DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Crisp Air Sweater

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki og norrænu mynstri úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 207-14
DROPS Design: Mynstur u-891
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-400-450-500-550-600 g litur 50, sægrænn
100-100-100-100-100-150 g litur 69, ljós grágrænn
100-100-100-100-150-150 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 54, beige

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni/norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón/norrænt mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

UPPHÆKKUN (aftan í hnakka):
Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = miðja að aftan. Byrjið frá réttu og prjónið 14-15-16-16-17-18 lykkjur slétt framhjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 28-30-32-32-34-36 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 42-45-48-48-51-54 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 56-60-64-64-68-72 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið slétt að miðju að aftan. Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 31 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 31) = 3,5.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekk i myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 100-104-108-112-116-124 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með litnum sægrænn. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 3 cm. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Ef þú vilt ekki prjóna upphækkunina, farðu beint áfram í BERUSTYKKI.

BERUSTYKKI:
Prjónið nú mynstur A.1, JAFNFRAMT í hverri umferð með stjörnu er aukið út þannig:
STJARNA-1: Aukið út 26-28-30-32-34-38 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 126-132-138-144-150-162 lykkjur (nú er pláss fyrir 21-22-23-24-25-27 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
STJARNA-2: Aukið út 42-42-48-48-48-48 lykkjur jafnt yfir = 168-174-186-192-198-210 lykkjur (nú er pláss fyrir 28-29-31-32-33-35 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjum).
STJARNA-3: Aukið út 48-54-54-60-60-60 lykkjur jafnt yfir = 216-228-240-252-258-270 lykkjur (nú er pláss fyrir 36-38-40-42-43-45 mynstureiningar með 6 lykkjum).
STJARNA-4: Aukið út 29-42-45-48-52-60 lykkjur jafnt yfir = 245-270-285-300-310-330 lykkjur (nú er pláss fyrir 49-54-57-60-62-66 mynstureiningar A.1 með 5 lykkjum).
STJARNA-5: Aukið út 27-34-43-44-50-54 lykkjur jafnt yfir = 272-304-328-344-360-384 lykkjur (nú er pláss fyrir 34-38-41-43-45-48 mynstureiningar A.1 með 8 lykkjum).
Þegar 1 umferð er eftir í mynsturteikningu, mælist stykkið ca 22 cm frá prjónamerki. Nú er prjónað áfram mismunandi eftir stærðum þannig:
Í stærð S er hoppað yfir næsta kafla og prjónað er áfram frá kafla með Allar stærðir – sjá útskýringu að neðan.

Stærð M, L, XL, XXL og XXXL:
Prjónið nú áfram með mynstur A.2. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, mælist stykkið ca 24 cm frá prjónamerki. Stærð M er nú lokið (ef stykkið er styttra en 24 cm, prjónið áfram með litnum sægrænn og sléttprjóni að réttu máli). Í stærð L, XL, XXL og XXXL prjónið hringinn með litnum sægrænn og sléttprjóni þar til stykkið mælist 26-28-30-32 cm frá prjónamerki, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 25-27-29-31 cm (frá prjónamerki).Aukið út 0-12-20-28 lykkjur jafnt yfir = 328-356-380-412 lykkjur.

Allar stærðir:
Síðasta umferð á berustykki er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 40-44-47-52-57-63 lykkjurnar (= hálft bakstykki), setjið næstu 56-64-70-74-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 80-88-94-104-114-126 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 56-64-70-74-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 40-44-47-52-57-63 lykkjur sem eftir eru á prjóni (= hálft bakstykki). Prjónið síðan ermar og fram- og bakstykki hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 176-192-208-228-252-276 lykkjur fyrir fram- og bakstykki. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi (= 4-4-5-5-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Í stærð S er prjónað áfram eins og útskýrt er að neðan og í stærð M, L, XL, XXL og XXXL er hoppað yfir næsta kafla og prjónað er áfram frá ALLAR STÆRÐIR – sjá útskýringu að neðan.

