuðull, 3 loftlykkjur, 1 stuðull, 1 loftlykkja, 1 stuðull, 2 loftlykkjur = horn. Heklið síðan meðfram hlið þannig: ** Hoppið yfir 2 stuðla, * 2 stuðlar um loftlykkjuboga, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 stuðla *, endurtakið frá *-* 5 sinnum, 1 stuðull um loftlykkjuboga í horni á ferning, 2 loftlykkjur, 1 stuðull um horn á næsta ferning **, heklið frá **-** fram að 2. horni á teppinu. Um hornið er heklað: 1 stuðull, 1 loftlykkja, 1 stuðull, 3 loftlykkjur, 1 stuðull, 1 loftlykkja, 1 stuðull og 2 loftlykkjur.
Heklið frá **-** fram að 3. horni á teppi, heklið um hornið eins og áður.
Heklið frá **-*** fram að 4. horni, heklið um hornið eins og áður.
Heklið frá **-** fram að 1. horni og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja
symbols = 3 loftlykkjur
symbols = stuðull í lykkju
symbols = stuðull um loftlykkjuboga
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð
symbols = 5 loftlykkjur, tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju – sjá punkt í hring, umferðin byrjar og endar hér
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 189-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Sylvie wrote:

Dans les vidéos aide, on voit comment assembler les carrés avec des mailles coulées, en les plaçant côte à côte. Mais dans les instructions, on doit placer les carrés envers contre envers et assembler avec des mailles serrées, dans une séquence plutôt complexe... Est-ce que ces 2 méthodes peuvent être faites? Puis-je assembler avec des mailles coulées, comme dans le pull 241-16 Garden square sweater?

03.10.2023 - 03:59

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvie, tout à fait, il existe différentes façons d'assembler les carrés entre eux, choisissez la technique que vous préférez pour le résultat que vous souhaitez. Bon assemblage!

03.10.2023 - 08:17

country flag Corrie wrote:

Omdat ik het kleed op een vliesdeken wil naaien zou ik het afwerken graag zonder lussen willen doen maar gewoon een vaste rand hebben jullie daar ook een stekenverhouding voor of is het gewoon in iedere steek een vaste haken Alvast Bedankt Corrie

09.04.2023 - 08:21

DROPS Design answered:

Dag Corrie,

Je kan inderdaad een vaste in iedere vaste haken. Je zou dan uit moeten komen. Let erop dat je de vasten niet te strak haakt om te voorkomen dat het gaat trekken.

12.04.2023 - 20:16

country flag Andrea Kruiskamp wrote:

Met deze nog een vraag, ik ben inmiddels bij vierkant 11 heb zoals in het patroon staat de kleurwisselingen met dubbele draad gedaan, zoals ik heb begrepen vorige kleur en nieuwe kleur de eerste 3 lossen samen. Eigenlijk vind ik dit niet mooi en als ik de afbeelding van de deken goed bekijk zie ik dat dat niet zo is gedaan. (Bij mijn werk zie je dus bij aanvang nieuwe toer 2 kleuren) Graag verneem hoe het nu eigenlijk moet? Omdat het inderdaad op de instructie video anders wordt gedaan.

22.07.2018 - 18:46

DROPS Design answered:

Dag Andrea, Bij het wisselen van kleur haak je niet de 3 lossen samen (want dan komen de kleuren inderdaad door elkaar en dat is niet mooi) maar je haakt de laatste doorhaling van de lus van kleur 1 alvast met kleur 2. (De tip voor het wisselen van garen is niet specifiek voor verschillende kleuren bedoelt maar voor het wegwerken van garen)

19.09.2018 - 21:00

country flag Mieke wrote:

Andrea Kruiskamp en beantwoorder van haar vraag; hoewel ik een ervaren haakster ben en net als Andrea katoen voor de vakantie heb gekocht om deze deken te haken loop ook ik tegen het omkeren aan. Ik heb dat nooit eerder gedaan, op het filmpje van de granny square gebeurt het wel en in de beschrijving onder het filmpje staat dit ook beschreven. Als je de detailfoto vergroot zie je dat er wel na elke toer gekeerd is (voor de ervaren kijken) Misschien handig voor het draadjes wegwerken?

12.07.2018 - 21:28

Marij wrote:

Is katoenen garen voor een plaid niet aan de zware kant?

12.07.2018 - 15:18

DROPS Design answered:

Dag Marij, Het wordt inderdaad een vrij zwaar kleed. Als je hem wat lichter wilt hebben zou je een wolvariant, bijvoorbeeld DROPS Alaska of DROPS Nepal, kunnen gebruiken (garencategorie C)

16.07.2018 - 13:04

country flag Andrea Kruiskamp wrote:

Mevrouw, heb het patroon en de garens etc gekocht bij de Hobbydoos. Nu had ik verwacht een geschreven patroon te ontvangen. Aangezien er alleen een telpatroon bij is geleverd en ik pas begin met haken en geen ervaring heb met een telpatroon, vraag ik mij af of je het haakwerk bij elke nieuwe toer moet keren.

04.07.2018 - 16:51

DROPS Design answered:

Dag Andrea, Nee, je hoeft het werk niet te keren, du je haakt steeds in de rondte aan de goede kant (In onze patronen staat het aangegeven als je het werk moet keren aan het eind van de toer). Je begint iedere toer met 3 lossen en eindidt met een halve vaste in de derde losse van de vorige toer.

05.07.2018 - 14:33

country flag Bullet Force wrote:

Heklet pledd med bestemor-ruter.

15.05.2018 - 09:59

Marit Louise Jordhoy wrote:

Hei hvor mange ruter skal det være av hver fargekombinasjoner?

18.04.2018 - 01:26

DROPS Design answered:

Hej Marit, det hekles 3 ruter av hver fargekombinasjon - god fornøjelse! :)

26.04.2018 - 16:35

country flag MICAELA wrote:

E' un piacere per gli occhi, rasserenante

03.01.2018 - 18:32

country flag Mariarita wrote:

Garnstudio ha il pregio di presentare sempre modelli diversi,senza tempo perche' non seguono la moda,ma la propongono.Grazie e serene festivita'.

18.12.2017 - 15:54