Strawberry Delight |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Heklað poncho / peysa með gatamynstri úr DROPS Belle. Stykkið er heklað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 190-9 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðli með 3 loftlykkjum. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð. Mynsturteikning A.1 sýnir hvernig hver umferð byrjar og mynsturteikning A.4 sýnir hvernig hver umferð endar, keðjulykkjan er hekluð í 3. loftlykkju í byrjun á umferð, 3 loftlykkjurnar koma til skiptis í stað fyrsta og síðasta stuðul í umferð. RENDUR: UMFERÐ 1: Heklið með bleikfjólublár – lesið LITASKIPTI! UMFERÐ 2: Heklið með ljós beige. Endurtakið umferð 1 og 2 þrisvar sinnum. UMFEÐR 7 og 8: Heklið með bleikfjólublár. UMFERÐ 9 og 10: Heklið með ljós beige. Heklið síðan þannig: Heklið 3 umferðir með bleikfjólublár, heklið 3 umferðir með ljós beige. Heklið 4 umferðir með bleikfjólublár, heklið 4 umferðir með ljós beige. Haldið svona áfram, þ.e.a.s. heklið 1 umferð fleiri með hvorum lit til loka. Þegar það verða of löng hopp á milli randa verður að klippa þráðinn frá og festa. LITASKIPTI: Til að fá fallega litaskiptingu þegar skipt er um lit er síðasta keðjulykkjan í umferð hekluð með nýja litnum þannig: Stingið heklunálinni í síðustu loftlykkju frá byrjun á umferð, sækið nýja þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina með nýja litum og dragið í gegnum lykkjuna á heklunálinni. ÚRTAKA (á við um ermi): Stillið af þannig að lykkjum er fækkað í umferð 1 eða 3 í A.2a. Fækkið um 1 stuðlahóp með því að hoppa yfir fyrstu loftlykkju í fyrstu endurtekningu af A.2a. Næsta umferð er hekluð eins og áður, en nú er aftur heklaður stuðlahópur á milli 2 stuðlahópa þar sem hoppað var yfir loftlykkju (= 1 stuðlahópur færri). Í næsta skipti sem lykkjum er fækkað, hoppar síðasta loftlykkjan í síðustu endurtekningunni af A.2a yfir. Næsta umferð er hekluð eins og áður, en nú er ekki heklaður stuðlahópur á milli 2 stuðlahópa þar sem hoppað var yfir loftlykkju (= 1 stuðlahópur færri). Fækkið lykkjum svona, þ.e.a.s. fækkið lykkjum til skiptist í byrjun og í lok á umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO / PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Aukið er út við miðju að framan, við miðju að aftan og mitt á hvorri ermi. Stykkið skiptist upp fyrir ermar og fram- og bakstykki, fram- og bakstykki er síðan heklað í hring með útaukningum við miðju að framan/miðju að aftan eins og áður. Ermar eru heklaðar í hring í lokin. BERUSTYKKI: Heklið 107-107-125-125 loftlykkjur með heklunál 4,5 með litnum bleikfjólublár og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1 (heklið með litnum bleikfjólublár): Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull) í fyrstu loftlykkju – lesið HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 1-1-5-5 loftlykkjur, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 6 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* og endið með keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 92-92-108-108 stuðlar. UMFERÐ 2 (heklið með litnum bleikfjólublár – jafngildir fyrstu umferð í A.1 til A.5 merkt með stjörnu): (umferð byrjar í skiptingunni á milli erma og bakstykkis). Heklið * 1 stuðul í hvern af næstu 38-38-46-46 stuðlum (= bakstykki/framstykki), heklið 2 stuðla í hvern af næstu 8 stuðlum (= 8 stuðlar fleiri) *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 108-108-124-124 stuðlar. Stykkið er síðan heklað í RENDUR – sjá útskýringu að ofan, þannig: UMFERÐ 3 (jafngildir 1. umferð í röndum og 2. umferð í A.1 til A.5): Heklið A.1 yfir fyrstu 4 stuðla, A.2 yfir næstu 12 stuðla (= 3 sinnum á breidd), heklið A.3 yfir næstu 3 stuðla (= horn við miðju að aftan), * A.2 yfir næstu 24-24-28-28 stuðla (= 6-6-7-7 sinnum á breidd), A.5 yfir næstu 3 stuðla (= mitt á öxl) *, A.2 yfir næstu 24-24-28-28 stuðla (= 6-6-7-7 sinnum á breidd), A.3 yfir næstu 3 stuðla (= horn við miðju að framan), heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið A.2 yfir næstu 4-4-8-8 stuðla og endið með A.4 yfir síðustu 4 stuðla = 32-32-36-36 loftlykkjubogar með 1 fastalykkju á milli hverra. Haldið svona áfram með mynstur, þegar A.1 til A.5 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina (þ.e.a.s. þegar heklaðar hafa verið alls 5 umferðir með stuðlahópum) eru 44-44-48-48 stuðlahópar í síðustu umferð. Endurtakið A.1a til A.5a. