DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3190.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Alas de Libelula

Prjónaður bolero úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað frá ermi og að miðju að aftan í gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 200-25
DROPS Design: Mynstur vs-048
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S/M – L/XL – XXL/XXXL

EFNI:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-250-300 g litur 04, fífill

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 80 cm fyrir sléttprjón og gatamynstur.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm eða 60 cm fyrir kanta.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3190.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA:
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 70 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 4 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 12) = 5,5. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 4. og 5. hverja lykkju og 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. Lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.11. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um í hvorri hlið á ermum):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út í hvorri hlið á ermi með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni þar til þær ganga jafnt upp í A.2/A.4.

LEIÐBEININGAR UM STUTTAR UMFERÐIR:
Þegar snúið er við mitt í stykki þegar prjónaðar eru stuttar umferðir, takið fyrstu lykkjuna óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, herðið á þræði og prjónið næstu lykkju slétt (og ekki of stíft). Þetta er gert til að koma í veg fyrir að það myndist stór göt í snúningunum).

------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón í 2 hlutum frá ermi að miðju aftan á baki. Síðan er stykkið saumað saman við miðju að aftan og mitt undir ermum.

ERMAR OG HÁLFT BAKSTYKKI (lesið allan kaflann áður en byrjað er að prjóna):
Fitjið upp 70-74-78 lykkjur á hringprjón 3,5 með Belle. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 12 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – sjá ÚRTAKA = 58-62-66 lykkjur.
Prjónið A.1 með 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið (1. umferð í A.1 er prjónuð frá röngu).
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er skipt yfir á hringprjón 4,5.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, 0-2-4 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 yfir næstu 16 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið A.3 (= 22 lykkjur), prjónið A.4 yfir næstu 16 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið 0-2-4 lykkjur sléttprjón og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6-6-7 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 2½-2½-2 cm millibili alls 11-11-13 sinnum í hvorri hlið = 80-84-92 lykkjur (þegar síðasta útaukningin í hvorri hlið hefur verið gerð til loka, mælist stykkið ca 31 cm frá uppfitjunarkanti). Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við þessa umferð, prjónamerkin merkja hvar ermasaumur endar. ATH: Athugið vel að gatamynstrið sem útskýrt er að neðan er prjónað smá stund á undan síðustu útaukningu).
JAFNFRAMT þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað alls 3 sinnum á hæðina, prjónið mynstureiningarnar áfram einu sinni á hæðina, en nú enda mynstureiningarnar eftir 4 umferð (þ.e.a.s. á eftir umferð merktum með þríhyrningi í A.2). Stykkið mælist nú ca 25 cm frá uppfitjunarkanti. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (þ.e.a.s. mitt í A.3). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.
Nú á gatamynstrið í A.3 að «teygja» sig út að hliðum, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, haldið áfram með A.2 eins og áður þar til 23 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki mitt í stykki, prjónið A.5 (= 46 lykkjur – prjónamerki situr nú mitt í A.5), haldið áfram með A.4 eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni að hlið. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, haldið áfram með A.2 eins og áður þar til 31 lykkja er eftir á undan prjónamerki, prjónið A.6 (= 62 lykkjur), haldið áfram með A.4 eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til lykkjur með stjörnu í A.6 eru prjónaðar yfir allar lykkjur í umferð alveg að 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.7 (= 11 lykkjur), prjónið A.8 þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 12-13-15 mynstureiningar með 2 lykkjum), prjónið A.9 (= 6 lykkjur), prjónið A.10 þar til 13 lykkjur eru eftir í umferð (= 12-13-15 mynstureiningar með 2 lykkjum), prjónið A.11 (= 11 lykkjur) og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 49-49-51 cm frá uppfitjunarkanti (vegna mynsturs þá kemur stykkið til með að mælast lengra mitt í stykki en yst í hvorri hlið – mælið meðfram hlið þar sem stykkið er styst).
Prjónið síðan stuttar umferðir í garðaprjóni eins og útskýrt er að neðan.

