DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3451.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 192-56
DROPS Design: Mynstur ne-294
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

GARN Í ALLT SETTIÐ:
Stærð: S/M – M/L

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
350-350 g litur 0206, ljós beige

EYRNABAND:
Stærð: S/M – M/L
Höfuðmál: ca 54/56 - 58/60 cm
Mál: ca 12 x 48 cm.

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100-100 g litur 0206, ljós beige

HÁLSSKJÓL:
Stærð: S/M – M/L
Mál: Ummál að ofan: ca 71-79 cm. Ummál að neðan: ca 94-106 cm. Hæð: ca 28-28 cm.

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-200 g litur 0206, ljós beige

VETTLINGAR:
Stærð: S/M - M/L

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100-100 g litur 0206, ljós beige

EYRNABAND:
PRJÓNFESTA:
18 lykkjur á breidd og 23 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS PRJÓNAR NR 4,5.
DROPS KAÐLAPRJÓNN.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

HÁLSSKJÓL:
PRJÓNFESTA:
15 lykkjur á breidd og 19 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 6: lengd 60 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 60 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

VETTLINGAR:
PRJÓNFESTA:
19 lykkjur á breidd og 24 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS KAÐLAPRJÓNN.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3451.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Eyrnaband: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.
Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.3 og A.4.
Vettlingar: Sjá mynsturteikningu A.5 til A.8.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (á við um hálsskjól, jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 120 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 16) = 7,5.
Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 6. og 7. hverja lykkju og 7. og 8. hverja lykkju slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um vettlinga, op fyrir þumal):
Prjónið fram að lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki í), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.
Næsta útaukning er prjónuð þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Haldið svona áfram með útaukningu í annarri hverri umferð, þ.e.a.s. aukið út allan tímann að utan verðu við útauknar lykkjur.

ÚRTAKA-2 (á við um vettlinga, efst á vettling):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman fyrir miðju að aftan í lokin.

EYRNABAND:
Fitjið upp 22-22 lykkjur á prjón 4,5 með Nepal.
Prjónið 4 umferðir slétt og aukið jafnframt út um 4 lykkjur jafnt yfir í 3. umferð = 26-26 lykkjur.
Prjónið A.1 (= 26 lykkjur). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er A.2 endurtekið til loka.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið þar til stykkið mælist ca 47-51 cm, en ef mögulegt er, að það er fallegt ef mynstrið endar eftir 2. umferð í A.2. Prjónið 4 umferðir slétt og fækkið jafnframt um 4 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 22-22 lykkjur.
Eftir 4 umferð með sléttum lykkjum er fellt af með sléttum lykkjum frá réttu.

FRÁGANGUR:
Saumið eyrnabandið saman við miðju að aftan innan við affellingarkantinn/uppfitjunarkantinn.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 192-216 lykkjur á hringprjón 5 með Nepal.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.3A hringinn (= 8-9 mynstureiningar með 24 lykkjum). Þegar stykkið mælist 4 cm er prjónað A.3B hringinn = 160-180 lykkjur í umferð.
Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið A.4 hringinn (= 8-9 mynstureiningar með 20 lykkjum).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka eru 120-135 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón með rönguna út.
Þegar stykkið mælist 24-24 cm er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 16-19 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 104-116 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Hálsskjólið mælist ca 28-28 cm ofan frá og niður.

-------------------------------------------------------

VETTLINGUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp.

HÆGRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 38-38 lykkjur á sokkaprjón 3 með Nepal.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff þannig: * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 5 sinnum, prjónið A.5A (= 16 lykkjur) og endið með 2 lykkjum slétt. Haldið svona áfram með stroff í 4-5 cm.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 8 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 8 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, prjónið A.5b (= 16 lykkjur sem fækkað er í 14 lykkjur) og endið með 2 lykkjur slétt = 34-34 lykkjur í umferð.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 18 lykkjur sléttprjón (= innan í lófa), A.6 (= 14 lykkjur) og endið með 2 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur, en þegar A.6 hefur verið prjónað til loka er A.7 síðan endurtekið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-12 cm er sett 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð. Prjónamerkið merkir hvar auka á út fyrir þumli. Þ.e.a.s. í næstu umferð er aukið út fyrir opi fyrir þumal hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út hvoru megin við útauknar lykkjur í annarri hverri umferð alls 5-6 sinnum = 44-46 lykkjur.
Á eftir síðustu útaukningu er 11-13 þumallykkjur settar á þráð.
Haldið áfram hringinn eins og áður og fitjið upp 1 nýja lykkju á prjóninn yfir opi fyrir þumal í fyrstu umferð = 34-34 lykkjur.
Þegar A.7 hefur verið prjónað alls 3 sinnum á hæðina er A.8 prjónað = 32-32 lykkjur. Síðan er haldið áfram hringinn í sléttprjóni yfir allar lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 24½-26½ cm (nú er eftir ca 3½ cm til loka – mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd).
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki á eftir næstu 16 lykkjum í umferð.
Nú eru eftir 16 lykkjur á milli síðasta og fyrsta prjónamerki.
Prjónamerkin eru nú notuð þegar fækka á lykkjum í hvorri hlið á vettlingi. Þ.e.a.s. ef A.8 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-2 = 4 lykkjur færri. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 3 sinnum og síðan í hverri umferð alls 3 sinnum = 8 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 28-30 cm ofan frá og niður.

ÞUMALL:
Setjið til baka 11-13 þumallykkjur af þræði á sokkaprjón 4. Prjónið að auki upp 4-3 lykkjur aftan við þumal = 15-16 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til sjálfur þumallinn mælist ca 4½-5 cm (nú er eftir ca ½ cm til loka – mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 2 umferðir slétt þar sem allar lykkjurnar eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 í báðum umferðum = 4-4 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel.

VINSTRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 38-38 lykkjur á sokkaprjón 3 með Nepal. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff þannig: * 2 lykkjur slétt, A.5A (= 16 lykkjur), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 5 sinnum, prjónið A.5A (= 16 lykkjur) og endið með 2 lykkjum slétt. Haldið svona áfram með stroff í 4-5 cm.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið A.5B (= 16 lykkjur sem fækkað er í 14 lykkjur), 2 lykkjur slétt saman, 8 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman og endið með 8 lykkjur slétt = 34-34 lykkjur í umferð.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón, A.6 (= 14 lykkjur) og endið með 18 lykkjur sléttprjón (= innan í lófa). Haldið svona áfram með mynstur, en þegar A.6 hefur verið prjónað til loka er A.7 síðan endurtekið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-12 cm er sett 1 prjónamerki í síðustu lykkju í umferð. Prjónamerkið merkir hvar auka á út fyrir þumli. Þ.e.a.s. í næstu umferð er aukið út fyrir opi fyrir þumal hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út hvoru megin við útauknar lykkjur í annarri hverri umferð alls 5-6 sinnum = 44-46 lykkjur.
Á eftir síðustu útaukningu er 11-13 þumallykkjur settar á þráð.
Haldið áfram hringinn eins og áður og fitjið upp 1 nýja lykkju á prjóninn yfir op fyrir þumal í fyrstu umferð = 34-34 lykkjur.
Þegar A.7 hefur verið prjónað alls 3 sinnum á hæðina er A.8 prjónað = 32-32 lykkjur. Síðan er haldið áfram hringinn með sléttprjóni yfir allar lykkjur.
Prjónið þar til stykkið mælist 24½-26½ cm (nú er eftir ca 3½ cm til loka – mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd).
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki á eftir næstu 16 lykkjum í umferð.
Nú eru eftir 16 lykkjur á milli síðasta og fyrsta prjónamerki.
Prjónamerkin eru nú notuð þegar fækka á lykkjum í hvorri hlið á vettlingi. Þ.e.a.s. ef A.8 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-2 = 4 lykkjur færri. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 3 sinnum og síðan í hverri umferð alls 3 sinnum = 8 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 28-30 cm ofan frá og niður.
Prjónið þumal á sama hátt og á hægri vettlingi.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = Kúla: Aukið út um 2 lykkjur með því að prjóna 1 lykkju slétt framan í og aftan í sömu lykkju þar til komnar eru 3 lykkjur, prjónið 3 umferðir sléttprjón fram og til baka yfir þessar 3 lykkjur. Felið síðan af frá réttu þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 1 lykkja eftir).
symbols = Kúla: Aukið út um 3 lykkjur með því að prjóna 1 lykkju slétt framan í og aftan í sömu lykkju þar til komnar eru 4 lykkjur, prjónið 4 umferðir sléttprjón fram og til baka yfir þessar 4 lykkjur. Felið síðan af frá réttu þannig: Steypið annarri lykkju yfir fyrstu lykkju, steypið þriðju lykkju yfir fyrstu lykkju og steypið að lokum fjórðu lykkju yfir fyrstu lykkju (= 1 lykkja eftir).
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjóninn framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 192-56

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (3)

country flag Christine wrote:

Bonjour, Je suis au tout début du patron et avant d’entamer A.1 quand on demande de tricoter 4 rangs endroit, je tricote recto verso en endroit (point mousse) ou je donne un fini jersey et donc j’alterne endroit et envers? J’ai tricoté 4 rangs endroit, mais après ca ne semble pas être une base valable pour bâtir la suite du motif avec A.1 …

08.08.2023 - 09:04

DROPS Design answered:

Bonjour Christine, pour le bandeaux, vous commencez par 4 rangs endroit, autrement dit 2 côtes mousse. Vous tricotez ensuite A.1 (n'oubliez pas d'augmenter au 3ème rang endroit), puis vous répétez A.2 jusqu'à la hauteur indiquée, terminez ensuite par 4 rangs endroit (en diminuant) et rabattez. vous aurez ainsi 4 côtes mousse au milieu dos du bandeau (partie derrière la nuque). Bon tricot!

08.08.2023 - 09:26

country flag Lilou wrote:

Bonjour trop de modèles sur aiguilles doubles pointes!!.... dommage

24.09.2020 - 09:23

DROPS Design answered:

Bonjour Lilou, vous trouverez ici comment adapter un modèle sur aiguilles droites. Nombreuses sont celles qui ont finalement adopté le tricot en rond, n'hésitez pas à essayer. Nos vidéos sont là pour vous aider. Bon tricot!

24.09.2020 - 09:57

country flag Jeannette Katzen wrote:

I love this ear warmer/head band so much, but i can't follow the pattern because i knit with written words and NOT the charts that were provided. I have never learned how to do that and i don't think this pattern is the way to start. It looks SO confusing right now. I am 72 years old and have had a little trouble trying to learn easier charts. Is there anyway to get this pattern with written words? I have 4 granddaughters to do this for. Thanking you so much, Jeannette

19.03.2020 - 17:02

DROPS Design answered:

Dear Jeanette, we are sorry, but we cannot adapt our patterns to each request. However we think that it is well worth to try and make sense of the diagrams, as they not only show the very next step (like the written out patterns), but you can see the stiches and rows in relations to each other. HERE you can find a lesson on our site about how to read knitting diagrams, and also, you can always ask for help in person or over the phone, in the store where you bought your DROPS yarn from. Happy Knitting!

19.03.2020 - 21:57