DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 724.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1448.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 190-37
DROPS Design: Mynstur ab-082
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Mál: Breidd: Ca 150 cm. Lengd fyrir miðju: Ca 43 cm mælt meðfram miðju lykkjum.

Efni:
DROPS ALPACA BOUCLÉ frá Garnstudio
100 g litur 7402, ljós sægrænn

DROPS HRINGRPJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 7 – eða þá stærð sem þarf til að 14 lykkjur og 26 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 724.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1448.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING-1 (innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 2 sinnum uppá prjóninn. Í næstu umferð er fyrri uppslátturinn látinn falla niður, hinn er prjónaður slétt (það eiga að myndast göt).

ÚTAUKNING-2 (hvoru megin við 5 miðju lykkjur):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 2 sinnum uppá prjóninn. Í næstu umferð er fyrri uppslátturinn látinn falla niður, hinn er prjónaður snúinn slétt (það eiga ekki að myndast göt).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Allar lykkjur eru prjónaðar slétt.
Aukið út með því að slá 2 sinnum uppá prjóninn – LESIÐ ÚTAUKNING-1 og ÚTAUKNING-2!

SJAL:
Fitjið upp 13 lykkjur á hringprjón 7 með Alpaca Bouclé.
Prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 5 lykkjur slétt (= miðju lykkjur), sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 17 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkjuna.
UMFERÐ 2 (= ranga): 1 lykkja slétt, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til eftir er 1 lykkja, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 2 lykkjur fleiri.
UMFERÐ 3: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur fram að 5 miðju lykkjum, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 5 lykkjur slétt (= miðju lykkjur), sláið 2 sinnum uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til eftir er 1 lykkja, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 4 lykkjur fleiri.
UMFERÐ 4: 1 lykkja slétt, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, sléttar lykkjur þar til eftir er 1 lykkja, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 2 lykkjur fleiri.
UMFERÐ 5-12: Endurtakið til skiptis umferð 3 og 4.
Prjónið síðan þannig:
UMFERÐ 13:
Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt í næstu lykkju, prjónið sléttar lykkjur fram að 2 lykkjum á undan 5 miðju lykkjum, prjónið 2 lykkjur slétt í næstu lykkju, 1 lykkja slétt, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 5 lykkjur slétt (= miðju lykkjur), sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, prjónið 2 lykkjur slétt í næstu lykkju, prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 2 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt í næstu lykkju, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 8 lykkjur fleiri.
UMFERÐ 14: * 1 lykkja slétt, sláið 2 sinnum uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 lykkju slétt.
UMFERÐ 15: Prjónið * 1 lykkju slétt, sleppið uppslættinum niður *, endurtakið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, 1 lykkja slétt.
UMFEÐR 16: 1 lykkja slétt, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt í næstu lykkju, prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt í næstu lykkju, sláið 2 sinnum uppá prjóninn og 1 lykkja slétt = 4 lykkjur fleiri.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Endurtakið síðan umferð 3-16 í framhaldinu þar til stykkið mælist ca 43 cm, mælt meðfram miðju lykkjum, eða að óskaðri lengd – stillið af að enda eftir 12. umferð í mynstri. Fellið nú af þannig: * Fellið laust af 3 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, fellið uppsláttinn af *, endurtakið frá *-* þar til allar lykkjur hafa verið felldar af. Klippið frá og festið enda.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 190-37

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Nicole Bourbeau wrote:

Bonjour Au 15e rang vous dites de lachez les jetes est-ce qu´on les lache tous Ou seulement les 1ers comme les rangs precedents

16.12.2021 - 03:32

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bourbeau, les jetés du rang 14 sont tous lâchés au rang 15 - comme on le montre dans cette vidéo. Bon tricot!

16.12.2021 - 07:37

country flag Bourbeau wrote:

Bonjour, au 15e rang vous dites lachez les jetes \r\nEst-ce tous les jetes ou seulement les 1er jetes commen dans les rangs precedents \r\nMerci

16.12.2021 - 03:30

country flag Janette Gwillim wrote:

Do you knit the two strands together. Or each strand of yarn separately. Such as alternating yarn.As 150 grams doesn’t seem much to make the scarf.

14.05.2020 - 21:11

DROPS Design answered:

Dear Janette, thi little triangular shaped scar is knitted fom one strand of Alpaca Bouclé yarn of the Ocean green color. The yarn itself is light and airy as well as warn and knitted with a fairly thick needle, therefore the given amount should be enough. Happy Knitting!

