Let's Party |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Heklaðar tátiljur með marglitu mynstri, kögri og dúskum úr DROPS Nepal. Stærð 35-43.
DROPS 189-35 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LITAMYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning er hekluð í fastalykkjum, þ.e.a.s. 1 ferningur í mynsturteikningu jafngildir 1 fastalykkju. LITASKIPTI: Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðustu fastalykkju fyrsta litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn í lokin með nýja litnum, heklið síðan næstu fastalykkju. Þegar heklað er með tveimur litum, leggið þráðinn í þeim lit sem ekki er heklað með yfir lykkjurnar frá fyrri umferð og heklið utan um þráðinn þannig að þráðurinn sjáist ekki innan í lykkjunum, þráðurinn fylgir þar með áfram hringinn. HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta fastalykkja í umferð er skipt út fyrir 1 loftlykkju, endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Þegar heklaðar eru fastalykkjur fram og til baka er fyrstu fastalykkju skipt út í umferð með 1 loftlykkju, umferð endar með 1 fastalykkju í loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð. ÚRTAKA: Heklið 1 fastalykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næstu fastalykkju, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 fastalykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá tá og aftur að ökla, síðan er heklað fram og til baka að miðju aftan á hæl. TÁTILJA: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum ljós beige og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan eins og útskýrt er í mismunandi stærðum – lesið HEKLLEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ HEKLFESTUNA: 35/37: UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* alls 6 sinnum = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 5: * 1 fastalykkja í hvora af fyrstu/næstu 2 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* alls 6 sinnum = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 6: Lesið LITASKIPTI og heklið A.1 með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju (= 8 mynstureiningar með 3 lykkjum). UMFERÐ 7: Heklið 2. umferð í A.1. Í lok umferðar eru 32 fastalykkjur. Skiptið yfir í litinn ljós beige. UMFERÐ 8: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. UMFERÐ 9: * 1 fastalykkja í hverja fyrstu/næstu 7 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* alls 4 sinnum = 36 fastalykkjur. Nú hafa verið gerðar allar útaukningar. UMFERÐ 10: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 11-12: Heklið A.2 með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju (= 12 mynstureiningar með 3 lykkjur). Skiptið yfir í litinn ljós beige þegar A.2 hefur verið heklað til loka. UMFERÐ 13-15: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju með litnum ljós beige. UMFERÐ 16-18: Heklið A.3 með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju (= 12 mynstureiningar með 3 lykkjum). Heklið síðan fram og til baka eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR. 38/40: UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* alls 6 sinnum = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 5: * 1 fastalykkja í hverja fastalykkju. UMFERÐ 6: * 1 fastalykkja í hvora af fyrstu/næstu 2 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* alls 6 sinnum = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 7: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 8: Lesið LITASKIPTI og heklið A.1 með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju (= 8 mynstureiningar með 3 lykkjum). UMFERÐ 9: Heklið 2. umferð í A.1. Í lok umferðar eru 32 fastalykkjur. Skiptið yfir í litinn ljós beige. UMFERÐ 10: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. UMFERÐ 11: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu/næstu 7 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* alls 4 sinnum = 36 fastalykkjur. Nú hafa verið gerðar allar útaukningar. UMFERÐ 12: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 13: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu/næstu 5 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* alls 6 sinnum = 42 fastalykkjur. Nú hafa verið gerðar allar útaukningar. UMFERÐ 14-15: Heklið A.2 með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju (= 14 mynstureiningar með 3 lykkjur). Skiptið yfir í litinn ljós beige þegar A.2 hefur verið heklað til loka. UMFERÐ 16-19: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju með litnum ljós beige. UMFERÐ 20-22: Heklið A.3 með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju (= 14 mynstureiningar með 3 lykkjum). Heklið síðan fram og til baka eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR. 41/43: UMFERÐ 1: Heklið 5 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 10 fastalykkjur. UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* alls 5 sinnum = 15 fastalykkjur. UMFERÐ 5: * 1 fastalykkja í hverja fastalykkju. UMFERÐ 6: * 1 fastalykkja í hvora af fyrstu/næstu 2 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* alls 5 sinnum = 20 fastalykkjur. UMFERÐ 