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Aukið út um 1 stuðlahóp í hverri einingu A.3a í hverri umferð. Aukið út um 1 stuðlahóp í 3. hverri umferð í hverri einingu A.5a. Í 3. hverri umferð sem er hekluð hefur verið aukið út um alls 8 stuðlahópa í stykkinu, útauknar lykkjur eru heklaðar jafnóðum í A.2a. Haldið áfram þar til heklaðar hafa verið 20-23-26-29 umferðir með stuðlahópum í A.1a til A.5a á hæðina. Nú eru 84-92-104-112 stuðlahópar/loftlykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 24-28-31-34 cm. Stykkið skiptist nú í fram- og bakstykki/ermar. FRAM- OG BAKSTYKKI: Klippið þráðinn frá. Teljið 14-16-18-20 loftlykkjur frá miðju, séð frá réttu frá miðju að aftan og út að hlið/öxl (án loftlykkja við miðju að aftan), heklið 1 keðjulykkju um 14.-16.-18.-20. loftlykkju, heklið 2. umferð af A.1a (= 3 loftlykkjur, heklið 2 stuðla um sömu loftlykkju), heklið 6 loftlykkjur (= undir ermi), hoppið yfir 13-13-15-15 loftlykkjur og 14-14-16-16 stuðlahópar (= ermi), um næstu loftlykkju er heklað A.2a áfram eins og áður, heklið A.2a og A.3a eins og áður þar til heklað hefur verið um 14-16-18-20 loftlykkjur fram hjá miðju loftlykkju að framan, heklið 6 loftlykkjur (= undir ermi), hoppið yfir 13-13-15-15 loftlykkjur og 14-14-16-16 stuðlahópar (= ermi), heklið A.2a og A.3a eins og áður þar til 1 loftlykkja er eftir, endið með 2. umferð af A.4a um sama boga og keðjulykkja í byrjun á umferð = alls 60-68-76-84 stuðlahópar (meðtaldir stuðlahópar við miðju að framan og miðju að aftan) og 6 loftlykkjur undir hvorri ermi. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið A.1a um 6 loftlykkjur undir ermi, haldið áfram með A.2a og A.3a eins og áður að 6 loftlykkjum undir annarri ermi, heklið A.2a um 6 loftlykkjur undir ermi 1 sinni, síða er mynstur heklað eins og áður út umferðina. Þ.e.a.s. haldið áfram að auka út við miðju að framan og að aftan með A.3a, umferðin byrjar með A.1a og endar með A.4a og aðrar lykkjur eru heklaðar eins og A.2a. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 89-91-93-95 cm, mælt frá öxl og niður að horni við miðju að framan. Klippið frá og festið enda. ERMI: Ermar eru heklaðar í hring með litnum ljós beige. Byrjið í fyrstu loftlykkju sem hoppað var yfir þar sem stykkið skiptist við ermar og fram- og bakstykki, heklið 1 keðjulykkju um þessa loftlykkju, heklið 2. umferð af A.1a (= 3 loftlykkjur, heklið 2 stuðla um sömu loftlykkju), heklið A.2a í hverja og eina af 12-12-14-14 loftlykkjum/13-13-15-15 stuðlahópar sem hoppað var yfir, heklið 6 loftlykkjur mitt undir ermi og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Haldið áfram með A.1a og A.2a í næstu umferð, nú er endað með einni mynstureiningu af A.4a um 6 loftlykkjur sem heklaðar voru undir ermi = 14-14-16-16 mynstureiningar af A.1a/A.2a/A.4a. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 stuðlahóp undir ermi eftir A.1/ á undan A.4 – lesið ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 3-3-2-2 cm millibili alls 3 sinnum = 11-11-13-13 stuðlahópar. Klippið frá og festið þegar ermin mælist 20-18-14-11 cm frá skiptingu fyrir fram- og bakstykki/ermar. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR. Saumið saman op undir ermum. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (47)
Salma wrote:
Wie soll ich A1.a bis A5.a wiederholen, wenn A1.a bis A4.a jeweils aus 4 Runden (in der Höhe) bestehen, A5.a aber aus 6 Runden besteht?
24.03.2024 - 08:34DROPS Design answered:
Liebe Salma, A.1 bis A.5 sind jeweils 6 Runden für alle Diagramme, dann wiederholen Sie die 4 Reihen A.1a bis A.4a und wiederholen Sie einfach A.5a in der Höhe, dh wenn die 4 Reihen A.1a-A.4a Fertig sind, häkeln Sie ab 1. Reihe wieder und gleichzeitig häkeln Sie A.5a weiter. Viel Spaß beim Häkeln!
