Heim Jacket |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 207-2 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð. Byrjið frá réttu með turkos/grár og prjónið 11-12-12-13-13-14 lykkjur slétt framhjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 22-24-24-26-26-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-36-36-39-39-42 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 44-48-48-52-52-56 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 55-60-60-65-65-70 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 62-72-72-78-78-84 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur út umferðina, snúið og prjónið 1 umferð brugðið til baka (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni). Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR-1: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað LEIÐBEININGAR-2 (á við um kanta að framan): Í þeirri umferð þar sem mynstur er með 2 litum er grunnliturinn í mynstri einnig prjónaður yfir 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 112 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þessum 102 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 34) = 3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT (ofan frá og niður): Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 7-7-7-7-8-8 næstu hnappagötum með ca 7½-7½-8-8-7½-7½ cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Eða að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsi og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til aka frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 112-120-124-128-132-136 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með litnum turkos/grár. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3-3-3-4-4-4 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffi er lokið, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 34-36-38-40-42-44 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 146-156-162-168-174-180 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantar að framan eru prjónaðar í garðaprjóni). Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð við miðju að framan, það á að mæla berustykki frá þessu prjónamerki! Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka - sjá útskýringu að ofan. Ef þú vilt ekki prjóna upphækkun, farðu beint áfram í BERUSTYKKI. BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón fram og til baka með litnum turkos/grár og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 1½-1½-2-2-2-2 cm frá prjónamerki við háls, aukið út um 34-36-40-46-48-52 lykkjur jafnt yfir = 180-192-202-214-222-232 lykkjur. Þegar stykkið mælist 2½-2½-3-3-3-3 cm frá prjónamerki við háls, aukið út um 31-35-37-41-45-47 lykkjur jafnt yfir = 211-227-239-255-267-279 lykkjur. Þegar stykkið mælist 3-3-4-4-4-4 cm frá prjónamerki við hálsmál, byrjar mynstur. Þ.e.a.s. fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 50-54-57-61-64-67 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Sjá LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir í hverri umferð merktri með ör í A.1A eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING-1 – ATH: Fyrsta útauknings umferð er frá röngu og síðan 3 næstu útauknings umferðir frá réttu. Ör-1: Aukið út um 36-36-40-44-44-52 lykkjur jafnt yfir = 247-263-279-299-311-331 lykkjur (nú er pláss fyrir 59-63-67-72-75-80 mynstureiningar með A.1A með 4 lykkjum). Ör-2: Aukið út um 40-42-50-54-60-64 lykkjur jafnt yfir = 287-305-329-353-371-395 lykkjur (nú er pláss fyrir 46-49-53-57-60-64 mynstureiningar A.1A með 6 lykkjum). Ör-3: Aukið út um 20-26-30-34-44-48 lykkjur jafnt yfir = 307-331-359-387-415-443 lykkjur (nú er pláss fyrir 74-80-87-94-101-108 mynstureiningar A.1A með 4 lykkjum). Ör-4: Aukið út um 12-20-24-24-28-32 lykkjur jafnt yfir = 319-351-383-411-443-475 lykkjur (nú er pláss fyrir 77-85-93-100-108-116 mynstureiningar A.1A með 4 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með litnum gulgrænn og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umferð eftir A.1, aukið út um 2-6-6-10-6-14 lykkjur jafnt yfir = 321-357-389-421-449-489 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 20-22-24-25-27-29 cm frá prjónamerki við hálsmál. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð með gulgrænn þannig: Prjónið 52-57-60-66-72-79 lykkjur í garðaprjóni og sléttprjóni eins og áður (= framstykki), setjið næstu 62-70-80-84-86-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 93-103-109-121-133-147 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki), setjið næstu 62-70-80-84-86-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 52-57-60-66-72-79 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 213-233-249-273-301-329 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 56-61-65-71-78-85 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 101-111-119-131-145-159 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð aðeins síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka með litnum gulgrænn og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 5-5-5-4-4-4 cm millibili alls 5-5-5-6-6-6 sinnum í hvorri hlið = 233-253-269-297-325-353 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 30 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 75-83-87-99-107-115 lykkjur jafnt yfir = 308-336-356-396-432-468 lykkjur (það er aukið út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna, dragi stykkið saman). Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * prjónið 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 62-70-80-84-86-92 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 70-78-90-94-98-104 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerki undir ermi á að nota síðar þegar lykkjum er fækkað mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með litnum gulgrænn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-2½-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 10-13-18-19-19-21 sinnum = 50-52-54-56-60-62 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 38-36-34-33-31-30 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 7 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-20-18-20-20-22 lykkjur jafn yfir = 68-72-72-76-80-84 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 7 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 45-43-41-40-38-37 cm frá skiptingu og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (13)
Gunilla Fransson wrote:
Hej, stickar en hel del efter era mönster. Är van vid flerändsstickning och mönsterstickning. MEN, är nu färdig med denna modell och undrar varför hela plagget har en dragning åt ena sidan från ärmhålan och ner? Kan inte förstå varför-har inte vridit plagget i vått tillstånd. Tacksam för hjälp.
04.03.2020 - 10:17DROPS Design answered:
Hei Gunilla. Det var jo kjedelig å høre. Hvilket garn har du brukt? Er det mye "snurr" på garnet /hard spinning slik at trøyen har vridd seg? Evnt . kan du ta med deg jakken til din butikk /der du har kjøpt garnet og la de se på jakken og evnt gi deg en tilbakemeldig. mvh DROPS design
09.03.2020 - 08:05Antsje Tiekstra wrote:
Ik ben bezig met een patroon van boven naar beneden aan het breien. Maar snap niet hoe je de mouwen moet in passen. Je z et 10 extra steken op , wanneer plaats je die tussen de rest van de mouw. Is dat om de zoveel steken of in één keer
29.10.2019 - 11:56DROPS Design answered:
Dag Antsje,
Wanneer je de pas hebt gebreid ga je op een gegeven moment het werk scheiden, waarbij je de steken van de mouwen op een hulpdraad zet en links laat liggen en vervolgens eerst het lijf verder breit. Op dat moment zet je ook de 10 steken op. Dit zijn 10 steken tussen beide voor- en achterpanden. Deze zitten onder de oksel. Wanneer je de mouwen gaat breien, zet je ook 10 steken op onder de oksel bij de mouwen. Bij het afwerken naai je de steken onder de mouwen dicht, dus de 10 steken van de mouw worden tegen de 10 steken van het lijf genaaid.
30.10.2019 - 11:05Gillian wrote:
This is so wearable and I love the colours!
14.09.2019 - 07:33