7: * Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju, en heklið 2 fastalykkjur í síðustu fastalykkju í umferð = 21 fastalykkja. UMFERÐ 8: Lesið LITASKIPTI og heklið A.1 með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju (= 7 mynstureiningar með 3 lykkjum). UMFERÐ 9: Heklið 2. umferð í A.1. Í lok umferðar eru 28 fastalykkjur. Skiptið yfir í litinn ljós beige. UMFERÐ 10: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. UMFERÐ 11: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu/næstu 6 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* alls 4 sinnum = 32 fastalykkjur. UMFERÐ 12: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 13: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu/næstu 3 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* alls 8 sinnum = 40 fastalykkjur. UMFERÐ 14: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 15: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu/næstu 7 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* alls 5 sinnum = 45 fastalykkjur. Nú hafa verið gerðar allar útaukningar. UMFERÐ 16-17: Heklið A.2 með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju (= 15 mynstureiningar með 3 lykkjur). Skiptið yfir í litinn ljós beige þegar A.2 hefur verið heklað til loka. UMFERÐ 18-23: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju með litnum ljós beige. UMFERÐ 24-26: Heklið A.3 með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju (= 15 mynstureiningar með 3 lykkjum). Heklið síðan fram og til baka eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: Nú eru 36-42-45 fastalykkjur í umferð og stykkið mælist ca 9-11-13 cm. Ef stykkið mælist minna en þetta er heklað í hring með litnum kórall og 1 fastalykkju í hverja fastalykkju til loka. Byrjun á umferð = mitt undir fæti. Klippið frá og festið enda. Nú eru heklaðar fastalykkjur fram og til baka með litnum ljós beige yfir fyrstu 12-15-16 fastalykkjur og síðustu 12-15-16 fastalykkjur í umferð (þ.e.a.s. heklað er yfir alls 24-30-32 fastalykkjur og ekki er heklað yfir þær 12-12-13 miðju fastalykkjur sem eftir eru mitt ofan á fæti) – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Þegar tátiljan mælist 20-22-25 cm (þ.e.a.s. ca 11-11-12 cm frá skiptingu) er sett 1 prjónamerki mitt í umferð (á milli 24-30-32 lykkjurnar). Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki, þ.e.a.s. byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki og heklið 4 næstu fastalykkjur saman 2 og 2 – lesið ÚRTAKA (= 2 fastalykkjur færri). Heklið 1 umferð án úrtöku. Endurtakið úrtöku í næstu umferð (= 2 fastalykkjur færri) = 20-26-28 fastalykkjur í umferð. Heklið 1 umferð án úrtöku, leggið tátiljuna saman tvöfalda og heklið saman við miðju að aftan með einni umferð með keðjulykkjum í gegnum bæði lögin. Tátiljan mælist ca 22-24-27 cm frá tá að hæl. Klippið frá og festið enda. KANTUR: Heklið eina loftlykkjuumferð með 25 loftlykkjum með heklunál 3,5 með litnum kórall, síðan er hekluð 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju eftir þar sem heklað var saman við miðju aftan á tátilju (án þess að klippa frá eftir loftlykkjuumferð), heklið síðan í kringum opið á tátiljunni þannig: * 1 loftlykkja, hoppið yfir ca ½ cm, 1 fastalykkju í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn, en endið umferð með 1 fastalykkju í síðustu lykkju á undan þar sem heklað var saman við miðju að aftan, heklið síðan aftur 25 loftlykkjur. Klippið frá og festið enda. Hnýtið smá slaufu við miðju að aftan með loftlykkjuumferðunum. KÖGUR: Festið 6 smá kögur mitt ofan á tátiljunni í síðustu umferð með litnum ljós beige á undan A.2. 1 kögur = klippið 2 þræði með litnum skærgulur ca 6 cm. Leggið þræðina saman og síðan tvöfalt, dragið lykkjuna utan um fastalykkju á tátiljunni og dragið endana í gegnum lykkjuna, herðið vel að. Klippið kögrið til að óskaðri lengd. Það eru 2 fastalykkjur á milli kögurs. DÚSKAR: Gerið 2 litla dúska með litnum kórall og 3 litla dúska með litnum vatnsblár. Hver dúskur mælist ca 2 cm að þvermáli. Festið dúskana í röð mitt í eininguna með litnum ljós beige á undan A.3. Heklið aðra tátilju á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (2)
Annelie wrote:
Hej Jag ser inte rapport A1, eller rättare sagt jag ser inga rapporter i mönstret. Var ser jag dom? MVH Annelie
05.10.2021 - 11:07DROPS Design answered:
Hej Annelie. Diagram A.1, A.2 och A.3 hittar du längst ner på mönstret. Testa att uppdatera sidan (ev. prova en annan webläsare) om du inte kan se dem. Mvh DROPS Design
05.10.2021 - 13:55Joanita wrote:
Hallo, ik heb een vraagje. Ik gebruik haaknaald 3 voor de goede stekenverhouding (18 st. 20 t voor 10 x 10 cm) maar als ik aan de eerste kleurenwissel begin in toer 8 heb ik een stukje dat net over de eerste twee tenen past. Op de foto is de kleurwissel een heel stuk verder. Wat gaat er mis? Alvast bedankt! Groetjes Joanita
14.08.2018 - 12:07DROPS Design answered:
Dag Joanita, Volgens mij klopt dat wel hoor. Bij de kleinste maat wissel je al bij toer 6 en 20 toeren is 10 cm in de hoogte. Dus op ongeveer 4 cm wissel je al van kleur.
23.08.2018 - 20:39