02.04.2024 - 09:09Sharon wrote:
Please could you clarify for me. The round 2 increases, should they be at the front and back of the piece, or on the shoulders? Many thanks.
30.12.2023 - 20:56DROPS Design answered:
Dear Sharon, these increases are made on the shoulders. Happy crocheting!
31.12.2023 - 10:46Emily Scott wrote:
What is the point of the spacing of the increases in Round 2 of the yoke? Why are they bunched up in an awkward spot on the opposite side of the front and back of the garment? It doesn't seem to make any difference in the shaping of the garment later on in the pattern, and the increases being all together means that the yoke on mine won't lay flat.
01.11.2023 - 21:28DROPS Design answered:
Dear Mrs Scott, on this round you will just work with dc increasing on mid front and on mid back with 2 dc in each of the 8 dc on mid back/mid front. this row is the one with a star in A.1/A.5, that's just a dc row with increases. Happy crocheting!
02.11.2023 - 17:36Maria wrote:
Nel giro 2, dove si indica di eseguire 2 maglie alte in ognuna delle 8 maglie alte successive (= 8 maglie alte aumentate) si ottengono 16 maglie. Sono le 16 maglie delle maniche? Se si nel centro deve di queste deve essere eseguito il motivo A5 giusto. Grazie
22.07.2023 - 09:55Lilian wrote:
Am embarking on this beautiful Tunic but the pattern looks challenging all the same ,lets do this!
16.11.2022 - 14:28Maren wrote:
3. RUNDE: 1x A.1 + 3x A.2 + 1x A.3 + 6x A.2 + 1x A.5 + 6x A.2 + 1x A.3 + 6x A.2 + 1x A.5 + 1x A.2 + 1x A.4 => rechnerisch: 28 Bögen + feste Masche (nicht 32). Wo liegt mein Fehler? Sollen schon Stäbchengruppen statt Luftmaschen gehäkelt werden?
27.10.2022 - 17:25DROPS Design answered:
Liebe Maren, am Ende dieser Runde sind es 2 Lufmaschenbogen in jedem A.2 und in jedem A.5, so haben Sie: A.1x1, A.2x3, A.3x2, A.2x6, A.5x2, A.2x6, A.3x2, A.2x6, A.5x2,A.2x1, A.4x1=1+3+2+6+2+6+2+6+2+1+1=32 Luftmaschenbogen. Viel Spaß beim häkeln!
28.10.2022 - 14:48Eileen Niclasen wrote:
Jeg ville også gerne vide om man kan få opskriften med ord istedent for diagram?
25.04.2022 - 23:31DROPS Design answered:
Hej Eileen, det har vi desværre ikke, men længere nede i spørgsmål og svar har vi beskrevet de først 3 rækker, har du først hæklet dem, så er jeg sikker på at du kan fortsætte :)
26.04.2022 - 13:21Vivi Kaae wrote:
Findes opskriften med ord i stedet for diagram, jeg er desværre en af dem der ikke forstår diagram og har brug for en ordforklaring? Mvh Vivi
25.04.2022 - 21:33DROPS Design answered:
Hej Vivi, det har vi desværre ikke, men længere nede i spørgsmål og svar har vi beskrevet de først 3 rækker, har du først hæklet dem, så er jeg sikker på at du kan fortsætte :)
26.04.2022 - 13:21Claudia Gualandi wrote:
Anch'io sono bloccata al giro 3 come molte altre hanno già scritto. È inutile che ripetiate quanto già è scritto nelle spiegazioni: non si capisce!!! Per cortesia spiegate in modo chiaro che cosa di deve fare. Non si capisce proprio!!!
10.04.2022 - 10:47DROPS Design answered:
Buonasera Claudia, per il giro 3 deve ripetere la sequenza dei diagrammi come indicato nelle spiegazioni. Se dovesse aver bisogno di un'assistenza più personalizzata può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!
11.04.2022 - 21:38Eva wrote:
Jeg kan på ingen måde få det til at give mening at jeg skal have 32 luftmaskebuer når jeg er færdig med omg 3. Jeg ender med 28 buer - Hvor går den galt, for syntes jeg har talt efter i den skrevne opskrift og lander på samme antal?
04.04.2022 - 00:28DROPS Design answered:
Hei Eva. Har du telt at det i diagram A.3 og A.5 er 2 luftmasker (3 staver+1 luftmaske + 3 staver + 1 luftmaske)? Lett å overse (jeg gjorde det først). Da får du 32 luftmaskebuer :) mvh DROPS Design
04.04.2022 - 13:18