15.05.2020 - 03:18

country flag Margaret Jean Tabar wrote:

I don't see how on Row 1 (and all odd RS rows) I can have 8 YOs and only add 4 stitches. Also, on Row 2 (and all even WS rows) don't see how I am knitting in the 2nd of the previous row YO's while adding 4 YOs and still only adding 2 stitches. None of it makes sense. Please help!!! Thank you.

06.01.2020 - 21:31

DROPS Design answered:

Dear Mrs Tabar, the double yarn overs on row 1 are worked like this = each time you work 2 yarn overs you increase only one stitch - see INCREASE TIP 1 and INCREASE TIP 2. On row 2, you make only 2 double yarn overs = you increase 2 stitches. Happy knitting!

07.01.2020 - 08:30

country flag Alessia Laudo wrote:

Avviare 13 maglie con i ferri circolari n° 7 ed il filato Alpaca Bouclé. Lavorare come segue: FERRO 1 (= diritto del lavoro): 1 maglia diritto, 2 maglie gettate, 3 maglie diritto, 2 maglie gettate, 5 maglie diritto (= maglie centrali), 2 maglie gettate, 3 maglie diritto, 2 maglie gettate, 1 maglia diritto = 17 m. Inserire 1 segno nella maglia centrale. Non fa 21 maglie?

18.11.2019 - 18:45

DROPS Design answered:

Buongiorno Alessia. Le due gettate (la gettata doppia) vengono contate come una maglia sola, perché al ferro successivo viene lavorata una sola gettata e fatta cadere l’altra. Buon lavoro!

18.11.2019 - 21:55

Sylvie wrote:

Je ne comprends pas les expli du chale rang 2. doit on rajouter 2 jetés aux jetés du rang 1? ENSUITE "tricoter à l'endroit jusqu'à ce qu'il reste 1 maille, 2 jetés, 1 maille endroit = on augmente 2 mailles." 1 je comprends ou il faut inserer les 2 AUGMENTATIONS. C°EST PAS CLAIR CES EXPLI. : ce signe= Ca signifie quoi?

04.01.2019 - 15:01

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvie, chaque augmentation se fait avec 2 jetés (cf AUGMENTATIONS), au rang suivant, on n'en tricote qu'un seul des deux. Au rang 2, on tricote: 1 m end, 2 jetés (= 1 augmentation), on continue à l'endroit jusqu'à ce qu'il reste 1 m, on fait 1 jeté avant la dernière maille et on tricote cette dernière maille à l'endroit = on a augmenté 2 mailles. Bon tricot!

04.01.2019 - 15:14

country flag Waltraud wrote:

Na ja. Die Wolle ist absolut super. Das Modell finde ich eher merkwürdig. Die Fallmaschen wirken mit glattem Garn (wie beim Tutorial) erheblich besser, desgleichen die Löcher der Zunahmen. Ich habe schließlich Nadeln Nr. 6 genommen und die Zunahmen am Rand nicht mit Umschlägen, sondern 2 M aus einer Masche, und die Zunahmen in der Mitte ganz weggelassen. Habe also alles in kraus gestrickt, was ich dem Charakter des Garns eigentlich angemessener finde. Ist natürlich Geschmackssache.

09.11.2018 - 16:04

country flag MARTA MARANGONI wrote:

Salve, stò provando a fare il modello sopra e ho un problema con la riga 15. Cosa vuol dire "far cadere le maglie gettate"? devo far cadere il primo filo come per tutte le altre gettate doppie e poi? Lavorare a dritto? Grazie mille Marta

10.09.2018 - 09:11

DROPS Design answered:

Buongiorno Marta. Alla riga 15, deve far cadere entrambe le maglie gettate. Il video che alleghiamo può aiutarla. Buon lavoro!

10.09.2018 - 09:43

country flag Lindis wrote:

Hei. Ser på oppskriften at det i ønsketips 1 skal bli hull ved hver side. Men på bilde er det ikke strikket med hull ytterst på hver rad oppover?

17.08.2018 - 20:58

DROPS Design answered:

Hej Lindis, jo der er faktisk hul i hver side, men du ser ikke den kant, da den er øverst på sjalet. Kanten du ser er de yderste (og sidste) pinde du strikker. Du bestemmer naturligvis selv om du vil have hul i kanten eller om du vil strikke udtagningerne i hver side drejet. God fornøjelse!

30.08.2018 - 15:11