STUTTAR UMFERÐIR:
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Byrjið frá réttu og prjónið garðaprjóni með stuttum umferðum fram og til baka yfir lykkjur fram að prjónamerki, þ.e.a.s. prjónið fyrst 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir 40-42-46 lykkjur, síðan 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir 38-40-44 lykkjur o.s.frv. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir 2 lykkjur færri í hvert skipti – sjá LEIÐBEININGAR UM STUTTAR UMFERÐIR.
JAFNFRAMT í 4. hverri umferð er fækkað um 1 lykkju í byrjun á umferð frá réttu með því að prjóna 2 fyrstu lykkjurnar slétt saman. Þetta er gert til að koma í veg fyrir horn mitt að aftan.
Haldið áfram með stuttar umferðir og úrtöku í 4. hverri umferð þar til prjónað hefur verið fram og til baka yfir síðustu 2 lykkjur í þessari hlið.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir allar lykkjur.
Snúið stykkinu, byrjið frá röngu og prjónið garðaprjón með stuttum umferðum fram og til baka yfir lykkjur fram að prjónamerki alveg eins og í hinni hliðinni á stykkinu. Þ.e.a.s. prjónið fyrst 2 umferðir garðaprjón yfir 40-42-46 lykkjur, síðan 2 umferðir garðaprjón yfir 38-40-44 lykkjur o.s.frv.
JAFNFRAMT í 4. hverri umferð er fækkað um 1 lykkju í byrjun á umferð frá röngu með því að prjóna 2 fyrstu lykkjur slétt saman. Haldið áfram með stuttar umferðir og úrtöku í 4. hverri umferð þar til prjónað hefur verið fram og til baka yfir 2 síðustu lykkjur í þessari hlið.
Prjónið nú 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu yfir allar lykkjur. Setjið lykkjur á þráð eða skiptið yfir á hringprjón 4,5 og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið hina ermina og hálft bakstykkið alveg eins.

FRÁGANGUR:
Saumið bæði stykkin saman við miðju að aftan með lykkjuspori eða saumið innan við affellingarkantinn þar sem lykkjur voru felldar af. Saumið ermasauma – byrjið neðst á ermi og saumið kant í kant í ystu lykkjubogana upp að prjónamerki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 03.05.2021
STUTTAR UMFERÐIR:... Prjónið 1 umferð frá réttu yfir allar lykkjur...

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju þar sem lykkjan er ekki lengur til, eða búið er að fækka um þessa lykkju áður, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt, steypið fyrstu lykkjunni sem prjónuð var yfir hinar 2 þannig að lykkjan liggi utan um hinar 2 lykkjurnar (= 1 lykkja færri)
symbols = síðasta endurtekningin endar eftir þessa umferð
symbols = þetta gatamynstur kemur til með að halda áfram út í hvorri hlið alveg eins og áður þannig að það verða færri og færri lykkjur hvoru megin við lykkjur merktar með stjörnu
symbols = prjónstefna
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 200-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag Maria Raposo Marques wrote:

Good evening, I have a question regarding the "short rows" part of the pattern. Should I decrese the number of stitches I'm knitting every 2nd row or every 4th row? (I think I'm confused by the terms "ridge" and "row") Thank you in advance.

11.03.2024 - 00:07

DROPS Design answered:

Dear Maria, as indicated in the GARTER STITCH tip above: 1 ridge = 2 garter stitch rows. Since you decrease every 2 ridges then you decrease on every 4th row. Happy knitting!

11.03.2024 - 00:35

country flag Monica wrote:

Hola! En las instrucciones dice que la marca para coser las mangas es a los 31 cm, tras completar 4 veces A3 y haber aumentado 22 puntos. Entiendo que llegas a A5 con 80 puntos, pero 80 menos 46 puntos de A5 son 34, 17 puntos a cada lado para hacer A2 y A4, me falta uno para poder hacer las dos repeticiones de 8 puntos + 2 del borde. No hay que hacer dos repeticiones? \r\nCuando repites desde el triángulo 4 veces en total solo se hacen los agujeritos de la tercera línea una vez? Gracias!

28.11.2023 - 19:53

DROPS Design answered:

Hola Monica, no tienes que trabajar repeticiones completas de A.2 y A.4, puedes trabajar estos diagramas sobre los puntos que tengas en ese momento entre los puntos del borde y los 46 puntos centrales. Ten en cuenta que comenzarás a trabajar A.5 cuando la labor mida 25 cm desde el borde de montaje (por lo que aún no has terminado los aumentos). Los puntos aumentados después de empezar con A.5 se trabajarán en A.2/ A.4.

11.12.2023 - 00:37

country flag Karen wrote:

Good morning. Thank you for your quick response regarding "Short Rows". I understand however I still don't get how you can decrease 1 stitch at the beginning of every forth row on the right side as the forth row will be on the wrong side (and centre of piece) given the two row "ridge". Do you mean every fifth row?

20.04.2023 - 16:49

DROPS Design answered:

Hi Karen, You start the first decrease from a right side row and repeat the decrease every 4th row after that. Happy knitting!

21.04.2023 - 07:36

country flag Karen wrote:

Ok, pattern going great until short rows. If one ridge = 2 rows and you only decrease 1 stitch at the beginning of 2nd ridge (every 4 th row) * which is a wrong side row , how do you work each ridge (2 rows knit) over 2 fewer stitches each time and on the “right” side. Thanks

18.04.2023 - 23:01

DROPS Design answered:

Dear Karen, starting from RS you will work 1 ridge over 40-42-46 sts, then work 1 ridge over 2 sts less = over 38-40-44 sts; then work 1 ridge over the same number as before, and work 1 ridge over 2 sts less (36-38-42) and continue like this, always starting each ridge from RS. Happy knitting!