Stærð S:
Nú eru 176 lykkjur í umferð. Prjónið nú mynstur A.2 hringinn í umferð. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, haldið áfram eins og útskýrt er að neðan.

Allar stærðir:
Haldið áfram hringinn með litnum sægrænn og sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með ca 7 cm millibili alls 4 sinnum = 192-208-224-244-268-292 lykkjur. Þegar stykkið mælist 29 cm aukið út 36-40-44-48-52-56 lykkjur jafnt yfir = 228-248-268-292-320-348 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið yfir á 1 númeri grófari prjóna ef affellingarkanturinn verður stífur. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 56-64-70-74-76-80 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 nýja lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 64-72-80-84-88-92 lykkjur.
Í stærð S er mynstrið prjónað eins og útskýrt er að neðan, í hinum stærðunum er prjónað áfram frá ALLAR STÆRÐIR – sjá útskýringu að neðan.

Stærð S:
Byrjið umferð á undan 8 nýjum lykkjum undir ermi og prjónið A.2 yfir hverja einingu A.1 (frá berustykki). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið áfram frá ALLAR STÆRÐIR – sjá útskýringu að neðan.

Allar stærðir:
Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur undir ermi (= 4-4-5-5-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn með litnum sægrænn. Þegar stykkið mælist 4-4-4-3-3-3 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3-2-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 11-14-17-18-19-20 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Þegar ermin mælist 37-36-34-33-31-29 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Aukið út 6-8-10-8-10-8 lykkjur jafnt yfir = 48-52-56-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið yfir á 1 númeri grófari prjóna ef affellingarkanturinn verður stífur. Ermin mælist ca 41-40-38-37-35-33 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = sægrænn
symbols = ljós grágrænn
symbols = natur
symbols = beige
symbols = útauknings umferð - sjá útskýringu í uppskrift
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Crisp Air Sweater

Myrna, Canada

Crisp Air Sweater

30yPunto, Spain

Crisp Air Sweater

Anne-gaelle, France

Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Christine wrote:

Hallo, ich möchte mich für die gut verständliche Anleitung bedanken. Es hat mir große Freude bereitet, dieses Modell nachzuarbeiten.

04.10.2020 - 11:02

country flag Gasparetto wrote:

Bonjour pourriez vous me confirmer que les 8 mailles montées de chaque côté sous les manches doivent être tricotées en même temps que le dos et le devant en rond? Du coup quand on commence à tricoter les manches vous nous dites de relever 1 maille dans ces 8 mailles Comment faire et et comment les manches sont raccrochés au dos et devant qui ont éte tricotés ensemble? Merci

03.10.2020 - 08:36

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gasparetto, cette leçon montre, à partir des photos 18A et B, comment tricoter les manches (soit en relevant les mailles dans les (8 dans ce modèle) mailles montées sous la manche ou bien en en montant de nouvelles (on assemble ensuite ces mailles - cf photo24) - dans cette vidéo, vous verrez également à partir d'env. 10:50 comment on commence les manches. Vous pouvez relever les mailles comme vous le souhaitez, placez juste le marqueur au milieu des 8 m pour marquer le début du tour. Bon tricot!

05.10.2020 - 09:05

country flag Lara wrote:

Buongiorno, una volta riprese le nuove 8 maglie della manica (taglia S) come si fa ad "Iniziare il giro prima delle 8 nuove maglie sotto la manica...."? perchè mi sembra che il lavoro non si unisca , avete un video che lo mostri ? Grazie mille per i vostri consigli!

30.09.2020 - 18:15

DROPS Design answered:

Buongiorno Lara. Dopo aver ripreso le maglie, sposta le 8 maglie sul ferro di sinistra e inizia il giro da qui. Ci può essere una piccola discontinuità tra le maglie del davanti/dietro e quelle riprese, ma riuscirà ad aggiustarlo quando i ferma i fili a fine lavoro. Può esserle di aiuto la fig. 18 B di questa lezione. Buon lavoro!

01.10.2020 - 16:28

country flag Isabelle Desbiens wrote:

Si on choisi de faire une réhausse à l'arrière de l'encolure, j'imagine qu'on doit alors utiliser la même grosseur d'aiguilles (soit les plus grosses) que pour le reste du corps, non? Merci pour ce magnifique modèle. Je viens de le débuter avec de la Drops Mérino Extra Fine. Un régal à tricoter!

17.09.2020 - 22:40

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Desbiens, vous pouvez effectivement utiliser les aiguilles plus grosses pour tricoter la réhausse. Bon tricot!

18.09.2020 - 08:34

country flag Isabelle Desbiens wrote:

Jacquard avec aiguilles circulaires Lorsqu'on introduit un nouveau fil (nouvelle couleur ou nouvelle pelotte), comment s'assurer que le fil "tiendra" bien puisqu'à la toute fin on ne peut rentrer les fils dans une couture????

16.09.2020 - 23:13

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Desbiens, cette vidéo montre comment changer de couleur au début d'un tour, il vous suffira ensuite de rentrer les fils. Bon tricot!

17.09.2020 - 10:15

country flag GASPARETTO wrote:

Bonjour Pour commencer le col dois je utiliser l’aiguille circulaire 3,5 De 40 cm ou de 80 cm. Est-ce que la technique du magic loop est adaptée pour ce modèle? Merci

09.09.2020 - 18:49

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gasparetto, pour le col vous pouvez tricoter avec l'aiguille circulaire de 40 cm ou en magic loop avec la 80 cm, comme vous préférez. Bon tricot!

10.09.2020 - 09:25

country flag Patricia Bischof wrote:

Is the model wearing the sweater backwards. It looks like the elevation is at the front

15.07.2020 - 02:13

DROPS Design answered:

Dear Mrs Bischof, this pattern might have been worked without elevation, this means neck is the same both front and back. Happy knitting!

15.07.2020 - 07:45

country flag Christine wrote:

Hei. Er genseren A-formet? Det kan virke sånn på mønsteret.

04.05.2020 - 06:46

DROPS Design answered:

Hei Christine. Om du ser på målskissen til genseren, ser du at den er litt A-formet ja. mvh DROPS desifgn

04.05.2020 - 12:51

country flag Tonje SE wrote:

Hei! Er det noen feil i oppskriften? Det skal først strikkes halskant, deretter starte på bærestykket. Mangler det en rapport på bærestykket? Jeg har strikket mønsteret frem til stjerne nr 2 på bærestykket, og det er ikke mulig at dette skal kunne passe meg og en str M Mvh Tonje SE

23.04.2020 - 09:14

DROPS Design answered:

Hej Tonje, Nej der skal ikke være noget galt..... Du starter med 108 m = ca 50 cm omkreds i halsen. Husker du at tage det antal masker ud, som står for hver stjerne? Efter stjerne 5 har du 304 masker og arbejdet skal måle 22 cm fra mærketråden. God fornøjelse!

28.04.2020 - 15:34

country flag Nathalie wrote:

Hallo und vielen Dank für die Hilfe. Leider habe ich bei den weiteren Zunahmen weiter Probleme, mir das auszurechnen. Könnte man nicht doch die Angaben in die Anleitung schreiben für Raglananfänger wie mich? Ich habe bei der 3. Stern Zunahme irgendwie eine Lösung gefunden. Und jetzt weiß ich bei der 4. nicht weiter. Sehr schade ist das... dabei ist der Pulli so schön und mit nur rechten Maschen eigentlich unkompliziert.

22.11.2019 - 22:20

DROPS Design answered:

Liebe Nathalie, hier lesen Sie wie man gleichmäßig verteilt zunimmt. Sollten Sie weitere Hilfe brauche, nehmen Sie dann Kontakt mit Ihrem DROPS Laden - auch telefonisch oder per E-Mail. Viel Spaß beim stricken!

25.11.2019 - 11:59