19.04.2023 - 07:53

country flag Annemarie wrote:

Liebes Drops Team Ich beziehe mich auf den Teil der Anleitung VERKÜRZTE REIHEN. Nachdem die erste Hälfte der Arb. gearbeitet wurde soll ich eine Hin-Reihe mit 84M sticken (Gr. L-XL) Wie ist das möglich? Ich habe ja zuvor in jeder 4. R 1 M abgenommen. 🤔 Ist die Angabe von 84 M korrekt? Danke für eine Antwort. Und danke für Eure tollen Anleitungen. Liebe Grüsse Annemarie.

01.03.2021 - 11:56

DROPS Design answered:

LIebe Annemarie, also ja stimmt, das muss weg von den deutschen Anleitung, Sie stricken jetzt nur noch 1 Hin-Reihe rechts über alle Maschen, und dann stricken Sie verkürzten Reihen, die mit einer Rückreihe anfangen. Viel Spaß beim stricken!

01.03.2021 - 13:31

country flag Jeannie wrote:

Still having problem with the increases. If the increases are at each side of sleeve by the garter stitches, are A2 and A4 adjusted for the increases so that when I get to A5 the extra stitches needed are there? If they are adjusted, then the knit 2 together with the yarn overs would be in different places each time the repeats are done. Or are A2 and A4 worked straight up and all increases are just in stockinette next to the edge stitches? If that is so, when are the increases worked into A5?

29.01.2021 - 19:37

DROPS Design answered:

Dear Jeanny, I'm sorry I don't understand your question. You have to increase on each side, so that the new stitches will be worked in A.2 and in A.4 as far as there are enough stitches to be worked in pattern (you always have to have enough stitches to work 1 dec + 1 yarn over in the lace pattern row in diagram). When piece measures 25 cm then you will work A.5 over A.3 to let this pattern be worked over more stitches on each side- but the number of stitches don't increase anymore. Hope this helps. Happy knitting!

01.02.2021 - 07:59

country flag Jeannie wrote:

I still do not know where the increases are. Are they between A2 and A3?

18.01.2021 - 20:24

DROPS Design answered:

Dear Jeannie, you have to increase on each side of piece, after the first 2 edge stitches in garter stitch and before the last 2 stitches in garter stitch = 2 sts increased on each row, these increased are worked in A.2 /A.4. Happy knitting!

19.01.2021 - 07:15

country flag Jeannie wrote:

Sorry, I have another question. Is A2 and A4 only worked over the first 8 stitches or over the whole 16 stitches? ( 8 x 2) . In the size that I am making, I have to knit the 2 edge stitches and then add 2 stitches before I start A2 , so where do I start the increase stitches? Before the A2 stitches or at the beginning of A3? The directions do not say where these start, it just says to increase 11 stitches.

17.01.2021 - 01:34

DROPS Design answered:

Dear Jeanie, in 2nd size work: 2 sts in garter st, 2 sts in stocking st, A.2 over the next 16 sts, A.3, A.4 over the next 16 sts, 2 sts stocking st, 2 sts garter st. Diagrams are worked from bottom up, starting on the corner on the right side from RS, work diagram A.2 and A.4 a total of 2 times (= 8 sts x 2 = 16 sts). Happy knitting!

18.01.2021 - 09:20

country flag Jeannie wrote:

Thank you for your answer to my other question. I have another one. Chart A5 is supposed to have 46 stitches, I only have 40. Where are the other 6 stitches? If you take the 22 stitches from A3 and add the other 8 stitches from half of the 16 stitches from the deciding at the beginning of the pattern, there are only 40 stitches. Also, when the 11 stitches are added every 4th row, where are they added, at the side next to the 2 edge stitches or somewhere else. These charts are confusing.

09.01.2021 - 05:33

DROPS Design answered:

Dear Jeannie, A.5 is worked over the middle 46 stitches (= the 22 sts from A.3 worked before + 12 stitches on each side of A.3) , on either side of A.5 you work A.2 as before (= at the beginning of the row after the 2 sts in garter stithc) before A.5 and A.4 as before after A.5 (before the last 2 sts in garter stitch). Happy knitting!

11.01.2021 - 07:59

country flag Jeannie wrote:

When does A5 start? At the triangle on A2 or when the 4th time in height is done? The directions are very confusing and there are too many charts to keep tract of.

05.01.2021 - 01:48

DROPS Design answered:

Dear Jeannie, after you have worked A.2 and A.4 a total of 3 times in height + one more time to row 4 including = approx. 25 cm in height, now work as explained with A.5 in the middle and A.2/A.4 on each side as before. Happy knitting!

05.01.2021 - 11:29